Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 6
KÖRFUKNATTLEIKUR 6 B ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK KR-ingar hófu leikinn mun betur enNjarðvíkingar, boltinn gekk vel manna á milli í sókninni og vörnin var ákveðin og föst fyrir. Á sama tíma virtust Njarðvíkingar ekki al- veg með á nótunum, eins og þeir hefðu ekki alveg áttað sig á að þeir væru komnir í bikarúrslitaleikinn. Fyrri hálfleikurinn var ekki hálfleikur Njarðvíkinga, nema þá að því leytinu til að þeir náðu að vera ekki nema níu stigum undir í leikhléi. Nokkuð furðuleg staðreynd þegar haft er í huga að KR-ingar voru miklu betri aðilinn fyrir hlé. Sem dæmi um leik Njarðvíkur má nefna að skotklukkan rann út í fyrstu sókn þeirra án þess að þeir næðu skoti og KR gerði fyrstu sjö stigin og komst í 14:4 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður og 25:8 þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir af honum. Njarðvík skoraði 8 stig gegn tveimur stigum KR það sem eftir var og staðan 26:16 eftir fyrsta leik- hluta. Halldór kom með baráttu Það vantaði alla baráttu í Njarðvík- inga í fyrsta leikhluta, það var ekki fyrr en Halldór Karlsson kom inn á er langt var liðið á hann að smá baráttuneisti kviknaði, en það tók sinn toll því Hall- dór fékk strax þrjár villur og var tekinn útaf. Hann hafði þó sýnt félögum sínum hvernig á að berjast og það gerðu þeir það sem eftir var. Annar leikhluti var í járnum og end- aði 23:22 fyrir Njarðvík. Samfara því að leika mjög illa í fyrsta leikhluta og frem- ur illa í þeim næsta voru Njarðvíkingar óheppnir. Vörnin var slök, enda fengu þeir á sig 48 stig í fyrri hálfleik, og ekk- ert féll þeim í hag. Þótt þeir fengju góð skotfæri rataði boltinn ekki rétta leið og KR-ingar tóku flest fráköstin. Keith Vassell fór á kostum í liði KR fyrir hlé. Hann ætlaði greinilega ekki að láta það trufla sig þótt hann hafi þurft að stjórna kvennaliðinu í úrslitaleik kvenna áður en karlaleikurinn hófst. Baráttan var gríðarleg, hittnin fín og hann lék fína vörn gegn Friðriki Stef- ánssyni. Í fyrri hálfleik gerði hann 17 stig, tók 9 fráköst og varði þrjú skot. Herbert Arnarson átti einnig fínan leik svo og Arnar Kárason og Helgi Már Magnússon. Hjá Njarðvík voru það helst Friðrik og Teitur Örlygsson sem komust næst því að leika af eðli- legri getu auk þáttar Halldórs sem áður er getið. Njarðvíkingar mættu mjög ákveðnir til síðari hálfleiks. Raunar kom fyrsta karfa þriðja leikhluta ekki fyrr en eftir tveggja mínútna leik en þá um leið fór Logi Gunnarsson í gang og hann gerði 16 stig í síðari hálfleik en hafði aðeins gert 6 í þeim fyrri. Fjórar þriggja stiga körfur lágu hjá honum eftir hlé, hver annarri fallegri auk þess sem hann var sterkur í vörninni og iðinn að spila fé- laga sína uppi. Teitur hélt uppteknum hætti og gerði 10 stig í síðasta fjórðungi. Vörnin hrökk í gang og Njarðvíking- um tókst að halda svo aftur af KR-ing- um að þeir gerðu aðeins 16 stig í leik- hlutanum, höfðu gert 26 í þeim fyrsta og 22 í næsta. Staðan eftir þriðja leikhluta var 64:59 fyrir KR sem klóraði aðeins í bakkann síðari hluta leikhlutanas þegar Vassell var hvíldur. Hann var nefnilega slakur í þessum leikhluta, reyndi allt of mikið sjálfur og þegar það tekst ekki verða menn að treysta meðspilurum sínum. Staðan var 50:42 þegar Njarðvíking- ar gerðu 12 stig í röð, 50:54 en KR 14 Njarðvíkingar sterk NJARÐVÍKINGAR urðu á laugardaginn bikarmeistarar í körfuknatt- leik karla í sjöunda sinn, lögðu KR 86:79 í skemmtilegum úrslitaleik í Laugardalshöllinni. Lokakaflinn var spennandi, jafnt var 77:77, þegar um þrjár mínútur voru eftir en á lokamínútunum