Morgunblaðið - 06.12.2001, Síða 36
LISTIR
36 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BERT og aðdá-
endurnir er eftir
Sören Olsson og
Anders Jacobs-
son. Jón Daníels-
son íslenskaði.
Í kynningu segir
m.a.: „Víst er enn
von. Aldrei fyrr hef-
ur Bert átt svo
marga aðdáendur – á öllum aldri og af
öllum gerðum! Patricía, Dóra, Lovísa
og fleiri og fleiri, meira að segja ein
35 ára gömul kerling. Bert er orðinn
16 ára og það er komið vor.“
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
228 bls., prentuð í Lettlandi. Verð:
2.480 kr.
Unglingar
HLIÐARGÖTUR er
sjötta ljóðabók
Jónasar Þorbjarn-
arsonar.
Í fréttatilkynn-
ingu segir m.a.
„Ljóð Jónasar
hafa verið fáguð
og lágtóna. Hér
kveður við nýjan
tón, ljóðin heim-
spekilegri og einkennast af leit að
einhvers konar staðfestu í óhöndl-
anlegum tímanum.“
Útgefandi er JPV útgáfa. Bókin er
60 bls. Jón Ásgeir í Aðaldal hannaði
kápu. Verð: 2.480 kr.
Ljóð
JÓLIN okkar er eft-
ir Brian Pilkington
og Jóhannes úr
Kötlum.
Í kynningu segir
m.a.: „Þegar jólin
nálgast fara alls
konar skrýtnar ver-
ur á kreik. Jóla-
sveinarnir arka til byggða og lauma
gjöfum og góðgæti í skó þægra barna.
Brian Pilkington bregður nýju ljósi á fjöl-
skyldu jólasveinanna og íslenska jóla-
siði í máli og myndum við hlið sígildra
jólakvæða Jóhannesar úr Kötlum.“
Ensk útgáfa bókarinnar ber titilinn
The Yule Lads.
Útgefandi er Mál og menning. Bókin
er 26 bls., prentuð í Danmörku. Verð
beggja útgáfanna er er 1.990 kr.
Börn
Í BÓKINNI Á Ís-
landsmiðum ár-
ið um kring
greina 55 skip-
stjórar frá veið-
unum og segja
skoðun sína.
Bókin er
skráð af Eiríki
St. Eiríkssyni
blaðamanni. Í
bókinni eru viðtöl við 55 íslenska
skipstjóra úr öllum landshlutum og
endurspegla þau það sem gerist til
sjós árið um kring og greina frá
flestum veiðiaðferðum. Viðtölin birt-
ust áður í Fiskifréttum.
Í kynningu segir m.a.: „Íslensk
útgerð er ótrúlega fjölbreytt og lif-
andi atvinnugrein. Héðan eru gerð
út rúmlega 2.400 skip og bátar
lengri en sex metrar, þau minnstu
eru litlar trillur og þau stærstu eru
fljótandi tækniundur. Íslenskir skip-
stjórar draga dám af fjölbreytninni
sem einkennir skipaflotann og út-
gerðarhættina og flestir eiga það
sammerkt að liggja ekki á skoð-
unum sínum.“
Útgefandi er Skerpla ehf. Bókin
er 200 bls. Verð: 3.980 kr.
Viðtöl
RENÉ Descartes (1596-1629) var
og er skemmtilegur heimspekingur.
Hann slær ekki um sig með hugtök-
unum og þykist ekki vita meira en
hann veit. Raunar telur hann sig ekki
hafa fulla vissu fyrir mörgu. „Cogito
ergo sum“ er fleygasta hugmyndin
hans: „Ég hugsa þessvegna er ég“.
Ég get af heilum hug mælt með
lærdómsritinu Hugleiðingar um
frumspeki eftir franska heimspeking-
inn Descartes með metnaðarfullum
inngangi Þorsteins Gylfasonar og
þýðingu. Verkið er ekki aðeins varða
á heiðum vestrænnar hugsunar held-
ur einnig ljómandi viti þeirra sem
hætta sér út á rúmsjó mannshugans.
