Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 47 DAGBÓK 90 ÁRA afmæli. Í dag,31. desember, er ní- ræður Gísli Guðmundsson, fyrrverandi bryti. Gísli verður í dag staddur á heim- ili dóttur sinnar í Lækjar- smára 6, Kópavogi, þar sem heitt verður á könnunni. 70 ÁRA afmæli. 2. jan-úar nk. verður sjötug Ingibjörg Sigjónsdóttir, sjúkraliði, Víkurbraut 30, Hornafirði. Hún og eigin- maður hennar, Jón Óskars- son, taka á móti gestum í Ekru á afmælisdaginn kl. 16–20. 60 ÁRA afmæli. 2. jan-úar nk. verður sex- tugur Ármann Á. Hallberts- son, járnabindingamaður, Glitvangi 7, Hafnarfirði. Af því tilefni tekur hann og eig- inkona hans, Guðrún Stein- grímsdóttir, á móti ættingj- um og vinum í samkomusal Haukahússins á Ásvöllum í Hafnarfirði 3. janúar kl. 19. 50 ÁRA afmæli. Í dag,31. desember, gaml- ársdag, er fimmtugur Ás- grímur Gunnar Pálsson, Reykjafold 22. Eiginkona hans er Helga Tryggvadótt- ir. Þau taka á móti gestum á heimili sínu á afmælisdaginn eftir kl. 21. Árnað heilla SUÐUR leikur sér að eld- inum í sögnum – opnar fyrst rólega á einum spaða og stekkur svo í alslemmu í næsta hring. Suður gefur; NS á hættu. Norður ♠ 32 ♥ DG1096 ♦ G1086 ♣63 Suður ♠ ÁK8754 ♥ ÁK ♦ ÁKD72 ♣– Vestur Norður Austur Suður – – – 1 spaði ! 3 lauf Pass 5 lauf 7 tíglar ! Pass Pass Pass En svo er að sjá sem suð- ur hafi sloppið óbrenndur út úr ævintýrinu, því norður leggur niður mjög ákjósan- leg spil. Hvernig á að spila með laufdrottningu út? Slemman er borðleggj- andi nema trompið sé 4-0 og það kemur strax í ljós í öðr- um slag að vestur á öll trompin fjögur. Miðað við að vestur sé með sjölit í laufi á hann aðeins tvö spil í hálit- unum, sem þýðir að hættan á stungu er töluverð: Norður ♠ 32 ♥ DG1096 ♦ G1086 ♣63 Vestur Austur ♠ D ♠ G1096 ♥ 2 ♥ 87543 ♦ 9543 ♦ – ♣DG108542 ♣ÁK97 Suður ♠ ÁK8754 ♥ ÁK ♦ ÁKD72 ♣– Sagnhafi verður umfram allt að trompa fyrsta slaginn með háspili heima, annars er spilið tapað. Hann tekur hátígul í öðrum slag og sér leguna. Þá svínar hann tíg- uláttu og notar innkomuna til að trompa lauf hátt. Hjartaás er lagður inn á bók og loks er austur aftromp- aður með G10 og hjarta- kóngi hent heima! Leiðin er þá greið fyrir hjartaslagina í blindum. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake STEINGEIT Afmælisbörn dagsins: Þú ert vel gefin(n) og átt auðvelt með samskipti. Á komandi ári muntu standa frammi fyrir spennandi val- möguleikum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Farið varlega á áramótagleð- inni í kvöld. Þið eruð tilfinn- ingarík og ævintýragjörn og ættuð því að gæta þess að missa ekki stjórn á ykkur. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þið eruð óvenju ástríðufull í dag. Það liggur vel fyrir ykkur að upplýsa leyndarmál. Gætið þess að fara varlega með þær upplýsingar sem þið komist yf- ir. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Sýnið nærgætni í samtölum við aðra í dag. Þið hafið þörf fyrir að sannfæra einhvern um að gera eitthvað. Þótt þið getið verið mjög sannfærandi verðið þið að gæta þess að hlusta á sjónarmið annarra. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Ykkur hættir til þráhyggju varðandi eitthvað í vinnunni. Þið teljið að hugmyndir ykkar geti komið að gagni en það eru ekki allir sammála. Reynið að sýna sveigjanleika. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Sýnið börnum þolinmæði í dag. Það er mikið um að vera í kringum ykkur og það getur skapað spennu á heimilinu. Munið að börn geta verið við- kvæm fyrir umhverfinu. