Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 24
LANDIÐ 24 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ SUÐURNES HIÐ árlega jólaball Mýrdælinga í Leikskálum í Vík var haldið milli jóla og nýárs, það endar alltaf með glæsilegri flugeldasýningu sem björgunarsveitin Víkverji sér um og gefur þetta smá fyrirfram- skemmtun fyrir skotglaða Mýrdæl- inga en það eru fyrirtæki í Mýr- dalnum sem gefa þessa flugeldasýningu. Nú er í gangi söfnun hjá björgunarsveitinni í Vík, þannig að almenningur kaupir sig inn í eina sameiginlega sýningu hver eftir sínum fjárhag, sem verð- ur um miðnætti á gamlárskvöld í Vík, það er björgunarsveitin sem sér svo um að skjóta öllu á loft. Safnað fyrir flugeldasýningu Fagridalur Morgunblaðið/Jónas Erlendsson VERKALÝÐS- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis gerði Guð- rúnu Elísu Ólafsdóttur að heið- ursfélaga á 70 ára afmælishátíð fé- lagsins sem haldin var í Stapa síðastlinn laugardag. Við athöfnina þakkaði Kristján Gunnarsson, formaður VSSK, Guð- rúnu fyrir fórnfúst starf í þágu verkafólks. Guðrún var lengi í forystu og for- maður Verkakvennafélags Kefla- víkur og Njarðvíkur, eða þar til fé- lagið var sameinað Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og ná- grennis 1989. Eftir það var hún varaformaður VSSK þar til í apríl síðastliðnum. Kristján sagði að hún hefði hvergi hvikað í baráttunni fyrir bættum kjörum og jöfnun lífs- kjara. Guðrún hefur gegnt fjölda annarra trúnaðarstarfa fyrir verka- lýðshreyfinguna. Kristján sagði að menntun verkafólks væri henni af- ar hugleikin, hún hefði fljótt skynj- að það að menntun verkafólks gæti lyft grettistaki í þágu þess. Á afmælishátíðinni voru ýmis skemmtiatriði, auk þess sem Krist- ján Gunnarsson rakti sögu félagsins í hátíðarræðu. Þá fékk félagið gafir og blóm í tilefni afmælisins. Gat Kristján þess meðal annars að félagið væri yngra en sambæri- leg félög sem mörg væru að halda upp á 100 ára afmæli þessi árin. Nefndi hann að vinnuveitendur hefðu barist hart gegn því að stofn- að væri verkalýðsfélag í Keflavík. Áður en Verkalýðsfélag Keflavíkur hefði veri stofnað í lok ársins 1932 hefðu verkamenn verið kúgaðir til að leggja fyrra félag sitt niður. Fé- lagið fékk ekki varanlega fótfestu fyrr en samningar náðust við út- gerðarmenn 1937. Gerð að heiðursfélaga verkalýðsfélagsins Keflavík Ljósmynd/Hilmar Bragi Guðrún Elísa Ólafsdóttir, heið- ursfélagi VSSK. HINN 27. desember 1952 fór fram í Stykkishólmi tvöfalt brúðkaup. Þá giftu sig Kristín Björnsdóttir og Benedikt Lárusson og Guðrún Björnsdóttir og Sveinn Davíðsson. Síðan eru liðin 50 ár. Systurnar ásamt eiginmönnum sínum hafa alla sína búskapartíð búið í Stykk- ishólmi og nær frá upphafi við sömu götuna. Ungu hjónin voru fyrstu landnemarnir í nýju íbúða- hverfi í Stykkishólmi sem nú heit- ir Lágholt en var fyrst í stað kall- að Kardimommubærinn en nafngiftin tengdist því að þar bjuggu barnmargar fjölskyldur. Kristín og Benedikt eiga sjö börn og 16 barnabörn og Guðrún og Sveinn eiga 6 börn og 14 barna- börn. Það var því stór hópur sem kom saman og fagnaði þessum tímamótum í lífi foreldra sinna. Mörg barnanna ásamt fjölskyldum sínum búa í Stykkishólmi. Gullbrúðkaup hjá systrum Stykkishólmur Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Þau áttu gullbrúðkaup hinn 27. desember, systurnar Kristín og Guðrún Björnsdætur og eiginmenn þeirra, Benedikt Lárusson og Sveinn Davíðsson. SENNILEGA hefur hann haft áhyggjur af aukakílóunum eftir jól- inn selkópurinn sem skreið upp á hafnarviktina á Skagaströnd á milli jóla og nýárs. Hann kærði sig ekk- ert um blíðuhót frá mannfólkinu og reyndi að glefsa í viktarmanninn þegar hann vildi klappa honum. Selurinn skreið upp fjöruna og á viktina og lagðist þar. Var engu lík- ara en kópurinn vildi láta vikta sig því hann brást hinn versti við öllum tilraunum til að nálgast hann og sýndi óspart tennurnar en fór þó hvergi þrátt fyrir umgang manna í grennd við hann. Fór að lokum svo að viktarmaðurinn ýtti honum í sjó- inn aftur með strákústi. Eftir að í sjóinn kom var hann fljótur að láta sig hverfa út í höfnina og hefur ekki sést síðan. Ekki sagðist viktar- maðurinn hafa viktað selinn enda ekki ljóst hver hefði borgað vikt- argjöldin fyrir kauða. Selur á hafnarviktinni