Morgunblaðið - 25.06.2003, Blaðsíða 1
Skipulaginu breytt
Líklega þurfa breskir hermenn aft-
ur að vera í fullum herklæðum
vegna árásanna í gær en þeir hafa
ekki þurft þess síðan stríðinu lauk.
SEX breskir hermenn féllu og átta
slösuðust í tveimur árásum í suður-
hluta Íraks í gær. Að því er fram
kemur í tilkynningu frá breska for-
sætisráðuneytinu voru árásirnar
gerðar með nokkurra km millibili
nærri al-Amarah, um 200 km norð-
ur af Basra. Hermennirnir voru að
þjálfa íraska lögreglumenn þegar
árásin var gerð. Breska varnar-
málaráðuneytið rannsakar nú hvort
árásirnar tvær hafi tengst með ein-
hverjum hætti.
Þingmenn vottuðu hermönnun-
um virðingu sína og Tony Blair
forsætisráðherra sagði þá hafa
„fallið með sæmd fyrir heimaland
sitt“.
Varnarmálaráðherra Bretlands,
Geoff Hoon, sagði í umræðum í
þinginu að hersveitirnar myndu þó
ekki verða bugaðar af „óvinum
friðarins“ eins og þeim sem gerðu
árásina. Of snemmt væri að draga
ályktanir í þá veru að kalla ætti til
Sameinuðu þjóðirnar á svæðið eins
og einn þingmaður lagði til.
Vara Rumsfeld við áhyggjum
bandarískra borgara
Bandarískt herlið í Írak varð
enn fyrir árásum aðfaranótt þriðju-
dags samkvæmt heimildarmönnum
innan bandaríska hersins. Fimm
Írakar létust í árásunum og einn
Bandaríkjamaður særðist.
Um tvö, að því er talið er, óskyld
atvik var að ræða nærri bænum
Fallujah, vestur af Bagdad. Í því
fyrra sinnti bílstjóri bifreiðar sem
ók í átt að vegartálma hersins ekki
stöðvunarskyldu með þeim afleið-
ingum að einn Íraki féll og annar
særðist í skothríð bandarískra her-
manna. Tveimur stundum síðar var
skotið á bandaríska hermenn við
vegartálma sem svöruðu í sömu
mynt og særðust þrír árásarmanna
í þeim átökum.
Þá bjuggu íbúar Bagdad-borgar
við algert rafmagnsleysi annan
daginn í röð í gær en þá var meira
en sólarhringur liðinn frá því að
skemmdarverk voru unnin á gas-
leiðslum nærri bænum Hit í Írak.
Bandarískir þingmenn vöruðu í
gær Donald Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, við
áhyggjum almennings af nær dag-
legum árásum á bandaríska her-
menn í Írak og vaxandi fjölda
dauðsfalla í bandarísku herliði í
Írak og Afganistan.
Sex Bretar féllu í Írak
Íbúar Bagdad-borgar hafa búið við rafmagnsleysi í tvo sólarhringa
Bagdad. AFP, AP.
Reuters
STOFNAÐ 1913 169. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Lengi í
boltanum
Auður Skúladóttir lék sinn 200.
leik fyrir Stjörnuna Íþróttir 44
Ofurstjarnan Beyoncé gefur út
sína fyrstu sólóplötu Fólk 46
Boðflenna
í sviðsljósi
Atvik í afmæli prinsins dregur
dilk á eftir sér Erlent 16
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hjálpar hér Elísabetu Englandsdrottningu niður úr gullslegnum
vagni en heimsókn Pútíns til Bretlands hófst í gær. Um er að ræða fyrstu heimsókn rússnesks þjóð-
höfðingja til landsins í meira en öld eða síðan á keisaratímanum í Rússlandi./14
Reuters
Söguleg heimsókn
MIKLAR afbókanir eru
hjá Fosshótelum í sumar
en þau eru fjórtán talsins
um allt land. Margir hóp-
ar ferðamanna frá Evrópu
og Asíu hafa afbókað með
stuttum fyrirvara. Á móti
kemur að það færist í vöxt
að ferðamenn bóki ferðir
hingað til lands á síðustu
stundu og þá gjarnan í gegnum Netið, að sögn Ernu
Hauksdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjón-
ustunnar. Hún segir að ferðamönnum hafi fjölgað um
7–8% milli ára en gistirými hafi aukist um 20% á sama
tíma í Reykjavík sem kemur niður á nýtingunni.
