Morgunblaðið - 23.05.2001, Side 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2001 27
Heimsferðir bjóða nú einstök tilboð til London
í maí og júní, allar helgar. Komið til London á
föstudegi og flug til baka á mánudegi og í
London bjóðum við þér úrval hótela á frábæru verði.
Aðeins
12 sæti
Helgartilboð til
London
1. júní
frá 19.720 kr.
Verð kr. 19.720
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug og skattar.
Verð kr. 29.990
Flug og Chelsea Village hótelið,
4 stjörnur, í 3 nætur. M.v. 2 í
herbergi, skattar innifaldir.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
LESBÓK Morgunblaðsins og
ReykjavíkurAkademían efna til mál-
þings um tíðaranda í aldarbyrjun í
dag, miðvikudaginn 23. maí, kl. 17–
19 í húsnæði ReykjavíkurAkadem-
íunnar, Hringbraut 121. Þingið, sem
er öllum opið, er haldið í tilefni af
greinaflokki sama efnis sem birst
hefur í Lesbók Morgunblaðsins frá
áramótum.
Á þinginu reyna fjórir fræðimenn
að ná tökum á tíðarandanum nú í
byrjun 21. aldarinnar. Jón Karl
Helgason bókmenntafræðingur tal-
ar um tíðarandann sem getraun.
Anne Brydon, sem er kanadískur
mannfræðingur sem unnið hefur að
rannsóknum hérlendis undanfarna
mánuði, nefnir erindi sitt Lýðræðið
lyktar af táragasi þessa dagana.
Steinunn Kristjánsdóttir, forn-
leifafræðingur og formaður stjórnar
ReykjavíkurAkademíunnar, flytur
erindi er nefnist Kviksjá fortíðar og
Matthías Viðar Sæmundsson, dósent
í íslenskum bókmenntum við Há-
skóla Íslands, fjallar um Táknmál
aldamótanna.
Pallborðsumræður verða að erind-
um loknum þar sem frummælendur
taka þátt ásamt Ástráði Eysteins-
syni, prófessor í almennri bók-
menntafræði við Háskóla Íslands, en
hann hóf greinaflokkinn í Lesbók-
inni í byrjun janúar.
Fundarstjóri verður Þröstur
Helgason, umsjónarmaður Lesbók-
ar Morgunblaðsins.
Að málþinginu loknu verður opn-
uð ljósmyndasýning Kristins Ing-
varssonar í húsnæði Reykjavík-
urAkademíunnar þar sem
myndskreytingar hans við greina-
flokk Lesbókarinnar verða sýndar.
Sýningin stendur til 10. júní.
Lesbók Morgunblaðsins og ReykjavíkurAkademían
Málþing um tíðar-
anda í aldarbyrjun
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Sýning á myndum Kristins Ingvarssonar sem prýtt hafa greinaflokkinn
um tíðarandann í Lesbókinni verður opnuð í ReykjavíkurAkademíunni
að málþinginu loknu.
UNNIÐ er að gerð
viðamikils bókmennta-
vísis á íslensku á veg-
um Bókmenntafræði-
stofnunar Háskóla
Íslands. Um er að
ræða uppflettirit um
íslenska rithöfunda og
erlenda, auk þess sem
fyrirhugað er að gefa
út íslenskt hugtaka-
safn í bókmenntafræði.
Að sögn Ástráðs Ey-
steinssonar, prófess-
ors í almennri bók-
menntafræði, hefur
verkið verið í undir-
búningi með hléum um
nokkurt skeið. Nú hef-
ur verið auglýst eftir ritstjóra sem
mun stjórna vinnslu bókmenntavís-
isins í samvinnu við ritstjórn Bók-
menntafræðistofnunar. „Verkefnið
er í raun tvíþætt,“
segir Ástráður. „Ann-
ars vegar er um að
ræða uppsláttarrit um
íslenskar bókmenntir,
þar sem fjallað er um
höfunda og ýmis fyr-
irbæri úr íslenskri
bókmenntasögu, og til
þess verkefnis verður
ritstjórinn ráðinn.
Síðan hef ég sjálfur
stýrt vinnslu hugtaka-
vísis í bókmennta-
fræði undanfarin ár
og er hugmyndin að
tengja það við bók-
menntavísinn, e.t.v.
með því að gefa verk-
in út saman eða í tveimur sam-
stæðum bókum, og mun væntanleg-
ur ritstjóri einnig koma að því.
Ástæðan fyrir því að tengja þetta
saman er ekki síst sú að mjög erfitt
er að vinna íslenskt bókmenntalex-
íkon án þess að styðjast við og
skýra ýmis hugtök og viljum við því
forðast tvítekningu.“ Útgáfa bók-
menntavísis verður viðamesta
verkefni Bókmenntafræðistofnunar
til þessa, enda verður með því lagð-
ur mikilvægur grunnur fyrir fræði-
legar rannsóknir og umræðu um
bókmenntir á íslensku. Ástráður
bendir á að í bókmenntavísinum
verði ekki eingöngu fjallað um ís-
lenska höfunda, heldur einnig er-
lenda sem skipað hafa ákveðinn
sess á Íslandi. „Við miðum við ís-
lenskt bókmenntalíf, sem tekur til
þeirra höfunda sem mikið hafa ver-
ið lesnir hér, fremur en íslenska
bókmenntasögu í þeim þrönga
skilningi sem nokkuð hefur tíð-
kast.“ Stefnt er að útgáfu bók-
menntavísisins árið 2003.