Skagaströnd Morgunblaðið/Árni Geir Ingvarsson Kópurinn kærði sig ekkert um afskipti manna af sínum högum og reyndi hiklaust að glefsa í þá sem komu of nærri að hans mati. ÖRN Arnarson hefur verið kjörinn íþróttamaður Keflavíkur 2002. Örn er sundmaður og gekk til liðs við sunddeild Keflavíkur í haust. Íþróttamaður Keflavíkur var kjör- inn við athöfn í félagsheimili Kefla- víkur, íþrótta- og ungmennafélags, síðastliðinn laugardag. Jafnframt var lýst kjöri íþróttamanna ein- stakra deilda og Íslandsmeistarar á vegum félagsins voru heiðraðir. Örn Arnarson var útnefndur sundmaður Keflavíkur, Haraldur Freyr Guðmundsson knattspyrnu- maður félagsins, Gunnar Einarsson körfuknattleiksmaður, Eva Berglind Magnúsdóttir fimleikamaður, Ólafur Jón Jónsson badmintonmaður, Þor- steinn Marteinsson skotmaður og Helgi Rafn Guðmundsson tae- kwondomaður Keflavíkur árið 2002. Fram kom við athöfnina að Evr- ópumeistaratitill Arnar í 200 metra baksundi væri sögulegur atburður. Aldrei hefði íþróttamaður úr félag- inu og sveitarfélaginu í heild unnið þvílíkt afrek. Örn Arnarson íþrótta- maður Keflavíkur Keflavík Ljósmynd/Oddgeir Karlsson Örn Arnarson, íþróttamaður Kefla- víkur, með viðurkenningar sínar. TÖLUVERT tjón varð á húsi Fisk- markaðar Suðurnesja við höfnina í Sandgerði þegar eldur kom upp í ker- um og veiðarfærum sem voru austan við gafl hússins. Slökkviliðinu í Sand- gerði tókst þó með snarræði að koma í veg fyrir enn meira tjón, meðal ann- ars að eldurinn færi í olíutank sem stendur við húsið. Ungt par, sem var á gangi um bæ- inn þegar klukkan var langt gengin í tólf á sunnudagskvöld, sá eldinn og hringdi til Neyðarlínunnar. Slökkvilið Sandgerðis var kallað út svo og að- stoð frá Brunavörnum Suðurnesja í Keflavík. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang, skömmu eftir að til- kynning barst, stóðu eldtungurnar marga metra upp fyrir þakkant húss- ins og eldur var kominn í þakið sjálft. Rífa þurfti þakkant Eldurinn var í fiskikerum sem geymd voru við húsið og stóðu þarna sex hæðir af kerum í björtu báli. Veið- arfæri voru í tveimur kerum og á brettum. Þá voru ker meðfram allri hlið hússins og eldurinn var farinn að sleikja olíutank sem þarna stendur. Að sögn Reynis Sveinssonar slökkviliðsstjóra hafði slökkviliðið að mestu ráðið niðurlögum eldsins með froðu þegar aðstoð barst úr Keflavík. Hann segir að rífa hafi þurft þakkant að hluta til að komast að glóð sem þar leyndist. Lyftarar voru notaðir til að flytja fiskiker í burtu. Reykur komst inn í móttökusal þar sem 30 tonn af fiski stóðu. Sigurður Kristjánsson, rekstrarstjóri Fisk- markaðs Suðurnesja í Sandgerði, segir að hráefnið hafi reynst vera í góðu lagi og hafi fiskurinn verið seld- ur í gær. Ekki hafi orðið veruleg rösk- un á starfseminni vegna eldsins. Sigurður segir að verulegt tjón hafi orðið á húsinu og mununum sem brunnu fyrir utan það en hann telur að snarræði slökkviliðsins hafi forðað fyrirtækinu frá enn verra tjóni. Nefn- ir sem dæmi að ef eldurinn hefði kom- ist í olíutankinn hefði getað farið verr. Í gær var von á matsmanni trygg- ingafélags Fiskmarkaðarins en Sig- urður taldi að tjón fyrirtækisins næmi að minnsta kosti eitthvað á aðra millj- ón. Í gær var ekki vitað fyrir víst um upptök eldsins en lögreglan í Keflavík rannsakar þau. Virtist eldurinn hafa komið upp í veiðarfærunum. Sigurður taldi líklegast að um íkveikju hafi ver- ið að ræða en vildi ekki útiloka að kviknað hefði í út frá flugeldum. Litlu munaði að eldur kæmist í olíutank Sandgerði Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Eldtungurnar léku um olíutankinn sem hér sést við húsvegginn en slökkvi- liðinu tókst að koma í veg fyrir að olían magnaði eldinn. ÍÞRÓTTAMAÐUR Reykja- nesbæjar 2002 og íþrótta- menn einstakra íþróttagreina innan Íþróttabandalags Reykjanesbæjar verða kjörn- ir í hófi sem fram fer í Íþróttamiðstöðinni í Njarðvík í dag, gamlársdag. Samkvæmt venju verða all- ir þeir íþróttamenn bæjarins sem unnið hafa til Íslands- meistaratitla á árinu heiðr- aðir sérstaklega með verð- launapeningum. Örn Ævar Hjartarson var útnefndur íþróttamaður Reykjanesbæjar á síðasta ári. Hófið hefst klukkan 13 og er opið bæjarbúum. Íþrótta- maður ársins kjörinn Njarðvík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.