Það er eitthvað svo heillandi við
texta Descartes. Ólíkt flestöllum öðr-
um heimspekingum fyrr og síðar
skrifar hann í fyrstu persónu: „Í dag
létti ég því af mér öllum áhyggjum,
tryggi mér ákjósanlegt næði, er einn
og út af fyrir mig og hyggst snúa mér
að því að rífa til grunna allar fyrri
skoðanir mínar, í fyllstu alvöru og án
þess að hika.“ (bls 133).
Ef ég man árið rétt,
þá lærði ég Descartes á
námskeiðinu Nýaldar-
heimspeki hjá Þorsteini
Gylfasyni árið 1983.
Sökum kennsluaðferðar
Þorsteins; að miðla hug-
myndum Descartes á
sanngjarnan hátt eða
eins og hann var og er,
varð ég um skeið kart-
esískur í hugsun. Það
felst m.a. í því að efast
um skynjun sína á heim-
inum, líkamanum og
sjálfum sér. Hugsa: Get-
ur það verið að í höfði mínu sé lítill
púki sem gæti þess að brengla hverja
og einustu skynjun mína? Það er ekki
hægt að útiloka það og ef svo er, hvað
er þá áreiðanlegt? Cogito ergo sum.
Verkefni Descartes í hugleiðingun-
um er hvorki meira né minna en að
færa sönnur á tilveru Guðs og grein-
armun sálar og líkama. Descartes
gerir heiðarlega og áhrifamikla til-
raun til þessa, ásamt því að leggja
grunninn að nýjum vísindum. Hann
ann rökunum og kemur það m.a. fram
í því að hann sendi handritið sérstak-
lega til þeirra sem hann taldi að gætu
gert alvarlegar athugasemdir við rök-
semdafærsluna.
Þorsteinn Gylfason heiðrar Des-
cartes með því að gera
sömu kröfur til sín,
bæði hvað varðar þýð-
inguna og innganginn.
Hann hafði þolinmæði
gagnvart þýðingunni
og gafst ekki upp gagn-
vart því erfiðasta í
texta Descartes.
Hugleiðingar Des-
cartes er byltingarrit
sem klauf heimsmynd-
ina á Vesturlöndum í
tvennt, nánar tiltekið í
sál og líkama eða anda
og efni. Öld tvíhyggj-
unnar gekk í garð og
enn eimir eftir af henni í hugum fólks.
Viðfangsefni hans og „þessar rök-
færslur hafa verið eitt eftirlætisvið-
fangsefni heimspekinga alla tíð síð-
an,“ skrifar Vilhjálmur Árnason
ritstjóri verksins (bls. 240).
Merki Descartes er að vera skýr og
greinilegur. „Hugleiðingarnar eru
fullar af dæmum um afmörkun
skýrra og greinilegra hugmynda;
hugmyndanna um hugann og um vax-
molann ...“ skrifar Þorsteinn (bls. 92),
og leggur fram enn eina kröfuna um
skýrleika og skrifar. „Það virðist vera
ástæða til að líta nánar á hvað Des-
cartes átti við með því að kalla þessar
hugmyndir skýrar og greinilegar.“
(bls. 92-93).
Í ljós kemur meðal annars í þeirri
rannsókn að skýr hugmynd í huga
Descartes geti verið ógreinileg. „Eftir
þessu er skýr hugumynd ekki greini-
leg nema hún sé fyllilega aðgreind frá
öllum öðrum hugmyndum.“ (bls. 94).
