Morgunblaðið - 19.04.2001, Síða 40

Morgunblaðið - 19.04.2001, Síða 40
LISTIR 40 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÖLDUM saman herjaði sulla- veiki á Íslendinga og olli miklum bágindum. Orsök sjúkdómsins var óþekkt fram á miðja nítjándu öld, en þá varð mönnum loks ljóst, að sníklar voru valdir að þessum hörmungum fólks. Bandormur, sem lifir meðal annars í þörmum hunda, verpir eggjum, sem berast ofan í menn (eða sauðfé) og þroskast þar í lirfu, sem borar sér leið í gegnum þarmavegginn. Síðan getur lirfan borizt í blóðrás um líkamann, sest að í einhverju líffæri og myndað um sig hjúp eða blöðru, sem er fyllt vökva. Kallast það sullur, sem get- ur orðið æði stór og valdið heilsu- leysi, þar sem hann þrýstir á við- kvæm líffæri. Hér á landi höfðu hómópatar, skottulæknar og læknar reynt um langan aldur að létta sullaveikum mönnum þjáningar með ýmsum ráðum og jafnvel holskurði án þess þó, að þeir gerðu sér grein fyrir or- sök. En það var ekki fyrr en um miðja nítjándu öld, sem mönnum varð ljóst, hvernig hundar koma þar við sögu. Um svipað leyti birti danskur læknir yfirlit yfir helztu sjúkdóma á Íslandi og komst að því, að sullaveiki hrjáði tæp 20% Íslendinga og væri mikill bölvaldur í landinu. Á þessum árum hafði ungur maður, Harald Krabbe, nýlokið námi í læknisfræði og hafið störf sem kennari í líffæra- og lífeðl- isfræði í dýralækninga- og land- búnaðarháskólanum í Danmörku. Sérstakt áhugamál hans var sníkju- dýrafræði, og í ljósi nýrra uppgötv- ana á því sviði ákvað hann að fara til Íslands og kynna sér ástand og horfur í þeim málum. Hann lagði af stað í fyrstu ferð sína 8. maí 1863. Í dagbókum sínum lýsir hann ferða- lagi sínu oft og tíðum mjög ítar- lega, einkum í upphafi. Þá kom hann tvívegis seinna, 1870 og 1871, og þá bregður svo við, að dagbók- arslitrurnar verða því óburðugri sem líður á ferðina. Sjálfsagt hefur hann haft ýmsum öðrum hnöppum að hneppa, því að í síðustu ferð sinni kvæntist hann íslenzkri konu, Kristínu, dóttur Jóns Guðmunds- sonar ritstjóra Þjóðólfs, og eign- uðust þau fjóra syni. Margir kann- ast án efa við tvo þeirra, Jón, sendiráðsritara í Kaupmannahöfn og Thorvald vitamálastjóra, sem skrifaði hina gagnmerku bók »Is- land og dets tekniske udvikling gennem tiderne« 1946. Í inngangi að bókinni segir út- gefandi hennar frá því, hvernig hann fékk í hendur ljósrit af hand- riti dagbókarinnar í upphafi átt- unda áratugar en lét ekki verða af því fyrr en nú að gefa hana út. Að hans dómi er dagbókin merk heim- ild um líf og störf Íslendinga á þessum árum, en hún lýsir ekki síð- ur dugmiklu starfi Haralds. Það er ekki ofmælt, að Harald Krabbe lagði grunninn að barátt- unni við sullaveikina með rann- sóknum sínum, þó að allmörg ár liðu þangað til henni væri nær al- veg útrýmt. Í dagbókinni segir Harald frá því, hvernig Íslendingar komu honum fyrir sjónir, greinir frá allmörgu sullaveiku fólki, sem hann reyndi að hjálpa, og síðast en ekki sízt var hann mikill áhuga- maður um almenna náttúrufræði og veitti dýrum og plöntum eft- irtekt. Meðal annars telur hann sig hafa