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það er hætt við að þið lendið í deilum við systkini ykkar eða aðra ættingja. Reynið að drag- ast ekki inn í þrætur. Takið á móti nýju ári á jákvæðum nót- um. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þið hafið þörf fyrir að telja aðra á ykkar mál í dag. Þið teljið ykkur vita betur og það getur vel verið að það sé rétt en það geta ekki allir verið sammála. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Ykkur langar mikið til að kaupa eitthvað í dag en það er hætt við að langanir ykkar og ákveðni blindi ykkur. Þið ættuð að hugsa ykkur betur um og reyna að sjá hlutina í skýrara ljósi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Reynið ekki að breyta öðrum eða segja þeim fyrir verkum. Við getum breytt sjálfum okkur en ekki öðrum. Gætið að eigin hegðun. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Gætið að því hvað þið gerið í dag og í kvöld. Látið eins og það verði fjallað um ykkur í blöð- unum á morgun. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vinkona gæti beðið um eitt- hvað. Ykkur er í sjálfsvald sett hvort þið fallist á það eða ekki. Munið að rannsóknir sýna að sá sem talar mest fer yfirleitt með sigur af hólmi. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þið ættuð að forðast foreldra ykkar ef það er hætta á deilum á milli ykkar. Það er hætt við valdabaráttu í dag en í raun snýst hún um orðin tóm. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. KIRKJUSTARF EINS og undanfarin ár verður boðið upp á tónlistar- og helgistund í Kópavogskirkju á nýársnótt kl. 00.30. Það er gott að ganga í guðs- hús í upphafi nýs árs og eiga þar ró- lega stund, hlusta á góða tónlist, íhuga lífið og tilveruna og biðjast fyrir. Stundirnar í kirkjunni á ný- ársnótt hafa verið vel sóttar á und- anförnum árum og margir hafa lýst ánægju sinni yfir því að geta átt stund þar á þeim miklu tímamótum sem áramót eru. Þá leita gjarnan ýmsar spurningar á hugann og við finnum sterkar fyrir ýmsum tilfinn- ingum en við gerum að jafnaði á öðrum tímum ársins. Það eru allir velkomnir í Kópa- vogskirkju á nýársnótt til helgi- og tónlistarstundar. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Helgihald um ára- mót í Hjallakirkju UM áramót býður Hjallakirkja upp á tvær helgistundir í kirkjunni til að kveðja árið sem senn er á enda og um leið fagna nýju ári. Á gamlársdag verður aftan- söngur kl. 18 og mun kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsönginn. Gunnar Jónsson syngur einsöng. Á nýársdag verður svo guðsþjón- usta síðdegis kl. 17. Sigurrós Þor- grímsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, flytur hugvekju og Kammerkór Hjallakirkju, Vox Gaudiae, leiðir sönginn. Verið velkomin í Hjallakirkju um áramót. Þráinn Bertelsson prédikar á nýársdag FJÖLBREYTT tónlist verður flutt í áramótamessum í Bústaðakirkju. Á gamlárskvöld verður aftansöngur kl. 18:00. Þá verður einleikari á trompet Einar Jónsson. Á nýársdag verður ræðumaður Þráinn Bertelsson rithöfundur. Þrá- inn er landsmönnum öllum kunnur fyrir skrif sín og ritstörf. Það hefur verið siður í Bústaðakirkju að leik- maður hefji nýtt ár með prédikun á nýársdegi. Einsöngvari í messunni verður Agnes Kristjónsdóttir og organisti er Guðmundur Sigurðs- son. Áramótamessurnar verða sendar út á netinu á slóðinni