Morgunblaðið - 04.07.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.07.2001, Blaðsíða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 23 MEÐ þeirri vakningu er hófst á sviði tónlistar um 1850 hér á landi, var upptaka almennings á erlendum söngvum svo áköf, að sá alþýðusöng- ur sem þá hafði verið iðkaður vék fyr- ir nýjum, „fallegum og skemmtileg- um“ erlendum söngvum og þeir sem lögðu sitt af mörkum í gerð sönglaga, vildu horfa fram á veginn, vera trúir sínum tíma og sömdu sín lög í nýja stílnum. Ef séra Bjarni Þorsteinsson, prestur á Siglufirði, hefði ekki safnað íslenskum þjóðlögum, frá þessum tíma og komið þeim á bók, væru mörg þeirra sem nú eru sungin, trúlega öll- um gleymd og ófinnanleg til upprifj- unar. Menninguna ber maðurinn með sér hvert sem hann fer og þegar reynt er að finna t.d. uppruna söngva hans, þarf að vita hvaðan hann kom. Það ekki nóg að segja að landnámsmenn hafi komið frá Noregi, heldur verður að afmarka hvaðan úr Noregi. Það þarf einnig að skoða keltnesk áhrif og hvaðan þeir Keltar voru, sem settust að á Íslandi, bæði sem frjálsir menn og þrælar. Það er hugsanlegt að frumbyggjar þessa lands hafi flutt með sér þá aðferð að kveða, sem er andstæð þeirri aðferð sem heitir að syngja. Söngur, sem berst fyrst til Ís- lands með kristni, hafði mikil áhrif á söngmennt þjóðarinnar, sem best sést af því, að íslensk þjóðlög eru til í öllum kirkjutóntegundunum. Trúlega hefur franski söngkennarinn Rikini, er stafaði á Hólum frá 1107, kennt mönnum tvísöng og hugsanlega frönsk þjóðlög, sem eru sérkennilega líðandi, eins t.d. íslenska þjóðlagið Fagurt syngur svanurinn, sem að tón- byggingu er mjög líkt og franska þjóðlagið Clair de lune. Á 18. öld taka að berast til Íslands dönsk og þýsk sönglög og er nokkuð auðvelt að rekja sögu þeirra. Með vaxandi tónmennt þjóðarinnar verða þjóðlögin hornrekur og mjög fá voru útsett til samræmis við ráðandi söng- máta allt fram undir miðja 20. öldina. Þjóðlögin voru allan þennan tíma „óhreinu börnin hennar Evu“ og það er nú á allra síðustu tímum, að þessi lög eru komin í tísku og er það vel. Embla er eini sönghópurinn sem sérhæfir sig í flutningi íslenskra þjóð- laga og söngtónlistar, sem eru sam- stæð stíl þjóðlaganna. Á tónleikum sönghópsins, sem haldnir voru í Saln- um sl. fimmtudag voru sungin gam- alkunnug þjóðlög og einnig nokkur lög sem ekki hefur verið haft hátt um, eins og t.d. fallegt lag, þjóðlag úr Reykjavík, við Ég skal vaka og vera góð, sem sungið var í raddsetningu Báru Grímsdóttur og eitthvert falleg- asta þjóðlag íslenskt, Þýtur í stráum, í raddsetningu Sigurðar Rúnars. Það var margt í látlausum flutningi Emblu hópsins, sem snerti gamlan þjóðlagagaur, sérstaklega fyrrnefnd lög og Tíminn líður, í raddsetningu Árna Harðarsonar og snilldarlag Jór- unnar Viðar, Karl sat undir kletti, sem bæði voru glaðlega flutt. Af gömlu lögunum má nefna Hér undir jarðar hvílir moldu, Ár var alda, Það mælti mín móðir, Lilja, Draumkvæði, Ég af öllum háska hlæ, Krummavís- ur, Vinaspegil, Stóð ég við Öxará, svo nokkur séu nefnd. Þessi lög hefur hópurinn sum hver sungið áður, svo að nú er lag að fjölga viðfangsefnum og er þar af nógu að taka. Sönglega séð mætti sönghópurinn bæta við sig söngröddum, til að skapa þéttari hljóm. Gestasöngvarinn Chris Foster flutti nokkur bresk lög, sem lífguðu upp