Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1993, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1993, Blaðsíða 4
F ordómar í fræðafotum ILesbók Morgunblaðins birtist nýlega langur bálkur greina, alls sjö talsins, eftir Helgu Sigurjónsdóttur um þróun skólamála undanfarna áratugi. Ef allt væri með felldu bæri að fagna ýtarlegum skrifum um skólamál því að allt of sjaldan er um þau fjallað Nokkrar athugasemdir við greinar Helgu Sigurjónsdóttur um „nýskólastefnuna“, sem birtust í febrúar ög mars sl. Eftir INGVAR SIGURGEIRSSON í fjölmiðlum. En því miður hefur ekki verið unnt að gleðjast yfir þessum skrifum Helgu Siguijónsdóttur. Ræður þar mestu að mál- flutningur hennar er morandi af rangfærsl- um, sleggjudómum og dylgjum. Þetta er þeim mun alvarlegra vegna þess að sumar skoðanir sínar klæðir Helga í búning fræði- mennsku þannig að sumir þeirra sem ekki þekkja vel til skólamála kunna að láta blekkjast. Ef benda ætti á allt sem aflaga fer í þessum greinum þyrfti langt mál. Hér verð- ur látið nægja að benda á nokkur atriði, einkum þau er varða uppeldis- og kennslu- fræði og kennaramenntun. Það hefur valdið mér miklum heilabrotum hver geti verið tilgangur Helgu með þessum löngu og ósanngjömu skrifum. Er líkast því sem fyrír henni hafi beinlínis vakað að gera kennaramenntun og uppeldisvísindi tor- tryggileg. Það er einnig afar sárt að sjá hve mjög henni virðist í mun að fínna blóra- böggla fyrir þá þróun íslenskra skólamála sem hún kennir við nýskólastefnu og finnur nánast allt til foráttu. Sérstaklega er ómak- lega vegið að tveimur merkum skólamönn- um, þeim dr. Wolfgang Edelstein forstöðu- manni Max-Planck rannsóknarstofnunar- innar í Berlín, sem um árabil var ráðgjafi menntamálaráðuneytisins um skólamál, og Andra ísakssyni, fyrrverandi prófessor í uppeldisfræði við Háskóla íslands sem nú gegnir ábyrgðarstörfum hjá UNESCO. Að mínum dómi gengur Helga svo langt í því að gera störf þessara manna tortryggileg að hún vegur nærri starfsheiðri þeirra. Hún gerir þá beinlínis að sökudólgum fyrir flestu því sem miður hefur farið í skólum landsins undanfarin ár. Stærsta sök þeirra var að hafa verið forgöngumenn um breytingar á námsefni og kennsluháttum um og eftir 1970. Hún kallar þá tvímenninga jafnvel byltingarforíngja, að vísu innan gæsalappa (2. grein); þeir hafi staðið fyrir byltingu á laun í íslenskum skólamálum eins og Helga segir í fyrirsögn og með hástöfum (4. grein). Kyrrstaða Gerð Að Grósku Glæpur þeirra er stór, því að á þessum tíma var að mati Helgu engra breytinga þörf. Meginforsenda í málflutningi hennar er að frá stríðslokum og fram á 7. áratug hafí verið mikil gróska í íslenskum skólamál- um (1. grein). Þetta er mjög nýstárleg skoð- un hjá Helgu Siguijónsdóttur að ekki sé tekið dýpra í árinni. Það hvarflar að vísu ekki að mér að halda því fram að algjör kyrrstaða hafí verið í skólamálum á þessum tíma, enda varla nokkuð til sem heitir full- komin kyrrstaða, ekki einu sinni í skólum. En hversu mikil var gróskan í skólamálum á sjötta og sjöunda áratugnum? I yfirlýsingu um skólamál sem Félag háskólamenntaðra kennara birti árið 1969 segir m.a.: „Ástandið í ísienzkum skólamái- um hefur undanfarna áratugi einkennst af háskalegri kyrrstöðu í hugsun og stöðnun íföstum, úreltum formum. “ Þetta var niður- staða starfandi kennara eftir ýtarlegar umræður á málþingum og