Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 8
HANDKNATTLEIKUR 8 B ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Leikurinn var nokkuð kaflaskipt-ur og nokkuð frá því að vera vel leikinn. Þó sáust ágætir sprettir inn á milli og frammi- staða Árna Þorvarð- arsonar, markvarð- ar Stjörnunnar, vakti sérstaka at- hygli því hann hefur lítið varið mark liðsins en kemur nú inn í liðið þar sem Birkir Ívar Guðmundsson er farinn í atvinnumennsku til Spánar. Eyjamenn voru lengi í gang og gerðu fyrsta markið ekki fyrr en eftir tæpar sex mínútur og þá höfðu heimamenn skorað tvíveg- is. Staðan var 5:2 þegar mjög góður kafli kom hjá gestunum sem gerðu fimm mörk í röð og komust tveimur mörkum yfir og þeir voru tveimur mörkum yfir í leikhléi, 13:11. Síðari hálfleikur hófst svipað þeim fyrri. Eyjamenn skoruðu ekki fyrr en eftir sex mínútna leik og þá höfðu heimamenn gert fjögur mörk og voru komnir 15:13 yfir. Nú liðu sjö mínútur í næsta mark ÍBV en heimamenn gerðu bara tvö mörk á þessum kafla þannig að staða Eyja- manna var alls ekki vonlaus eins og kom í ljós því þeir komust yfir á ný 20:19 þegar níu mínútur voru eftir en náðu ekki að fylgja því eftir. Lokamínútan var spennandi og sigurinn hefði getað lent hvorum megin sem var. Stjarnan fékk bolt- ann þegar 55 sekúndur voru eftir og staðan 21:21. Eftir langa sókn var skotið fyrir utan þegar sex sekúnd- ur voru eftir en Hörður Flóki varði, henti fram á Sigurð Stefánsson sem fór inn af línunni en Árni varði frá honum og þar með ljóst að jafntefli var niðurstaðan. Bæði lið léku flata vörn en gest- irnir tóku Magnús Sigurðsson úr umferð stöku sinnum í síðari hálf- leik. Stjarnan tók tvo gesti úr um- ferð þegar ÍBV missti leikmann út- af í tvær mínútur og gafst það vel. Það er greinilegt að mikið býr í hinu kornunga liði Stjörnunnar, þar eru strákar sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða á næstu árum. Árni var góður í markinu, Vilhjálm- ur Halldórsson og Bjarni Gunnars- son eru ágætir varnarmenn og geta gert fína hluti í sókninni líka þó svo þeir gerðu lítið af því að stökkva upp fyrir utan og skjóta, reyndu meira skot af gólfinu. Of lítið kom út úr hornamönnum Stjörnunnar að þessu sinni, eitt mark frá hvorum um sig og þau bæði úr hraðaupp- hlaupi. Gunnar Ingi Jóhannsson, í vinstra horninu, er samt efnilegur piltur. Leikstjórnandinn og fyrirlið- inn Þórólfur Nielsen lætur boltann ganga vel en má ógna meira. Magn- ús stóð fyrir sínu í leiknum og gerði falleg mörk auk þess að standa vörnina vel. Þá átti Norðmaðurinn Ronnie Smedsvik ágætan dag á lín- unni. Hjá Eyjamönnum var Hörður Flóki sterkur, Petras Raupenas var sterkur í fyrri hálfleik en lét lítið fara fyrir sér eftir hlé. Ungur pilt- ur, Sigurður Stefánsson, örvhent skytta, á eftir að láta meira að sér kveða í framtíðinni. Hann hóf leik- inn með tveimur neglum í stangir Stjörnumarksins og virtist hafa misst móðinn við það, en greinilegt er að hann getur vel skotið fyrir ut- an og hann á að gera meira af því. Mindaugas Andriuska er meiddur og hann kom aðeins inn á til að taka vítaköst. Leikur markvarðanna ÞAÐ má segja að markverðir Stjörnunnar og ÍBV hafi verið í aðalhlutverkum þegar liðin mættust í 1. deild karla í hand- knattleik á sunnudaginn. Niður- staðan varð 21:21 jafntefli. Skúli Unnar Sveinsson skrifar  SEBASTÍAN Alexandersson, markvörður Fram, fór af leikvelli á 48. mínútu leiksins gegn Aftureld- ingu vegna meiðsla á hné. Kom hann reyndar inn á níu mínútum síðar í þeim tilgangi að verja vítakast en tókst ekki. Að öðru leyti sat hann til leiksloka á varamannabekknum með kælipoka við vinstra hnéð.  