Dæmi um skýra og greinilega hug-
mynd sem Descartes var ánægður
með er frumsetningin: „Ég hugsa,
þess vegna er ég til.“ (bls. 94). Des-
cartes skynjaði skýrt og greinilega að
til þess að hugsa þurfi hann að vera
til. „En nú vaknar mikill vandi,“ skrif-
ar Þorsteinn og segir frá hinum víð-
fræga „vítahring Descartes“ sem
væntanlegir lesendur munu hafa
ánægju af að fræðast um.
Viðfangsefnin í Innganginum og
Hugleiðingunum eru ekki smávaxin,
dæmi: „Hyggjum nú að hugmyndinni
um Guð sem alfullkomna veru.“ (bls.
101). „En hvað nú um hug án líkama?
Getum við ímyndað okkur hugsun
sem enginn líkamlegur höfundur er
að?“ (bls. 99).
Ég get haldið áfram, en vona að
það sé orðið bæði skýrt og greinilegt
að Hugleiðingarnar eru nauðsynlegar
til skilnings á vestrænni hugsun. Þær
eru jafnframt skemmtilegar og „með
Descartes og honum einum segjum
við að nýöldin hefjist í heimspeki.“
(bls. 22). Hún er liðin, samt er Des-
cartes hér enn.
Ég hugsa, þess vegna er ég til
BÆKUR
Heimspeki
René Descartes í þýðingu Þorsteins
Gylfasonar sem einnig ritar inngang. HÍB.
2001. 250 bls.
HUGLEIÐINGAR
UM FRUMSPEKI
Gunnar Hersveinn
Þorsteinn Gylfason
SÓLIN er sprungin er fyrsta
skáldsaga Sveinbjörns Baldvinsson-
ar, en hann er enginn nýgræðingur á
ritvellinum. Hann hefur gefið út 6
ljóðabækur og eitt smásagnasafn.
Einnig hefur hann skrifað barnabæk-
ur, leikrit og kvikmyndahandrit.
Aðalpersóna sögunnar, Jón Fisher,
elst upp á móteli, skammt frá smá-
bænum Hillside í Kaliforníu. Hann á
fatlaðan eldri bróður, Tim að nafni.
Faðir þeirra, Jack, rekur mótelið
og stendur auk þess í vafasömum við-
skiptum. Móðir drengjanna, Anna,
var íslensk, hún kynntist Jack þegar
hann gegndi herþjónustu á Vestfjörð-
um árið 1956. Þau giftu sig og fluttu
til Kaliforníu gegn vilja fjölskyldu
hennar. Það leiddi til þess að sam-
bandið rofnaði milli fjölskyldnanna.
Árið 1963 lenti Anna í bílslysi og lést,
drengirnir voru einnig í bílnum, Tim
skaddaðist og varð þroskaheftur en
Jón slapp með skrámur. Hann ber að-
eins ör eftir slysið en
verri eru þó hin andlegu
ör sem móðurmissirinn
hefur í för með sér. Það
hallar undan fæti fjár-
hagslega hjá föðurnum
og hann leitar huggunar
í flöskunni.
Atburðarásin fer af
stað þegar Jón les bréf
sem er stílað til móður
hans, löngu látinnar.
Vegna sambandsleysis
hefur fjölskylda Önnu
ekki hugmynd um afdrif
hennar. Bréfið er frá
deyjandi ömmu Jóns og í
því kemur fram að Anna
sé erfingi jarðar fyrir vestan sem
stéttarfélag vill gjarnan kaupa fyrir
álitlega upphæð. Jón Fisher fer nú til
Íslands til að ganga frá sölu jarðar-
innar, það virðist bara vera formsat-
riði að taka við greiðslunni og laga að-
eins fjárhag fjölskyldunnar. En á
Íslandi taka málin óvænta stefnu, Jón
verður ástfanginn af Rúnu, ungri
myndlistarkonu, og hættir við að selja
jörðina og lætur sig dreyma um nýtt
líf á jörð móður sinnar.
