Morgunblaðið - 04.07.2001, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 04.07.2001, Blaðsíða 31
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 31 Elsku Svana amma. Þegar ég kom í heim- inn fékkst þú þennan titil í fyrsta sinn. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann, m.a. frá því að ég var lítill að tína rifsber í garð- inum ykkar afa í Langagerði, og eft- ir að þið fluttuð í Hraunhólana kom ég stundum og lék mér í fótbolta við skátaheimilið. Eitt skipti er mér sér- staklega minnisstætt. Þá var ég lítill pjakkur og fékk að sofa heima hjá ykkur afa. Þú hafðir búið til lauk- súpu þegar rafmagnið fór óvænt af. Við kveiktum á kertum og sötruðum súpuna og þótt mér hafi fundist súp- an frekar vond þá er minningin góð. Þær voru líka ófáar heimsóknirn- ar til þín í vinnuna hjá Ríkisend- urskoðun. Ég fékk þá oft að skjótast út í sjoppu eftir einhverju smáræði og svo ræddum við málin. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa hitt þig í stúdentsveislu systur minnar núna í lok maí en því miður sáumst við ekki nógu oft þessi síðustu ár. Þú varst góð amma. Megi Guð vera með þér. Teitur. Mig langar að minnast Svönu ömmu aðeins. Hún var ein sú besta manneskja sem ég hef kynnst um ævina og eru eflaust margir sam- mála mér um það. Amma var alltaf að hugsa um aðra en sjálfa sig. Það voru alltaf allar dyr opnar fyrir vin- um og vandamönnum í Hraunhólum 14. Þar tóku afi og amma ætíð hlý- lega á móti manni á hvað tíma sólar- hringsins sem var. Amma var vön að segja: „Eigum við ekki að tína sam- an einhvern bita og hella okkur upp á molasopa?“ Það er ótrúlegt hvað hún gat töfrað fram dýrindis veislu- borð á svipstundu. Við höfum upp- lifað margt skemmtilegt saman í gegnum tíðina. Það var t.d orðinn fastur liður á síðari árum að fjöl- skyldan hans pabba hittist í skötu- veislu á Þorláksmessu hjá afa og ömmu í Hraunó. Þar bar amma á borð skötu og saltfisk eins og henni einni var lagið og var auðvitað séð til þess að allir fengju eitthvað við sitt hæfi. Í þau fáu skipti sem pabbi og mamma hafa farið til útlanda hafa afi og amma passað okkur systkinin, fyrst í Fannafold og nú síðast í Mel- koti. Það eru stundir sem ég mun aldrei gleyma. Ömmu leið óskaplega vel í Margili og nutu þau afi þess að slappa af þar og sýsla eitthvað, sér- staklega eftir að hún hætti að vinna. Einnig skruppu þau að Birkibóli. Við fórum fjölskylduferð á Vestfirðina í fyrrasumar, meðal annars á Kirkju- ból og skoðuðum Vestfirðina. Í vetur þegar ég veiktist og fór á spítalann var amma alltaf reiðubúin að gera hvað sem var, enda kom hún eld- snemma á morgnana og fór ekki fyrr en pabbi eða mamma komu suður. Amma vildi fylgjast með honum Villa Kalla sínum enda fylgdi hún mér í gegnum flestar rannsóknir og er ég mjög þakklátur fyrir það. Við fórum núna fyrir skömmu til Danmerkur. Það síðasta sem amma sagði við mig áður en við fórum út: „Látum það verða gaman, Villi minn.“ Og það var eins og við mann- inn mælt að öll samveran með henni var yndisleg. Þegar pabbi og mamma fóru til Esbjerg fórum við Herdís með ömmu í siglingu um Ný- höfnina, skoðuðum Jónshús, löbbuð- um Strikið, skoðuðum konungshöll- ina og margt fleira. Þegar pabbi og mamma komu svo til baka fórum við í Tívolí, á Strikið og sitthvað fleira. Hún sýndi okkur svo ótalmargt og SVANHILDUR ÓLAFSDÓTTIR ✝ SvanhildurÓlafsdóttir fædd- ist í Reykjavík 5. nóvember 1930. Hún lést á Ríkissjúkra- húsinu í Kaup- mannahöfn 15. júní síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bústaðakirkju 26. júní. ég er viss um að það hefðu aðrir ekki gert