Morgunblaðið - 26.03.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isFlestir veðja
á Arsenal / B3
FIFA neytt til
aukaþings / B1
12 SÍÐUR32 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
UM 60–80 metra há og um 150 metra
breið aurskriða féll á veginn milli
Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar
aðfaranótt sunnudags og lokaði hon-
um kirfilega. Verktakar sem vinna
þar að vegagerð höfðu gert sér grein
fyrir því að líkur væru á skriðuföllum
og höfðu komið vinnuvélunum á
öruggan stað.
Skriðan féll rétt austan við
Kambanesskriður en á þessum slóð-
um hefur Arnarfell ehf. unnið að
miklum vegabótum frá sl. sumri.
Framkvæmdirnar fela m.a. í sér að
talsvert þarf að „skera úr“ hlíðum
sem veldur því að það losnar um
jarðvegsfyllingar fyrir ofan veginn.
Slík skriða lokaði veginum aðfara-
nótt sunnudags. Áður hafði önnur
minni skriða fallið á veginn skammt
frá.
Þór Konráðsson, einn eigenda
Arnarfells og verkstjóri við fram-
kvæmdirnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að þeir hefðu gert sér
grein fyrir hættunni á skriðuföllum á
laugardeginum og því fært vinnuvél-
arnar á öruggan stað. Talið er að
skriðan hafi fallið einhvern tíma eftir
klukkan þrjú um nóttina en þá var
síðast ekið um veginn. Byrjað var að
ryðja skriðunni í burtu um morgun-
inn og var vegurinn opnaður fyrir
umferð í gær.
Aðspurður hvort til greina hefði
komið að láta loka veginum sagðist
Þór ekki telja að svo hefði verið.
Fyrst hefðu opnast sprungur í hlíð-
inni fyrir um viku og erfitt hefði ver-
ið að segja fyrir um hvenær skriðan
félli. Ekki hefði verið ýkja mikil
hætta á ferðum fyrir vegfarendur.
Skriður af þessari stærð rynnu hægt
niður hlíðar, líkastar seigfljótandi
hrauni, og ökumenn ættu því að geta
vikið sér undan eða stöðvað bifreiðir
sínar.
Þegar jarðvegi er rutt úr hlíðun-
um skapast hætta á skriðuföllum en
Þór segist leggja áherslu á að ryðja
jafnóðum úr fjallinu fyrir ofan veg-
inn og þannig koma í veg fyrir
skriðuföll. Menn sínir hafi raunar
haft augastað á syllunni sem féll á
veginn um helgina og ætlað sér að
ryðja henni niður.
Þór lenti sjálfur í kröppum dansi
þegar hann vann að slíku verki fyrir
um viku. Hann hafði ekið beltagröfu
sinni um 100 metra upp í hlíðina þeg-
ar skriða féll á gröfuna og færði hana
á kaf. Rúðurnar í stýrishúsinu
hrukku úr eða brotnuðu og húsið
sjálft lagðist að miklu leyti saman
undan þunga aurskriðunnar. Þór
marðist nokkuð en slapp að öðru
leyti óskaddaður. Skriðan hrundi
síðan að mestu af gröfunni og með
því að hnika henni til tókst honum að
losa gröfuna. „Það var ekki annað að
gera en að drífa sig niður á veg og
gera svo aðra atrennu,“ segir Þór
sem varð að beita kúbeini til að kom-
ast út úr gröfunni. Hann segir hlíð-
arnar víða „illa manngengar og þá er
enn erfiðara að vera að trítla utan í
þeim á 35 tonna beltagröfum“. Vand-
ræði við vegagerðina eru þó ekki al-
veg upptalin því í nóvember rann
hjólaskófla út af veginum í Kamba-
nesskriðum og steyptist 40 metra of-
an í sjó en ökumanni tókst með
naumindum að stökkva út áður en
vélin fór fram af þverhnípinu. Fjór-
um dögum síðar fóru Þór og félagar
eftir skóflunni og náðu henni upp.
„Þetta er snarbratt en það venst.
Það þýðir ekkert að vera slæmur á
taugum þegar maður er að dunda í
þessu,“ segir Þór aðspurður hvort
ekki fari stundum um hann í
vinnunni.
150 metra breið aur-
skriða lokaði veginum
Trítla um skrið-
urnar á 35 tonna
beltagröfum
Ljósmynd/Vegagerðin, Guðjón
Aurskriðan var gríðarlega mikil og ekki hlaupið að því að komast yfir.
KARLMAÐUR um fimmtugt, sem
hlaut alvarlega áverka við hníf-
stunguárás í íbúð á Grettisgötu 6.
mars sl., lést á gjörgæsludeild
Landspítalans í Fossvogi á sunnu-
dagsmorgun.
Tæplega fertug kona situr í
gæsluvarðhaldi, grunuð um að
hafa veitt manninum stungusár.
Að sögn Harðar Jóhannessonar,
yfirlögregluþjóns í Reykjavík,
liggur ekki fyrir játning í málinu
en vitni urðu að atburðum.
Maðurinn gekkst undir aðgerð á
spítalanum og var talinn á góðum
batavegi þegar honum hrakaði
mjög nokkrum dögum eftir árás-
ina.
Látinn eftir
hnífstungu
SIGURÐUR Hrafn Guðmundsson
lést af slysförum á Njálsgötu 110 í
Reykjavík laugardaginn 23. mars
sl.
Sigurður var 38 ára gamall,
fæddur 13. apríl 1963. Hann var
einhleypur og barnlaus.
