Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 B 7 „ÞETTA var rosalega spennandi og skemmtilegur leikur. KR- ingarnir spiluðu mjög vel framan af leik en það var eins og andrúms- loftið í húsinu hafi slegið á Njarð- víkingana. Kvennalið þeirra spil- aði magnaðan leik og það fór mikil orka frá leikmönnum karlaliðsins og áhangendum Njarðvíkinga að taka þátt í leiknum með stelp- unum. Einhvern veginn voru Njarðvíkingarnir ekki tilbúnir í leikinn þegar hann var flautaður á en að sama skapi mættu KR- ingarnir vel undirbúnir til leiks,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga og fyrrum þjálfari KR og Njarðvíkur, í sam- tali við Morgunblaðið skömmu eft- ir að Njarðvíkingar höfðu tryggt sér bikarmeistaratitilinn. ,,Frá mínum bæjardyrum séð, sem yfirvegaður og rólegur áhorf- andi, þorðu grænu karlarnir að taka áhættu og voru djarfir í síð- asta leikhlutanum en leikmenn KR fóru inn í skelina og hættu að gera þá hluti sem þeir höfðu verið að gera. Þeir hnoðuðust áfram hvað eftir annað á síðustu sekúndum skotklukkunnar og hikuðu við að taka fríu skotin sem höfðu reynst þeim vel lengi vel leiksins. Þarna fannst mér skilja á milli liðanna og það má heldur ekki gleyma þriggja stiga körfunum sem Teitur skoraði nánast upp úr engu. Hann þorði að taka áhættu en KR-ingarnir virt- ust ekki hafa kjark og þor til að gera það sama. Njarðvíkingarnir misstu aldrei trúna á sjálfa sig og um leið og þeir hertu varnarleik sinn í síðari hálfleiknum fóru hlut- irnir að ganga betur hjá þeim. Logi var ekki nema skugginn af sjálfum sér í fyrri hálfleik en í byrjun síðari hálfleiks sýndi hann hversu megnugur hann var. Logi er spunaleikmaður sem skorar körfur í kippum og það má í raun segja að stórleikur hans í byrjun seinni hálfleiks hafi vakið Njarð- víkurliðið til lífsins,“ sagði Friðrik Ingi. Friðrik sagði að einhverra hlutavegna hafi kveikjan ekki verið í lagi hjá sínum mönnum. „Þrátt fyrir erfiða stöðu náðu strákarnir að vinna sigur út úr erfiðleik- unum. Ég held að leikmennirnir hafi verið orðnir hræddir þegar KR-ing- arnir voru 15 stigum undir og þá fyrst sneru þeir saman bökum. Tilhugsun- in um að tapa kom þeim í gang. Mörg lið hefðu brotnað eftir svona byrjun en við sýndum gífurlegan liðsanda, seiglu og baráttu og hún skilaði því að okkur tókst að snúa leiknum okkur í vil. Logi steig virkilega upp í byrjun seinni hálfleik og það má segja að hann hafi hreinlega dregið okkur að landi. Ef hann hefði ekki komið með þessa sýningu þá hefðum við verið í sama baslinu áfram. Teitur skoraði gríðarlega mikilvægar körfur þegar mest lá við. Teitur er sigurvegari og þess vegna setti hann skotin niður. Við erum með fleiri sigurvegara í okkar liði. Brenton hefur spilað þrjá bikarúrslitaleiki og unnið þá alla og við erum lánsamir að eiga svona leik- menn í okkar liði. Við lentum í bull- andi villuvandræðum og við hefðum verið í virkilega vondum málum ef til framlengingar hefði komið.“ Sigurviljinn og heppnin með okkur Þú varst ekki ánægður með spila- mennsku þinna manna í fyrri hálfleik en hvað sagðir þú við þá í leikhléinu? ,,Ég skammaði þá fyrir að hafa ekki verið tilbúnir og fyrir að gefa op- in þriggja stiga skot trekk í trekk. Ég sagði þeim frá því að allir lausir bolt- ar lentu í klónum á KR-ingum og ég hélt áfram að gagnrýna þá. Eitthvað hefur þessi ræða mín vakið þá til lífs- ins því það var allt annað að sjá til strákanna í seinni hálfleik og ég var mjög ánægður að sjá breytinguna á liðinu. Leikurinn snerist alveg við. Fráköstin og lausu boltarnir fóru til okkar og ég sá fljótlega að mína menn langaði meira til að vinna leikinn en KR-inga. Við náðum að spila vörnina í seinni hálfleik eins og við gerum best og þegar hún smellur þannig, fær maður það á tilfinninguna að það sé næsta ómögulegt fyrir andstæð- inginn að skora. Mér leið vel að sjá þessa vörn og innst inni trúði ég ekki öðru en sigurinn félli okkar megin þó svo að ekki hefði mátt litlu muna. KR og Njarðvík eru hnífjöfn lið og ég held að þetta sé níundi leikurinn í röð þar sem úrslitin ráðast undir lok leiksins. KR-ingarnir eru með frá- bært lið en sigurviljinn og heppnin voru okkar megin í dag.