Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 25
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 25 HEILDVERSLUN Ásbjörns Ólafssonar ehf. mun hinn 26. mars hækka verð á um fimmtán vöruflokkum eða um 200 vöru- númerum. „Hækkunin nemur frá 3 til 12% eða um 3% að meðaltali þegar all- ar matvörur okkar eru teknar saman. Við erum aðallega að hækka verð á Knorr- vörum eins og bollasúpum, kryddi, kröftum og pastaréttum en einnig erum við meðal annars að hækka verð á Maryland- og Cadbury-kexi,“ segir Guðmundur Björnsson, framkvæmdastjóri Heildverslun- ar Ásbjörns Ólafssonar ehf. „Við erum ekki að hækka allar vörutegundir okkar en ástæða hækkunar á umræddum vörum er þróun gengismála og erlendar og innlendar hækkanir. Verðið á Knorr-neytendavörum hefur ekki breyst frá því í október árið 1996 nema til lækkunar fyrir um ári en sú lækkun er að ganga til baka nú,“ segir Guðmundur. Verð á öllum framleiðsluvörum hækkar 1. apríl næstkomandi munu Kjarnavörur hf. hækka allar framleiðsluvörur sínar sem nem- ur 3–4%. „Ástæður hækkunar- innar eru fjölmargar og má nefna hráefnis-, gengis- og launahækk- anir,“ segir Guðjón Rúnarsson, eigandi Kjarnavara hf., og bætir við að fyrirtækið hafi ekki hækk- að verð á vörum sínum í tæp tvö ár. Verð á Jakobspítu lækkar Af rúmlega 90 vöruflokkum Daníels Ólafssonar ehf. er verð á 23 flokkum að hækka og 6 að lækka. Verðbreytingarnar munu eiga sér stað 16. mars. „Meðal þeirra vara sem eru að lækka hjá okkur eru Alpen musli, Fruitibix og Bananabix frá Weetabix, Jakobspíta og Daloon- rúllur. Lækkunin nemur frá tæp- lega 3% til rúmlega 11%,“ segir Októ Einarsson, markaðsstjóri Daníels Ólafssonar ehf. „Þeir 23 flokkar sem hækka eru aðallega þeir sem eru í gjald- miðlunum dönsk, sænsk og norsk króna, hollensk flórena og þýskt mark. Þessir gjaldmiðlar hafa til að mynda allir hækkað um meira en 10% undanfarna sex mánuði. Meðal þeirra vara sem hækka eru Gunilla marmelaði, Maggi súpur og Haust hafrakex. Hækk- unin nemur frá rúmlega 4% til 12%.“ Aðspurður segir Októ ástæður umræddrar lækkunar vera ýms- ar. „Við höfum fengið lækkanir að utan og náð betri samningum við birgja og það er að skila sér til neytenda nú. Hvað varðar ástæður verð- hækkananna þá eru það fyrst og fremst gengishækkanir. Þær vörur sem hækka um meira en 5 til 6% gera það vegna gengis- hækkana og erlendra hækkana.“ Meðalhækkun í kringum 6% Ó. Johnson & Kaaber ehf. mun hinn 15. mars hækka verð á vörum eins og Del monte, Mel- roses te og Pågens. Hækkunin nemur frá 5% og upp í 12%. „Meðalhækkunin er í kringum 6% enda aðeins örfáir liðir í Del monte- línunni sem eru að hækka um 12%. Þess má geta að verð á flestum þessara vara hefur ekki hækkað í nokkur ár,“ segir Alfreð S. Jó- hannsson, sölustjóri Ó. Johnson & Kaaber. „Hækkunin á sér aðallega stað vegna gengisbreytinga og er- lendra hækkana.“ Verð á ýmsum vörutegundum að hækka og lækka Verðhækkanir nema 3–12% SLÁTURFÉLAG Suðurlands hefur hafið innflutning á þremur nýjum bragðtegundum af Uncle Beńs hrís- grjónum í Natural Select- línunni. Bragðtegundirnar eru hvítlaukur og smjör, tómatur og basil og kjúk- lingur og kryddjurtir. Í fréttatil- kynningu segir að hrísgrjónin séu forsoðin og fljótelduð, krydduð með náttúrulegum bragðefnum. Þá hafa tvær nýjar bragðtegundir bæst í Country Inn-línuna en þær eru; Mexican Fiesta og Oriental Fried Rice. Hrísgrjónin eru löng og mjúk með grænmeti, Mexíkó- eða Orientalkrydduð. Country Inn-línan er sögð henta vel sem undirstaða í kjöt- eða fisk- máltíð. Uncle Beńs hrísgrjónin fást í öll- um helstu matvöruverslunum. Nýtt Hrísgrjón KOMINN er út nýr Argos- pöntunarlisti. Í fréttatil- kynningu seg- ir að nú sé einnig að finna fatnað í listanum. Nánari upp- lýsingar fást hjá B. Magnússyni hf. að Austurhrauni 3 eða í síma 555- 2866. Pöntunarlisti Draumur kaffiunnenda! Veitum faglega ráðgjöf um val á kaffivélum. Fjölbreytt úrval í mörgum litum og gerðum. SAECO er stærsti framleiðandi expresso-kaffivéla á Ítalíu. Expresso- Cappuccino kaffivélar Verð frá kr. 13.965 stgr. Ofnæmisprófað 100% ilmefnalaust ww w. cli niq ue .co m MELHAGA 20, SÍMI 552 2190 Nú flæða litirnir inn Rakaefnablöndur sem bæta útlit varanna með ferskum lit, endurnýja rakastig varanna og hlífa vörunum með SPF 15 sólarvörn og andoxunarefnum. 12 nýir stórkostlegir litir sem innihalda háþróuð rakaefni sem auka rakastig varanna til lengri tíma. Ef þú kaupir Clinique snyrtivörur fyrir 1.500 kr. eða meira, þá fylgir kaupauki sem inniheldur: Facial Soap Mild með sápuhulstri, 42 g. Anti-Gravity Firming Lift Cream 7ml. Naturally Glossy Mascara 2,2 g ásamt gjafaöskju. Ráðgjafi verður í versluninni í dag, fimmtudag 15. mars, og föstudag 16. mars kl. 13-17. Í dag opnar Lyf og heilsa Melhaga nýja og endurbætta verslun. Af því tilefni ætlar Clinique að kynna Moisture Surge varaliti. með nýju Moisture Surge SPF 15 varalitunum frá Clinique Baðaðu varirnar í athygli ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.