Morgunblaðið - 15.03.2001, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 15.03.2001, Qupperneq 59
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 59 Í KVÖLD, fimmtudagskvöldið 15. mars kl. 20, verður biblíulestur í Hjallakirkju í Kópavogi á vegum dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar, hér- aðsprests í Reykjavíkurprófasts- dæmi eystra. Um er að ræða annan fyrirlestur í fyrirlestraröð sem verð- ur öll fimmtudagskvöld í mars. Í kvöld fjallar dr. Sigurjón um sköp- unarsöguna í 1. Mósebók, Guð skap- arann. Allir eru hjartanlega velkomn- ir. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 14–17. Söngstund kl. 14 í neðri safnaðarsal. Kristján Sig- tryggsson organisti leiðbeinir og stýrir hópnum. Allir hjartanlega vel- komnir til að syngja eða hlusta. Boðið upp á kaffi á eftir. Mikið spjallað og stundum tekið í spil. Biblíulestur kl. 20. Fjallað verður um bréf Páls post- ula. Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla ald- urshópa í safnaðarheimilinu kl. 14– 16. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur. Passíusálmalestur. Léttur málsverður í safnaðarheimili að stundinni lokinni. Háteigskirkja. Foreldramorgun kl. 10. Stúlknakór kl. 16. Jesúsbæn kl. 20. Taize-messa kl. 21. Þangað sækir maður frið og kyrrð og staldrar við í asa lífsins, tekur andartak frá til þess að eiga stund með Guði. Lifandi ljós og reykelsi bjóða mann velkomin. Tónlistin fallin til að leiða mann í íhugun og bæn. Allir velkomnir. Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorgnar kl. 10–12. Svala djákni les fyrir eldri börnin. Söngstund með Jóni Stefánssyni, organista. Kirkjan er opin til hljóðrar bænargjörðar í há- deginu. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–7.05. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Tónlist, bæn og léttur málsverð- ur. Samvera eldri borgara kl. 14. Börn úr Laugarnesskóla sýna dans undir stjórn kennara síns, Ingibjarg- ar Róbertsdóttur. Systurnar Guð- laug og Svana Hróbjartsdætur syngja. Þjónustuhópur kirkjunnar, kirkjuvörður og sóknarprestur ann- ast undirbúning, veitingar og stjórn- un. Neskirkja. Unglingastarf Nes- dóm- kirkju kl. 20 í safnaðarheimili Nes- kirkju. Seltjarnarneskirkja. Starf fyrir 9–10 ára börn kl. 17. Árbæjarkirkja. TTT-starf fyrir 10– 12 ára í Ártúnsskóla kl. 17–18. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn föstudag kl. 10–12. Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Helgistund kl. 11. Kvöld- bænir kl. 18. Alfa-námskeið kl. 19. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11– 12 ára drengi kl. 17–18. Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar samverustundir, heyrum guðsorð og syngjum með börnunum. Kaffisopi og spjall, alltaf brauð og djús fyrir börnin. Æskulýðsfélag í Grafarvogs- kirkju fyrir 8.–9. bekk kl. 20–22. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára kl. 16.30. Fyrirlestraröð undir heitinu „Guð, veruleiki og tál- sýn?“ í kirkjunni næstu 3 fimmtu- daga kl. 20. Framandleiki guðs í Gamla og Nýja testamentinu. 2. guðsmynd sköpunarsögunar í 1. Mósebók. Fyrirlesari dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í dag kl. 14.30–17 í safnaðar- heimilinu Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 17. Fyrirbæna- efnum má koma til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Seljakirkja. Fundir fyrir 9–12 ára stráka kl. 17 í umsjá KFUM. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra kl. 10–12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Opið hús fyrir 8–9 ára börn í Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17–18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 10–12 ára kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 9–12 ára krakka kl. 17–18.30. Vídalínskirkja. Æskulýðsfélag Garðakirkju heldur fundi kl. 19.30– 20.30. Unglingar hvattir til þátttöku. Umræðu- og leshópur, fræðslustarf fyrir alla í Bræðrastofu kl. 21–22. Bæna- og kyrrðarstund í kirkjunni kl. 22. Koma má bænarefnum til presta og starfsfólks safnaðarins. All- ir velkomnir. