Morgunblaðið - 25.07.2003, Page 37

Morgunblaðið - 25.07.2003, Page 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 37 ✝ Ásgeir HaukurMagnússon fæddist í Reykjavík 23. júní 1936. Hann lést í Sydney í Ástr- alíu 12. júlí síðast- liðinn. Ásgeir var sonur hjónanna Magnúsar G. Krist- jánssonar, skrif- stofustjóra í Slipp- félaginu í Reykjavík hf., f. á Ísafirði 13.7. 1904, d. 3.11. 1993, og Svövu Sveins- dóttur húsmóður, f. á Hvilft í Önundar- firði 12.9. 1909, d. 9.12. 1990. Bróðir Ásgeirs Hauks er Jón Hákon framkvæmdastjóri, kona hans er Áslaug G. Harðardóttir, börn þeirra eru Áslaug Svava, gift Hannesi Þórissyni, og Hörð- ur Hákon. Ásgeir Haukur kvæntist 21. júlí 1956 Jónu Sig- urðardóttur frá Ak- ureyri, f. 19.1. 1936, d. í Sydney 17.6. 1994. Þau áttu tvo syni sem búa í Ástralíu með fjöl- skyldum sínum, þeir eru: 1) Sigurð- ur, f. 5.8. 1957, kvæntur Svövu Birgisdóttur hjúkrunarfræðingi, dætur þeirra eru Karen og Kristín; 2) Magnús, f. 1.2. 1964, kvæntur Kim Robbins lögfræðingi, dóttir hennar er Jessica. Ásgeir stundaði viðskipti mestallan sinn starfsaldur, fyrst í Reykjavík og síðan í Ástralíu. Minningarathöfn um Ásgeir verður í Seltjarnarneskirkju í dag og hefst hún klukkan 15. Fallinn er frændi minn Ásgeir Haukur Magnússon, 67 ára, hinum megin á hnettinum, í Sydney í Ástralíu, eftir tæpa aldarfjórðungs búsetu þarlendis. Hann er mér og frændgarði mínum harmdauði. Hann var sannkallaður gleðigjafi frá fyrstu tíð. Langþráður frum- burður foreldra sinna, Svövu Sveinsdóttur og Magnúsar G. Kristjánssonar, móðurbróður míns, sem kenndur var við „Slippinn“. Ásgeir var undrafljótur að brúa sex ára aldursmun okkar og varð trún- aðarvinur minn þegar á táningsár- um sínum. Strax þá var honum ljóst takmark sitt, sem var að kom- ast til umsvifa í verslun, og ekki sem búðarloka eða skrifstofublók. Það tókst og veitti honum starfs- ánægju og efnalega velsæld í rýmra lagi, þótt á móti blæsi stund- um. Ásgeir var manna fríðastur og myndarlegastur á velli og geislaði frá sér ómótstæðilegri innri gleði. Enginn varð hissa á að meyjar- fansinn liti hann hýru auga, en hann var háll sem áll, þar til Jóna Sigurðardóttir frá Akureyri fékk honum haldið, og þau gengu í hjónaband rétt liðlega tvítug. Synir þeirra, Sigurður og Magnús, komu í heiminn 1957 og 1964. Allt virtist leika í lyndi, en öllum að óvörum upplýstu þau 1979 þá ákvörðun sína að flytja búferlum til Ástralíu og settust að í Sydney. Grasið var ekki grænna handan girðingarinnar, en þó bárust ekkert nema góðar fréttir. Bæði undirrit- aður, og bróðir minn, Gylfi, heim- sóttum þau og fundum Ásgeir glað- an og reifan, en óþyrmileg návist óvinar vofði yfir, og hefur orðið báðum að fjörtjóni, Jónu 17. júní 1994, og nú mínum kært kvadda frænda og vini 12. júní sl. Megi almættið veita sonum Ás- geirs og fjölskyldum þeirra líkn með þraut. Að lokum sendi ég inni- legar samúðarkveðjur mínar og systkina minna, þeirra Ástríðar, Gylfa, Þorbjargar og Gerðar, og skylduliðs okkar. Sigurður Þ. Guðmundsson. Hann Geiri frændi hefir runnið sitt æviskeið og yfirgefið þennan vonda heim. Það gerði hann úti í Ástralíu, fjarri ættjörð sinni. Með honum er horfinn litríkur persónu- leiki og drengur góður. Það var einhvern veginn þannig, að manni fannst Geiri allt sitt líf vera að leita að einhverju. Það virtist vera svo margt, sem hann þráði og langaði til að gera. Virtist hann eiga bágt með að þurfa að sætta sig við líf meðalmannsins, því hugur hans stefndi til hærri hluta. Síðasta áratuginn, sem hann, eiginkonan Jóna og drengirnir tveir, bjuggu á Fróni, var sem hann væri að komast á þá hillu í lífinu, sem