“ Var orðinn sjóðheitur ,,Þeir treystu á mig drengirnir og það var ekkert annað að gera en að negla skotunum ofan í,“ sagði Njarð- víkingurinn Teitur Örlygsson sem var að vinna bikarmeistaratitilinn með Njarðvíkingum í sjöunda sinn. Teitur var ómetanlegur fyrir sína menn á lokakafla leiksins og hann gat ekki leynt gleði sinni í leikslok. ,,Ég skaut frekar fáum skotum í leiknum en þau sem ég skaut rötuðu sem bet- ur fer flest ofan. Ég byrjaði á því að misnota tvö skot í byrjun seinni hálf- leiks en það sló mig ekkert út af lag- inu og ég var orðinn sjóðheitur þegar fjórði leikhlutinn var kominn af stað. Ég veit ekki alveg hvað við vorum að hugsa í byrjun leiks en ég missti aldr- ei trúna þó svo að við hefðum lent 15 stigum undir. Ég vissi það vel að við vorum ekki komnir í gang og við not- um leikhléið til að berja okkur saman. Við mættum mjög einbeittir til seinni hálfleiksins og körfurnar sem Logi skoraði í byrjun hans kom liðinu virkilega í gang,“ sagði Teitur. Njarðvíkurhjartað ,,Enn og aftur kom Njarðvíkur- hjartað upp hjá okkur. Við létum mótlætið ekki slá okkur út af laginu og við strákarnir gáfum aldrei upp vonina,“ sagði Logi Gunnarsson, leik- maðurinn snjalli í liði Njarðvíkinga sem átti stórleik í síðari hálfleik í sín- um fyrsta bikarúrslitaleik á ferlinum. ,,Þó að ég hafi hrokkið í gang í síð- ari hálfleik var þetta sigur liðsheild- arinnar. Ég hef ekki verið að leika eins vel í ár og í fyrra en núna finnst mér ég vera að koma sterkur upp og sérlega ánægjulegt að sýna að ég geti stigið í stórleikjum eins og þessum.“ Þú hafðir frekar hægt um þig í fyrri hálfleik en í þeim síðari fórst þú mikinn. Fékkst þú skilaboð frá þjálf- aranum í hálfleik að taka meira af skarið? ,,Nei það fékk ég ekki. Ég er bara þannig leikmaður að ég tek skot þeg- ar á reynir og ég fann það á mér í byrjun seinni hálfleiks að þau færu niður. Það kom í minn hlut núna að koma okkur inn í leikinn en það hefði alveg getað orðið Brenton eða ein- hver annar. Styrkur liðsins er góð liðsheild og hún skipti sköpum hér í dag. Við vorum sofandi í byrjun, gjör- samlega á hælunum. Við tókum okk- ur saman í vörninni í seinni hálfleik.“ a r r i s a r r - m . - - - g a í r a f i m - 4 stig, þar af fjórar þriggja stiga körfur á lokakaflanum á meðan Njarðvík gerði fimm stig. Það lifnaði heldur betur yfir öllu í Laugardalshöllinni er líða fór á leikinn. Áhorfendur höfðu verið daufir enda tók kvennaleikurinn á undan á taugar þeirra og raddbönd. En nú lifnaði yfir mönnum. Njarðvíkingar gerðu fyrstu sjö stigin í síðasta leikhlutanum og komust yfir á ný, en vesturbæingar bitu frá sér en hefðu getað gert betur. Halldór var far- inn útaf með fimm villur í liði Njarðvík- ur og í upphafi síðasta leikhluta voru bæði Páll og Friðrik með fjórar villur og liðið því farið að minnka allverulega. KR-ingar hefðu með skynsemi átt að nýta sér þetta betur en þeir gerðu. Raunar misstu þeir Jón Arnór Stefáns- son útaf eftir mínútu í síðasta leikluta en hann kom inn á ný tæpum fimm mín- útum síðar. Það var ekki nóg fyrir vesturbæjar- liðið sem varð að játa sig sigrað að þessu sinni. Þeir gerðu aðeins 15 stig í síðasta leikhluta og má segja að eftir fína byrjun hafi leiðin legið niður á við til leiksloka. Bæði lið notuðu fáa leikmenn eins og vænta mátti. KR notaði sex leikmenn nokkuð jafnt og tveir komu inn þar að auki. Njarðvíkingar notuðu fimm leik- menn nær allan tímann og tvo í nokk- urn tíma þar fyrir utan. Brenton Birmingham var drjúgur og mönnum fannst hann slakur í fyrri hálf- leik þegar hann var „bara“ með 11 stig. Hann gerði 25 stig, tók 9 fráköst og átti 7 stoðsendingar. Teitur átti góðan leik, gerði 18 stig, tók 8 fráköst og átti fjórar stoðsendingar. Þrátt fyrir að Páll hafi oft leikið betur tók piltur þó tíu fráköst. Annars má segja um Njarðvíkinga að þeir hafi allir leikið vel í síðari hálfleik. Hjá KR var Vassell frábær fyrir hlé, slakur í þriðja leikhluta og góður í þeim síðasta. Herbert, Arnar, Helgi Már, Vassell og Jón Arnór áttu allir ágætan dag. kari í lokin Morgunblaðið/Ómar Ragnar H. Ragnarsson á ferð með bikarinn. Morgunblaðið/Ómar Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkinga, messar yfir sínum mönnum. Hann klæjaði í fingurna að fara inná þegar leikmenn hans náðu sér ekki á strik í byrjun leiksins. KÖRFUKNATTLEIKUR Grænu karlarnir þorðu að taka áhættu Friðrik Ragnarsson, þjálfari bikarmeistara Njarðvíkinga Langaði að fara inná og kippa í taumana „ÞAÐ var seigla og vilji sem gerði það að verkum að við stóðum uppi sem sigurvegarar,“ sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkinga, við Morgunblaðið eftir leikinn en hann var að vinna bikarmeistaratitilinn í sjötta sinn í átta tilraunum, fimm sinnum sem leikmaður og nú sem þjálfari. „Ég get alveg við- urkennt að í fyrsta sinn í vetur langaði mig virkilega til þess að fara inná og kippa aðeins í taumana sem gamall leikstjórnandi. Það er hryllilegt að horfa upp á lið sitt mæta ekki tilbúið til leiks og það var bara áfall að sjá hvernig liðið lék í byrjun.“ Guðmundur Hilmarsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.