Morgunblaðið - 04.07.2001, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 04.07.2001, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 35 FRÉTTIR Mig langar til þess að kveðja hana Þóru ömmu mína með nokkrum orðum. Hún amma var falleg manneskja bæði að innri og ytri fegurð. Trú hennar á hið góða í lífinu og hið góða í mann- eskjunni geislaði af henni, í öllum hennar orðum og gjörðum. Góð- mennska hennar, umhyggja og viska voru mér ómetanlegt vega- nesti út í lífið. Ég var mikið hjá Þóru ömmu og Haraldi afa í Skaftahlíðinni sem barn. Alltaf tókst ömmu að láta mér finnast ég vera mikilvægasta mann- eskja í heiminum, tók höfðinglega á móti mér, bakaði kökur í kaffitím- um fyrir mig og vinkonur mínar, sem voru svo vinsælar að þær voru iðulega borðaðar upp til agna. Amma sagði mér sögur, kenndi mér bænir og leyfði mér að hjálpa sér í fallega garðinum hennar. Fuglar voru í miklu uppáhaldi hjá henni og fylgdumst við með þeim ná sér í orma í garðinum. Einhverju sinni þegar ég var lítil ætlaði ég að vera eins og fallegu fuglarnir og fá mér orma að borða, ömmu var mikið skemmt yfir þessu uppátæki en stöðvaði mig á sinn ljúfa og milda hátt og benti mér á að ormar væru fuglafæða, en við gætum fengið okkur köku. Ég sótti alltaf mikið í Skaftahlíð- ina til ömmu og afa, enda varð það svo að þegar ég flutti að heiman, flutti ég í Skaftahlíðina og bjó þar í íbúð í húsi ömmu og afa. Það var yndislegt að hafa ömmu svo nálægt sér og daglega leit ég upp til henn- ar eða hún bankaði hjá mér og við spjölluðum um lífið og tilveruna. Það var henni mikilvægt að fólkið hennar liði ekki skort og hefði nóg að borða. Hún sýndi umhyggju sína fyrir fjölskyldu sinni með því. Þeg- ar ég bjó í húsinu hennar fylgdist hún því alltaf með því að ég borðaði nóg og bauð mér oft í mat. Í mörg ár hittist fjölskyldan á sunnudögum í Skaftahlíðinni og borðaði dýrindis máltíðir framreiddar af ömmu. Þar átti fjölskyldan saman margar góð- ar stundir og spjallaði um heima og geima. Seinni árin greip elli kerling í taumana og minni ömmu fór að förlast. Þá greip hún til söngsins, mundi gífurlegan fjölda af textum, lögum og sálmum. Því söng maður oft með henni í stað þess að ræða hver væri hvað eða hvað væri hvurs. Hún kvaddi þetta líf í hárri elli, 91 árs gömul, eflaust glöð yfir því að hitta afa, Dúu systur sína, Magga bróður sinn og alla þá vini og ættingja sem fallnir eru frá. Án efa hafa þau líka tekið vel á móti henni. Ég þakka mikið fyrir þá gæfu að hafa þekkt hana ömmu og fyrir að hafa átt með henni margar ynd- islegar stundir. Ég er svo sann- arlega ríkari manneskja fyrir að hafa átt hana að. Ég er sannfærð um að nú líður henni vel og bið fyrir eilífri hamingju hennar. Guðrún Erla Ólafsdóttir. Ég vil minnast Þóru Finnboga- dóttur með nokkrum minningabrot- um. Ég kynntist Þóru vel og tel að hún hafi mótað mig á margan hátt. Hún var gift Haraldi, elsta föður- bróður mínum, en ég bjó ásamt fjölskyldu minni í sama húsi og þau í rúmlega tólf ár. Haraldur og faðir minn byggðu húsið Skaftahlíð 5 í sameiningu og áttu foreldrar mínir ÞÓRA FINNBOGADÓTTIR ✝ Þóra Finnboga-dóttir fæddist í Skarfanesi í Land- sveit í Rangárvalla- sýslu 28. apríl 1910. