Vísir - 06.05.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 06.05.1978, Blaðsíða 10
10 r MBEWPíl& ví ^ i utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdarstjóri: Davíö Guömundsson Ritstjorar: Þorsteinn Pálsson ábm. Ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Gudmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund ur Pétursson. Umsjón meö helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöamenn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elías Snæland Jóns’son, Guðjón Arngrímsson, Jón Einar Guöjónsson, Jónína AAikaelsdóttir, Katrín Pálsdóttir, Kjartan Stefáns- son, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson, Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Björgvin Pálsson, Jens Alexandersson. Utlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Laugardagur 6. ma! 1978 VISIR .................................................. Auglysinqa. og sölustjöri: Páll Stefánssor Dreifingarstjöri: Sigurður R Petursson Auglysingar og skrifstofur: Síöumúla 8 simar 86611 og 82260 Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Ritstjorn: Siöumula 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald erkr. 2000 á mánuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. loo eintakið. Vísir hefur alloft vakið athygli á mikilvægi þess að mótuð verði ný stefna í heilbrigðismálum. Blaðið beitti sér m.a. á sínum tíma fyrir greinaskrifum sér- fræðinga um þessi efni. Einn þeirra var Skúli Johnsen borgar- læknir, sem setti fram hugmynd- ir um arðsemismat varðandi f járveitingar til heilbrigðismála. Nú hefur Félag forstöðumanna sjúkrahúsa tekið þessi málef ni til opinberrar umræðu m.a. með at- hyglisverðri ráðstefnu, sem haldin var fyrr í þessari viku. Það kemur flatt upp á ýmsa, þegar rætt er um heilsuhagfræði. En f lestum ætti þó að vera Ijóst, að á þessu sviði sem öðrum er þörf á að meta, hvernig f jármun- um er skynsamlegast varið. Með hæfilegri einföldun má segja að heilbrigðismálin hafi mótast af sjúkrarúmapólitík, ef á annað borð er unnt að tala um stefnu í þessu sambandi. En Davíð Á. Gunnarsson formaður Félags forstöðumanna sjúkra- húsa segir með nokkrum sanni í viðtali við Visi i gær, að þrýsti- hópar og happa og glappaaðferð- ir hafi öðru fremur ráðið verk- efnavali á sviði heilbrigðismála. Staðreynd er, að við höfum komið upp fleiri sjúkrarúmum á hverja eitt þúsund íbúa en f lestar aðrar þjóðir. Það eru helst Svíar, sem gengið hafa lengra í þessu efni en við. Hér eru um það bil 40% fleiri sjúkrarúm á hverja eitt þúsund íbúa en almennt ger- ist og gengur með öðrum vest- rænum menningarþjóðum. Kostnaðarhliðin við heilsu- gæsluna hefur í samræmi við sjúkrarúmspólitíkina tekið eftir- tektarverðum breytingum. Sjúkrahúsakostnaður Sjúkra- samlags Reykjavíkur nam árið 1960 36% af heildargjöldum sam- lagsins en var orðinn því sem næst 70% árið 1974. Og að sama skapi hef ur kostnaður við læknis- hjálp utan sjúkrahúsa dregist hiutfallslega saman um helming. Fyrirbyggjandi heilsugæslu- starfsemi hefur á hinn bóginn barist í bökkum. í þvi sambandi má minna á leitarstöð Krabba- meinsfélagsins og starfsemi Hjartaverndar. En báðar þessar stöðvar hafa við erfiðar aðstæð- ur og þröngan f járhag náð mjög merkilegum árangri. Engum vafa er undirorpið að við náum miklu meiri og betri árangri með því að veita f jármagninu í aukn- um mæli í þennan farveg. í sjálfu sér gilda í þessum efn- um þau einföidu gömlu sannindi að byrgja brunninn áður en barn- ið fellur ofan í. Það er brýnf að byggja upp góða sjúkrahúsaþjón- ustu, en í sjálfu sér er enn mikil- vægara að koma í veg fyrir að menn þurfi í jafn ríkum mæli og raun ber vitni að nota þá þjón- ustu. Það er heilsuarðsemi. Davíð Á. Gunnarsson segir í viðtalinu við Vísi að flestar