Morgunblaðið - 04.07.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KVÓTI AUKINN
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra hefur ákveðið að auka kol-
munnakvótann um 229.000 tonn í ár,
sem gefur af sér þrjá milljarða í út-
flutningstekjur ef allur aflinn næst.
Ákvörðuninni er tekið fagnandi af
forstjóra Síldarvinnslunnar, Björg-
ólfi Jóhannssyni, en fyrirtækið er
með um 25% kvótans.
Formannsskipti í LR
Jóhann G. Jóhannsson og Sig-
urður Karlsson hafa sagt af sér for-
mennsku og varaformennsku hjá
Leikfélagi Reykjavíkur og hefur Ell-
ert A. Ingimundarson verið skipaður
formaður í þeirra stað. Ellert segist
vona að sátt náist innan félagsins um
mögulegar breytingar.
Íbúar óánægðir
Þungt hljóð er í Siglfirðingum í
kjölfar ákvarðana um að hafna öllum
tilboðum í gerð Héðinsfjarðarganga
og fresta framkvæmdum til ársins
2006. Ólafsfirðingar eru einnig
þungorðir í garð stjórnvalda. Bæj-
arráð Ólafsfjarðar og Siglufjarðar
sendu í gær frá sér ályktun vegna
ákvörðunarinnar og fer bæjarráð
Ólafsfjarðar fram á viðræður við for-
ystumenn ríkisstjórnarinnar nú þeg-
ar.
Berlusconi biðst afsökunar
Silvio Berlusconi bað í gær Ger-
hard Schröder, kanslara Þýska-
lands, afsökunar á því að hafa á mið-
vikudag sagt að þýskur fulltrúi á
Evrópuþinginu ætti að taka að sér
hlutverk fangavarðar nasista í kvik-
mynd sem verið væri að gera á Ítal-
íu. Schröder sagði málinu lokið af
sinni hálfu.
Enn árásir í Írak
Þrír Írakar biðu bana og tíu
bandarískir hermenn særðust í gær
í sprengingu og þremur árásum á
bandaríska hermenn.
F Ö S T U D A G U R 4 . J Ú L Í 2 0 0 3 B L A Ð B
SKAPANDI TRÚÐAR /2 VIÐ ERUM ÖLL EINS AÐ INNAN /3
ALI BABA OG BALLERÍNUR /4 STRÁKUR EÐA STELPA? /6
GLYS OG GÖTULÍF – EÐA VILTU KANNSKI KLIPPINGU?/7
ÍTÍSKUHEIMINUM hefur lengi ríkt tog-streita á milli tveggja strauma; þess sem erþægilegt og þess sem þykir smart. Víruð
brjóstahöld, lífstykki og hælaháir skór eru til
dæmis ekki beint heilsusamlegir fylgihlutir, en
þykja gefa eftirsóknarverða reisn. Svipað gildir
um ofurþröngar gallabuxur, stíf leðurbelti, jafn-
vel gerviaugnahár.
Nú virðast þarfir líkamans hins vegar njóta
vaxandi skilnings í tískuveröldinni og er það vel.
Nýjustu sumarskórnir eru eitt dæmið, margir
þeirra eru úr mjúku efni og þrengja hvergi að
fætinum. Nóg er af slíkum skæðum í verslunum í
ár og háhælaðir skór eru jafnvel orðnir þægileg-
ir, ekki síst þegar hællinn er kenndur við klósett.
Tásuskór koma sterkir inn
Svonefndir tásuskór eru ennfremur til fyrir
bæði kynin, þótt úrvalið fyrir konur sé að vísu
margfalt meira. Þetta eru þægilegir skór þar
sem loftið leikur um fótinn og tærnar eru ekki
kramdar, eins og verða vill í hinum támjóu. Enn
notalegri eru svo mjúkir, fótlaga leðurskór sem
auðvelt er að smeygja sér í, sumir eru jafnvel
þeirrar náttúru að hælkappinn er líkt og geng-
inn niður.
Strigi hefur einnig löngum verið notaður í
skó, efnið er sveigjanlegt og til þess að tolla í
tískunni eru strigaskór ekki endilega lengur
reimaðir, heldur geta þeir líka verið steinum
skrýddir.