betur. Amma elskaði Kaupmannahöfn og þar sagði hún okkur að hún vildi hún eyða ell- inni. Við tókum því frekar í gríni en alvöru. Elsku amma, ég kveð þig með söknuð í hjarta en jafnframt þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þér og átt svona margar góðar stundir með þér. Ég veit að nú líður þér vel hjá Guði, ert ábyggilega búin að hitta pabba þinn og mömmu og ég veit að þú munt fylgjast með þínu fólki um ókomin ár. Þú verður alltaf amma mín þótt þú sért farin yfir móðuna miklu og ég trúi því að þú munir taka á móti okkur öllum opnum örmum þegar þar að kemur. Elsku afi, Óli, Hulda, Jónas, Oddný, pabbi, Dúnna og Jói. Við höf- um öll misst mikið. Megi algóður Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Ég ætla að láta fylgja nokkur orð úr Biblíunni í lokin: „Svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“ (Jóh 3.16.) Þinn Vilhjálmur Karl Haraldsson. „Þegar þú ert sorgmæddur skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ ( Úr Spámanninum) Ég held að ég viti af hverju mér er svona illt í höfðinu. Það er af því að ég er með kökk í höfðinu, ég sakna hennar ömmu svo mikið. Nú fæ ég aldrei að sjá hana aftur. Hún var svo hlý og góð, mjúk og vildi allt fyrir aðra gera. Þegar ég gisti hjá ömmu fékk ég alltaf að sofa á dýnu við hlið- ina á afa og ömmu rúmi, sem við kölluðum að sofa í ,,skotinu“. Þar leið mér vel. Fyrir allt sem þú gafst mér og allt sem þú varst mér vil ég þakka. Þú fórst of fljótt og óvænt. Elsku besta Svana amma, vonandi líður þér vel. Þín Harpa Finnsdóttir. Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? ( Jóhannes úr Kötlum.) Elsku amma, ég veit að þú ert á góðum stað núna og þér líður vel, en ég get ekki sætt mig við að þú sért farin frá okkur fyrir fullt og allt. Þú kvaddir of fljótt, of snöggt. Það er svo ólíkt þér, því þú gafst þér alltaf tíma, alltaf tíma til að hitta okkur, tala, hlusta, og ekki síst elska. Amma, allt sem þú gerðir var fall- egt og krúttlegt. Þú fórst svo vel með alla hluti, eins og GSM-símann þinn, þú hafðir hann í hlífðartösku en vafðir hann samt sem áður vand- lega inn í þvottapoka og stakkst hon- um svo ofan í töskuna þína. Það lá við að þú heyrðir varla í honum ef hann hringdi. En svona varstu bara, vildir passa allt og alla sem þér þótti vænt um og vefja inn í bómul, þar á meðal okkur. Amma mín, einhvern veginn er allt svo breytt núna. Enginn sem les Heiðu fyrir mig áður en ég sofna eða býr til ömmukæfu. Þetta er sárt, svo sárt að mig verkjar í hjartað þegar ég hugsa um þig sem engil með vængi á himnum. En sem betur fer deyfist sorgin með tímanum, við eigum nú líka svo góða að, gott fólk sem gott er að tala við, kreista og faðma þegar okkur líður illa. Guð tók sem betur fer ekki alla frá mér. Amma Svana, ég veit að þú hefur auga með okkur öllum og leiðir sál- ina hans afa í framtíðinni – við elsk- um þig, að eilífu. Lofaðu mér einu að lokum, að hvíla þig í himmnaríki og halda áfram að mála fallegu mynd- irnar þínar, handa guði og englun- um. En eitt er víst, ég mun hitta þig aftur en bara seinna. Eins og blóm án blaða söngur án raddar skyggir dökkur fugl heiðríkjuna. Vorið sem kom í gær, er aftur orðið að vetri. ( Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi.) Hinsta kveðja. Þín, Helga Finnsdóttir. Elsku Svana amma mín. Hvað ég sakna þín. Nú ertu farin frá okkur öllum. Þú ert besta amma í heiminum. Ég man þegar ég var lítil og þú varst að passa mig, þá lastu alltaf Heiðu fyrir mig, þegar ég var að sofna. Þegar ég var uppi í sumarbústað hjá þér og afa þá söngstu oft Prins-póló lagið fyrir okkur. Það