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Eir í Reykjavík 16. júní síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 26. júní. fyrstu hæðina en Þóra og Haraldur áttu húsið að öðru leyti. Fjöl- skylda mín flutti í Skaftahlíðina vorið sem ég varð 11 ára og Þóra og Haraldur bjuggu á efri hæðinni með tvö litlu börnin sín og stálpaðan son Haraldar frá fyrra hjónabandi. Þóra hafði ákaflega sterkan persónuleika. Hún var mjög stillt í skapi en ákveðin og tæpitungulaus í skoð- unum, heilsteypt og skapföst. Frá upphafi okkar kynna talaði hún við mig eins og ég væri fullorðin og sýndi mér mikla virðingu og hlýju. Hún var ekki gefin fyrir málskrúð en var stuttorð og gagnorð, gat slegið á létta strengi og hlegið dátt. Það var gott að vera í návist hennar og þegar foreldrar mínir brugðu sér tilútlanda í tví- eða þrígang var hún tilbúin að bjóða mér í mat og sýndi mér mikla umhyggju. Við systur fengum jólagjafir í hófi eins og önnur börn þess tíma og oft fengum við eina bók saman frá foreldrum okkar. Þóra og Haddi gáfu okkur hins vegar hvorri sína bókina í jólagjöf og betri gjöf var varla hægt að hugsa sér. Frá því að við fluttum í Skafta- hlíðina buðu Þóra og Haddi reglu- lega allri föðurfjölskyldu minni í jólaboð á jóladag og þangað mættu flest föðursystkinin ásamt mökum, börnum, tengdabörnum og barna- börnum. Þessi jólaboð voru sann- kallaðar stórveislur. Þar var ekkert til sparað og veitingar voru miklar og rausnarlegar, en alltaf stækkaði fjölskyldan og boðin urðu því með tímanum eins og ættarmót. Við undirbúninginn naut Þóra styrks stuðnings Kolbrúnar, dóttur sinnar, en mörgum árum seinna sagði Kol- brún mér að þau hefðu aldrei átt aðfangadagskvöld í ró og næði. Allt kvöldið fór í undirbúning jólaboðs- ins. Þóra var dugnaðarforkur, trygg og trú sinni fjölskyldu og þeim sem hún bast vináttuböndum. Ég minn- ist afmælisboða hennar og barnanna þegar móðir mín og við systur vorum kallaðar upp í eft- irmiðdagskaffi með nánustu ætt- ingjum hennar. Afmælisboð Hadda frænda voru hinsvegar kvöldboð og þá mætti öll stórfjölskyldan. Móðir mín og Þóra höfðu fyrir sið að bjóða ætíð hvor annarri í kaffi á þvottadögum, en í þá tíð voru ekki sjálfvirkar þvottavélar og allur dagurinn fór til þvotta. Ég var búin að eignast tvær elstu dætur mínar áður en við hjónin fluttumst úr Skaftahlíðinni og var farin að þvo þvottinn okkar sjálf. Þá kom Þóra alltaf niður til mín og bauð mér upp til sín í kaffi þar sem við hvíldum okkur um stund og spjöll- uðum saman um lífið og tilveruna en þannig lét hún mér líða eins og fullgildri húsmóður. Ég minnist Þóru með virðingu og þakklæti og bið henni Guðs bless- unar á nýjum vegum. Þrúður G. Sigurðardóttir. Í FJÖLSKYLDU- og húsdýragarð- inum í Reykjavík hefur verið opnað s.k. vísindatjald. Þetta er annað árið í röð sem slíkt tjald er til sýnis og notkunar hjá garðinum, en í því er að finna uppgötvunarmiðstöð. Þá er norsk farandsýning í gangi í garð- inum. Fyrstu uppgötvunarmiðstöðvarn- ar voru settar á laggirnar fyrir fjöru- tíu árum í Bandaríkjunum. Umfang og áhrif vísindalegrar