gerðu Njarð- víkingar níu stig á móti tveimur stigum KR og þar skildi á milli. Skúli Unnar Sveinsson skrifar Njarðvíkingarnir Halldór R. Karlsson og Hljóðnemar á dómurunum DÓMARARNIR í úrslitaleik karla í bik- arnum um helgina voru báðir með sér- staka hljóðnema á sér. Þetta var gert til að það heyrðist í þeim í sjónvarpsútsend- ingunni á Sýn, en leiknum var sjónvarpað beint þar. Fyrir áhugamenn um körfu- knattleik var virkilega gaman að heyra hvernig dómararnir töluðu við leikmenn og reyndu í sumum tilvikum að leiðbeina þeim þegar þeir voru komnir í vandræði. Fullt hús hjá Njarðvíkingum NJARÐVÍKINGAR eru nú handhafar allra titlana sem er í boði í karlaflokki í körfuknattleik. Þeir eru núverandi Íslands- og bikarmeistar, þeir báru sigur úr býtum í Kjörísbikarkeppninni í haust, unnu sigur á Reykjanesmótinu á undirbúningstímabilinu í haust og urðu Landsmótsmeistarar á Landsmóti UMFÍ á Egilsstöðum í sumar. Glæsilegur árangur og varla hægt að segja annað en Njarðvíkingar séu með besta körfuknattleikslið landsins þó svo að þeir séu í þriðja sæti í úrvals- deildinni, tveimur stigum á eftir KR og Keflavík. laugardaginn. Fyrst stýrði hann kvennaliði KR til sigurs í bikarkeppni kvenna og strax á eftir var hann kom- inn í KR-búninginn með félögum sín- um í karlaliðinu sem biðu lægi hlut fyrir Njarðvíkingum. „Ég er gífurlega vonsvikinn. Við vorum með góð tök á leiknum en þeg- ar líða tók á seinni hálfleikinn létum við Njarðvíkingana slá niður taktinn í leik okkar. Sóknarleikurinn, sem hafði gengið fínt í fyrri hálfleik, var vandræðalegur og í vörninni gáfum við skyttum þeirra allt of mikinn tíma til að athafna sig,“ sagði Vassell í samtali við Morgunblaðið en hann átti mjög góðan leik, sérstaklega í fyrri hálfleik. Hann skoraði 24 stig, tók 13 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. En hvernig fannst honum að stjórna fyrst kvennaliðinu og fara síðan strax á eftir að spila sjálfur? ,,Það var mjög erfitt. Hjartað sló með stelpunum en ég reyndi að gefa allt í leikinn sem ég gat. Undirbún- ingurinn var kannski ekki sá allra besti en ég var vissi það svo sem fyrir leikinn að ég gæti ekki undirbúið mig eins og hinir strákarnir. Það kom enn og aftur í ljós að KR og Njarðvík eru mjög áþekk að getu og í þessum leik, eins og fleirum gat sigur fallið hvor- um megin sem var.“ Kannski of afslappaðir ,,Það er mjög erfitt að kyngja þessu, sérstaklega þar sem mér fannst við hafa öll tök á að geta unnið. Við lékum fyrri hálfleikinn einstak- lega vel en það var eins og við mætt- um ekki eins vel stemmdir til leiks eftir leikhléið. Kannski vorum við of afslappaðir og það gekk lítið eftir það sem við ætluðum að gera. Njarðvík- ingarnir komu mjög sterkir inn í seinni hálfleikinn. Þeir náðu að efla varnarleik sinn og við það kom tölu- vert hik í sóknarleikinn hjá okkur. Logi og Teitur hrukku í gang í seinni hálfleik og það má kannski segja að þeir tveir hafi gert út um leikinn. Við vitum að okkar lið er alveg til jafns á við Njarðvíkurliðið og þegar þessi tvö Við héldum leikmanni eins og LogaGunnarssyni algjörlega í skefj- um í fyrri hálfleik en í þeim síðari fór hann illa með okkur eins og Teitur og það var sennilega banabitinn að hleypa þeim í gang. Við lékum mjög vel í fyrri hálfleik, vörnin var hreyf- anleg, hittnin góð utan af velli og Keith Vasell var eins og konungur í ríki sínu. Í seinni hálfleiknum misstu menn einhvern veginn trú á sjálfum sér en ég tek líka sök á mig. Ég var ekki nógu duglegur að skipta mönn- um inná og fyrir vikið fór að gæta þreytu hjá lykilmönnum og eins var slæmt að meiðslin tóku sig upp hjá Jóni Arnóri. Engu að síður er ég þeirrar skoðunar að við hefðum átt að vinna þennan leik. Tveir af þeirra stóru mönnum voru komnir útaf með fimm villur og það áttum við að nýta okkur betur.