hann hafði kannske alltaf ætl- að sér. Hann rak heildverzlun og stundaði innflutning, og var að komast á sama svið og menn þeir í viðskiftum og öðrum umsvifum, sem hann hafði alltaf dáð og verið samvistum við. Þeir voru flestir eldri en hann og höfðu þannig haft forskot í gæðakapphlaupi lífsins. Líklega fannst Geira á þessum tíma, að loksins væri hann orðinn liðtækur og maður með mönnum. En þegar allt virtist vera farið að ganga svona vel, gerðu forlögin Geira frænda alvarlegan grikk. Á þeim árunum, um miðjan áttunda áratug síðustu aldar, var það mjög algengt, að ýmsir innflytjendur, sem sumir voru ekki allt of loðnir um lófana, gátu notað hina frægu íslenzku kunningsskapsreglu til að leysa vörur út úr tolli, áður en öll lögleg gjöld höfðu verið greidd. Svo seldu þeir vörurnar í hvelli og greiddu strax tollana. Allt í einu ákváðu yfirvöldin, að þetta mætti ekki láta viðgangast lengur, og réð- ust þau á garðinn þar sem hann var lægstur og sakfelldu aumingja Ás- geir, öðrum til viðvörunar. Var hann dæmdur í fésektir og fór þá burt af landinu. Flutti hann aldrei aftur heim, en kom nokkrum sinn- um í stuttar heimsóknir. Á þeim aldarfjórðungi, sem lið- inn er síðan fjölskyldan flutti til Eyjaálfu, hafa skifst á skin og skúrir. Þegar við vorum þar í heim- sókn 1982, var Geiri með fyrirtæki, sem sá um að fínpússa hús í ýmsum litum og sá hann og hans starfsfólk bæði um blöndun og sölu á efninu. Þegar við ókum um Sidney, benti hann okkur á þetta hótel eða hina bankabygginguna, sem hans fyrir- tæki hafði séð um að fínpússa. Var hann hreykinn og mátti líka vera það, því með dugnaði og elju var hann að koma undir sig fótunum í nýju umhverfi eftir skipbrotið í heimalandinu. En svo komu erfiðir tímar og alvarlega syrti í álinn, þegar lífsförunauturinn, Jóna, féll frá langt fyrir aldur fram. En syn- irnir tveir og fjölskyldur þeirra hafa alltaf verið stoðin og styttan. Á þessum sorglegu tímamótum vill hugurinn leita til baka og minn- ingarnar um samverustundirnar með Geira frænda streyma fram. Allt frá barnsárunum í Vesturbæn- um, en fjölskyldur okkar bjuggu nálægt hver annari, var samgangur góður. Var margt leikið og brallað á þeim árunum. Svo komu tánings- árin og rofnaði þá dálítið sam- bandið. Leiðin lá svo í Sjómanna- skólann hjá honum og innan nokkurra ára var hann orðinn full- gildur háseti á Ameríkusiglandi Fossum, sem þótti nú heldur betur fint í Reykjavíkinni þeirra daga. Hann bar af samtíðarmönnum sín- um í snyrtimennsku, var sundur- gerðamaður í klæðaburði og gat keypt föt í New York! Ekki var að undra, að hann fengi viðurnefnið Stæl, og ekki er víst, að honum hafi verið neitt illa við að vera kallaður Geiri Stæl. Þótt við værum flutt til Ameríku, hittumst við alltaf í Íslandsferðun- um og gerðum okkur glaðan dag. Jóna og Geiri voru glæsilegt par og vel þekkt í hópi þess fólks, sem var leiðandi í samkvæmislífinu á þeim árunum. Erla lenti m.a. í þrítugs- afmælinu hans, þegar hún var ein á ferð heima, og var það veglegt gildi. Þau hjónin komu einnig nokkrum sinnum til Ameríku, stundum með strákana með sér, og eigum við margar skemmtilegar minningar úr þeim ferðum. Geiri var hlýr og einlægur í fasi og af- burða skemmtilegur, enda kunni hann frá mörgu að segja. Kímni- gáfu hafði hann góða og hlátur- mildur var hann. Svo hafði hann al- veg einstakt lag á að skifta við þjónustufólk á veitinga- og skemmtistöðum. Hann fékk alltaf beztu borðin og þjónustuna og þeir, sem ríkjum réðu á þessum stöðum, bukkuðu sig og beygðu fyrir hon- um. Stundum fannst mér, að hann hefði átt að leggja fyrir sig leik- listina. Hann kom til Flórída 1994 