Morgunblaðið - 26.03.2002, Síða 54
FÓLK Í FRÉTTUM
54 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Handavinna, viðtöl,
páskamaturinn o.fl.
Áskriftarsími 551 7044.
Taktu
Húsfreyjuna
með í páskafríið
Óskarsverðlaunahátíðarinnar í ár
verður minnst sem ársins þegar
svartir leikarar fengu uppreisn æru.
Í fyrsta sinn í sögu verðlaunahátíð-
arinnar sigruðu svartir leikarar tvö-
falt í stærstu flokkunum, sem bestu
leikarar í aðalhlutverki. Halle Berry
varð fyrst svartra leikkvenna til að
vera valin besta leikkonan í aðalhlut-
verki og Denzel Washington er ein-
ungis annar þeldökki karlmaðurinn
sem valinn er besti aðalleikarinn á
eftir Sidney Poitier, sem braut blað í
sögu verðlaunanna 1964 þegar hann
var valinn besti leikarinn fyrir mynd-
ina Lilies of the Field. Svo skemmti-
lega vill til að Poitier voru einmitt
veitt sérstök heiðursverðlaun fyrir
framlag sitt til kvikmyndanna á há-
tíðinni á sunnudaginn, sem fór fram í
fyrsta sinn í glæsilegri nýrri höll í
Hollywood sem kennd er við Kodak-
ljósmyndavöruframleiðandann.
Loksins vann Howard
Svo sögulegar voru þessar útnefn-
ingar Washington og Berry að stóru
verðlaunin, þau sem jafnan er beðið
með mestri eftirvæntingu, hurfu nán-
ast í skuggann. Það kom enda fáum á
óvart þegar A Beautiful Mind var val-
in besta myndin en myndinni, sem
fjallar um baráttu stærðfræðingsins
og nóbelsverðlaunahafans Johns
Nash við geðsýki, hafði verið spáð
sigri af flestum sem vit hafa á. Nash
og eiginkona hans voru meðal gesta
og voru sýnilega snortin yfir sigrin-
um. Ron Howard, leikstjóri myndar-
innar, var ennfremur valinn besti
leikstjórinn í fyrsta sinn á ferli sínum
og sagðist hann í þakkarræðu sinni
ekki geta neitað því að hafa ímyndað
sér þúsund sinnum hvernig það væri
að standa í þessum sporum.
A Beautiful Mind vann tvenn önn-
ur verðlaun og því alls fern; Jennifer
Connelly var útnefnd besta leikkonan
í aukahlutverki og Akiva Goldsman
fékk Óskar fyrir besta handritið
byggt á öðru verki.
Lord of the Rings fékk jafnmörg
verðlaun og sigurmyndin en hún
hafði hlotið flestar tilnefningar eða
þrettán talsins. Margir höfðu spáð
því að myndin tæki „stóru“ verðlaun-
in en þau sem hún landaði reyndust
tæknilegs eðlis og fyrir tónlist. Það
kom fáum á óvart að sjónarspilið
Moulin Rouge fékk verðlaun fyrir
búninga og listræna hönnun en hvor
tveggja verðlaunin féllu í skaut Cath-
erine Martin, sem er eiginkona og
hægri hönd leikstjórans Baz Luhr-
mans, en það vakti athygli að Luhr-
man var sjálfur ekki einu sinni til-
nefndur fyrir sitt ríkulega framlag til
myndarinnar. Whoopi Goldberg,
kynnir á hátíðinni, gerði sér meira að
segja mat úr því er hún velti fyrir sér
hvernig hægt væri að gera svo vel
heppnaða mynd án leikstjóra.
Óskar handa öllum nafnlausu
svörtu leikkonunum
En hvað sem öðrum verðlaunahöf-
um líður var hátíðin svartra leikara.
Þegar Russell Crowe ljóstraði því
upp að Halle Berry hefði unnið ætlaði
allt um koll að keyra í Kodak-höllinni
og greinilegt að leikkonunni 33 ára
gömlu var mjög brugðið. Þegar hún
steig á svið var hún í miklu uppnámi
og tárin streymdu niður kinnarnar.
Eftir dágóða stund tókst henni loks
að segja skjálfandi röddu: „Þetta
augnablik er svo miklu stærra en ég.“
Og allir gerðu sér þá grein fyrir að
söguleg stund var runnin upp. „Ég
veiti verðlaunum þessum viðtöku fyr-
ir hönd allra þeirra nafnlausu, and-
litslausu hörundslituðu kvenna sem
nú fyrst eiga möguleika, eftir að hin-
ar lokuðu og harðlæstu dyr hafa nú í
kvöld verið opnaðar upp á gátt.“ Og
leikkonan hélt áfram í löngu máli að
þakka fyrir sig og sína og sagði það
mikinn heiður fyrir sig og ábyrgð að
vera sú fyrsta úr röðum svartra leik-
kvenna til að áskotnast heiðurinn.
Óskarinn fékk Berry fyrir leik sinn
í myndinni Monster’s Ball, kynþátta-
fordómadrama sem frumsýnt verður
hérlendis í vikunni, en mótleikari
hennar í myndinni er Billy Bob
Thornton.