þekkingar hafði vaxið hröðum skrefum en möguleikar almennings til að henda reiður á framgangi vísindanna að sama skapi minnkað. Samkvæmt upplýsingum frá Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum höfða sýningar sem þessar til fjölskyld- unnar og reynsla þeirra sýnir að heimsókn í uppgötvunarmiðstöð sem þessa er gefandi fyrir alla fjölskyld- una. Sameiginlega vinna ungir sem aldnir saman að lausnum ýmissa verkefna eða reyna sig við rökþraut- ir. Fjölskyldu- og hús- dýragarðurinn Vísinda- tjald opnað STUÐNINGSHÓPUR um krabba- mein í blöðruhálskirtli verður með rabbfund í húsi Krabbameinsfélags- ins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík í dag, miðvikudaginn, kl. 17. Kaffi verður á könnunni. Rabb um blöðruháls- krabbamein UNGLINGASTARF Slysavarna- félagsins Landsbjargar er stór þátt- ur í starfi þess og helgina 5. til 8. júlí mun Slysavarnafélagið Landsbjörg halda landsmót unglingadeilda á Dalvík í samvinnu við Björgunar- sveitina Dalvík og unglingadeildina Dasar á Dalvík. Þetta er í 13. sinn sem landsmótið er haldið en lands- mót er haldið annað hvert ár á mis- munandi stöðum á landinu. Alls eru um 37 unglingadeildir, með krökkum á aldrinum 14 til 18 ára, starfandi hjá Slysavarnafélag- inu Landsbjörg og er landsmótið há- punktur í starfi þeirra. Á mótið munu mæta um 350 ung- lingar ásamt umsjónarmönnum sín- um og taka þátt í ýmsum verkefnum. Landsmót ung- lingadeilda Landsbjargar ÝMISS konar þjónusta hefur hækk- að í verði á undanförnum dögum, eins og læknishjálp sérfræðinga, röntgenmyndataka og lyf. Þá hækka fargjöld með strætisvögnum nú um mánaðamótin og fasteignamat hús- eigna. „Fundur framkvæmdastjórnar FEB, sem haldinn var hinn 29. júní sl., mótmælir þeim hækkunum sem ríki og sveitarfélög standa fyrir um þessar mundir. Hækkanir þessar eru ekki í neinu samræmi við hækk- anir á lífeyrisgreiðslum almanna- trygginga,“ segir í fréttatilkynningu frá framkvæmdastjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Eldri borgarar mótmæla hækkunum ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Birting afmælis- og minningargreina @  &     &  (  7 (7          #    *  *    2 8-8  << ,#A  4,3 ",( A  & #  *  7 7   A* <# &6! 8   8 & !# &6!   8&" 5  & !%%  3 % &6!    6 * $  !%%  8&"    !%%  #$ ; &6! !%%  # 3  /   8 &6!    " E& !%%  5 5) 5 5 5) ( 5 #  & #     &  (    7 (7        #        8  F8-  1& %3  3;#6 &&G  4,3 ",( A  &  A  ?    "  B7*  #  77 0 1       *     /  -/  $ %      4 <   0    " #$# ! !%%  H 2 $63) $ #      "$# # & # !%%  % 6 "  #   !%%  #$# !# +  #      "$#   1% #   !%%       % "    #   !%%  #$5 #  # &  5 5) ( ? *   #  8- 0<8-   " %)$#BI %  %  !    $ %     '     207      -     !3 ? *         &  &     7  <    * A  A     A%  * A C;0 - #6 4 & !%%   !"  %   " !%%  8&"  %   " !%% ( /  & #     &  (    7 (7        #    *  *    <2 7  << *   BJ  6& ",( #  # 3   &3# !%%  ;     ; #   #$ I# !%%  +   &   5 5) 5 5 5) ( 5  &  0   0  &   7 (  & (       #  *      088('( 5     &)6 =,  !%%   % " #% !%%   #  /    0 &5  !%%  0&/3&# 2    6 , &&-- 6   -&3  " @ !%%   !  6     @ ,    (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.