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 10–11.30 foreldramorgnar. Samveru- stund foreldra með ungum börnum sínum. Kl. 14.30 helgistund á Heil- brigðisstofnun, dagstofu á 3. hæð. Heimsóknargestir velkomnir. Kl. 17.30 TTT-starfið fyrir 10–12 ára krakka. Hlíðardalsmótið undirbúið. Kl. 20 fundur ferðafélaga í æskulýðs- hópnum sem ætlar til Noregs í júní í KFUM&K-húsinu. Kl. 20 fundur um sorgarviðbrögð og missi. Framhald fundar um barnamissi um daginn. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Biblíulestrar kl. 20. Fyrirbænasamvera kl. 18.30. Fyrirbænaefnum er hægt að koma áleiðis fyrir hádegi virka daga kl. 10– 12 í síma 421-5013. Spilakvöld aldr- aðra í kvöld kl. 20. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. Beðið fyrir sjúkum og sorg- mæddum. Ólafsvíkurkirkja. Æskulýðsguðs- þjónusta í kvöld kl. 20.30. Nemendur Tónlistarskólans annast tónlistar- flutning. Væntanleg fermingarbörn sýna helgileik og lesa ritningarlestra. Allir velkomnir. Sóknarprestur. KEFAS. Menn með markmið í kvöld kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir. KFUM, aðaldeild. Fundur í kvöld kl. 20 með yfirskriftinni Þekktu landið þitt. Bjarni Guðleifsson fjallar um efnið. Allir karlmenn velkomnir. Kapellan á Klaustri. Föstumessa með altarisgöngu nk. sunnudag kl. 21. Lesið verður úr píslarsögunni og eingöngu sungnir Passíusálmar. Grafarkirkjan í Skaftártungu. Barnastarf laugardag kl. 11. Guðs- þjónusta kl. 14 sunnudag og að henni lokinni er aðalsafnaðarfundur. Sr. Bryndís Malla Elídóttir. Safnaðarstarf Guð – veru- leiki eða tálsýn? Hjallakirkja í Kópavogi. MINNINGAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. &$      '    . .   '  +   *  $      .    .   731/3, 731/3,   ))$ ) A 7 8 #      #  7.  /    %$  +   &     3 '       #  ! 4'  *. !  "8) (5&  #   !%   "5&  - $& &!7)8)# $%  # * &$ $%  8     *  6  $ %6 %  '    $ .      .   .   731/3,   .    5 $ )B  &    5,! $ ! #           +  %*  /              /+ '  5 +!#)   #   5 #" 7)8 =  #     )  &   "  #     "8)   #     ! )   4 & ! )      &  % #"  #   %    & )8)  + #  &$ $%  Mig setti andartak hljóðan þann morgun er ég frétti það að Guð- rún hefði kvatt þessa jarðnesku tilveru. Ég minnist þeirra góðu stunda sem ég átti með Guð- rúnu og afa í gegnum árin. Alltaf þegar ég hitti þau var Guðrún í góðu skapi og svo mikið líf í kringum hana. Sérstaklega man ég eftir þeim ferðalögum sem ég var samferða þeim í því Guðrún hafði alltaf svo gaman af að skoða nýja staði. Hún sagði alltaf að hún vildi sjá sem mest af heiminum áður en hún færi héð- an. Einnig minnist ég þess er ég heimsótti Guðrúnu og afa á Rétt- arholtsveginn því Guðrún tók alltaf á móti manni eins og þjóðhöfðingja. GUÐRÚN DAGBJÖRT ÓLAFSDÓTTIR ✝ Guðrún DagbjörtÓlafsdóttir fædd- ist á Brúnavöllum á Skeiðum 18. septem- ber 1913. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudag- inn 6. mars síðastlið- inn. Útför hennar var gerð frá Bústaða- kirkju 13. mars. Eldhúsborðið var yfir- leitt þakið veitingum sem Guðrún hafði útbúið þó svo að maður hefði ekki boðað komu sína áður. Ég hefði ekki trúað því að þegar ég og unnusta mín heimsóttum þau á Réttarholtsveginn fyr- ir skemmstu væri í síð- asta skiptið sem ég myndi hitta Guðrúnu, þá konu sem hafði reynst mér eins og amma allt frá því ég fæddist. Við kveðjum nú þessa geislandi og göfuglyndu konu. Drottinn blessi minningu hennar, huggi og styrki ástvini hennar og láti oss ekki gleyma þeim góðu stundum er við áttum með henni. Að morgni dags þitt daggarljós lát drjúpa’ á vora trúarrós svo andans skrúði verði skírð. Vér biðjum, Guð, er stundlegt strá í stormi fellur jörðu á að lifi rós í ljóssins dýrð. (Ef. 3.13.