Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 B 3  VALA Flosadóttir tók þátt í móti í Gautaborg í Svíþjóð á laugardag og varð önnur í stangarstökks- keppninni, stökk 4,18 metra en það sama gerði sigurvegarinn, hin sænska Hanna-Mia Persson en hún notaði færri tilraunir en Vala.  EINAR Karl Hjartarson, Íslands- methafi í hástökki úr ÍR, varð í 10. sæti á háskólamóti í New York um helgina, stökk 2,01 metra og var talsvert frá sínu besta enda er Ís- landsmet hans 27 sentímetrum hærra. Sigurvegarinn vippaði sér yfir 2,21.  ALBERT Arason, knattspyrnu- maður, sem leikið hefur með Leiftri á Ólafsfirði er genginn til liðs við Þór á Akureyri. Albert lék 17 af 18 leikjum Leifturs í 1. deildinni á síð- ustu leiktíð en hann á að baki 26 leiki með Ólafsfjarðarliðinu í efstu deild.  KRISTINN Björnsson, skíðamað- ur frá Ólafsfirði, féll í fyrri og seinni umferð á tveimur svigmótum í Sappada á Ítalíu um helgina. Þetta voru síðustu mót Kristins í Evrópu að sinni, en hann heldur nú til Salt Lake City og keppir þar í svigi á vetrarólympíuleikunum.  GUÐMUNDUR Karl Geirsson, varamarkvörður Stjörnunnar, kom tvívegis í markið til að freista þess að verja vítakast, en tókst ekki. Þetta var fyrsti leikur hans með lið- inu en Garðbæinga vantaði annan markvörð þar sem Birkir Ívar Guð- mundsson er farinn í atvinnu- mennsku til Spánar.  LEIK Stjörnunnar og ÍBV var flýtt nokkuð og hófst klukkan 15 á sunnudaginn. Ástæðan eru aðgerðir flugumferðarstjóra og Stjörnumenn urðu við beiðni Eyjamanna um að færa leikinn framar þannig að leik- menn kæmust til síns heima sam- dægurs.  HILMAR Þórlindsson og félagar í Modena á Ítalíu töpuðu 31:33 fyrir Merano og þurfti að framlengja til að knýja fram úrslit. Hilmar gerði 11/1 mark í leiknum en liðið færist nú stöðugt fjær toppnum á ítölsku deildinni.  ÞEGAR búið var að keppa í níu greinum á vetrarólympíuleikunum í Salt Lake City höfðu níu lönd unnið til gullverðlauna. Skipting gullsins riðlaðist ekki fyrr en þýska stúlkan Andrea Henkel sigraði í 15 kíló- metra skíðaskotfimi. Þar með höfðu Þjóðverjar krækt sér í tvenn gull- verðlaun. Eggert sagði ennfremur í ræðusinni: „Knattspyrnusamband Íslands er stærsta og öflugasta fé- lagsmálahreyfing landsins. Innan okkar vébanda eru hátt í 20.000 virk- ir félagar, auk allra þeirra sem tengjast starfinu. Á okkur hvílir mik- il ábyrgð og sífelld krafa að gera enn betur. Verk okkar eru ekki alltaf metin sem skyldi en við látum okkur fátt um finnast, ef við erum sann- færð um að við höfum unnið af hug- sjón og heilindum. Við sækjumst ekki eftir lofi og þökkum, við sækj- umst eftir árangri og þeirri full- nægju sem felst í því að láta gott af sér leiða. Hlutverk okkar sem sitjum í stjórn KSÍ og stjórnum félaganna er að skipuleggja hreyfinguna og veita henni forystu. Knattspyrnu- hreyfingin verður að standa saman sem ein órofin heild.“ KSÍ skilaði 20 milljón króna hagn- aði en segja má að raunhæfur hagn- aður hafi verið 30 milljónir því sam- bandið greiddi til aðildarfélaga sinna 10 milljónir króna sem fært var á síð- asta starfsári. Þá kom fram að fjár- hagsstaða sambandsins er mjög traust en eigið fé þess er 93 milljónir króna. „Þingið var mjög gott í alla staði. Það fór fram málefnaleg umræða um mjög mörg mál en það sem kannski stóð upp úr voru fréttir af ágætri af- komu sambandsins. Þá voru tvö veigamikil mál kynnt á þinginu. Ann- ars vegar voru það félagaskiptamál- in sem hafa tekið miklum breyting- um út af Evrópusambandinu og hafa verið mikið í brennidepli og hins veg- ar hið svokallaða leyfiskerfi hjá UEFA sem snertir mest liðin sem leika í Símadeildinni. Þar eru ákveðnar kröfur hvað varðar að- stöðu, fjárhag, unglingastarf