Washington enn
í fótsporum Poitiers
Washington var yfirvegaðri er
hann veitti sínum verðlaunum við-
töku fyrir frammistöðu sína í lög-
regluhasarnum Training Day, enda á
hann ein fyrir sem hann hlaut fyrir
bestan leik í aukahlutverki í mynd-
inni Glory árið 1990. Washington er
fyrsti svarti leikarinn til að vinna til
tvennra verðlauna en einungis 26
svartir leikarar hafa verið tilnefndir í
76 ára sögu Óskarsverðlaunanna og
þar af eru sjö þeirra vinningshafar,
að Washington og Berry meðtöldum.
„Alltaf er ég eftirbátur Sidney,“ sagði
Washington á léttum nótum og leit
upp á svalirnar til átrúnaðargoðs síns
þar sem hann sat í faðmi fjölskyldu
sinnar. „Hvað gerist loksins þegar ég
næ honum? Þá fær hann bara annan
Óskar sama kvöldið! Ég hef alltaf
verið á eftir þér, Sidney, Ég mun allt-
af fylgja í fótspor þín. Ekkert veitir
mér meiri heiður.“ Og Washington
hélt síðan áfram á öllu alvarlegri nót-
um: „Áður en Sidney kom til skjal-
anna þurftu afrísk-amerískir leikarar
að sætta sig við aukahlutverk sem
séð var til að auðvelt yrði að klippa út
og fjarlægja í ákveðnum landshlut-
um. En það var ekki hægt að klippa
Sidney Poitier út úr Sidney Poitier-
mynd. Hann var ástæðan fyrir því að
mynd var yfirhöfuð gerð.“
Loksins kom Allen
Óskarsakademían kom á óvart
með vali sínu í fleiri flokkum en bestu
aðalleikurunum. Breski leikarinn Jim
Broadbent, sem tilnefndur var fyrir
frammistöðu sína sem eiginmaður
rithöfundarins Iris Murdoch í mynd-
inni Iris, var t.a.m. tekinn framyfir
landa sinn sir Ian McKellen, sem
flestir höfðu veðjað á, og bosníska
myndin No Man’s Land var útnefnd
besta erlenda myndin en nær allir
spekingar í bransanum voru tilbúnir
að veðja aleigunni upp á að franska
myndin Amélie, sem hlotið hefur fá-
dæma lof gagnrýnenda, myndi
hreppa hnossið. „Það var kominn tími
til að sýna heiminum að Bosníumenn
í Vesturlöndum eru ekki einasta
flóttamenn, heldur einnig gott og
hæfileikaríkt fólk.“
Auk Poitier voru þeir Robert Red-
ford og Arthur Hiller heiðraðir fyrir
framlag sitt til kvikmyndagerðarinn-
ar. Sá sem framkallaði samt trúlega
sterkustu viðbrögðin í salnum var
New York-búinn Woody Allen, sem
féllst loksins á að eiga stefnumót við
Óskar eftir að hafa nær alltaf snið-
gengið hann og tekið framyfir að
koma fram á tónleikum með djass-
hljómsveit sinni. Tilefnið var enda
göfugt því þessum heimsfræga New
York-búa hafði verið falið það verk-
efni að votta borginni sinni ástkæru
virðingu í ljósi hinna erfiðu tíma sem
hún og íbúar hennar hafa mátt þola
síðasta árið.
Það var mál manna að hin nýju sal-
arkynni væru glæsileg og hefðu kom-
ið vel út í sjónvarpi. En sem fyrr
drógust leikar óhóflega á langinn, há-
tíðin stóð í fjórar klukkustundir, og
flestir ugglaust farnir að ókyrrast
þegar loksins kom að afhendingu
stærstu verðlaunanna.
Áfangasigur fyrir svarta
kvikmyndaleikara
skarpi@mbl.is
AP
„Loksins, loksins!“ sögðu perluvinirnir Ron Howard
og Brian Grazer eftir að þeir höfðu unnið til tvennra
verðlauna fyrir A Beautiful Mind.
Reuters
Halle Berry trúði því vart að
svört kona hefði loksins unnið til
Óskars fyrir titilhlutverk.
Reuters
Denzel Washington, tvöfaldur óskarsverðlaunahafi,
samfagnar fyrirmynd sinni og einum af heiðursverð-
launahöfum hátíðarinnar, Sidney Poitier.
Reuters
Baz Luhrmann, leikstjóri Moul-
in Rouge, óskar eiginkonu sinni,
Catherine Martin, til hamingju
með Óskarana tvo.
AP
Stjörnur Óskarsins í ár, Halle Berry og Denzel Washington, voru vit-
anlega í sjöunda himni er þau ræddu við blaðamenn að lokinni hátíðinni.
Reuters
Svið hins nýja Kodak-leikhúss í Hollywood er tilkomumikið og litirnir
auðvitað í sama tón og Óskar frændi.
A Beautiful Mind var
sigurmynd Óskarsverð-
launahátíðarinnar sem
fór fram á sunnudags-
kvöldið í nýjum heim-
kynnum í Hollywood.
Hátíðarinnar í ár verður
þó fyrst og fremst
minnst fyrir söguleg úr-
slit í flokki bestu aðal-
leikara karla og kvenna.
> ""
/
>
( ?
0?
@ ?
()
ABC)
G
3 ?
()
/?1LD
?
( )
D ? *
?
?
( )
DE D 1
?
)
F 5
?
' & / G D 1
?
) O ?
3)
)
&H3)
: G)+
)&
?
)
*
9 0?
@
5 P 12 Q
?
I @J D'6
C9
AP
74. Óskarsverðlaunahátíðin reyndist söguleg