–21.) Ólafur Elíasson. skyttnanna þriggja; „einn fyrir alla, allir fyrir einn“. Þar sem bara eru konur í þessum bekk, og á besta aldri, er ekki laust við að fjölskylda hverrar og einnar komi þar við sögu. Þér, elsku Kristján minn, man ég fyrst eftir af Byggðaveginum, en við ólumst bæði upp í þeirri götu, og svo kynntist ég Ellu konunni þinni og þar með þér líka. Í fyrstu voru samskiptin ekki mikil en allt það sem við erum búin að bralla saman núna síðasta ár stendur upp úr. Eitt var það sem einkenndi þig Stjáni minn og það var bros þitt. Þú hafðir alltaf húmorinn á hreinu; hvar sem við vorum og hvað sem við vorum að gera varst þú alltaf í besta skapinu og hrókur alls fagn- aðar. Þú gast sett þig í alls konar stellingar bara til að fá fólk til að hlæja. Kannski hafa sumir hneyksl- ast á hvað við, ég og Maggi, þú og Ella, Heiðrún og Skarpi, vorum mikið á djamminu núna í vetur en eftir á að hyggja tel ég að einhver tilgangur hafi verið með því. Að dansa fannst þér ekki leiðinlegt, enda varstu ævinlega fyrstur á gólfið þegar við fórum á dansstaði. Það er ég viss um að ef það er dansstaður í þínum nýju heimkynn- um ertu örugglega kominn á gólfið og farinn að sveifla þér. Samheldni þín og Ellu stendur upp úr, því við vitum að í öllum samböndum milli karls og konu koma alltaf upp ein- hver atriði sem vekja ágreining og voruð þið engin undantekning en það var eitt sem einkenndi ykkur; þið máttuð ekki hvort af öðru sjá. Enda tók maður eftir þessu sér- staka bliki í augum þér þegar þú talaðir um hana Ellu þína og þá sérstaklega þegar þú minntist á daginn sem þið giftuð ykkur. Á árshátíð háskólanema hér á Akureyri núna í byrjun mars tókst þú ákvörðun um að stofna félag sem átti að heita „Félag einmana eiginmanna háskólakvenna“, vegna þess hve mikið við erum frá heimili okkar á vissum tímabilum. Það veit ég með vissu að það hefðir þú gert ef þér hefði enst aldur til. Elsku Kristján minn, ég skal gera allt sem ég get til þess að létta undir með henni Ellu þinni, Sibbu, Helgu Guðrúnu og honum Gunnari litla og langar mig til að þakka þér allar þær stundir sem við höfum átt saman og vonandi endurtökum við það allt þegar við hittumst á ný. Ella mín, ég veit að ekkert mun koma í staðinn fyrir Kristján, en eitt átt þú sem enginn tekur í burtu og það er það sem þið tvö ein áttuð og vil ég við þig segja eitt lítið vers sem ég lærði einu sinni og er svona: Sértu með sár í hjarta, snertu það ekki fremur en meinsemd í auga. Gegn sálarkvölum er aðeins tvennt sem læknað getur: Von og þrautseigja. Ég votta foreldrum Kristjáns, systkinum, tengdaforeldrum, mág- fólki og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Sjáumst. Bryndís. Það verður aldrei fullmetið hversu mikilvægt er að eiga góða og trausta samstarfsaðila. Við hjá Samherja hf vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að starfa með Kristjáni um margra ára skeið, fyrst sem starfsmanni hjá Eimskip, síðan hjá FMN. Hann var einn af þessum áreiðanlegu. Leysti sín verkefni með bros á vör og aldrei voru nein vandamál í sambandi við neitt þegar Kristján átti hlut að máli. Hans þjónustulund og vandvirkni var mjög mikil í starfi sínu við löndun, gámahleðslu eða annað. Það er sárt til þess að hugsa að í blóma lísins sé Kristján fallinn frá. Minningin mun lifa um brosandi og jákvæðan dreng og geymast í huga okkar um ókomna tíð. Við sendum fjölskyldu og að- standendum Kristjáns okkar inni- legustu samúðarkveðjur. f.h. starfsfólks Samherja hf, Birgir Össurarson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.