Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 07.10.2003, Blaðsíða 40
KIRKJUSTARF 40 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ FYRIR nokkrum vikum birtist grein um tvíærar plöntur. Í þeirri grein var vikið að mislöngum líf- tíma jurta. Við tölum um einærar jurtir, tvíærar og fjölærar. Einær- ar jurtir ljúka öllu vaxtarskeiði sínu á einu ári, þær vaxa upp af fræi, laufgast, blómgast og mynda fullþroska fræ á einu sumri, það er því ekki einstaklingurinn, sem lifir af veturinn, heldur fræið, sem ber með sér erfðaefni plöntunnar áfram til komandi kynslóða. Þegar við sem dund- um okkur við að rækta blóm tölum um einær blóm dett- ur okkur oftast í hug sumarblómin, sem setja svo mikinn svip á marga garða, bæði einkagarða og al- menn útivistarsvæði í bæjum. En sumar- blómin okkar þurfa ekki endilega að vera einær á upp- runastað sínum þótt þau séu það hjá okk- ur, þau þola einfald- lega ekki íslenskan vetur. Tvíærar jurtir þurfa ekki endi- lega að deyja eftir tvö ár frá því að fræin spíra, þær geta lifað í all- nokkur ár. Hins vegar deyja þær að lokinni blómgun þegar fræið er þroskað og efðaefnið getur borist áfram. Fjölærar jurtir lifa eins og nafnið bendir til í fleiri en eitt ár og þær hafa þá sérstöðu að geta blómgast oft án þess að láta sjálfar lífið. En hvað þá með eilífðarjurtir, er eitthvað til sem ber þá nafngift? Þegar ég var telpa kom ég stöku sinnum í hús eitt í Þingholtunum. Húsráðendur voru töluvert við ald- ur og sitthvað öðru vísi innan stokks en ég átti að venjast. Í vasa á smáborði voru blóm og ég tók eft- ir að það voru alltaf eins blóm í vas- anum. Loks gat ég ekki orða bund- ist og hafði orð á þessum blómum. „Þetta eru eilífðarblóm“ var mér svarað og ég fékk að koma við blómin. Og viti menn, þau voru allt öðru vísi viðkomu en venjuleg blóm, þau voru þurr og það skrjáf- aði í þeim líkt og pappír. Eilífðar- blómunum í Þingholtunum hef ég ekki gleymt og ég sáði til þeirra löngu seinna, þegar ég hafði eign- ast minn eigin garð. Töframáttur eilífðarblómanna minna var samt einhvern veginn minni en þeirra í blómavasanum í Þingholtunum; svona er barnsminnið. Ég fletti oft upp í Íslensku garð- blómabókinni eftir Hólmfríði Sig- urðardóttur. Í þessari bók er fjallað um tvær ætt- kvíslir körfublóma, sólargull og sólvængi, sem báðar hýsa jurtir, sem svara til eilífðar- blómanna í Þingholt- unum. Þetta eru körfublóm; sjálf blóm- in eru lítil gul og pípu- krýnd en körfureif- arnar sem eru í mörgum röðum eru þurrar og pappírs- kenndar og eru til í mörgum litum, hvítar, bleikar, gular, rauð- gular eða hárauðar. Heitin eilífðarfífill, ódáinsfífill og eilífðar- blóm vísa einmitt til þess hve þurr blómin standa lengi. Mín uppáhalds eilífðarjurt til- heyrir þó hvorki sólargulli né sól- arvængjum, þótt hún sé af körfu- blómaættinni. Þetta er sannkölluð glæsijurt sem heitir alpaþyrnir eða Eryngium alpinum á latínu. Eryngium-ættkvíslin er nokkuð stór, innan hennar eru um 230 mis- munandi tegundir og útbreiðslan er vítt og breitt um heiminn. Þyrn- arnir vaxa í Ameríku t.d. Mexíkó og Argentínu, Asíu og í Evrópu, meira að segja eru til villtar teg- undir í Danmörku, en flestar teg- undirnar vaxa umhverfis Miðjarð- arhafið. Alpaþyrnirinn er einmitt Evrópubúi eins og nafnið bendir til, hann vex villtur í Alpafjöllum, Júrafjöllum og fjallahéruðum Júgóslavíu. Alpaþyrnir er hávaxin planta og sérkennileg, verður allt að 1 m á hæð. Laufblöðin eru hóf- laga og tennt, á löngum legg og vaxa í hvirfingu niður við jörð. Upp úr þessari hvirfingu vex svo blóm- stöngullinn sem ber líka laufblöð, en þau eru legglaus og