Samband feðganna hefur verið
stirt lengi en það
versnar verulega þeg-
ar Jón kemur aftur
tómhentur með óljósar
skýringar á því hvers
vegna ekkert varð af
jarðarsölunni. Þessum
átökum lýkur með
nokkurs konar upp-
gjöri Jóns við föður
sinn. Með aldri og
þroska sér Jón í gegn-
um sjálfsblekkingu og
lygavef Jacks. Fjár-
málaóreiða hans leiddi
á sínum tíma til heift-
arlegs ósættis hans og
Önnu. Hún rauk á dyr
og ók út í buskann með synina tvo á
bremsulausum bíl sem Jack ætlaði að
vera búinn að gera við fyrir löngu. Í
bræði ásakar Jón föður sinn fyrir að
vera valdur að dauða Önnu sem hann
ber af sér.
Sólin er sprungin er vel skrifuð
saga, stíllinn er agaður og fremur
knappur enda er atburðarásin fremur
hröð og sagan spennandi. Á köflum
bregður fyrir fallegum ljóðrænum stíl
með hnyttnum líkingum. Í stuttu máli
er handbragðið gott, höfundur nostr-
ar af kunnáttu við ýmis smáatriði sem
mynda saman sterka heild. Persónu-
sköpun er sæmileg, Tim er eftir-
minnileg persóna og konur sögunnar,
þótt aukapersónur séu, virðast heil-
steyptari. Það á við um Lucy Kanner
og Rúnu en það breytir engu um að
þær eru fórnarlömb tilfinningalega
„bæklaðs“ karlmanns, aðalpersón-
unnar Jóns Fishers. Eins og áður hef-
ur komið fram á hann mjög erfitt með
mannleg samskipti og sama gildir um
föðurinn Jack sem er þó mun ógeð-
felldari persóna en Jón. Samúðin er
með Jóni enda hefur hann átt vægast
sagt erfiða bernsku. Og þá er komið
að kjarna sögunnar, hún sýnir hvern-
ig syndir feðranna koma niður á börn-
unum og hvernig ein ógæfa leiðir til
annarrar. Þegar horft er til þess að
Sólin er sprungin er óvenjulega vel
skrifuð bók veldur það nokkrum von-
brigðum að hún skuli ekki skilja
meira eftir að lestri loknum en raun
ber vitni. Það er eins og söguna skorti
sálfræðilega dýpt til að ná að verða
nógu trúverðug. Samt sem áður er
Sólin mjög læsileg saga og hún sýnir
viðbrögð manneskjunnar í aðstæðum
sem hún ræður ekki við hjálparlaust.
Fastur í neti fortíðar
BÆKUR
Skáldsaga
Sveinbjörn I. Baldvinsson. 215 bls. Mál
og menning 2001.
SÓLIN ER SPRUNGIN
Sveinbjörn I.
Baldvinsson
Guðbjörn Sigurmundsson
ÞAÐ er algengt að höfundar láti
nútímabörn yfirgefa hversdagslega
tilveru og hverfa á vit ævintýra, ann-
aðhvort með því að fara aftur í tímann
eða hverfa inn í ævintýraheim í gegn-
um eitthvert hlið sem þau hafa ekki
séð áður.
Í þessari sögu er Lísa þátttakandi í
lífsgæðakapphlaupi foreldranna og
verður að sætta sig við að lítill tími er
aflögu fyrir hana og litla bróður. Einn
morguninn verður smáslys við morg-
unverðarborðið og snýst allt á verri
veg. Þó Lísa, sem venjulega er kölluð
Dúkku-Lísa, sé bara átta ára er hún
hugrökk og ákveður að strjúka að
heiman. Hún lendir inn á götu sem
hún vissi ekki að væri til og það er
ekki sökum að spyrja að ævintýrin
láta ekki á sér standa. Í Þarnæstu-
götu eru nefnilega galdrar á ferðinni
og hún þarf grípa til
sinna ráða til að bjarga
vesalings gamla fólkinu
út úr dvalaheimilinu þar
sem allir eiga að liggja í
dvala. Hún kynnist alls
kyns skemmtilegu fólki
svo sem Herði með
harmónikkuna sem
verður strax banda-
maður hennar. Stebba
steliþjófur selur pysslur
sem eru auðvitað miklu
bragðbetri en venjuleg-
ar pylsur enda með
karamellubragði og of-
an á þær eru settar blá-
berjasulta, síróp og
súkkulaðisósa. Fjóla hressir við
skáldið sitt hann Gosa sem er aðal
vísnahöfundur bókarinnar.