SEBASTÍAN meiddist á æfingu á föstudaginn þegar hann að eigin sögn var loks að ná sér fullkomlega af öðrum meiðslum. Í herbúðum Framara er vonast til að meiðsli Sebastíans séu ekki alvarleg, en liðið leikur til úrslita við Hauka í bikar- keppninni á laugardaginn og má vart við því að vera án þessa snjalla markvarðar.  UM tíma leit út fyrir að Sebastían yrði ekki með gegn Aftureldingu sökum hnémeiðslanna, en nafni hans var bætt á leikskýrslu skömmu áður en leikurinn hófst.  MAGNÚS A. Arngrímsson lék sinn fyrsta leik með Fram á leiktíð- inni gegn Aftureldingu á sunnudag- inn. Magnús hefur átt við þrálát meiðsli að stríða í öxl um langan tíma en virðist vera loks að ná sér á strik.  HAUKUR Sigurvinsson, leikmað- ur Aftureldingar, fór úr axlarlið á 19. mínútu leiksins við Fram og er talið sennilegt að hann verði frá keppni um nokkurn tíma.  GEIR Sveinsson, þjálfari Vals, og Ágúst Jóhannsson aðstoðarmaður hans, fylgdust grannt með leik Aft- ureldingar og Fram á sunnudags- kvöldið og tóku leikinn upp á mynd- band, en Valur mætir Aftureldingu í næstu umferð í deildinni miðviku- daginn 20. febrúar.  JÚLÍUS Jónasson, þjálfari ÍR- inga, var einnig í Mosfellsbænum á sunnudaginn og skrifaði eitt og ann- að bak við eyrað um leikaðferðir Fram og Aftureldingar.  ÓLAFUR Haraldsson og Guðjón L. Sigurðsson handknattleiksdóm- arar fara til Slóveníu í lok vikunnar og dæma þar á laugardaginn viður- eign RK Krim Neutro Roberts gegn rússneska liðinu AKVA Volgograd í Meistaradeild Evrópu í kvenna- handknattleik. Þetta er fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitum keppninnar.  RÓBERT Sighvatsson og Gylfi Gylfason voru ekki á meðal marka- skorara hjá Düsseldorf þegar liðið gerði jafntefli, 25:25, við VfL Pfull- ingen í suðurhluta þýsku 2. deild- arinnar í handknattleik um helgina. Düsseldorf er í 4. sæti deildarinnar.  SÖMU sögu er að segja af Haraldi Þorvarðarsyni leikmanni Stralsund- er HV. Hann komst ekki á blað þeg- ar lið hans vann Eintracht Hildes- heim, 27:26, á heimavelli í norður- hluta 2. deildar. FÓLK Greinilegt var í byrjun að gest-irnir að norðan ætluðu að selja sig dýrt, þeir voru sprækir í sókninni og tóku hraustlega á móti í vörninni. Heimamenn virtust aftur á móti frekar þunglamalegir en tókst þó að halda forystu fram í miðj- an fyrri hálfleik og geta helst þakkað það markverði sínum, Magnúsi Sig- mundssyni, sem hafði meðal annars varið þrjú hraðaupphlaup. En um miðjan hálfleikinn fór ákafi KA- manna að skila sér, vörnin náði betur saman sem strax auðveldaði mark- verðinum sín störf og KA náði tveggja marka forystu, 10:8. Þá var Haukadrengurinn Ásgeir Örn Hall- grímsson settur inná og það frískaði talsvert uppá sóknarleik Hauka – nógu mikið til að KA-menn breyttu úr flatri vörn í framliggjandi en Haukum tókst engu síður að jafna og var staðan 15:15 í leikhléi. Hafnfirðingar réðu ráðum sínum í leikhléi og skoruðu þrjú fyrstu mörk síðari hálfleiks með kraftmiklum gegnumbrotum áður en gestirnir voru búnir að koma sér fyrir. Það tók þá tíu mínútur að koma vörninni í réttar stellingar og á sama tíma náðu þeir að sýna