Eftir þramm um götur og torg kemur hins
vegar að því að fólk þreytist, jafnvel þótt skórnir
séu í þolanlegri kantinum. Þá er tilvalið að geta
sest á handtöskuna sína og hvílt sig á mjúkum
fleti. Þessum eiginleikum er taskan Cover your
ass einmitt prýdd, en hönnuður hennar er Guð-
rún Lilja Gunnlaugsdóttir, búsett í Hollandi.
Auk þess að vera gerð úr þykku milliefni er
taskan tískugripur í hágæðaflokki, en hún var
nýlega valin til sýningar á Tískusafninu í Hasselt
í Belgíu, þar sem einnig voru sýndar töskur frá
Philip Starck, Kenzo og fleiri stórlöxum.
Við erum /3
Ali Baba /4
Morgunblaðið/Arnaldur
Á töskunni Passaðu rassinn er mynd af sitj-
anda en að innanverðu eru skávöðvar. Task-
an er ennfremur mjúkt sæti fyrir eigandann.
Morgunblaðið/Jim Smart
Skrautlegir tásuskór úr Bianco; loft leikur um fótinn.Sveigjanlegur sóli og loftgöt, frá Bianco.
Hið ljúfa líf
Mjúkir og
flatbotna
leðurskór með
pallíettum úr Agadir.
Þægindin í fyrirrúmi
Dormað í garðinum í mjúkum skóm úr striga, án
þess að slegið sé af tískukröfum um lit og snið.
Yf ir l i t
Í dag
Viðskipti 12 Viðhorf 32
Úr verinu 14 Minningar 32/39
Erlent 14/17 Bréf 56
Höfuðborgin 18 Staksteinar 40
Suðurnes 19 Dagbók 42/43
Akureyri 20/21 Íþróttir 44/47
Austurland 22 Leikhús 49
Landið 23 Fólk 49/53
Listir 24/25 Bíó 50/53
Umræðan 26/27 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
Íslenskur dvergkafbátur, sem ætlaður er til rannsókna
neðansjávar, hefur vakið athygli víða um heim. Ragn-
hildur Sverrisdóttir kafaði í málið.
Ísland og öryggisráðið
Gera má ráð fyrir umfangsmikilli kosningabaráttu
vegna framboðs Íslands til setu í öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna. Davíð Logi Sigurðsson kannaði málið.
Kynlíf, lygar og hjónabönd
Í sinni 33. kvikmynd leikur Woody Allen Hollywood-
leikstjóra í blindgötu. Skarphéðinn Guðmundsson
ræddi við Woody Allen.
Íslenskur kafbátur
á sunnudaginn
ERLENDIR ferðamenn voru um
5% fleiri í júní en í sama mánuði í
fyrra, samkvæmt upplýsingum frá
ferðamálaráði. Ferðamönnum frá
öllum helstu markaðssvæðum fjölg-
aði og Ársæll Harðarson, markaðs-
stjóri Ferðamálaráðs, segir að það
hljóti að teljast gleðitíðindi.
Alls voru erlendir ferðamenn
33.707 talsins í júní, samanborið við
32.215 í júní 2002. Stærsti hópurinn
kom frá Bandaríkjunum, 5.752
ferðamenn, þar á eftir kemur Þýska-
land með 5.051 mann og þá Bretland,
en ferðamenn þaðan voru 4.647 tals-
ins í mánuðinum. Ársæll segir að
bandarískum ferðamönnum hafi
fjölgað um 2% frá fyrra ári. „Þetta er
fyrsti mánuðurinn í ár þar sem vöxt-
ur er í fjölda ferðamanna frá Banda-
ríkjunum, sem er mjög ánægjulegt
og verður vonandi viðvarandi,“ segir
hann.
Bretum fjölgaði um 29% ef miðað
er við júní 2002 og Þjóðverjum um
23%. Þá nam fjölgun danskra ferða-
manna 27% og franskra 26%. Svíum
fækkaði hins vegar um 13%, Kan-
adamönnum um 27% og Norðmönn-
um um 15%. Spænskum ferðamönn-
um fjölgaði um 68%; úr 364 í 612.
