Morgunblaðið - 27.07.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 9
FRELSI Í ÚTLÖNDUM – TAKTU fiA‹ ME‹ fiÉR!
Frelsi í útlöndum er n‡ fljónusta hjá Símanum GSM sem gerir flér kleift a› nota Frelsis-
númeri› flitt í útlöndum. fia› eina sem flú flarft a› gera er a› skrá flig í Frelsi í útlöndum
og eftir fla› flarftu ekki a› gera frekari rá›stafanir í hvert skipti sem flú fer› til útlanda.
Skrá›u flig í verslunum Símans e›a á siminn.is – fla› kostar ekkert – og vertu svo í gó›u
sambandi vi› vinina me› Frelsi í útlöndum.
Nánari uppl‡singar á siminn.is/frelsi og í síma 800 7000.
Fer›astu um heiminn me›
Frelsi í útlöndum
G
O
TT
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
-E
R
IC
K
S
O
N
·
S
ÍA
·
2
3
4
9
3
EKKI er laust við að veiðimenn-
irnir hafi gerst fullheimakomnir á
mótum Hvítár og Stóru-Laxár við
Iðu, þegar ljósmyndari Morgun-
blaðsins átti leið hjá. Stólar, borð
og bíll, allt á sínum stað, og ekki
úr vegi að hefja veiðiskapinn.
Meira að segja stangirnar voru
vel geymdar í sínum rekka.
Má bjóða
þér sæti?
Morgunblaðið/Arnaldur
Ný reglugerð
um slátrun
JÓN Helgi Björnsson, formaður
Landssambands sláturleyfishafa,
segir nokkuð víst að sláturhúsum eigi
eftir að fækka þegar ný reglugerð um
slátrun og meðferð sláturafurða taka
gildi. Reglugerðin tekur gildi 1. jan-
úar 2004 að undanskyldu ákvæði um
hangandi fláningu en varðandi hana
er gert ráð fyrir 5 ára aðlögunartíma.
„Hangandi fláning skilar kjötinu
hreinna og er forsenda fyrir því að
menn fái útflutningsleyfi. Þegar þetta
ákvæði tekur gildi neyðast þau slát-
urhús sem ekki hafa slíka fláningu að
koma sér þessu upp en það er tiltölu-
lega dýrt.“
Jón Helgi bendir á að með þessu sé
í raun verið að setja sama staðal fyrir
kjöt sem slátrað er fyrir innlendan
markað og fyrir það sem gert er fyrir
erlendan markað. „Það er æskilegt
fyrir iðnaðinn í heild að færri slátur-
hús slátri því fé sem er tiltækt. Það
myndi lækka kostnað við þessa at-
vinnugrein og vonandi auka arðsemi
fyrirtækja innan greinarinnar. Per-
sónulega tel ég þetta vera tímabæra
reglugerð. Það er eðlilegt að gerðar
séu sömu kröfur til þess kjöts sem er
selt innanlands og þess sem er selt er-
lendis,“ segir Jón Helgi.
Keikó enn
við Noregs-
strendur
HÁHYRNINGURINN Keikó held-
ur sig enn við Noregsstrendur, nán-
ar tiltekið við Taknes í Aravíkurfirði,
afskekktu nesi skammt frá Krist-
jánssundi. Að sögn Halls Hallssonar,
framkvæmdastjóra Keikó-samtak-
anna á Íslandi, er þess gætt að
mannfólk ónáði hann ekki. „Honum
er sinnt af sérfræðingum, sem fylgj-
ast með honum og gefa honum að
éta,“ sagði Hallur í samtali við
Morgunblaðið. Hann var fluttur að
Taknesi í nóvember síðastliðnum
eftir að hann hafði elt bát til hafnar
og leikið sér við börn í höfninni.
Vonast er til þess að háhyrningar
komi inn á svæðið síðsumars og
Keikó sláist í för með þeim.
♦ ♦ ♦
VEGFARENDUR í nágrenni Akra-
ness urðu varir við óvenjumikinn
reykjarmökk er steig upp af Járn-
blendiverksmiðjunni á Grundartanga
upp úr miðnætti á fimmtudagskvöld.
Að sögn Helga Þórhallssonar, aðstoð-
arforstjóra Járnblendifélagsins, var
um bilun í viftu að ræða um skamma
hríð en álag á viðkomandi ofn var þá
minnkað þar til gert hafði verið við
bilunina. Þegar slík bilun verður
myndast yfirhiti og skorsteinn opnast
þá til að lofta út.
„Þarna hefur kannski verið um
nokkrar mínútur að ræða og menn
skyldu átta sig á því að við erum að
reka þessi reykhreinsivirki á rekstr-
artíma sem er í kringum 0,1% af
rekstrartíma ofnanna. Heimild okkar
samkvæmt starfsreglum er að vera
með reyklosun upp í 2% og það er
ekkert reykhreinsivirki á byggðu bóli
sem hefur annan eins rekstrartíma og
okkar,“ sagði Helgi og bætti því við að
hann hefði verið forstjóri sambæri-
legrar verksmiðju í Noregi og væri ís-
lenska verksmiðjan til fyrirmyndar
að öllu leyti miðað við hvað þar tíðk-
aðist. Allt kísilryk er selt til Japans.
Vikulega eru sendir út 12–16 gámar.
Mikill reykur frá Járn-
blendiverksmiðjunni
♦ ♦ ♦
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.