Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Verð á mann frá 19.500 kr. LÖGREGLAN á Hornafirði rann- sakar enn tildrög banaslyssins í Al- mannaskarði í fyrradag þegar lítil jeppabifreið með fellihýsi í eftir- dragi fór út af veginum á leið niður Almannaskarð og valt 300 metra niður brekku með þeim afleiðingum að ökumaður og farþegi létust. Lög- regla veitir engar frekari upplýs- ingar um slysið að sinni. Athygli hefur vakið að engin vegrið voru í vegkantinum þar sem banaslysið varð. Rögnvaldur Jóns- son, framkvæmdastjóri tæknisviðs Vegagerðarinnar sem jafnframt á sæti í rannsóknanefnd umferðar- slysa, bendir á að á fjölmörgum stöðum í vegakerfinu vanti vegrið. Það hafi ekki verið sett í hæstu for- gangsröð í tengslum við vegaáætlun þó svo að töluvert sé sett upp af vegriðum. Reyna að gera heildaráætlun yfir kostnað við úrbætur Einkum hafi þau verið sett upp á nýjum vegum en á gömlum vegum eins og um Almannaskarð hafi það víða ekki verið gert. Hann segir að unnið sé að því að endurskoða ör- yggi gamalla vega. „Meðal annars erum við að byrja á því að skoða umhverfi veganna, menn keyra út af og geta lent ofan í skurði eða á grjóti, í alls konar erf- iðleikum, ekið niður bratta skriðu eða brattan fláa. Við ætlum að reyna að gera heildaráætlun yfir hvað það myndi kosta að bæta úr þessu, að minnsta kosti að ákveðnu marki,“ segir hann. Gert er ráð fyrir að áætlunin liggi fyrir síðar á þessu ári. Rögnvaldur segir að fulltrúar Vegagerðarinnar og rannsóknar- nefndar umferðarslysa muni skoða veginn og aðstæður, eins og alltaf þegar alvarlegt slys verður, og meta hvort ástæða sé til að gera á honum einhverjar lagfæringar. Hann segir slys á veginum um Al- mannaskarð fremur fátíð. Á slysa- korti Vegagerðarinnar er eitt um- ferðaróhapp skráð í Almannaskarði frá 1996 –1999 en þar urðu engin slys á fólki. Ekki lágu fyrir upplýsingar um slys þar síðustu ár. Engin vegrið við fjölmarga vegi Vegagerðin vinnur að endur- skoðun á öryggi gamalla vega FISKVINNSLUFYRIRTÆKINU Þórði Jónssyni ehf. á Bíldudal hefur verið veitt greiðslustöðvun. Að sögn Jóns Þórðarsonar, framkvæmda- stjóra, var tap á rekstri fyrirtækisins árið 2002 og fyrri hluta ársins í ár. Reksturinn hefur gengið erfiðlega undanfarið, og er stefnt að fjárhags- legri endurskipulagningu. Um 35 manns vinna hjá fyrirtækinu, og hrá- efni hefur verið tryggt til vinnslu fram á haust. Tveir bátar eru í eigu fyrirtækisins, Þórdís og Höfrungur, sem var sviptur leyfi tímabundið til veiða þar til afla- marksstaða skipsins hefur verið lag- færð. Vonast Jón til að Höfrungur fari til veiða í ágúst. Fyrirtækið hefur fengið úthlutað byggðakvóta undan- farin ár, og hefur hann haft jákvæð áhrif á atvinnulífið á staðnum. Þórður Jónsson ehf. í greiðslu- stöðvun SEX líffræðingar hafa verið við rannsóknir í Surtsey undanfarna daga. Leiðangurinn var með sér- stöku sniði að þessu sinni vegna fertugsafmælis eyjarinnar hinn 14. nóvember á komandi hausti. Í hópnum voru meðal annars þeir Sturla Friðriksson, Borgþór Magnússon og Sigurður H. Magn- ússon, sem skoðuðu gróðurfar eyj- arinnar, og Erling Ólafsson, sem hugaði að skordýrum. Einnig komu til aðstoðar vistfræðingarnir Kristín Svavarsdóttir og Lawr- ence Walker, en hann er prófessor í Bandaríkjunum kominn hingað til að kynna sér landgræðslustörf. Friggjargras, gulmaðra og gulvíðir Að sögn Sturlu Friðrikssonar er mikil gróska sunnanvert í eynni. „Það voraði óvenju vel í ár og er víða mikil spretta á