Sigurður fannst látinn á heimili
sínu að morgni laugardags en hann
mun hafa fallið niður stiga fyrir ut-
an íbúð sína nokkru fyrr. Sigurður
var menntaður tónlistarmaður og
starfaði sem leigubílstjóri jafnhliða
námi sínu við Háskóla Íslands.
Lést af
slysförum
KENNETH Peterson, eigandi Col-
umbia Ventures Corporation, móð-
urfyrirtækis Norðuráls á Grundar-
tanga, hefur eignast meirihluta í
símafyrirtækinu Halló-Frjálsum
fjarskiptum. Hann segist af þeim
sökum hafa áhuga á fjarskiptamark-
aðinum á Íslandi.
„Ég held að það væri gott fyrir
fjarskiptamarkaðinn ef fyrirtæki
myndu sameinast að einhverju
marki, með hliðsjón af stöðunni í
þessum málum í heiminum,“ segir
Peterson. „Fjárfestar hafa verið að
draga sig út af þessum markaði og
mörg fjarskiptafyrirtæki eiga í erf-
iðleikum.“
Einnig verið rætt við
stjórnendur hjá Tali
Peterson segist ekki hafa átt við-
ræður við stjórnendur hjá Íslands-
síma um hugsanleg kaup á hluta-
bréfum í fyrirtækinu eða um
sameiningu við Halló. Norðurál sé
hins vegar í viðskiptum við Tal og
hann hafi rætt við stjórnendur hjá
Tali, þó ekki með beinum hætti, um
hlutabréfakaup eða sameiningu.
Áhugi hans beinist að því hvernig
fjárfesting hans í Halló geti styrkt
fjarskiptamarkaðinn á Íslandi.
Þórólfur Árnason, forstjóri Tals,
segist ekki hafa rætt við Kenneth
Peterson. Þá viti hann ekkert um
viðræður hans við eigendur Tals.
Óskar Magnússon, forstjóri Ís-
landssíma, segir að sem betur fer
hafi ýmsir fjárfestar sýnt Íslands-
síma áhuga. Að öðru leyti geti hann
ekki farið út í þau mál. Fyrir liggi
heimild hluthafafundar um að fara í
samruna í kjarnastarfsemi, ef rétt
tækifæri gefist. Stjórnendur fyrir-
tækisins séu með augun opin fyrir
slíku. Óskar segir mikilvægt að ná
fram meiri hagræðingu á fjarskipta-
markaðnum.
Kenneth Peterson með
meirihluta í Halló-
Frjálsum fjarskiptum
FYRSTU lömb ársins litu dagsins
ljós í Austur-Húnavatnssýslu í
fyrrinótt þegar gemlingurinn
Marsibil á Sölvabakka bar tveimur
lömbum, gimbur og hrút.
Anna Margrét Jónsdóttir, bóndi á
Sölvabakka og ráðunautur, segir að
þetta hafi ekki verið skipulagt held-
ur hafi hin óútreiknanlega náttúra
haft hönd í bagga og fært vorið
óvænt í fjárhúsin á Sölvabakka.
Morgunblaðið/Jón Sig.
Fyrstu lömb-
in í A-Húna-
vatnssýslu
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur hafnað kröfu Alþýðusambands
Íslands um að sjómönnum sé heimilt
að efna til verkfalls og að ákvörðun
gerðardóms ráði ekki kjörum þeirra.
Dómurinn féllst þó á að Verkalýðs-
félagi Snæfellsbæjar, Verkalýðs-
félaginu Stjörnunni í Grundarfirði
og Verkalýðsfélagi Stykkishólms
væri heimilt að efna til verkfalls og
að félagsmenn væru óbundnir af
gerðardómi enda áttu félögin ekki í
vinnudeilu á sínum tíma.
ASÍ höfðaði mál á hendur íslenska
ríkinu og Samtökum atvinnulífsins í
kjölfar þess að lög voru sett á verk-
fall sjómanna í maí í fyrra en verkfall
þeirra hafði þá staðið í 44 daga. Í
framhaldinu var gerðardómur settur
á laggirnar sem ákvarðaði kjör
þeirra til 31. desember 2003. Mál
ASÍ gegn ríkinu og SA fór í gegnum
bæði dómstigin á síðasta ári en
Hæstiréttur vísaði málinu þá frá þar
sem kröfugerðin var talin andstæð
lögum um meðferð opinberra mála.
Í niðurstöðum dómsins segir að
ekki hafi komið fram nægjanlega
veigamikil rök til að líta svo á að Al-
þingi hafi með lögunum gengið
lengra í að skerða frelsi deiluaðila til
að ná kjarasamningum en nauðsyn-
legt var til að tryggja almannaheill.
Tekið fyrir hjá Alþjóða-
vinnumálastofnuninni
Magnús Norðdahl hrl., deildar-
stjóri lögfræðideildar ASÍ, segir
dóminn hvorki í samræmi við stjórn-
arskrá Íslands né alþjóðlega sátt-
mála sem Ísland er aðili að. Málið
hafi verið tilkynnt Alþjóðavinnu-
málastofnuninni og muni stjórn
hennar taka það fyrir á næsta fundi
sínum. Segir Magnús að íslensk
stjórnvöld megi búast við að vera
snupruð fyrir lagasetninguna.
Af hálfu ASÍ flutti málið Ástráður
Haraldsson hrl., Skarphéðinn Þóris-
son hrl. var til varnar fyrir ríkið og
Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl. Sig-
urður Tómas Magnússon var for-
maður dómsins, sem einnig var skip-
aður þeim Hjördísi Hákonardóttur
og Sigurði Halli Stefánssyni héraðs-
dómurum.
Sjómönnum var
ekki heimilt að
efna til verkfalls
♦ ♦ ♦