liprar leikfléttur, sem skiluðu fjórum mörkum í röð og spenna komin í leikinn á ný. Eftir það varð munurinn aldrei meiri en eitt mark og mikil barátta fór að taka sinn toll. Það kom frekar niður á KA- mönnum, sem höfðu ekki mikla breidd á varamannabekknum, en þeir bættu það upp með enn meiri baráttu. Við það brutu þeir meira á Haukamönnum, en oft var eins og dómarar leiksins bæru heldur mikla virðingu fyrir Íslandsmeisturunum. Þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir að leiknum náðu KA-menn að vinna upp tveggja marka forskot Hauka og þegar ein og hálf mínúta var eftir jafnaði Sævar Árnason fyrir KA, 30:30. Haukamenn tóku sér nægan tíma í síðustu sóknina og tóku leikhlé 17 sekúndum fyrir leikslok. Þeir náðu svo skoti fimm sekúndum fyrir leikslok, sem var varið og KA- mönnum tókst aðeins að taka skot frá miðju áður leikurinn var flautað- ur af. „Þetta var ótrúlegur leikur, mikið skorað en varnir lélegar og mark- varsla einnig. Því var pressa að skora í hverri sókn og það er erfitt en við verðum að bæta vörnina og mark- vörsluna,“ sagði Aron Kristjánsson úr Haukum eftir leikinn. „Það var erfitt að fara í þennan leik og mikil spenna eftir langt hlé í deildinni og auk þess erum við nokkrir nýkomnir úr erfiðu móti. Það var samt ekkert um annað að velja, við ákváðum að rífa okkur af stað og jafnvel gott að fá einn leik því það hefði eflaust verið skrýtið að fara beint frá Svíþjóð í bik- arúrslit,“ bætti Aron við og taldi ekki laust við að þreyta sæti í honum eftir Evrópukeppnina í Svíþjóð. „Maður fann að maður var þungur í upphit- uninni en það varð bara að rífa það úr sér. Við verðum fljótir að jafna okkur og koma tvíefldir í bikarúrslitin næsta laugardag.“ Magnús mark- vörður og Ásgeir Örn voru frískastir Hauka en Aron, Einar Örn Jónsson og Rúnar Sigtryggsson skiluðu sínu þó þeir virtust oft þreytulegir. „Ég er ánægður með stigið en við hefðum getað fengið tvö því við spil- uðum vel og börðumst geysilega all- an tímann,“ sagði Atli Hilmarsson þjálfari KA eftir leikinn, ánægður að lið hans lagði allt í sölurnar. „Við vor- um samt orðnir nokkuð þreyttir í lokin því við gátum ekki skipt of mik- ið inná en það sem skipti sköpum var að drengirnir börðust um hvern bolta og gáfust ekki upp þó við vær- um þremur mörkum undir. Við höf- um yfirleitt spilað vörnina framar- lega á móti Haukum svo mér fannst í lagi að prófa flata vörn. Síðan ákvað ég að breyta, því mér fannst hún ekki ganga vel enda tekur hún sinn toll. Það gaf góða raun því menn voru ferskir og héldu sínu þrátt fyrir þreytuna.“ KA náði að tefla fram flestum úr leikmannahópi sínum en meiðsli hafa sett svip sinn á liðið í vetur. Til dæmis lék Heimir Örn Árnason næstum allan leikinn og Heiðmar Felixson spilaði í vörn en enn vantar Arnór Atlason. „Við höf- um endurheimt úr meiðslum Heið- mar að hálfu leyti og Heimir Örn nokkurn veginn en eigum síðan Arn- ór Atlason eftir,“ bætti Atli við. Heimir Örn, Petkevicius markvörð- ur, Andreus Stelmokas, Halldór Sig- fússon og Jónatan Þór Magnússon áttu allir góðan leik og Sævar Árna- son fyrirliði var drjúgur. KA-menn velgdu Haukum undir uggum SPRÆKIR KA-menn velgdu þunglamalegum Íslandsmeist- urum Hauka rækilega undir uggum á sunnudaginn en urðu að sætta sig við að taka aðeins annað stigið með sér norður eftir 30:30 jafntefli í baráttuleik. Hafnfirðingarnir halda eftir