takmörkuðu svæði,“ segir Sturla. Sérstaklega ber á góðri sprettu í kring um varpstöðvar sílamáfs. „Fuglinn ber ýmsa plöntuhluta og fræ að svæðingu frá nærliggjandi eyjum, til hreiðurgerðar og sem æti fyrir ungana,“ útskýrir hann. Að vanda var farið um eyna og leitað nýrra plöntutegunda. Fundu líffræðingarnir þrjár nýjar teg- undir að þessu sinni, friggjargras í góðum vexti og blómstrandi, gul- möðru, sem venjulega vex á þurr- um grundum og í mólendi, og að síðustu gulvíði, sem nú þykir sann- reynt að þrífst og dafnar í Surtsey. Nú eru um 60 háplöntur skráðar í eynni, en leiðangursmenn sáu að- eins til 53 þeirra að þessu sinni. „Af skordýrum má nefna, að nú sást í fyrsta sinn snigillinn hvannabobbi í eynni. Hann ber kuðung á baki sér,“ útskýrir Sturla. Sömuleiðis sást í annað sinn rykmýstegund, sem dvelur á lirfuskeiði í sjó, og gæti því unað vel í eynni, að sögn Sturlu. Með í för voru kvikmyndamenn á vegum Vilhjálms Knudsens sem mynduðu eyna og ætla með því að minnast starfa Ósvaldar Knudsens sem skráði atburðarás gossins á filmu á sínum tíma. Gróskuleg gulmaðra á grónu svæði í Surtsey. Rannsóknarleiðangur í Surtsey í tilefni af fertugsafmæli eyjarinnar Gulvíðir þrífst og dafnar í Surtsey Ljósmynd/Sturla Friðriksson Líffræðingar við leit og mat á grónu svæði Surtseyjar, sem á fertugsafmæli í ár. Friggjargras í góðum vexti í Surts- ey, ein nýrra landnema í eynni. Könnun Harris Interactive Flugleiðir áttunda besta flug- félagið ICELANDAIR lenti í 8. sæti yfir bestu alþjóðaflugfélög heims í skoð- anakönnun sem rannsóknarfyrirtæk- ið Harris Interactive gerði fyrir bandaríska tímaritið Travel and Leis- ure. Um 200.000 áskrifendur tíma- ritsins svöruðu spurningalistum. Þetta er í 8. sinn sem tímaritið efnir til árlegrar skoðanakönnunar og út frá henni er valið besta flugfélagið, besta hótelið, besta borgin og fleira. Samkvæmt frétt frá Flugleiðum var flugfélögunum gefin einkunn fyr- ir fimm þætti: Þægindi í farþegarými, mat, þjónustu um borð, almenna far- þegaþjónustu og verð. Að þessu sinni var það Singapore Airlines sem lenti í efsta sæti flug- félaga en Sidney í Ástralíu er talin heimsins besta borg. Bjargaði sér sjálf úr ógöngum KVÖLDGANGA gönguhóps frá Keflavík á leið til Höskuldarvalla á Reykjanesi, fékk ekki óskaendi í fyrrakvöld þótt allt færi samt vel að lokum, þegar ein konan úr hópnum, Fjóla Pétursdóttir, varð viðskila við hópinn og fannst ekki fyrr en í gær- morgun. Hún komst af sjálfsdáðum norður að Reykjanesbraut eftir næt- urlanga göngu einsömul og stöðvaði bíl á Reykjanesbrautinni og kom þeim skilaboðum áleiðis að hún væri komin fram heilu á húfi. Leitað hafði verið að Fjólu frá því um klukkan eitt eftir miðnætti í fyrrinótt eftir að hún varð viðskila við félaga sína í þoku og rigningu. Björgunarsveitarmenn úr þremur björgunarsveitum leituðu hennar með leitarhundum auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar tók þátt í leitinni. „Vissi alltaf hvar ég var“ „Ég vissi alltaf hvar ég var og gekk niður að Reykjanesbraut,“ seg- ir Fjóla, en svo virðist sem hún hafi orðið viðskila við hópinn fyrir ein- hverja slysni. „Það tók nokkurn tíma að ganga niður að braut en mér var aldrei kalt enda vel búin. Ég sá þyrl- una á sveimi og reyndi árangurslaust að veifa til hennar, en hún fór beggja vegna við mig.“ Fjóla er tiltölulega vön gönguferð- um og segir að sér hafi liðið vel allan tímann á meðan hún var á gangi. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.