„Ástandið hefur ekki verið svona slæmt í fjögur ár,“
segir Renato Grünenfelder, framkvæmdastjóri Foss-
hótelanna. „Þetta leit út fyrir að verða metsumar hjá
flestum. Við stóluðum á að allir vildu fara til Íslands
sem væri öruggt land miðað við önnur lönd en því mið-
ur gekk það ekki upp.“ Hann telur að nýtingin sé verst
á Suðurlandi en áhrifanna gæti þó um allt land. „Af-
bókanir koma verst niður á litlu hótelunum úti á landi.
Þar eru engir biðlistar og þegar hópar sem pantað
hafa 10–25 herbergi afbóka með stuttum fyrirvara er
aldrei hægt að fylla þau í staðinn.“
HABL hefur haft áhrif
Mest er um afbókanir frá Asíu og þar telur Renato
bráðalungnabólguna HABL vera helstu skýringuna. Í
Sviss og Þýskalandi sé mikið framboð af ferðum og
fjölbreytt tilboð sem hægt sé að taka með mjög stutt-
um fyrirvara. Þá hafi efnahagsástandið þau áhrif að
fólk ferðast minna og það gildir líka um Skandinava.
Kári Kárason, framkvæmdastjóri Flugleiðahótela
hf., sagðist verða var við fleiri afbókanir í sumar, sér-
staklega í Reykjavík, enda meira framboð af gistirými
en áður. „Afbókanir eru háðar ástandinu í ferðaþjón-
ustunni hverju sinni, ferðaskrifstofur bóka ákveðinn
fjölda herbergja fram í tímann og reyna svo að selja
þau herbergi. Náist það ekki innan ákveðins frests
verða skrifstofurnar að afbóka. Ástandið í Bandaríkj-
unum núna er ekki gott, fólk þar er hrætt við að
ferðast. Staðan í Evrópu er hins vegar betri.“
Margir hópar erlendra ferða-
manna afboða komu sína
„Ástandið ekki
svona slæmt í
fjögur ár“
Talibanar
skipuleggja
andspyrnu
Maryland. AP.
MÚLLINN Mo-
hammad Omar,
fyrrverandi and-
legur leiðtogi tal-
ibanastjórnarinn-
ar í Afganistan,
hefur skipað tíu
manna ráð sem á
að skipuleggja
andspyrnusveitir
gegn hersveitum
Bandaríkjamanna og bandamönnum
þeirra, að því er CNN hefur eftir
pakistanska dagblaðinu The News.
Pervez Musharraf, forseti Pakist-
ans, er nú í heimsókn í Hvíta húsinu í
Washington en hann sagði m.a. við
George Bush Bandaríkjaforseta að
her hans reyndi hvað hann gæti til að
handsama Osama bin Laden.
Bush þakkaði Musharraf fyrir
handtöku yfir 500 al-Qaeda-liða og
talibana og sagði hann „hugrakkan
leiðtoga“ og vin Bandaríkjanna.
Bandaríkjastjórn hygðist veita Pak-
istan þriggja milljarða dala fjárhags-
aðstoð eða um 225 milljarða króna.
George Bush
Dýrkeypt
áfengisneysla
Canberra. AP.
MIKIL áfengisneysla í Ástralíu er
samfélaginu óskaplega dýr. Kemur
það fram í nýrri skýrslu en í henni
segir, að fyrir utan allt það tjón, sem
ekki verði metið til fjár, kosti hún
skattgreiðendur beint um 367 millj-
arða íslenskra króna.
Skýrsla ástralska áfengisvarna-
ráðsins tekur til eins árs, frá 1998 til
1999. Fram kemur að um 10% lands-
manna, sem eru 19 milljónir, drekki
hættulega mikið áfengi. Afleiðingar
neyslunnar eru meðal annars sjúk-
dómar, ekki síst lifrarsjúkdómar, bíl-
slys, eldsvoðar, glæpir og ofbeldi,
dauðsföll og fjarvistir frá vinnu. Er
þá margt ótalið að sjálfsögðu og lík-
legt, að útgjöld vegna áfengisneysl-
unnar séu miklu hærri.
Beið í 27 ár
eftir síman-
um sínum
Dhaka. AFP.
SEXTUGUR maður í
Bangladesh hefur nú loksins
fengið símann sinn tengdan –
tuttugu og sjö árum eftir að
hann fyrst bað um það.
„Þetta skiptir nú ekkert
voðalega miklu máli úr því að
ég gat ekki fengið símann þeg-
ar ég helst þarfnaðist hans,“
segir Mohammed Ismail,
bankastarfsmaður í Dhaka sem
kominn er á eftirlaun.
Þó að það taki gjarnan upp
undir ár að fá símann sinn
tengdan í Bangladesh þurfti
Ismail að bíða óvenju lengi, svo
ekki sé fastar að orði kveðið.
Nýtt frá
söngstirni