fundið klettafrú í Almannagjá; sennilegra er þó að það hafi verið bergsteinbrjótur. Aðallega beindist athygli hans þó að hundum í leit að bandormum og þar fór hann ekki erindisleysu. Nær allir hundar, sem hann rannsakaði, voru með band- orma, og um 30% með þá tegund, sem mönnum stafaði mest hætta af. Harald ritaði síðan bækling, »At- hugasemdir handa Íslendingum um sullaveikina og varnir móti henni«, sem var dreift á hvert heimili í landinu. Þar með var baráttan við sullaveikina hafin. Margvíslega vitneskju er að finna í bókinni og er frásögnin bæði skemmtileg og fróðleg. Harald kynntist mörgu fólki og segir frá því tæpitungulaust. Ýmsu fékk hann að kynnast á ferð sinni og fræg er frásögn hans, þegar hann var látinn sofa í kirkju á Mosfelli við hliðina á líkkistu. Harald skrif- aði sjálfur 1867 ítarlega grein um ferð sína (Erindringer fra en Reise paa Island i sommeren 1863) og byggðist hún á dagbók hans. Svo undarlegt sem það er, þá er ekki sagt frá grein þessari í bókinni. Svo virðist sem útgefanda hafi ekki ver- ið kunnugt um hana. Dagbókin er yfirleitt auðlesin en þó hnýtur maður um allmargar skammstafanir, sem þó er leyst úr fremst; þá er getið allmargra manna, og ekki er alltaf auðvelt að átta sig á hverjir það eru, þó að flestra sé getið á kápusíðu. Æski- legt hefði verið að skýra betur en gert er ýmis atriði, sem Harald rétt tæpir á, en til þess hefði þurft mann, sem er kunnugur sögu landsins á þessum tíma. Dagbók þessi, þótt ekki sé hún stór í sniðum, varpar skýru ljósi á, hve alvarlegur sjúkdómur sulla- veikin var á sínum tíma, en hún lýsir einnig ýmsum smáatriðum í lífi og starfi fólks, sem gaman er að kynnast og menn hafa kannski ekki gert sér fulla grein fyrir áður. Auk dagbókarinnar er í bókinni stutt yf- irlit yfir lífsferil sullaveikiband- orms eftir Kristínu Helgu Þórar- insdóttur (prófritgerð 1999) og gömul grein eftir Pál A. Pálsson um útrýmingu sullaveikinnar á Ís- landi. Allmargar myndir eru í bók- inni en þær eru nokkuð hver úr sinni áttinni. Harald Krabbe tókst að skýra orsakir sullaveikinnar og hann benti okkur á ráð til þess að forðast hana. Starf hans bar ríkulegan ávöxt og hann er fyllilega þess verður að minningu hans sé á loft haldið. Óhætt er að segja um þá feðga þrjá, að þeir hafi verið Ís- lendingum miklir haukar í horni. Barátta við sullaveiki BÆKUR N á t t ú r u f r æ ð i r i t Eftir Harald Krabbe. 112 bls. Útgefandi er Ivan Kati. Kaupmannahöfn 2000. DAGBOG FRA ISLAND – FERÐASAGA Ágúst H. Bjarnason HIN árlega sönghátið Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps í Austur- Húnavatnssýslu „Söngur um sum- armál“ verður haldin nú á laug- ardag í Félagsheimilinu á Blöndu- ósi og hefst kl. 21. Að þessu sinni koma fram, auk Karlakórs Ból- staðarhlíðarhrepps, Rökkurkórinn úr Skagafirði, Samkór Vopna- fjarðar og kór Blönduóskirkju. Að söng loknum verður stiginn dans við undirleik hljómsveitarinnar Amigos frá Akureyri. Söngur um sumarmál hefur ver- ið fastur liður í Húnavökudagskrá í Austur-Húnavatnssýslu sl. 5 ár og á liðnum árum hafa fjölmargir kórar sótt