Morgunblaðið - 12.09.2003, Blaðsíða 52
ÍÞRÓTTIR
52 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRASILÍSKU heimsmeist-
ararnir í knattspyrnu eru einir
með fullt hús stiga eftir tvær
fyrstu umferðirnar í und-
ankeppni HM 2006 í Suður-
Ameríku. Þeir lögðu Ekvador,
1:0, á heimavelli sínum í Man-
aus í fyrrinótt og það var Ron-
aldinho sem skoraði sig-
urmarkið strax á 13. mínútu,
með skalla eftir fyrirgjöf frá
Robert Carlos. Ronaldinho var í
leikbanni þegar Brasilíumenn
unnu Kólumbíu á útivelli, 2:1, í
fyrstu umferðinni um síðustu
helgi.
Argentína og Chile eru í öðru
og þriðja sæti með fjögur stig
en hinar sjö þjóðirnar í riðl-
inum hafa allar tapað leik.
Þriðja umferðin í Suður-
Ameríku verður leikin um miðj-
an nóvember en undankeppni
HM er hvergi annars staðar
hafin. Liðin þurfa að leika 18
leiki og keppninni er því dreift
á þrjú ár að þessu sinni í stað
tveggja áður. Fjórar efstu þjóð-
irnar komast í lokakeppnina í
Þýskalandi og sú fimmta spilar
aukaleiki um HM-sæti.
Brasilíumenn eru fyrstu
heimsmeistararnir sem þurfa
að fara í gegnum undankeppni
en tillaga þess efnis var sam-
þykkt á síðasta þingi Alþjóða-
knattspyrnusambandsins,
FIFA.
Ronaldinho tryggði
Brasilíu sigur
AP
Knattspyrnusnillingarnir Ronaldo og Ronald-
inho gleðjast yfir sigurmarki gegn Ekvador.
NORÐUR-ÍRAR settu í fyrrakvöld Evrópumet sem þeir
vildu eflaust að yrði slegið sem fyrst. Þeir töpuðu, 0:1, á
heimavelli fyrir Armeníu í undankeppni EM í knattspyrnu
og þar með léku þeir sinn tólfta leik í röð án þess að ná að
skora mark. Fyrra metið átti Liechtenstein sem ekki skor-
aði í ellefu leikjum í röð.
Sammy McIlroy, þjálfari Norður-Íra, sagði eftir leikinn
að markaleysið væri vissulega farið að hafa áhrif á sína
menn.
„Ég vildi að ég vissi hvað við þyrftum að gera til að
skora mark. Ég skil ekki hvernig við komumst hjá því að
vinna þennan leik, við bara gátum ekki skorað úr okkar
færum. Ef við fengjum engin marktækifæri í leikjunum
væri þetta virkilegt vandamál, en markvörður Armena
varði nokkrum sinnum glæsilega,“ sagði McIlroy. Lið hans
er með þrjú stig eftir sjö leiki í 6. riðli, eftir þrjú marka-
laus jafntefli, en markatalan er ekkert mark gegn sjö.
Evrópumet í
markaleysi hjá
Norður-Írum
FÓLK
ARON Kristjánsson skoraði 5
mörk og þótti leika vel fyrir Tvis
Holstebro er liðið lagði Fredericia
HK í 8-liða úrslitum dönsku bik-
arkeppninnar í handknattleik í
fyrrakvöld. Í undanúrslitum mæta
Aron og félagar liði Skjern sem
Aron lék með fyrir nokkrum árum
við góðan orðstír. Leikurinn fer
fram upp úr næstu mánaðarmót-
um á heimavelli Tvis Holsteebro.
CARLTON Cole, framherjinn
sem Charlton er með í láni frá
Chelsea, verður ekki með Lund-
únaliðinu í leiknum við Manchest-
er United um helgina, frekar en
Hermann Hreiðarsson. Cole
meiddist í leik með varaliðinu í
vikunni og verður frá næstu tvær
til þrjár vikurnar.
PINI Zahavi, umboðsmaður og
náinn samstarfsmaður Rússans
Romans Abramovich, eiganda
Chelsea, segir ekki rétt það sem
Alex Ferguson, stjóri Manchester
United, heldur fram að Abramov-
ich hafi boðið Ferguson að taka
við stjórastöðunni hjá Chelsea í
sumar.
IBRAHIM Ba er nú orðinn leik-
maður Bolton, en honum hefur
gengið illa upp á síðkastið á fá
nauðsynleg skjöl í hendur til þess
að hann geti gengið til liðs við
Bolton. Nú er pappírsvinnunni
lokið og Ba getur nú leikið með
Bolton áhyggjulaus. Ba hefur ver-
ið án félags síðan hann var leystur
undan samningi hjá AC Milan í
vor.
WAYNE Quinn hefur verið lán-
aður í einn mánuð frá Newcastle
til 1. deildarliðsins West Ham.