“ Hvaða áhrif heldur þú að ósigurinn hafi á þitt lið? ,,Nú er það okkar að sýna hvort við höfum góðu liði á að skipa eða ekki. Auðvitað er alltaf hætta á að menn springi og fari hver út í sitt horn en ég þekki strákana vel og veit að þeir eru staðráðnir í að einbeita sér vel að Ís- landsmótinu,“ sagði Ingi. Hjartað sló með stelpunum Það var í nógu að snúast hjá Bandaríkjamanninum Keith Vasell á lið eigast við ráðast úrslitin oft á heppni. Þetta datt þeirra megin í dag en við verðum bara að gera betur í deildinni,“ sagði Jón Arnór Stefáns- son. Spurning um eitt skot til eða frá Herbert Arnarson hjá KR lék sinn fyrsta bikarúrslitaleik, en náði ekki að fagna sigri. „Mér finnst það mjög djúpt í árinni tekið að segja að við höfum verið mik- ið betri í fyrri hálfleik. Við byrjuðum vel, en þegar tvö góð og jöfn lið mæt- ast var það alveg vitað að þetta myndi verða jafnt alveg fram á síðustu stundu. Þegar svo er, er þetta nánast spurning um eitt skot til eða frá.“ Í þriðja leikhluta gekk illa hjá ykk- ur og ef til vill vegna þess að menn reyndu of mikið sjálfir og of lítið var reynt að koma boltanum inn í teiginn. Ertu sammála því? „Já, ef til vill. Við erum með þannig lið að það geta allir fimm sem eru inn á skotið og þegar tækifæri gefst og menn eru galopnir fyrir utan þá er freistandi að skjóta. Við trúum því að við getum allir skotið. Hins vegar verðum við að fara inn í teig og reyna að taka fráköst eða fá boltann þangað. Þetta gekk vel í fyrri hálfleik þegar Keith átti stórleik, fór hreinlega ham- förum í teignum. Ég veit ekki hvort þetta breyttist vegna þess að við lék- um verr eða vegna þess að þeir tóku sig verulega á í vörninni, stigu okkur betur út,“ segir Herbert. „Við hreinlega gáfum þeim sigurinn og ég er gríðarlega vonsvikinn með úrslitin því mér fannst við stjórna leiknum meira og minna nær allan tímann,“ sagði Ingi Steinþórsson, þjálfari KR, við Morgun- blaðið eftir ósigur sinna manna. Gáfum þeim sigurinn  TEITUR Örlygsson fagnaði sjö- unda bikarmeistaratitli sínum á laugardaginn en úrslitaleikinn var sá tíundi í röðinni hjá honum.  NJARÐVÍNKINGAR tryggðu sér bikarinn í sjöunda sinn en þetta var þrettándi leikur þeirra í úrslitum keppninnar. Þeir töpuðu fyrstu fimm en hafa síðan unnið sjö af síðustu átta bikarúrslitaleikjunum.  KR-ingar hafa unnið bikarinn oft- ast eða níu sinnum en leikurinn á laugardaginn var 16. bikarúrslita- leikur KR-inga frá upphafi. Þeir urðu síðast bikarmeistarar árið 1991.  BRENTON Birmingham hefur leikið þrjá bikarúrslitaleiki og unnið þá alla. Hann var bikarmeistari með Njarðvík árið 1999, ári síðar var hann í herbúðum Grindvíkinga sem vann bikarinn og nú í þriðja sinn hampaði Brenton bikarnum.  LOGI Gunnarsson, leikmaðurinn snjalli hjá Njarðvík, hefur vinning- inn umfram föður sinn. Loga tókst að verða bikarmeistari sínum fyrsta bikarúrslitaleik en Gunnar Þorvarð- arson, sem gerði garðinn frægan með suðurnesjaliðinu á árum áður, lék fimm bikarúrslitaleiki og tapaði þeim öllum.  JÓN Arnór Stefánsson sneri sig á ökka í snemma í fjórða leikhlutanum. Hann fór af velli í nokkrar mínútur en kom aftur inná þrátt fyrir að hann gengi ekki heill til skógar.  Á sama tíma og KR-konur voru að fagna bikarmeistaratitlinum varð Hanna Kjartansdóttir, fyrrum leik- maður KR, danskur bikarmeistari en lið hennar, Stevnsgade, sigraði BMS/Herlev í úrslitaleik, 71:63. Hanna skoraði 10 stig í leiknum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.