kirkja.is. Fjöl- margir nýttu sér þennan möguleika í jólamessunum, sem sendar voru út á netinu. Nettengingin hefur verið end- urbætt og gæði útsendinganna verða við bestu skilyrði í líkingu við sjónvarpsgæði og hljóðgæði mjög góð. Notaður er nýr hugbúnaður frá Microsoft, Windows Media Encoder, sem bætir stórlega bæði mynd- og hljóðgæði frá því sem áður hefur þekkst. Nauðsynlegt er að hafa nýj- ustu útgáfu þessa hugbúnaðar til þess að bestu gæði náist. Þessi út- sending er í samvinnu við Línu net. Bústaðakirkja sendir áramóta- kveðjur til allra velunnara sinna með ósk um blessun mót nýju ári. Pálmi Matthíasson. Morgunblaðið/Ómar Nýársnótt í Kópavogskirkju LJÓÐABROT NÚ ÁRIÐ ER LIÐIÐ Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka, nú gengin er sérhver þess gleði og þraut, það gjörvallt er runnið á eilífðarbraut, en minning þess víst skal þó vaka. - - - Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár og góðar og blessaðar tíðir, gef himneska dögg gegnum harmanna tár, gef himneskan frið fyrir lausnarans sár og eilífan unað um síðir. Valdimar Briem 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 e5 4. Rf3 Rbd7 5. Bc4 Be7 6. 0-0 0-0 7. De2 c6 8. Hd1 Dc7 9. a4 b6 10. Ba2 a6 11. dxe5 Rxe5 12. Rd4 He8 13. h3 Bd7 14. f4 Rg6 15. f5 Re5 16. Bf4 b5 17. Rf3 b4 18. Rb1 Rxf3+ 19. Dxf3 c5 20. Rd2 Bc6 21. Bd5 Bf8 22. Bg5 Bxd5 23. exd5 Rd7 24. Df1 Be7 25. Bf4 a5 26. Dd3 Bf6 27. Rc4 Be5 28. Bg3 f6 29. He1 Had8 30. Bf2 Rb6 31. Rxa5 Bxb2 32. Hxe8+ Hxe8 33. Ha2 c4 34. Dd1 Bc3 35. Rc6 Rd7 36. a5 Rc5 37. a6 Ha8 38. a7 Db7 39. Kh2 b3 40. cxb3 cxb3 41. He2 b2 42. Db1 Rd3 Í febrúar verður mikið um að vera í íslensku skáklífi og verður m.a. haldið Olís-einvígið milli fjórfalds Íslands- meistara, Hannes- ar Hlífars Stefáns- sonar og Evrópu- meistara í atskák, Sergei Movsesjan. Sá síðarnefndi hef- SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson ur margar glæsiskákirnar teflt og verða nokkrar af þeim sýndar næstu daga. Í stöðunni hafði Sergei hvítt gegn alþjóðlega meistaran- um Jósef Pribyl í tékknesku deildakeppninni 1995. 43. Dxd3! b1=D 44. Dxc3 D7b3 45. Dd4 Kh8 46. Be1! Þótt svartur hafi tvær drottning- ar er staða hans töpuð þar sem frípeðið á a7 er sem fleinn í stöðu hans. 46... h5 46... Dxf5 gekk ekki upp vegna 47. Hb2 og hvítur vinnur. 47. Bc3 Hxa7 48. Dxa7 Dxc3 49. Da8+ Kh7 50. Re7 og svartur gafst upp enda fátt til varnar. Hvítur á leik. Kínversk leikfimi - Wushu art (Kung fu) Einnig er boðið uppá varanlega förðun 20% afsl. Heilsudrekinn Kínversk heilsulind Ármúla 17a Sími 553 8282 www.heilsudrekinn.is  Hugræn teygjuleikfimi  Gong Fa  Tai Chi  Sjálfsvörn  Wushu art fyrir börn  Wushu art fyrir unglinga og fullorðna (kennarinn er prófessor í Wushu art)  Einnig kínversk heilsumeðferð Dekurdagar 30% afsl. af gren- ningarmeðferð Orka  Lækningar  Heimspeki Hóptímar - Einkatímar 2002 2002 2002 2002 2002 2002 2002 2002 Sendum viðskiptavinum okkar bestu óskir um farsæld á nýju ári og þökkum viðskiptin á liðnu ári BREIÐHOLTSBAKARÍ Sérgrein: Almennar skurðlækningar Tímapantanir daglega frá kl. 9-17 Hef opnað læknastofu Fritz H. Berndsen Domus Medica • Egilsgötu 3 • 101 Reykjavík sími 563 1053              MORGUNBLAÐIÐ birt- ir tilkynningar um af- mæli, brúðkaup, ættar- mót og fleira lesendum sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569- 1329, eða sent á netfang- ið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.