mun alltaf minna mig á þig. Það eru ótrúlega margir hlutir sem minna mig á þig, þú hefur gefið mér svo margt fallegt. Ég þakka þér fyrir allt sem þú gerð- ir fyrir mig. Hvíldu í friði. Sofðu rótt, Svana amma. Þín Hulda Finnsdóttir. Elsku amma mín er dáin og það allt of fljótt. Þín verður sárt saknað af stóru fjölskyldunni þinni sem þú hugsaðir svo vel um. Í sorginni mun huggun mín vera fólgin í öllum góðu minningunum sem ég á um þig. Bæði huglægum minningum, brosi þínu, hlýju og fasi, sem og veraldlegum minningum, því þeir eru ófáir hlutirnir á mínu heim- ili sem þú hefur gefið mér og Kristó- fer litla, syni mínum. Þú varst mikil listakona og er ég svo heppin að eiga eftir þig marga fallega hluti sem þú hefur skapað. Heimili þitt og sumarbústaður sem þér þótti svo gott að vera í bera merki þess hve smekkvís þú varst. Þér fannst mjög gaman að gleðja aðra og varst þú alltaf að gefa okkur afkomendum þínum eitthvað, hvort sem það voru listaverk þín, peningar eða einhverjir hlutir sem þú hafðir ekki staðist í búðinni. Þá heyrði maður oft þessar setningar frá þér: „Finnst þér þeir ekki sætir eða finnst þér þeir ekki krúttlegir? Ég bara stóðst þá ekki.“ Þér þótti svo gaman að skoða í búðir og kaupa fallega hluti handa öðrum. Ég minn- ist þess ekki að þú hafir nokkurn tímann komið tómhent í heimsókn. Alltaf kom eitthvað upp úr töskunni þinni sem stundum minnti á tösku Mary Poppins, því það var eins og enginn botn væri í töskunni, svo margar gjafir rúmuðust þar. Oft vorum við líka leyst út með gjöfum eftir heimsókn til ykkar afa í Hraunhóla. Ég mun aldrei gleyma minningunni um þig og afa stand- andi á pallinum fyrir framan dyrnar á fallega heimilinu ykkar veifandi og við vinkandi á móti í bílnum þar til við vorum horfin úr augsýn. Ég sakna þín mikið en er jafn- framt mjög hamingjusöm yfir því að hafa átt svona yndislega ömmu. Megir þú hvíla í friði. Svanhildur Einarsdóttir. Elsku amma Svana. Ég trúi því varla að þú sért dáin. Þegar mér bárust þær hræðilegu fréttir að þú hefðir veikst alvarlega í Danmörku trúði ég því varla. Amma Svana get- ur ekki orðið veik. Hún var svo sterk og hraust. Og þótt þér hafi oft verið illt einhvers staðar talaðir þú aldrei um það. Þú vildir ekki láta vorkenna þér. Þú hugsaðir um alla aðra en sjálfa þig. Þegar við vorum að kveðjast áður en þú fórst til Danmerkur gerðum við grín að því af hverju við værum að kveðjast svona mikið. Þú værir nú ekki farin að eilífu. Mér datt ekki í hug að þetta væri í seinasta sinn sem ég fengi að kyssa mjúku kinn- arnar þínar og faðma þig. Ég á svo ótal margar góðar minn- ingar um þig, elsku amma. Og of- arlega eru mér í huga allar gjafirnar sem þú varst alltaf að gefa okkur. Það var alltaf svo notalegt að heim- sækja ykkur afa í Hraunhólana. Og ég tala nú ekki um hvað var gaman að koma og vera hjá ykkur uppi í sumarbústað. Þú hélst svo mikið upp á bústaðinn og vildir helst vera þar allt sumarið. Amma, þú varst þvílík krafta- verkakona og þú gast allt. Ef eitt- hvað var að hjá okkur barnabörn- unum gastu alltaf bjargað því og ef það vantaði eitthvað áttirðu það allt- af inni í skáp eða niðri í tösku. Amma, þú varst engin venjuleg kona. Ég, Herdís og Hulda höfum oft talað um að við viljum verða eins og þú þegar við eignumst börn og barnabörn. En það er ekki hægt, það jafnast enginn á við þig. Elsku amma, ég á eftir að sakna þín sárt. Ég reyni að vera sterk, sterk eins og þú. Þín Hrafnhildur Einarsdóttir. Í dag verður fyrrum samstarfs- maður okkar, frú Svanhildur Ólafs- dóttir, jarðsungin frá Bústaðakirkju. Hún lést í Kaupmannahöfn hinn 