„Það er athyglisvert að lítilsháttar
samdráttur er frá Norðurlöndunum
samanlagt, en Danmörk sker sig úr
með góða aukningu í júní,“ segir Ár-
sæll.
Morgunblaðið/RAX
Ferðamenn austan Námaskarðs í Mývatnssveit.
!"
#
$
$$$$$
%
&'(&)
*'+*(
)',&-
+)&
)'(&)
-'.&&
(*,
)&&
//*
)'*/-
+-)
+/+
)'/.)
&'.&-
/'+&+
//'(.(
!
"
#
#$
Ferðamönnum fjölg-
aði um 5% í júní
VIÐRÆÐUR um sölu Sements-
verksmiðjunnar hf. á Akranesi
standa nú yfir. Íslenska ríkið á 100%
hlut í verksmiðjunni en fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu sér
um söluna fyrir hönd ríkisins.
Að sögn Stefáns Jóns Friðriksson-
ar, ritara einkavæðingarnefndar,
fékkst engin niðurstaða í málið í gær
er nefndin fundaði með tilboðsgjöf-
um. „Við höldum áfram að ræða mál-
in. Við erum að gera okkur vonir um
að niðurstaða liggi fyrir á morgun
[föstudag] eða í síðasta lagi á laugar-
dag,“ sagði Stefán Jón í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Fimm hópar vildu bjóða í verk-
smiðjuna þegar hlutur ríkisins var
auglýstur til sölu í mars sl. Í hópnum
sem nefndin ákvað að ganga til við-
ræðna við eru Framtak fjárfesting-
arbanki hf., BM Vallá hf., Björgun
ehf. og norska sementsverksmiðjan
Norcem. Ekki hefur fengist upp gef-
ið hversu hátt verð er rætt um.
Tekjur Sementsverksmiðjunnar á
árinu 2002 námu 1.160 milljónum
króna. Eignir í lok síðastliðins árs
voru 1.829 milljóna króna virði.
Skuldir félagsins námu alls 733 millj-
ónum króna og eigið fé var 1.096
milljónir króna í árslok 2002.
Sala Sementsverksmiðjunnar
Niðurstaða í dag
eða á morgun ÞRIGGJA ára drengur var nær kafn-
aður þegar pylsubiti stóð í honum á
þriðjudag. Móðir hans hringdi á
sjúkrabíl og reyndi viðurkenndar að-
ferðir við að ná bitanum úr hálsi
barnsins, en allt kom fyrir ekki. Þegar
sjúkrabíll kom á staðinn leið barnið út
af og ekki tókst að ná bitanum upp
fyrr en á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi. Drengurinn hefur nú ver-
ið útskrifaður og mun ná sér að fullu.
Að sögn Herdísar Storgaard, fram-
kvæmdastjóra Árvekni, er allt of al-
gengt að matur og sælgæti standi í
börnum hér á landi. Mjög mikilvægt
sé að foreldrar kynni sér vel og kunni
rétt viðbrögð við aðstæður sem þess-
ar og muni að hringja strax á hjálp.
Nauðsynlegt er að börn borði sitjandi
en ekki á hlaupum og óráðlegt að láta
lítil börn fá í hendur svonefnt „bland í
poka“, enda getur sælgætið staðið í
þeim.
Nær kafn-
aður af
pylsubita
♦ ♦ ♦
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
mælir ekki lengur með takmörkun á
ferðalögum til neinna staða í heim-
inum vegna alvarlegrar bráðrar
lungnabólgu (HABL).
Þeir ferðalangar sem síðastliðna
tíu daga hafa komið hingað til lands
frá Torontó í Kanada og Taívan í
Kína, þar sem nýleg tilfelli alvarlegr-
ar bráðrar lungnabólgu hafa komið
upp, ættu að hafa í huga meginein-
kenni sjúkdómsins, sem eru hiti yfir
38°C, þurr hósti og öndunarörðug-
leikar. Þetta kemur fram í tilmælum
frá sóttvarnalækni.
Búið að ná tökum á
HABL
Hömlum á
ferðum aflétt