sem áður efsta sæti deildarinnar en stigið dugði norðanmönnum til að komast upp fyrir miðja deild. Stefán Stefánsson skrifar Fyrri hálfleikur var með eindæm-um slakur, einkum þó af hálfu Framara sem virtust vera með hug- ann við annað og máttu hreinlega þakka fyrir á Mos- fellingar virtust ann- ars hugar í sóknar- leiknum. Varnarleikur Aftureldingar var góður gegn tilbreytingarlitlum sóknarleik Safamýrarpilta. Að baki vörn Aftureldingar var síðan besti maður liðsins, Reynir Þór Reynisson. Í síðari hálfleik vöknuðu leikmenn Fram af værum blundi, bættu vörn sína verulega. Fengu þeir fyrir vikið hraðaupphlaup sem lagði grunninn að jöfnum leik. Fram jafnaði metin, 13:13, á 36. mínútu. Upp úr miðjum hálfleiknum náðu Framarar nokkr- um góðum sóknum og um leið þriggja marka forskoti, 21:18, þegar tíu og hálf mínúta var eftir. Svo virt- ist sem gestirnir ætluðu að hafa bæði stigin með sér á lokasprettinum, þeirra voru færin, en gekk illa að nýta þau. Mosfellingar tóku sig sam- an í andlitinu og börðust vel og upp- skáru annað stigið. Áttu þeir meira að segja möguleika á að tryggja sér bæði stigin en tókst ekki að nýta síð- ustu sókn leiksins. Niðurstaðan því jafntefli og verða það bara að teljast sanngjörn úrslit. „Ég er sáttur við að vera ósáttur við annað stigið úr heimsókn í Mos- fellsbæinn,“ sagði Heimir Ríkharðs- son, þjálfari Fram í leikslok. „Við vorum nærri því að vinna bæði stigin og það hefði verið svo sannarlega ljúft. Fyrstu 20 mínútur leiksins voru slakar af okkar hálflu og greinilegt að langt hlé á Íslandsmótinu hafði sín áhrif á menn. En ég er ánægður með strákana að því leytinu til að þeir náðu að rífa sig upp og bæta sinn leik. Það er hið jákvæða við þennan leik,“ sagði Heimir ennfremur sem engar áhyggjur hefur af því að lið sitt leiki með svipuðum hætti í bikarúrslita- leiknum við Hauka næsta laugardag. „Það kemur ekki til. Við höfum ekki tapað fyrir Haukum í vetur og ætlum ekki að taka upp á því á laugardag- inn. Menn komu með allt öðru hug- arfari í þann leik en þennan gegn Aft- ureldingu.“ „Þetta var fyrst og fremst mis- takaleikur og ég er sár yfir því að hafa ekki fengið bæði stigin því við lögðum okkur virkilega fram við æf- ingar á meðan hléið stóð yfir,“ sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftureld- ingar sem lék lítið með að þessu sinni og skoraði m.a. aðeins eitt mark. „Vörnin hélt vel í fyrri hálfleik og Fram skoraði aðeins átta mörk. Þá áttum við að sigla langt framúr og gera út um leikinn. Það tókst ekki og í staðinn lentum við í basli þegar á leið en tókst að bjarga okkur fyrir horn undir lokin. Báráttan á lokakafl- anum var jákvæð,“ sagði Bjarki enn- fremur. Morgunblaðið/Ásdís Magnús Már Þórðarson, Aftureldingu, er tekinn föstum tökum er hann sækir að marki Fram. ÞAÐ var fátt um fína drætti í Mosfellsbænum á sunnudaginn þegar Fram heimsótti liðsmenn Aftureldingar. Greinilegt var að leikmenn beggja liða höfðu ekki náð áttum eftir nærri tveggja mánaða frí á Íslandsmótinu. Leikurinn var slakur og ef ekki hefði hlaupið örlítil spenna í hann undir lokin væri hann vart minnisstæður. Niðurstaðan jafntefli, 23:23, eftir að Mosfell- ingar höfðu haft frumkvæðið í fyrri hálfleik og verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 11:8. Ívar Benediktsson skrifar Fátt um fína drætti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.