á tónleikana, sérstaklega með enska þjóðlaginu, The herring’s head, sem hann söng með hópnum og fékk áheyrendur til taka undir með sér í viðlaginu. Það eina sem undirritaður er ekki sáttur við, er notkun hjóðfæra, sem sögð eru vera íslensk og munu hafa verið ákaflega stutt í notkun, hér á landi, eins t.d. íslenska fiðlan og einn- ig langspilið. Bæði hljóðfærin eru dæmi um kunnáttuleysi landans í hljóðfæraleik, t.d. það að hafa ætlað að leika á þessi hljóðfæri með boga. Það sem er sérkennilegt við íslensk þjóðlög, og í raun sérlega merkilegt, er að þau eru að öllu leyti söngtónlist, þar sem ekki eru merkjanleg nein hljóðfæraáhrif og því hrein söngtúlk- unarlist, þar sem textinn er þunga- miðjan. Þýtur í stráum þeyrinn hljótt, þagnar kliður dagsins. Guð er bjóða góða nótt í geislum sólarlagsins. TÓNLIST S a l u r i n n Sönghópurinn Embla, en hann skipa Diddi fiðla, Kristín Ólafs- dóttir, Bára Grímsdóttir og KK, er ásamt Chris Foster, flutti íslensk og erlend þjóðlög og alþýðusöngva og lék undir á gömul hljóðfæri og gítara. Fimmtudagurinn 28. júlí, 2001. ÞJÓÐLAGASÖNGUR Þýtur í stráum þeyrinn hljótt Jón Ásgeirsson Í ÍRSK/bandarísku gamanmynd- inni Um Adam heillast ungur maður og söngkona á krá að hvort öðru og úr verður ástarævintýri. Konan á stóra fjölskyldu, m.a. tvær systur og einn bróður, og áður en langt um líð- ur er ungi maðurinn farinn að heilla það fólk upp úr skónum og systurnar úr fötunum. Leikstjórinn og handritshöfund- urinn, Gerard Stembridge, kýs að segja þessa kunnuglegu sögu út frá sjónarhorni systkinanna svo myndin skiptist upp í fjórar tengdar sögur, sem allar stefna á sama léttleikann og galsann án þess að nokkrum eig- inlegum húmor sé fyrir að fara; þeir sem skemmta sér mest eru leikar- arnir sjálfir sem ofleika persónur sínar svo jaðrar við vandræðagang. Ekki er miklum siðaboðskap fyrir að fara því flestir í myndinni flokkast undir móralslaust pakk. Sjálfur er Adam gersamlega óútskýrð persóna og á líklega að vera það. Hann á enga fortíð, enga fjölskyldu sjálfur, er stöðugt ljúgandi að fólki, notar hvert tækifæri til þess að sofa hjá systrum tilvonandi eiginkonu sinnar og virk- ar gersamlega siðblindur. Hann er jafnframt sá sem áhorfandinn á að hrífast af. Bandaríska leikkonan Kate Hud- son er í þessari mynd af einhverri peningalegri ástæðu (bandaríska fyrirtækið Miramax er framleiðandi) og leikur Dyflinnarbúa. Hún reynir við írskan hreim en án árangurs í flestum tilvikum. Stuart Townsend er kvennahrókurinn og gerir ekki mikið fyrir myndina. Það sem Um Adam þó skortir helst er raunveruleg gamansemi. Af kynlífsfarsa að vera er hún ákaflega flöt og óspennandi. KVIKMYNDIR S t j ö r n u b í ó Leikstjórn og handrit: Gerard Stembridge. Aðalhlutverk: Stuart Townsend, Frances O’Connor, Charlotte Bradley og Kate Hudson. Miramax, BBC Films, The Irish Film Board. 