sem fé- lögin verða að uppfylla. Þau fá til að mynda ekki að taka þátt í Evrópu- keppni nema að þessi leyfi séu öll í lagi,“ sagði Eggert Magnússon, for- maður KSÍ, í samtali við Morgun- blaðið. Eggert sagði spennandi tíma vera framundan í íslenskri knattspyrnu og ekki annað hægt en að vera bjart- sýnn á framtíð hennar. „Það er að verða algjör bylting hvað aðstöðuna snertir. Knatt- spyrnuhús eru að rísa hvert á fætur öðru og til lengri tíma litið á það eftir að skila góðum árangri inn í knatt- spyrnuna. Við höfum séð á undan- förnum árum að aðstaðan á knatt- spyrnuvöllum landsins hefur batnað mjög mikið en ég er þeirrar skoð- unar að hægt sé að gera betur. Bæj- arfélögin víðs vegar um landið verða að taka röggsamlega á þessum mál- um og byggja upp aðstöðu sem full- nægir kröfum nútímans.“ Á ársþingi KSÍ í fyrra sagði Egg- ert í ræðu sinni að mesta áhyggju- efnið í íslenskri knattspyrnu væru fjármálin þar sem mörg félög væru mjög skuldsett. En hefur eitthvað rofað til í þessum efnum að hans mati? „Það má eiginlega segja að í fyrra hafi byrjað alvöru hreingerning hjá félögum og ég held að hún haldi áfram. Það eru fordæmi sem hafa vakið athygli eins og hjá ÍA og Framarar tóku sömuleiðis vel til hjá sér. Ég veit til þess að flest félög eru að taka til hjá sér í þessum málum og setja sér þau markmið að reisa sér ekki hurðarás um öxl.“ A-landslið karla hefur oft verið nefnt andlit KSÍ. Var ekki þing- fulltrúum tíðrætt um það á þinginu? „Þrátt fyrir þessa tvo slæmu skelli í haust þá hefur árangurinn í tveim- ur síðustu keppnum skilað sér í því að við erum komnir upp um styrk- leikaflokk og eru í miðjum hópi af Evrópuþjóðunum hvað styrkleika varðar. Það tel ég frábæran árangur hjá lítilli þjóð eins og okkur og ég veit að mikil virðing er borin fyrir ís- lenskri knattspyrnu víðs vegar um heiminn vegna þess árangurs sem við höfum náð á móti stórþjóðum. Við erum í sjöunda himni með drátt- inn í undankeppni EM og auðvitað höfum við sett okkur það markmið að komast hærra í styrkleikaflokki.“ Eggert sagði að hann hefði af- greitt ölvunarmál landsliðsmanna fyrir þinginu en eins og frægt er þá brutu nokkrir landsliðsmenn aga- reglur fyrir landsleikinn ytra á móti N-Írum. Eggert sagði að tekið hefði verið á þeim málum innan KSÍ og þau afgreidd varðandi framtíðina. Undanúrslit bikarkeppninnar á Laugardalsvellinum Af helstu tillögum sem samþykkt- ar voru á þinginu má nefna að sam- þykkt var að undanúrslitaleikirnir í bikarkeppni KSÍ fari fram á Laug- ardalsvellinum og samþykkt var að ársþing KSÍ fari framvegis fram á einum degi. Ein breyting varð á stjórn KSÍ. Anna Vignir gaf ekki kost á sér til endurkjörs og í hennar stað var kos- in Ingibjörg Hinriksdóttir. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason FÓLK Eggert Magnússon endurkjörinn formaður Knattspyrnusambands Íslands Spennandi tímar eru framundan EGGERT Magnússon var endurkjörinn formaður Knattspyrnu- sambands Íslands til næstu tveggja ára á 56. ársþingi KSÍ sem haldið var á Hótel Loftleiðum um helgina. Eggert sagði í ræðu sinni á þinginu að árið 2001 hefði sannarlega verið minnisstætt, við- burðaríkt og merkilegt ár í íslenskri knattspyrnu. Ljósmynd/Jóhann Kristinsson Nýkjörin stjórn KSÍ. Aftasta röð frá vinstri: Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri, Lúðvík Georgsson, Einar Friðþjófsson, Þórarinn Gunnarsson og Ómar Bragi Stefánsson. Miðröð: Björn Friðþjófsson, Jóhannes Ólafsson, Jakob Skúlason, Ágúst Ingi Jónsson og Ástráður Gunnarsson. Fremsta röð: Eggert Steingrímsson, Halldór B. Jónsson, Eggert Magnússon, Ingibjörg Hinriks- dóttir og Jón Gunnlaugsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.