ráðstefnum. Á árunum 1968-1975 skipaði mennta- málaráðuneytið fjölmarga starfshópa til að fara yfír stöðu námsefnis og kennslu í nán- ast öllum námsgreinum í barna- og ungl- ingaskólum. Þess var gætt að starfandi kennarar væru í öllum þessum hópum ásamt öðrum sérfræðingum sem til voru kallaðir. Meðal þeirra sem komu að þessu verki voru Áslaug Friðriksdóttir, fv. skólastjóri, Eyþór Einarsson, grasafræðingur, Haukur Helga- son, skólastjóri, Jón Ásgeirsson, tónskáld, Páll Theodórsson, eðlisfræðingur, Svein- björn Björnsson, nú háskólarektor, Örnólfur Thorlacius, nú rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, og Þórir Ólafsson, nú rektor Kennaraháskóla íslands. Niðurstaða allra þessara hópa var á þann veg að brýn þörf væri á endurskoðun námsefnis og kennslu í öllum námsgreinum. Benda má á tímaritið Menntamál sem góða heimild um viðhorf til skólamála hér á landi. Það kom út reglulega á þessum árum og birtust þar íjölmargar greinar eft- ir íslenska kennara og skólamenn um nauð- syn á endurskoðun námsefnis og kennslu- hátta. Og þegar skoðuð er t.d. útgáfa Ríkis- útgáfu námsbóka frá þessum árum vekur það athygli að frá stríðslokum og fram undir 1960 er nánast ekkert nýtt námsefni gefíð út. Hugmynd Helgu Siguijónsdóttur um að eftirstríðsárin hafí verið sérstakur grósku- tími í skólamálum er einkaskoðun hennar sem erfítt er að styðja rökum. Þau fáu at- riði sem hún tínir til skoðun sinni til stuðn- ings (1. grein) eru léttvæg. Þar vísar hún m.a. til þess að árið 1955 kom út bókin Nýjar menntabrautir eftir dr. Matthías Jón- aSson og telur þá bók eina bestu handbók fyrir kennara sem hún hafí rekist á. Það virðist hafa farið fram hjá Helgu að dr. Matthías, sem var eindreginn talsmaður virkra kennsluhátta, gaf út fleiri merkar bækur. Árið 1971 gaf hann út bókina Nám og kennsla. Menntun í þágu framtíðar (útg. Heimskringla); þar ræðir hann m.a. fyrir- hugaðar breytingar á námsefni og kennslu- háttum og leggur þeim eindregið lið (sjá t.d. ll. og 12. kafla). Hann fékk tvo gesti til að skrifa í bókina um nauðsyn breyting- anna. Annar var Jóhann S. Hannesson, einn af helstu ráðgjöfum ráðuneytisins um breyt- ingastarfið. Hinn var Guðmundur Arnlaugs- son, þá rektor Menntaskólans við Hamra- hlíð og einn af brautryðjendum nýrra við- horfa í stærðfræðikennslu hér á landi. Ég legg áherslu á þetta atriði vegna þess að svo má skilja af því hvernig Helga vitnar í rit dr. Matthíasar (sbr. 3. grein) að hann hafi verið andsnúinn framsækinni skóla- stefnu (nýskólastefnunni eins og Helga kall- ar hana) og þar með þeim breytingum á námsefni og kennsluháttum sem áformaðar voru um og eftir 1970. Þeir sem lesa bók hans Nám og kennslu geta gengið úr skugga um að svo var alls ekki. Ásakanir Helgu um að þessar breytingar hafi verið gerðar á laun eru sérlega ósann- gjarnar (4. grein). Mér er til efs að um nokkra framkvæmd í skólamálum hafí verið haft jafn víðtækt samráð. Hugmyndir og áætlanir voru kynntar ýtarlega í skýrslum sem út voru gefnar, með greinum í tímarit- um, með kynningarbæklingum og á fundum og ráðstefnum sem boðað var til í þessu skyni. Það voru ekki síst þeir Andri og Wolfgang, ásamt Birgi Thorlacius, ráðu- neytisstjóra í menntamálaráðuneytinu, sem beittu sér fyrir þessu mikla kynningarstarfí og virkri þátttöku kennara og annarra skóla- manna í starfinu sem á eftir fylgdi. Það er líka ein af