Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ÍSLENSKU Everest-fararnir Björn Ólafsson, Einar K. Stef- ánsson og Hallgrímur Magnús- son héldu upp á 5 ára gamlan áfangann með því að eignast allir stúlkubarn á árinu. Björn og Helga Thors eign- uðust Kristínu Kolku 20. maí síðastliðinn, nær fimm árum eftir að strákarnir stóðu á hæsta tindinum 21. maí 1997. Einar og Sigurlaug Guðrún Þórðardóttir eignuðust Katr- ínu 23. október en fyrir áttu þau Arndísi 6 ára og Stefaníu 3 ára. Hallgrímur og Elín Sig- urðardóttir eignuðust síðan Snædísi 20. nóvember. „Þetta voru ekki samantekin ráð hjá okkur, en skemmtileg tilviljun,“ segir Björn, en fé- lagarnir hafa farið í marga leiðangra saman um árabil og verið samstiga í aðgerðum sín- um. „Það getur svo sem vel verið að konurnar hafi talað sig saman um þetta en mér þykir það samt ekki líklegt.“ Björn og Einar byrjuðu að klifra saman 1990 og Hall- grímur bættist í hópinn skömmu síðar. Konurnar hafa líka tekið þátt í íþróttinni með þeim og meðal annars fór hópurinn í leiðangur til Malasíu í fyrra- haust. „Við erum ekki hættir, þó að annað bætist við,“ segir Björn og vísar til fjölgunar- innar í fjölskyldunum. Þótt stúlkurnar séu ungar er þegar farið að huga að fjalla- ferðum með þær og ein þeirra hefur fundið smjörþefinn af því sem koma skal. „Þó að fjallaferðir séu ekki helsta umræðuefnið á þessum tímamótum erum við áfram stórhuga og við eigum örugg- lega eftir að ganga á Esjuna og fleiri fjöll með stelpurnar en Einar fór í jeppaferð með sína yngstu á Fimmvörðuháls á dögunum,“ segir Björn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Björn Ólafsson (l.t.v.) er með Kristínu Kolku í fanginu. Við hlið hans er Hallgrímur Magnússon með Snædísi, og lengst til hægri er Einar K. Stefánsson með Katrínu. Borgarfjallið Esjan í baksýn. „Þetta voru ekki saman- tekin ráð hjá okkur“ Everest-fararnir eignuðust allir stúlkubarn á árinu sem er að líða MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út föstu- daginn 3. janúar. Yfir áramótin verður frétta- þjónusta á Fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt er að senda ábendingar um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is eða hringja í síma 861-7970. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra víkur að öryggis- og varnarmálum í áramótagrein sinni í Morgunblaðinu í dag og segir varnarstöð á Íslandi lúta sömu lögmálum og annars stað- ar gerist. Varnarþörf hljóti að verða metin út frá gagnkvæmum hags- munum. Gert er ráð fyrir að viðræð- ur við Bandaríkin um viðbúnað í varnarstöðinni í Keflavík hefjist formlega snemma á nýju ári. Forsætisráðherra segir aðildina að NATO og varnarsamninginn við Bandaríkin hafa verið hinn fasta punkt í öryggismálum Íslands. Síðan segir Davíð: „Við höfum ætíð talið og trúað því að sá samningur sé gagn- kvæmur. Í því felst auðvitað ekki að öryggi valdamesta ríkis heims sé undir okkur komið. Varnarlið og eft- irlitsstörf hafa verið hér vegna þess að þeir þættir hafa hvor með sínum hætti haft gildi fyrir þjóðirnar báðar og ekki síður Nato sem heild. Vá ver- aldar er önnur en fyrr. Helstefna kommúnismans er horfin úr okkar heimshluta. Hún stóðst ekki stað- festu frelsisunnandi manna, sam- keppni og samanburð við hin frjálsu vestrænu þjóðfélög. Það þýðir ekki að nokkur þjóð telji sér vera óhætt án grundvallarvarna. Nýjar ógnir steðja að, sumar þekktar, aðrar lítt þekktar en hugsanlegar. Varnarstöð á Íslandi lýtur sömu lögmálum og annars staðar gerist og varnarþörf hlýtur að verða metin út frá gagn- kvæmum hagsmunum nú sem endranær. Það er hvorki vit né sann- girni í annarri niðurstöðu,“ segir Davíð í grein sinni. Í viðtali við forsætisráðherra sem birtist í aukablaði Morgunblaðsins 5. maí árið 2001, er tileinkað var 50 ára varnarsamstarfi Íslands og Banda- ríkjanna, benti Davíð á að varnar- stöð væri óþörf hér á landi þjónaði hún eingöngu eftirlits- og forvarna- hlutverki fyrir Bandaríkin en ekki því sem skilgreint hefði verið sem „varnir Íslands“. Síðan sagði hann í viðtalinu: „Ef Bandaríkjamenn kom- ast að þeirri niðurstöðu að þeir vilji ekki halda uppi stöð sem þjóni hags- munum beggja verður hún einfald- lega lögð niður. Flóknara er þetta ekki og í þessu felst engin hótun. Bandaríkjamenn skilja þetta vel þótt til séu Íslendingar sem ekki gera það. Hér er um sameiginlega varn- arstöð að ræða, hún ver hagsmuni beggja þjóðanna.