Húnvetninga heim af þessu tilefni. Söngskemmtunin í ár verður með fjölbreyttara móti að sögn Baldurs Daníelssonar for- manns Bólstaðarhlíðarkórsins því efnisskrá kóranna er töluvert ólík. Rökkurkórinn úr Skagafirði verð- ur með blöndu af efni, m.a. eftir skagfirska höfunda og lög úr óper- ettum. Stjórnandi kórsins frá upp- hafi hefur verið Sveinn Árnason og undirleikari í vetur er Anna María Guðmundsdóttir. Kórfélagar í vet- ur eru um 50. Kórinn hefur gefið út tvo geisladiska, „Söngurinn minn“ og „Við syngjum“. Samkór Vopnafjarðar hóf starf- semi sína haustið 1988, undir stjórn Kristjáns Davíðssonar. Frá haustinu 1997 hefur Zbiegnew Zukohwics stjórnað kórnum og Teresa Zukohwics annast undir- leik. Um þessar mundir eru 32 félag- ar í kórnum. Lagaval er fjölbreytt og eru meðal annars á dagskrá lög eftir stjórnandann. Þá eru á söng- skránni lög og kvæði eftir vopn- firskt skáld. Má segja að efnisskrá Vopnfirðinganna spanni allt frá Bítlunum til íslenskra ættjarð- arlaga með viðkomu í pólskum þjóðlögum. Kór Blönduóskirkju hefur starf- að óslitið í 30 ár og hafa nokkrir félagar sungið með frá upphafi, en kórfélagar eru nú um 20. Stjórn- andi kórsins er Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Kórinn syngur fyrst og fremst við kirkjulegar athafnir, en á þessum tónleikum sýnir kór- inn á sér nýjar hliðar í efnisvali. Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps sem hélt upp á 75 ára afmæli sitt á síðasta ári er með einhvern lægsta meðaldur kórfélaga sem þekkist hjá karlakórum og þó starfa enn með kórnum tveir félagar sem staðið hafa vaktina samfellt í fimmtíu ár. Félagar í kórnum eru nú 35. Sveinn Árnason hefur stjórnað kórnum frá árinu 1994, sá hin sami er stjórnar Rökk- urkórnum og undirleikari í vetur er Soffía Fransiska Rafnsdóttir. Efnisskrá kórsins er fjölbreytt, samofin hefðbundnum söngarfi í bland við nýrra efni, m.a. eftir húnvetnsk tónskáld. Kórinn gaf út hljómplötuna „Tónar í tóm- stundum“ árið 1985 og endurútgaf hana á geisladiski á síðasta ári. Þá gaf kórinn út geisladiskinn „Norð- lenskar nætur“ árið 1997. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. Hátíðin Söngur um sumar- mál haldin á Blönduósi Blönduósi. Morgunblaðið. DÝRIN í Hálsaskógi er nú kom- ið á það virðingarstig að vera óum- deilanlega sígilt verk. Það sést best á þeim gjörólíku túlkunarleiðum sem hafa verið farnar að því í sýn- ingum undanfarið. Stefán Jónsson og leikfélag Flensborgarskólans í Hafnarfirði gerðu úr því kostulega Tarantino-martröð um einelti, Björn Gunnlaugsson lagði áherslu á flókin samskipti Lilla og Mar- teins í sýningu á Fáskrúðsfirði og nú síðast heyrast kenningar um að Egner hafi verið að túlka goðsögn- ina um kristnitökuna á Íslandi. Enn hefur enginn ráðist í að svið- setja verkið með hliðsjón af þeirri forvitnilegu hugmynd og einnig er óvíst hvaða áhrif breytt viðhorf al- mennings til grænmetisframleið- enda og hollustu ólíkra landbún- aðarafurða almennt mun hafa á túlkun Dýranna. Við bíðum spennt. Þangað til er sýning Pýramusar og Þispu ágætis sýnishorn af hefð- bundinni nálgun