mörgum mótsögnum í greinum Helgu Siguijónsdóttur að hún talar í öðru orðinu um breytingar á laun (sbr. 4. grein) en í hinu um áróður fyrir þeim (sbr. 2. grein). Önnur fírra í málflutningi Helgu er að hún gerir Summerhill-skólann í Englandi að fyrirmynd „opnu skólanna" á íslandi (3. grein). Summerhill-skólinn sé umdeildur einkaskóli og þekktastur svokallaðra fijálsra skóla. Slík fullyrðing er fráleit eins og allir vita sem hafa kynnt sér sögu opnu skól- anna. Sumir þeirra eiga sér vissulega ensk- ar fyrirmyndir en allar eru þær gjörólíkar Summerhill-skólanum. Kennarar opnu skól- anna hér á landi sóttu hugmyndir m.a. til breskra smábarnaskóla, en til þeirra var mjög litið á sjöunda og áttunda áratugnum, m.a. vegna þess að þar þótti fara saman góður starfsandi, fjölbreytt vinnubrögð og fallegt og hvetjandi umhverfi. Sleggjudómar Og HÆPNAR FULLYRÐINGAR Helga telur sig þess umkomna að setjast í dómarasæti yfír heilum kenningakerfum í sálfræði og uppeldisvísindum. Hún kveður upp úr um „fáránleika atferlisstefnunnar“ (2. grein) sem er ein áhrifaríkasta sálfræði- stefna þessarar aldar og hefur m.a. sett mark sitt á þróun í námsefnisgerð og kennslutækni. Helga vílar heldur ekki fyrir sér að kveða upp þann dóm að kenningar Jeans Piagets, eins virtasta rannsóknar- manns og kenningasmiðs um vitsmunaþróun barna, séu rangar (4. grein). Það virðist einnig gjörsamlega hafa farið fram hjá henni að þessar kenningar hafa þróast í tímans rás eins og allra vísinda er háttur og að sjaldan verður lagt út af kenningum einhlít- um hætti. Skilningur Helgu á kenningum Jeans Pia- gets og áhrifum þeirra er allur hinn furðu- legasti. Dæmi um það er eftirfarandi fullyrð- ing hennar: „Einstrengingsleg innræting í kennaranámi um árabii á þroskakenningum Piagets hefur valdið því að kennarar hafa vanmetið vitsmuni barna og ekki þorað að bera á borð fyrir þau bitastætt námsefni. Eða hvers vegna er 6 ára nemendum aðeins kenndir 16 stafir? Hvers vegna ekki allt stafrófið?" (4. grein.) Ekki verður hér hirt um að elta ólar við þær dylgjur sem felast í orðalaginu „ein- strengingsleg innræting“, en það er fjarri lagi að tengja þroskakenningar Piaget þeirri tilhögun lestrarkennslu sem hún lýsir. Lestr- arkennsla þar sem nemendum er kennt sama námsefnið á sama tíma, án hliðsjónar af því hvemig þeir standa í náminu, er beinlín- is í andstöðu við þær ályktanir sem flestir hafa dregið af kenningum Piagets. Sam- kvæmt þeirri kennslufræði, sem oftast er dregin af af kenningum Piagets, er það meginatriði að hvert barn fái viðfangsefni við hæfi. Við hæfí þýðir hæfilega krefjandi og hvetjandi; mátulega ögrandi til að bam- ið þurfí að leggja sig verulega fram og taki framförum. Of létt námsefni skilar engu og hið sama gildir um námsefni sem er alltof þungt. Það er að mínum dómi annaðhvort útúrsnúningur eða misskilningur að tengja kenningar Piagets við kennsluhætti þar sem of litlar kröfur era gerðar til nemenda. Dylgjur Um Kennara- MENNTUN Helga Siguijónsdóttir virðist hafa alveg sérstakan ímigust á uppeldisfræðingum og sálfræðingum. Þessir fordómar hennar ala af sér staðhæfingar eins og þessa: „Þegar kennaramenntun færðist á háskólastig um 1970 misstu kennarar menntun eigin stéttar í hendur uppeldisfræðinga og sálfræðinga“ (6._grein). 1 Kennaraháskólanum, miðstöð kennara-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.