Unnið að útgáfu íslensks
bókmennta- og hugtakavísis
Ástráður
Eysteinsson
TUTTUGASTA og áttunda starfs-
ári Söngskólans í Reykjavík lýkur
með lokatónleikum skólans í Ís-
lensku óperunni á morgun,
fimmtudag, kl. 16. Það eru um 50
nemendur skólans, allt frá ung-
lingadeild til útskriftarnema, sem
flytja íslensk sönglög, erlenda
ljóðasöngva, lög úr söngleikjum
og óperettum og atriði úr óp-
erum, við píanóundirleik kennara
skólans. Hátt í 200 nemendur
hafa stundað nám við skólann í
vetur og luku 189 stigsprófum í
söng, þar af luku átta nemendur
8. stigi, lokaprófi úr almennri
deild: Árný Ingvarsdóttir, Bylgja
Dís Gunnarsdóttir, Guðríður Þ.
Gísladóttir, Ívar Helgason, Magn-
ea Gunnarsdóttir, María Mjöll
Jónsdóttir, Ólöf Inger Kjart-
ansdóttir og Þórunn Mar-
inósdóttir.
Skólinn útskrifar sjö nemendur
með burtfararpróf í söng, þeir
eru Auður Guðjohnsen mezzó-
sópran, Hólmfríður Jóhann-
esdóttir mezzó-sópran, Kristveig
Sigurðardóttir sópran, Margrét
Árnadóttir sópran, Sigurlaug
Jóna Hannesdóttir sópran, Þór-
unn Elfa Stefánsdóttir sópran og
Þóra S. Guðmannsdóttir sópran.
Skólinn útskrifar einnig tvo söng-
kennara, Dagnýju Þ. Jónsdóttur
og Kristínu R. Sigurðardóttur,
með prófgráðuna LRSM Licent-
iate of the Royal Schools of
Music.
Söngskólinn fær árlega próf-
dómara á vegum The Associated
Board of the Royal Schools of
Music í London. Að þessu sinni
dæmdi Eileen Field próf nem-
enda.
Skólastjóri Söngskólans í
Reykjavík frá upphafi er Garðar
Cortes.
Söngvarahópurinn sem Söngskólinn útskrifar nú: Aftari röð f.v. Garðar
Cortes skólastjóri, Kristín, Sigurlaug Jóna, Hólmfríður, Kristveig, Ívar,
Þórunn Elfa, Auður, Magnea, Árný. Fremri röð: Dagný, Þórunn, Ólöf
Inger, María Mjöll, Guðríður Þóra, Margrét, Þóra og Bylgja Dís.
Lokatónleikar
Söngskólans í
Reykjavík TÓNLEIKAR Kammerkórs Hafn-
arfjarðar í Hásölum í Hafnarfirði
verða annað kvöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 20.
Tvær listakonur
leggja kórnum
lið að þessu
sinni, þær Sig-
rún Hjálmtýs-
dóttir söngkona
og Ástríður Alda
Sigurðardóttir
píanóleikari.
Vorið og sumar-
ið er umfjöllunar-
efni tónleikanna.
Flutt verður íslensk tónlist ásamt
tónlist frá Færeyjum, Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Einnig
verða flutt lög frá Rússlandi og Am-
eríku. Öll tónlistin er um vor- og
sumarstemmningu, þar sem fjallað
er um landslag, sumarástina, nátt-
úruskrúðið og heimahagatregann.
Aðgangseyrir er kr. 1.000 og fást
miðar við innganginn.
Tónleikar
í Hásölum
Sigrún
Hjálmtýsdóttir
DRENGJAKÓR Laugarnes-
kirkju heldur vortónleika í kvöld
kl. 20.30 í Neskirkju. Flutt verða
bæði kirkjuleg og veraldleg
verk og eftir hlé mun deild eldri
félaga slást í hópinn. Meðal höf-
unda má nefna Þorkel Sigur-
björnsson, Bjarna Þorsteinsson,
Inga T. Lárusson, J. Berthier,
Kabalevski, Franz Schubert,
Samuel Wesley og J.S. Bach.
Stjórnandi kórsins er Friðrik
S. Kristinsson og undirleikari
Peter Maté. Raddþjálfari er
Björk Jónsdóttir.
Drengjakórinn mun fara í
ferðalag dagana 26.–27. maí. Í
tengslum við ferðalagið verða
haldnir tvennir tónleikar á Snæ-
fellsnesi. Tónleikarnir verða
báðir á laugardag, þeir fyrri í
Grundarfjarðarkirkju kl. 14 og
hinir síðari í Stykkishólmskirkju
kl. 17.
Vori
fagnað í
Neskirkju
SNÆFELLINGAKÓRINN í
Reykjavík heldur sína árlegu vor-
tónleika í Seltjarnarneskirkju annað
kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl.
20.30.
Á efnisskránni
verða bæði inn-
lend og erlend
lög, m.a. munu
tvær ungar stúlk-
ur úr kórnum
syngja dúetta.
Í byrjun maí
kom kórinn fram
á fjölmennum fjölskyldudegi Snæ-
fellingafélagsins í Reykjavík og
flutti þar nokkur lög.
Við píanóið verður Peter Máté og
stjórnandi er Friðrik S. Kristins-
son.
Snæfelling-
ar syngja
í Seltjarn-
arneskirkju
Peter
Máté