við þetta merka verk. Og auðvitað kemur þá í ljós að það stendur fyllilega fyrir sínu án nokkurrar rýni og tilrauna til frumleika. Sagan er góð, persón- urnar skemmtilegar, lögin grípandi og gleðin ríkir. Sigurður Hallmarsson er þaul- vanur að segja óvönum leikurum til og þarf því ekki að koma á óvart að leikarar stóðu allir fyrir sínu. Textameðferð var vitaskuld til norðlenskrar fyrirmyndar, meira að segja í hópsöngvum komst hvert atkvæði til skila. Undirleik annað- ist Sigurður sjálfur ásamt Ingi- mundi Jónssyni og af þeim samleik mátti helst ráða að um einn fjór- hentan hljóðfæraleikara væri að ræða. Enn átti Sigurður svo hlut að máli þegar kom að leikmynd- inni, sem var heilt ævintýri á að líta. Tré úr görðum Húsvíkinga fylla sviðið í Samkomuhúsinu og ilmurinn af þeim vit sýningargesta. Frábær mynd sem nýttist vel sem heimkynni dýranna. Sýningin byrjaði tiltölulega hægt, kannski var afslöppunin heldur mikil fyrst um sinn, en hélt þó athyglinni við efnið og náði um síðir að skapa viðeigandi spennu og fjör þegar leitin að Bangsa litla stóð sem hæst. Af leikendum er rétt að geta þeirra þriggja sem mest mæddi á. Hilmar Valur Gunnarsson var pott- þéttur Refur, aldrei sérlega hættu- legur en alltaf skemmtilegur. Arn- ar Þór Sigurðsson var iðandi af lífi sem Lilli lífsnautnamús og hæfileg andstæða við Martein fyrirmynd- armús sem Katrín Ragnarsdóttir gerði skotheld skil. Pýramus og Þispa sækja nafn sitt til leikrits handverksmannanna í Draumi á Jónsmessunótt en ólíkt tekst Egner, Sigurði og þeirra fólki betur upp en Spóla vefara og félög- um. Saman eiga þó Húsvíkingar og Aþeningar Shakespeares ást á við- fangsefni sínu og aðferðinni við að skila því; leikhúsinu. Og það skilar sér. Piparkökur eins og piparkökur eiga að vera LEIKLIST P ý r a m u s o g Þ i s p a , l e i k f é l a g F r a m h a l d s - s k ó l a n s á H ú s a v í k Höfundur: Torbjörn Egner. Þýðendur: Hulda Valtýsdóttir og Kristján frá Djúpalæk. Leikstjóri: Sigurður Hallmarsson. Samkomuhúsinu á Húsavík laug- ardaginn 14. apríl 2001. DÝRIN Í HÁLSASKÓGI Þorgeir Tryggvason VEFRITIÐ Kistan og Nýlista- safnið standa fyrir tveimur hljómorðakvöldum í Nýlista- safninu við Vatnsstíg. Í kvöld, fimmtudags- kvöld, kl. 20.30 kynna Megas og út- gáfufyrir- tækið Ómi nýjan hljóm- orðadisk Megasar, Haugbrot – Glefsur úr neó-reykvískum raunveru- leika. Megas flytur hljómorð ásamt Michael & Daníel Pollock, Hilmari Erni Hilmarssyni og Guðlaugi Kristni Óttarssyni. Hljómorðadiskurinn er nýstár- leg viðbót við höfundarverk Megasar. Annað kvöld, föstudags- kvöld, kl. 20, verður hljómorða- dagskrá þar sem fram koma Berglind Ágústsdóttir, Bragi Ólafsson, Didda, Einar Már Guðmundsson, Elísabet Jök- ulsdóttir, Kristín Ómarsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Margrét Lóa og Gímaldin, Marlon Pol- lock, Megas og félagar og Michael Pollock. Í „hljómorðum“ felst upp- lestur á prósa, ljóðum eða prósaljóðum, gjarnan með und- irspili. Aðgangseyrir bæði kvöldin er 500 kr. Megas og hljómorð í Nýló Megas
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.