“ Davíð Oddsson forsætisráðherra um öryggis- og varnarmál í áramótagrein Varnarþörf metin út frá gagnkvæmum hagsmunum  Við áramót/30 „Nýjar ógnir steðja að, sumar þekkt- ar, aðrar lítt þekktar en hugsanlegar“ JÓN Baldvin – Tilhugalíf var sölu- hæsta bókin á landinu í desember, samkvæmt samantekt Félagsvísinda- stofnunar. Kolbrún Bergþórsdóttir skráði. Röddin, skáldsaga Arnalds Indriðasonar, kom þar á eftir og í þriðja sæti var Sonja eftir Reyni Traustason. Bók Óttars Sveinssonar, Útkall – Geysir er horfinn, hafnaði í fjórða sæti og Eyðimerkurdögun eftir Waris Dirie í því fimmta. Fimm af tíu söluhæstu bókunum heyra til flokki ævisagna og endur- minninga. A %B ' B C      !" # $ %&B #3   :  '  B !  0 #B *  $'  () B A %   #B DE* (   *+, +) B F  & #B  (     Tilhugalíf seldist mest  Bóksala/26 NÝLEGUR björgunarsveitarbíll gereyðilagðist á flugeldasýningu björgunarsveitarinnar Elliða í Staðarsveit í gærkvöldi þegar kviknaði í tveimur öflugum skoteldatertum sem voru í bílnum. Eng- inn meiddist en fjórir björgunarsveitarmenn sem stóðu við bílinn áttu fótum fjör að launa. „Við vitum í rauninni ekki alveg hvað gerðist en það hefur greinilega komist neisti þarna í,“ sagði Sigurður Jónsson, formaður Elliða, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Þótti honum líklegast að neisti frá flugeldi hefði borist með vindi inn í bíl- inn. „Terturnar fóru í gang og við bara hlupum í burtu, það var lítið annað að gera,“ segir hann. „Ég held við höfum aldrei hlaupið svona hratt áður.“ Terturnar sprungu inni í bílnum og kveiktu í sæt- um og öðru sem í bílnum var, þ.á m. yfirhöfnum björgunarsveitarmanna. Meðal þess sem brann var hluti af afrakstri flugeldasölu dagsins, nokkrir tugir þúsunda króna. Björgunarsveitarbíllinn var tekinn í notkun í janúar og hafði verið ekið um 3.000 kílómetra. Bíllinn var í alkaskó og verður væntanlega bættur af tryggingafélaginu. „Höfum aldrei hlaupið svona hratt áður“ LÖGREGLUMENN brugðust skjótt við um helgina þegar fornbíll bilaði hjá konu, sem var á leið til kirkju í eigin brúð- kaupsvígslu. Fornbílar eru vin- sælir hjá hjónaefnum á brúð- kaupsdaginn en að þessu sinni brást fornbíllinn með fyrr- greindum afleiðingum. Óttaðist brúðurin að brúð- guminn væri farinn að tvístíga við altarið en lögreglumenn voru fljótir að bjarga málum og kom brúðurin því tímanlega í brúðkaup sitt í lögreglufylgd. Bíllinn var sendur í viðgerð. Fékk lög- reglufylgd í eigið brúðkaup EKKI var gengið frá samningi ríkisins og Samsonar eignarhaldsfélags um sölu á 45,8% hlut ríkisins í Landsbanka Íslands í gær. Fulltrúar viðræðuaðila funduðu fram eftir kvöldi í gær og sagði Guðmundur Ólason, ritari framkvæmdanefndar um einkavæð- ingu, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að verið væri að leysa úr tæknilegum atriðum. Stefnt væri að því að undirrita samninginn fyrir áramót. Einkavæðingarnefnd gerði 21. október sl. sam- komulag við Samson eignarhaldsfélag ehf. um kaup hlut í Landsbankanum. Áreiðanleikamat, sem KPMG gerði vegna sölunnar, var ekki í samræmi við mat bankans á eigin verðmæti sem lagt var til grundvallar í samningaviðræðum einkavæðingar- nefndar og Samsonar ehf. Þetta hefur tafið undir- ritun samninga. Sala Landsbankans Stefnt að und- irskrift í dag ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.