Morgunblaðið - 27.07.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 53
KRINGLAN
Sýnd kl. 8.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8.
KRINGLAN
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.45, 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
Það er erfitt að falla inn í hópinn þegar
þú skerð þig svona hrikalega úr
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
YFIR 42.000 GESTIR!
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2, 3.45 og 8.
Rómantísk gamanmynd með Amanda Bynes og
ColinFirth (Bridget Jones´s Diary)
SG. DV
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 OG 10.10. B.I. 16 ÁRA
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8. b.I. 12 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
JOHN TRAVOLTA OG SAMUEL JACKSON I FYRSTA
SINN SAMAN SIÐAN PULP FICTION
Í ÞESSARI MÖGNUÐU SPENNUMYND.
FRUMSÝNING
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
AUÐUR Lilja Davíðsdóttir er ein af
þremur nýjum stjórnendum stefnu-
mótaþáttarins Djúpu laugarinnar.
Milli þess sem hún vinnur sem
söluráðgjafi og leggur línurnar fyrir
veturinn í Djúpu lauginni er hún að
undirbúa brúðkaup en hún gengur
að eiga unnusta sinn í lok ágúst.
Hvað ertu með í vösunum?
Ég er sjaldnast með eitthvað í vös-
unum, yfirleitt er ég frekar með
troðfulla hliðartösku þar sem öllum
nauðsynjum má koma léttilega fyrir
því það eru alveg ótrúlega margir
hlutir ómissandi fyrir unga konu í
hinu daglega lífi s.s sími, varagljái,
lyklar, seðlaveski og naglaþjöl!
Uppvaskið eða skræla kartöflur?
Ég vel uppvaskið tvímælalaust. Ég
held að það sé varla til leiðinlegra
verkefni en það að skræla kart-
öflur. Enda vandi ég dóttur mína
snemma á það að borða hýðið
með! Uppvaskið er líka vanmetin
stund til þess að eiga smá gæða-
tíma með sjálfum sér og djúpum
hugsunum og ég nýti mér þær
óspart.
Ef þú værir ekki þáttastjórnandi,
hvað myndirðu þá helst vilja vera?
Ég myndi sennilega vilja vera al-
þingiskona, þá gæti ég lagt mitt af
mörkunum til þess að breyta ýmsu
í þjóðfélaginu s.s. lækka skatta og
margt fleira. Ég fengi þá líka borgað
fyrir að tala og það veit Guð að ég
væri rík manneskja í dag fengi ég
krónu borgaða fyrir hvert orð talað
úr mínum munni.
Hefurðu tárast í bíói?
Já, alveg örugglega og oftar en einu
sinni. Ég fer reyndar ekki oft í bíó en
ég grenjaði úr mér augun þegar
Leonardo DiCaprio andaðist í stór-
myndinni Titanic hérna um árið.
Það var með sorglegri atvikum sem
ég hef orðið vitni að á hvíta tjaldinu.
Ég fer nú sennilega oftast á róm-
antískar gamanmyndir í bíó því ég
er veik fyrir góðum endi og það
klikkar sjaldnast í þeirri gerð af
kvikmyndum.
Hverjir eru minnisstæðustu tón-
leikarnir sem þú hefur farið á?
Ég hef nú ekki farið á marga tón-
leika í gegnum tíðina en minnis-
stæðustu tónleikar sem ég hef far-
ið á eru tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands og Sálarinnar hans
Jóns míns hérna í fyrrahaust. Ég
hef alla tíð verið mikill Sálar-aðdá-
andi og þetta var einstakur viðburð-
ur sem ég hefði alls ekki viljað
missa af.
Hvaða leikari fer mest í taugarnar
á þér?
Þeir eru nú ansi fáir, ég á hins vegar
alveg fullt af uppáhaldsleikurum.
Leiðinlegastur er þó Woody
Allen, ég bara get ekki
horft á myndir með
honum og næ bara
alls ekki upp í þann
frama sem hann
hefur náð í kvik-
myndagerð og
leik. Maðurinn er
bara leiðinlegur.
Hver er þinn
helsti veikleiki?
Óhreinindi. Ég má
ekki sjá óhreinindi og drasl þá lang-
ar mig til þess að þrífa og taka til.
Þetta getur alveg auðveldlega
gengið út í öfgar hjá mér og háir
mér oft þegar mig langar mest til
þess að setjast niður eftir langan
vinnudag og slappa af. Þá bara get
ég það ekki nema ég sé búin að
brjóta saman þvottinn, þurrka af og
taka úr uppþvottavélinni!
Finndu fimm orð sem lýsa per-
sónuleika þínum vel.
Glaðlynd, brosandi, jákvæð, óþol-
andi óþolinmóð og smámunasöm.
Bítlarnir eða Stones?
Bítlarnir, engin spurning. Ég hef
aldrei getað fílað hann Mick Jagger,
kannski bara af því að hann klikk-
aði á því að hætta þegar að þeir
voru á toppnum. Uppáhaldsbítla-
lögin eru mörg en upp úr stendur
„All You Need is Love“.
Hver var síðasta bók sem þú last
tvisvar?
Ég er mikil bókakona og mitt helsta
áhugamál er bókalestur. Það er
ekkert betra en að gleyma sér við
lestur góðrar bókar. Ég var að enda
við að lesa „Bridget Jones’s Diary“
í annað skiptið og svo hef ég oftar
en einu sinni gripið í bókina „Fegr-
aðu líf þitt“ eftir Victoriu Moran.
Hvaða lag kveikir blossann?
Fyrsta lagið sem mér dettur í
hug er „Flugvélar“ með Ný
dönsk. Það er eitthvað við
þetta lag sem er svo fal-
legt og grípandi að það fær
mann til þess að gleyma
stað og stund. En ég verð
líka að nefna „Ó, hvílíkt
frelsi“ sem Páll Óskar syng-
ur, það er líka afskaplega fal-
legt lag.
Svo standa öll lögin
með Sálinni hans
Jóns míns alltaf
fyrir sínu og ég
held upp á þau
öll með tölu.
Uppvaskið er vanmetið
SOS
SPURT & SVARAÐ
Auður Lilja
Davíðsdóttir
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Á
rn
i S
æ
be
rg
…Samkvæmt könnun sem banda-
ríska útvarpstöðin KIIS FM í Los
Angeles lét gera, þykir Eminem
vera sannferðugri maður en forset-
inn, George W. Bush. Spurningar
voru lagðar fyrir 1.016 manns og
þótti 53% aðspurðra meira spunnið í
texta Eminems en ræður Bush, hvað
sannleiksgildi varðar.
FÓLK Ífréttum