og eyddi jólunum með okkur, dóttur, tengdasyni og barnabörnum. Þetta voru ánægjulegir endurfundir og margar skemmtilegar minningar voru ryfjaðar upp. Krökkunum fannst Ásgeir frændi frá Ástralíu alveg sér í flokki, enda var hann með afbrigðum barngóður, og fékk hann fyrir þeim lítinn frið. En við sáum, að hann var ekki sami káti Geiri frá gamalli tíð, enda var lífið farið að tuska hann til og var hann farinn að leita of oft á náðir Bakk- usar konungs. Síðan höfum við skifst á bréfum og verið í símasambandi. Oftast var hann kátur, vongóður og bjartsýnn, líklega oft allt of bjartsýnn. Hlut- irnir vildu ekki alltaf spilast út eins og hann hafði vænst. Ekki vitum við, hvort Geiri, hin leitandi sál, fann það sem hann virtist telja sig vanta. En nú þarf hann ekki að leita lengur og þá verða heldur ekki fleiri vonbrigðin. Hann lifði sínu lífi eftir því sem hann bezt kunni og gat. Vinir og ættingjar minnast hans með söknuði. Við Erla, dóttir okkar Unnur María og hennar fjölskylda, vottum sonunum Sigurði og Magnúsi og bóðurnum Jóni Hákoni og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Geira frænda. Þórir S. Gröndal. ÁSGEIR H. MAGNÚSSON Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinsemd við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, JÓNU GUÐRÚNAR VILHJÁLMSDÓTTUR, Sæborg, Skagaströnd. Skafti Fanndal Jónasson, Hjalti Skaftason, Jónína Arndal, Jónas Skaftason, Vilhjálmur Kristinn Skaftason, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Anna Eygló Skaftadóttir, Gunnþór Guðmundsson, Þorvaldur Hreinn Skaftason, Erna Sigurbjörnsdóttir Valdís Edda Valdimarsdóttir, Hlíðar Sæmundsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og út- för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÁKA SIGURÐSSONAR, Ægisgötu 8, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar. Heiður Jóhannesdóttir, Jóna Kristín Ákadóttir, Sigurður Þór Ákason, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkæru móður okkar, tengdamóður, ömmu og langöm- mu, BJARNÝAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Bröttugötu 2, (áður Urðavegi 40), Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Vestmanna- eyja fyrir hlýju og góða umönnun í hennar garð. Guð veri með ykkur öllum. Ásta Kristinsdóttir, Ragnar M. Guðnason, Sigfríð Kristinsdóttir, Jón Kristófersson, Jóna Björg Kristinsdóttir, Erling Þór Pálsson, Eygló Kristinsdóttir, Grímur Guðnason, Guðrún Bjarný Ragnarsdóttir, Þorvarður V. Þorvaldsson, ömmubörn og langömmubörn. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu vegna fráfalls eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÓLAFS SIGFÚSSONAR, Núpasíðu 10g, Akureyri. Sigríður Jóhannesdóttir, Randý, Rut og Róbert Ólafsbörn og fjölskyldur. Innilegar þakkir til hinna fjölmörgu sem sýndu okkur samhug og hlýju við andlát og útför ást- kærs eiginmanns míns, föður, fóstra, afa og langafa okkar, HALLGRÍMS JÓHANNS JÓNSSONAR flugstjóra, síðast til heimilis í Þýskalandi. Ingrid Krüger, Jón Hallgrímsson, Svanhildur Sigurðardóttir, Margrét Hallgrímsdóttir Plaice, Dennis Plaice, Óskar G. Hallgrímsson, Valgerður Bjarnardóttir, Sigríður Hallgrímsdóttir, Rannveig Garðarsdóttir, Guðmundur Hauksson, Gísli Baldur Garðarsson, Helga Baldursdóttir, Carlos A. Ferrer, Yrsa Þórðardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir sendum við öllum, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR DAGBJARTAR SVEINBJÖRNSDÓTTUR, Hrafnistu, Reykjavík. Sérstakar þakkir fyrir hlýhug og góða umönnun sendum við starfsfólki á E3 Hrafnistu. Börn, tengdabörn, ömmubörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.