15. júní sl. eftir skammvinn veikindi. Svana, eins og hún var jafnan kölluð í okkar hópi, hóf störf við símavörslu hjá Ríkisendurskoðun á árinu 1979 og lét af störfum fyrir aldurs sakir fyrir þremur árum eftir hart nær 20 ára störf. Svana var bæði dugleg, samviskusöm og áreið- anlegur starfsmaður. Hún var ákaf- lega hlý og notaleg í viðmóti og lagin í mannlegum samskiptum. Nýttust þessir eiginleikar henni mjög vel í bindandi og oft erilsömu starfi. Svana var ung í anda og tók hún jafnan virkan þátt í félagslífi starfs- manna þar sem hún var hrókur alls fagnaðar. Þá sýndi hún þeim rækt- arsemi eftir að hún hætti að vinna því hún heimsótti sinn gamla vinnu- stað og vinnufélaga nokkuð reglu- lega og viðhélt þannig gömlum kynnum. Eftirlifandi eiginmanni sín- um, Haraldi Jónassyni, og börnun- um fimm hafði hún snemma búið fyrirmyndarheimili og átti fjölskyld- an hug hennar allan. Fór ekki á milli mála að hún var kjölfestan í lífi þeirra allra. Að leiðarlokum vilja fyrrum vinnufélagar hennar hjá Ríkisend- urskoðun þakka henni sérlega ánægjulegt samstarf á liðnum árum. Minningu um góðan vin og samstarfsmann munum við geyma. Við vottum Haraldi og börnum þeirra, barnabörnum og öðrum að- standendum dýpstu samúð okkar. Starfsfólk Ríkisendurskoðunar. Traust samferðakona til rösklega fimmtíu ára er látin. Sviplegt fráfall Svönu kom okkur vinkonum hennar í saumaklúbbnum mjög á óvart. Hún náði sjötugsaldrinum eins og við hver af annarri. Við höfum haldið hópinn, sem stunduðum nám í Hús- mæðraskóla Reykjavíkur árið 1949 og er Svana önnur í röðinni sem hverfur úr hópnum. Ekki verða ætt- ir hennar raktar hér, það munu aðrir gera sem eru kunnugri. En eitt vor- um við sammála um, að báðar áttum við ættir okkar að rekja til Skóg- arkots í Þingvallasveit og vorum búnar að ætla okkur að fara á þann stað í sumar. Hún ætlaði að leiðsegja mér því hún hafði farið áður og þekkti leiðina. Svana var ákaflega prúð og heil- steypt kona. Venjulega heyrðist ekki mikið í henni þegar við hinar brýnd- um róminn, alltaf voru sömu róleg- heitin í Svönu. Það verður tómlegt og einkennilegt að koma saman í haust. Oftast vorum við samferða í klúbbana og skiptumst á að keyra, því stundum er langt að fara, því hópurinn býr í fjórum bæjarfélög- um. Það var stutt á milli heimila okkar Svönu lengi vel og er þau hjónin Haraldur og hún hófu að reisa sér heimili við Hraunhóla í Garðabæ gat ég fylgst með hvernig gekk. Þá sá ég að Svana lét ekki sitt eftir liggja og vann eins og forkur. Það var sama hvað hún tók sér fyrir hendur, allt var drifið af, ekki látið bíða. Hún var mjög listfeng. Það sýndi sig vel sl. vetur er hún mætti með eldra fólkinu í frístundamálun. Þar fuku listaverkin og þar átti Svana sína hluti, dáfagra. Hún var viljug að passa barna- börnin og þess utan var hún að prjóna á þau eða þá á brúðurnar þeirra. Henni féll ekki verk úr hendi. Elsku Halli, þú hefur misst mikið. Við vottum þér, börnum ykkar, barnabörnum og systkinum Svönu dýpstu samúð í ykkar miklu sorg. Megi Guðs náð og friður styrkja ykkur öll. Við munum allar sakna hennar. Guðfinna Snæbjörnsdóttir.                                         !   !" #$# ! !%%  & #$# !   ' &   &  !"  ( )   * # + &,   - # %.'( )    /  )     0('/    # &'/     1% ( )   23 +     2 4 3  53 % !%%  + & 6#  # $   5 5) 5 5 5) ( " #           7 +8   1& %3  2$ /&  9 $ 5:  $ %      &     '     (  53) + & 6 !%%  3&6 "$# (   !%%  +     ;   8 & #$3 !%%  + & 6#   ;    23)  !%%  0$   ;    "$# 8&" </ & =#     ;   8&"  %  4  %# ! !%%  5 5) 5 5 5) (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.