95. mín. „ABOUT ADAM“1 ⁄2 Þrjár systur Arnaldur Indriðason LEIKFLOKKURINN Bandamenn sýndi fyrir skömmu verk Sveins Ein- arssonar edda.ris á Listahátíðinni í Akershuskastala í Ósló. Húsfyllir var á sýningunni og undirtektir gesta mjög góðar. Flytjendur voru marg kallaðir fram í leikslok, að sögn Sveins Einarssonar. Listahátíðin í Akershus var nú haldin í 10. sinn, og hafa Bandamenn komið þar fram einu sinni áður, það var árið 1994 er þeir fluttu Bandamannasögu. Að sögn Sveins er þetta fyrsta sýning á leikn- um utan Íslands, en hann var frum- fluttur í haust á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins; var samvinnuverk- efni leikflokksins og leikhússins. Edda.ris byggist á einu þekktasta Eddukvæði okkar, Skírnismálum, sem ýmsir fræðimenn telja í kjarna sínum vera frjósemisleik. Öðrum þræði fjallar leikurinn þó um kyn- þáttafordóma og hræðslu og hatur út í hið ókunna. Akershushátíðin var að þessu sinni með íslensku ívafi og við opnunarhá- tíðina fluttu menntamálaráðherrar þjóðanna beggja ávörp. Meðal ann- arra atriða var leiklestur á Kristni- haldi undir Jökli eftir Halldór Lax- ness í leikgerð og leikstjórn Sveins Einarssonar. Kristnihald undir Jökli var flutt þrisvar fyrir fullu húsi og við afbragðs undirtektir. Edda.ris í Ósló Leikflokkur Bandamanna fyrir utan Akershuskastala í Ósló. FRUMFLUTTUR var síðast- liðinn föstudag í Santa Fé í Argentínu Gítarkonsert eftir Karólínu Eiríksdóttur. Sin- fóníuhljómsveit borgarinnar lék undir stjórn Carlos Cu- esta, en einleikari var Sergio Puccini. Karólína var viðstödd frumflutninginn og sagði í samtali við Morgunblaðið um helgina, að tónleikarnir hefðu gengið mjög vel, og að verki sínu hefði verið vel tekið. „Carlos Cuesta er mjög góður hljómsveitarstjóri, hann hefur stjórnað þessari hljómsveit í sex ár og á þeim tíma hefur hljómsveitin verið á mikilli uppleið. Hann hefur fengið hljómsveitina til að leika nýja músík í bland við eldri tónlist, og það var alveg nýtt fyrir hljómsveitina. Hljómsveitin spilaði líka 3. sinfóníu Brahms á tónleikun- um og gerði það mjög vel.“ Santa Fé er fjögur hundruð þúsund manna borg og ein sú elsta í Argentínu, og þar eru mikil ítölsk áhrif að sögn Karólínu. Ætlar að hlusta á tangó „Einleikarinn heitir hinu kunna ítalska nafni Puccini, og sagan segir að langafi hans og óperutónskáldið ítalska hafi verið systkina- börn. Sergio Puccini er, auk þess að vera frábær gítarleik- ari, skólastjóri Tónlistarhá- skólans hér í Santa Fé.“ Það er vetur í Argentínu núna, og fólk gengur um kappklætt og jafnvel í ullar- frökkum og pelsum, segir Karólína, þótt veðrið sé eins og besta sumarveður á Ís- landi. „En ég ætla að vera hér í nokkra daga í viðbót, og eyða einum degi í Buenos Aires að hlusta á tangó,“ segir Karól- ína Eiríksdóttir tónskáld. Gítarverki Karólínu vel tekið NÚ stendur yfir listsýning Guðjóns Stefáns Kristinssonar í Minjasafni Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaárdal. Þar sýnir hann höggmyndir úr reka- viði. Í verkum sínum leitar Guðjón fanga í uppruna sinn á Ströndum, í Íslendingasögurnar og til fólks sem hann hefur hitt á lífsleiðinni. Guðjón hefur höggvið út öndvegissúlur, skúlptúra og leiktæki sem sjá má víða um land. Sýningin er opin miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga frá 13-21 og sunnudaga kl. 13-17 í sumar. Skúlptúrar úr rekaviði HARMONIKUHLJÓMSVEITIN Stormurinn leikur á næstu tónleik- um í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30. Stormurinn er stofnaður innan Harmonikufélags Reykjavíkur og var markmið hljómsveitarinnar að auka fjölbreytni harmonikkutónlist- ar á Íslandi. Hún er skipuð 8 harm- onikuleikurum, bassa- og trommu- leikara ásamt stjórnanda. Í efnis- skránni er víða komið við. Harmoniku- tónleikar á Seyðisfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.