meiriháttar ákvarðanir varðandi uppbyggingu heilbrigðiskerf isins séu teknar í skyndi á þrýstihópa- vikunum (síðustu vikum f yrir af- greiðslu f járlaga) með þeirri af- leiðingu að litil sem engin tilraun hef ur verið gerð til þess að meta hvar peningarnir geti gert mest gagn. Það er öðru fremur styrk- leiki einstakra þrýstihópa, sem ráðið hef ur ferðinni hverju sinni, án þess að heildarstefnumörkun hafi legið til grundvallar. Sannleikurinn er sá, að Davíð Á. Gunnarsson hefur talsvert til sins máls. þegar hann beinir þeirri gagnrýni að stjórnmála- mönnum, að þeir hafi brugðist í þessum efnum. [ stað þess að taka ákvarðanir á grundvelli heilsuhagfræðilegra upplýsinga, hafa þeir látið stjórnast af þrýstihópum á þessu sviði eins og öðrum. Og trúlega er það einnig rétt, að f jölmiðlar hafa verið of bláeygir gagnvart þrýstihópun- um. Aðalatriðið er þó að menn átti sig á því, að heilsuarðsemi miðar ekki að því, að græða peninga á heilbrigðisþjónustunni eða draga úr henni. Þetta er spurning um það, hvernig á að nota pening- ana. Það er unnt að halda líf inu í annars dauðvona mönnum með háþróaðri og rándýrri tækni, en þeir fá ekki heilsuna. Álitaefnið er því, hvort ekki sé rétt að ver ja peningunum í ríkari mæli í því skyni að halda mönnum heil- brigðum. Þingmenn mættu hafa það í huga (ekki sfst af því að kosning- areru í nánd) að margt má færa til betri vegar með því að fylgja skynsamlegri heilsuarðsemis- pólitfk í stað happa- og glappaað- ferðarinnar. HVÍTASYKU Mál er í fjósið, finnst mér langt fæ ég ekkert oní mig. Æi lífið er svo svangt enginn étur sjálfan sig. Þessi staka, sem Jónas Hall- grimsson orti ungur, datt mér óvart i hug við tilbúning þessara lina, og þótti vel við eiga, enda er sannleiksgildi hennar ótvi- rætt. Það er satt, að enginn étur sjálfan sig (i hæsta lagi hestinn sinn) og það er einnig satt, að maðurinn einn er ei nema hálf- ur, með hest í sér er hann meiri en hann sjálfur (lauslega stað- fært úr Einari). Nú verður einnig i þessum inngangi að minna á það sem enskurinn segir: menn eru það sem þeir snæða (you are what you eat) þótt það kunni i fljótu bragði að virðast mótsögn við: enginn étur sjálfan sig. Þennan út- lenska málshátt er þó nauðsyn- legt að forðast eins og heitan graut, þegar forvitnir útlend- ingar eru fræddir um mataræði þessarar litlu þjóðar. Maður þorir nefnilega ekki að segja sannleikann um fæðuinntökuna i heild, það yrði of erfitt, svo að maður snýr sig útúr málinu með þvi að telja upp hina kræsilegu þjóðarrétti, svo sem gleymda skötu og hestakjöt i hlaupi. Stundum getur maður þess lika, að á Islandi svelti enginn. Það er vonandi rétt, að allir hafi i sig, en það harðnar á dalnum, þegar þvi er velt fyrir sér hvað almenningur, ég tala nú ekki um láglaunafólk, hefur i sig þessa sjö daga vikunnar og tólf mánuði ársins. Niðurstaðan hlýtur að vera sú, að hluti þjóð- arinnar, sennilega stór hluti, er slappur af næringarskorti vegna fábreyttrar fæðu. Hinar geysimiklu umræður um blóð- fituna, mjólkina, undanrennuna og svo náttúrlega smjerið, hafa þvi aðeins snúist um hluta vandamálsins, og ekki sann- gjarnt að rugla þessa hrjáðu og verðbólgnu þjóð svona i riminu með staðhæfingum gegn stað- hæfingum um skaðsemi eða ágæti mjólkur. Það sem þarf að leggja áherslu á, er, að fólk láti ofan i sig sitt litið af hverju, en hakki ekki eða hvolfi i sig ókjör af einu eða tvennu. Mjólkur- neysla Islendinga er að visu óhugnanlega gott dæmi um eitt- hvað eitt, sem hvolft er i sig* það er vist ekki vitað um aðra þjóð, sem drekkur meiri mjólk en íslendingar, og áreiðanlegt, að sú neysla er i óhófi, þótt gert væri ráð fyrir að við þyldum þennan skaðræðisdrykk betur en venjulegt fólk i útlöndum,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.