FÉLAG knattspyrnustjóra í
ensku knattspyrnunni vill að fram
fari rannsókn á aðdraganda upp-
sagnar Alan Pardew hjá Reading.
Pardew sagði upp í fyrradag eftir
að honum var meinað að ræða við
West Ham um knattspyrnustjóra-
starfið hjá félaginu. Forráðamenn
Reading taka uppsögnina ekki til
greina og því stendur málið fast
um þessar mundir.
NÚ er orðið ljóst að Chris Kirk-
land, varamarkvörður Liverpool,
verður frá keppni í a.m.k. sex vik-
ur eftir að hann meiddist á æfingu
hjá enska landsliðinu í byrjun vik-
unnar fyrir leikinn við Liechten-
stein. Kirkland verður semsagt
lengur frá æfingum en upphaflega
var ætlað þegar hann meiddist.
TYRKNESKI landsliðsmaðurinn
Alpay gæti verið á förum frá
Aston Villa til Herthu Berlin í
Þýskalandi. Alpay, sem á níu mán-
uði eftir af samningi sínum við
Aston Villa, hefur átt í viðræðum
við Dieter Höness, yfirmann
knattspyrnumála hjá Herthu, um
að koma til félagsins en Alpay
virðist ekki eiga framtíð hjá Villa
undir stjórn Davids O’Learys.
Berti Vogts, landsliðsþjálfariSkota, var í viðtali við bresku
sjónvarpsstöðina BBC í beinni út-
sendingu eftir leikinn þegar skosk
rödd heyrðist kalla: „Þeir eru svindl-
arar, andskotans svindlarar.“ Vogts
brást snöggt við í miðri útsendingu
og kallaði höstuglega í leikmanninn:
„Christian, Christian,“ og opinber-
aði þar með hver þarna var á ferð.
Dailly var foxillur eftir leikinn,
sérstaklega vegna þess að félagi
hans, Maurice Ross, var rekinn af
velli um miðjan síðari hálfleik fyrir
meint brot á Tobias Rau. Dailly
ásakaði Rau um leikaraskap, en leik-
menn þýska liðsins hópuðust í kring-
um Anders Frisk dómara og kröfð-
ust þess að Ross yrði rekinn af velli.
„Ég veit að ég þarf að gæta tungu
minnar en það var mikill leikara-
skapur í gangi inni á vellinum. Það
þarf einhver að fara að taka á þessu
vandamáli, dómararnir, FIFA eða
einhver annar, en það er ótrúlegt að
horfa upp á knattspyrnumenn haga
sér á þennan hátt. En hvað getur
maður gert? Okkur er sagt að al-
þjóðleg knattspyrna sé svona. Það
breytist ekki fyrr en einhver tekur á
því af alvöru. Við þurfum að hefja
okkur upp fyrir svona framkomu og
halda áfram að spila eins og við er-
um vanir, með skoska laginu, sem er
best,“ sagði Dailly við The Scotsm-
an.
Rudi Völler, landsliðsþjálfari
Þjóðverja, var sammála því að brott-
rekstur Maurice Ross hefði verið
strangur dómur, en samt fyllilega
réttlætanlegur. „Kannski sleppa
menn við refsingu fyrir svona brot í
Skotlandi, en ekki annars staðar í
Evrópu. Brotið verðskuldaði gult
spjald, og þar sem leikmaðurinn
hafði þegar fengið gula spjaldið var
hann að sjálfsögðu rekinn af velli,“
sagði Völler.
Ross verður í banni þegar Skotar
mæta Litháum í lokaumferð 5. riðils
hinn 11. október og Skotar óttast að
Christian Dailly verði sömuleiðis
refsað fyrir sína framkomu eftir
leikinn með leikbanni.
Dailly ásakaði Þjóð-
verja um að svindla
CHRISTIAN Dailly, varnarmaður skoska landsliðsins í knatt-
spyrnu, gæti átt yfir höfði sér refsingu frá UEFA, Knattspyrnu-
sambandi Evrópu, vegna ummæla sem hann lét falla eftir leikinn
gegn Þjóðverjum í Dortmund í fyrrakvöld.
Reuters
Þótt knattspyrnuáhugamenn í Þýskalandi hafi velt mikið vöngum yfir væntanlegri þátttöku landsliðs þjóðarinnar í Evrópumótinu í
Portúgal á næsta sumri hafa forvígismenn þýskrar knattspyrnu um fleira að hugsa um þessar mundir. Í dag eru 1.000 dagar þar til
flautað verður til leiks í heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu í Þýskalandi og er undirbúningur fyrir löngu hafinn og mun ganga sam-
kvæmt áætlun. Vegna tímamótanna í dag verður vígður 15 metra hár glerknöttur eftir listamanninn Andre Heller við Brandenborgar-
hliðið í Berlín, en boltinn mun verða tákn heimsmeistarakeppninnar og standa við Brandenborgar-hliðið fram yfir keppnina.