Óborganleg er líka Bergþóra
(gamla) boltakelling sem er rosalega
flink í boltaleik.
En auðvitað leynast líka hættur í
Þarnæstugötu eins og vera ber í æv-
intýri. Galdrakarlinn er staðráðinn í
að svæfa alla í götunni með því að
byrla þeim dvalasúpu. Lísu og vinum
hennar tekst að koma í
veg fyrir þessi ósköp og
þegar ævintýrinu lýkur
kemur Lísa heim og allt
er orðið gott. Pabbi og
mamma geta nú hlegið
að vandamálum morg-
unsins og ætla að taka
sér frí og gera eitthvað
skemmtilegt.
Eitt lítið atriði finnst
mér hefði betur mátt
fara í prentuninni.
Í öllu bundna málinu
sem er skáletrað er
nærri enginn munur á b
og h. Eflaust er þetta
svo í fyrirfram staðlaðri
leturgerðinni en ég er hrædd um að
yngri lesendur geti átt erfitt með að
átta sig á þessum örmjóa mun á
tveimur stöfum.
Sagan um Dúkku-Lísu og fólkið í
Þarnæstugötu er ævintýri skrifað inn
í hversdagslíf venjulegra barna,
skemmtileg saga og spennandi sem
öll börn geta haft gaman af.
Heimurinn hinum megin
BÆKUR
Barnabók
Guðmundur Ólafsson. Teikningar: Halldór
Baldursson. Vaka Helgafell, 2001. 154 s.
LÍSA OG GALDRAKARLINN
Í ÞARNÆSTUGÖTU
Guðmundur
Ólafsson
Sigrún Klara Hannesdóttir
Í LEIT að tímanum
er fyrsta skáldsaga
Bergljótar Arnalds.
Í kynningu segir
m.a.: „Á sjálfum af-
mælisdeginum
ferðast aðal-
persónan, Viktor, í
gegnum verald-
arsöguna. Á leiðinni
kemst hann í kynni við margar þekkt-
ar persónur eins og Napóleon og Ses-
ar. Hann þarf að berjast við kúreka og
sjóræningja, og ekki batnar ástandið
er hann lendir á tímum risaeðlanna.“
Útgefandi er Virago. Bókin er 200
bls. Verð: 2.480 kr.
TSATSIKI og
Mútta er eftir
sænska rithöfund-
inn Moni Nilsson-
Brännström í þýð-
ingu Friðriks Erl-
ingssonar.
Í kynningu seg-
ir: „Tsatsiki hefur
aldrei hitt pabba
sinn en hann er kolkrabbaveiðimaður
í Grikklandi. Hann veit ekki einu sinni
að Tsatsiki er til því hann býr hjá
henni Múttu sinni í Stokkhólmi sem
spilar á bassa í hljómsveitinni Mútta
og málaliðarnir.
Tsatsiki er að byrja í skóla og eftir
fyrsta árið er hann orðinn margs vísari
um tilveruna. Hann er óhræddur við
að segja það sem honum finnst og
framkvæma það sem honum dettur í
hug. Mútta hans er ekki eins og aðrar
mömmur en með henni og öllum vin-
um sínum tekst Tsatsiki á við lífið og
lendir í hverju ævintýrinu á fætur
öðru.“
Útgefandi er Iðunn. Bókin er 124
bls. Prentun: Oddi hf. Verð: 1.980 kr.