verða stöð- ugt meira og meira skipt eftir því sem ofar dregur á blómstönglin- um. Blómin eru lítil, dökk á lit og sitja mörg saman í blómskipun sem kallast kollur. Kollurinn er umluktur reifablöðum sem eru aðalskrautið. Þessi reifablöð eru stór en fíngerð og mjög mikið skipt, minna einna helst á kniplinga, oddmjó og stingandi við- komu. Þau skipta litum eftir því sem þau þroskast, eru fyrst eins og silfurgræn og glansandi en verða svo stálblá eða blágrá með aldrin- um. Alpaþyrnirinn blómgast í venjulegum sumrum í júlíbyrjun og stendur síðan fram á vetur há- leitur uns vetrarstormarnir tæta hann í sig. Alpaþyrnirinn er því einstök garðaprýði en hann er líka stórgóður í blómvendi, vegna þess hve hann stendur lengi. Það er verst að maður lendir stundum í sálarháska yfir hvort á að klippa hann í vönd eða láta hann vera kyrran á rótinni. Falli maður í freistni og taki blóm inn í vasa má afsaka sig með því að þegar önnur blóm í vendinum fölna stendur alpaþyrnirinn óhaggaður og held- ur árum saman stálbláa litnum, ef ekki skín sól á hann. Hann er því að vissu leyti eilífðarblóm. Nokkrar tegundir af þyrnum eru ræktaðar á Íslandi, auk alpa- þyrnis hef ég eignast flatþyrni og fílabeinsþyrni. Báðir eru þeir fal- legir, þótt alpaþyrnirinn beri af. Fílabeinsþyrnirinn minn reyndist aðeins tvíær þ.e. hann dó að lokinni blómgun. Þyrnarnir gera ekki sérstakar kröfur til jarðvegs og alpaþyrnir er langlíf jurt, minn er a.m.k. 20 ára gamall. Hann er ekki frekur til fjörsins, þannig að hann breiðir ekki of mikið úr sér en gildnar þó smátt og smátt. Best er að fjölga honum með sáningu en þó má skipta honum snemma vors og það hef ég gert, stungið smáklípur utan af. Hefði ég vitað að í flestum blómabókum stendur að ekki skuli reyna að skipta honum því hann er með stólparót hefði ég sjálfsagt ekki einu sinni gert tilraun í þá átt- ina. Stundum kemur fáfræðin manni til bjargar. S. Hj. Alpaþyrnir. EILÍF BLÓM VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r 502. þáttur Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa milli kl. 10–14 í neðri safnaðarsal kirkj- unnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12. Að lokinni bænastund gefst þátttakendum kostur á léttum hádegisverði. Allir vel- komnir. Opinn 12 spora fundur kl. 19 í neðri safnaðarsalnum. Allir velkomnir. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris- ganga, fyrirbænastund. Léttur málsverður á sanngjörnu verði að helgistund lokinni. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldri borgara starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja, eldri borgarar. Pútt alla morgna ef veður leyfir frá kl. 10. Félagsvist mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl. 13. . Þátttaka tilkynnist til Þórdísar í síma 511 5405. Laugarneskirkja. TTT-starfið kl. 16:15. (5.–7. bekkur). Umsjón Þorkell Sigur- björnsson, Sigurbjörn Þorkelsson og Andri Bjarnason. Fullorðinsfræðsla Laugarnes- kirkju kl. 19:30. (Athugið breyttan fund- artíma!) Í kvöld talar sr. Bjarni Karlsson um hugsjón þjóðkirkjunnar í samfélagi nú- tímans. Gengið inn um dyr bakatil á aust- urgafli kirkjunnar. Þriðjudagur með Þor- valdi kl. 20:30. Þorvaldur Halldórsson leiðir lofgjörðina við undirleik Gunnars Gunnarsonar á flygilinn og Hannesar Guð- rúnarsonar sem leikur á klassískan gítar. Gengið er inn um aðaldyr kirkju, eða komið beint inn úr Fullorðinsfræðslunni. Neskirkja: Fermingarfræðsla kl. 15:00. Vetrarnámskeið. Litli kórinn – kór eldri borgara kl. 16:30. Stjórnandi Inga J. Back- man. Allir velkomnir. Alfa-námskeið kl. 19. Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgnar kl. 10–12. Kirkjuprakkarar kl. 16:00. Starf fyrir 10–12 ára kl. 17:30. Árbæjarkirkja. Kl. 10 foreldramorgnar í safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára börnum í safnaðarheim- ilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára börnum í Ártúnsskóla. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 19.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja: Kirkjustarf aldraðra. Leik- fimi ÍAK kl. 11.15. Léttur hádegisverður, helgistund, samverustund og kaffi. Ung- lingakór Digraneskirkju kl. 17–19. KFUM&K fyrir 10–12 ára börn kl. 17– 18.15. Húsið opnað kl. 16.30. Alfa nám- skeið kl. 19. (Sjá nánar www.digranes- kirkja.is) Fella- og Hólakirkja. Strákastarf fyrir stráka í 3.–7. bekk kl. 16.30. Grafarvogskirkja. Eldri borgarar. Opið hús kl. 13.30. Helgistund, handavinna, spil og spjall. Kaffiveitingar, alltaf eitthvað gott með kaffinu. Kirkjukrakkar með börn á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–18.30. Æsku- lýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20. Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur prestar kl. 9.15. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgnar í Safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum 3, kl. 10–12. Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12. SELA yngri deild kl. 20–22. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í dag kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10–12 ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmtilegar stundir fyrir hressa krakka. Æskulýðs- félagið (Megas) heldur vikulegan fund kl. 19.30–21 í kvöld. Umsjón með starfi þessara hópa hafa Anna Hulda Einarsdótt- ir og Sigríður Rún Tryggvadóttir. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kl. 16.30–18 er opið hús fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 20–22 er opið hús fyrir unglinga 13–15 ára. Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16. Spilað og spjallað. Nanna Guðrún mætt aftur eftir frí galvösk að vanda. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl. 18.30–19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15 kirkjuprakkarar, 6–8 ára krakkar í kirkj- unni. Við höldum áfram með bænabókina og bætum einni bæn á bænasnúruna. Bú- in verða til vinabönd. Einnig verða söngur, leikir og ný biblíumynd. Sr. Fjölnir Ásbjörns- son og leiðtogarnir. Kl. 16 Litlir lærisveinar Landakirkju. Kóræfing hjá yngri hóp 1.–4. bekk. Þátttaka ókeypis. Kórstjóri Joanna Wlaszcsyk, umsjónarmaður Sigurlína Guð- jónsdóttir. Kl. 17. Litlir lærisveinar Landa- kirkju. Kóræfing eldri hóps, 5. bekkur og eldri. Þátttaka ókeypis. Kórstjóri Joanna Wlaszcsyk, umsjónarmaður Sigurlína Guð- jónsdóttir. Kl. 20.30 kyrrðarstund í Landa- kirkju. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson og organisti Guðmundur H. Guðjónsson. Góður vett- vangur frá erli hversdagsins. Keflavíkurkirkja. Kirkjulundur opinn kl. 10–12 og 13–17 með aðgengi í kirkjuna og Kapellu vonarinnar eins og virka daga vikunnar. Starfsfólk verður á sama tíma í Kirkjulundi. Fermingarundirbúningur í Kirkjulundi: Kl. 15.10–15.50, 8. IM og 8.J. í Myllubakkaskóla, kl. 15.55–15.35, 8. SV í Heiðarskóla og kl. 16.40–17.20, 8. VG í Heiðarskóla. Krossinn. Almenn samkoma kl.20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Brauðsbrotning og bænastund kl. 20.30. Allir velkomnir. AD KFUK í Vindáshlíð. Brottför kl. 18.15 frá Holtavegi 28. Farið í Sumarbúðir KFUM og KFUK í Vindáshlíð. Kvöldverður og kvöldvaka í umsjón Hlíðarmeyja. Verð kr. 2.800. Nauðsynlegt að skrá fyrir hádegi á þriðjudag á skrifstofunni í síma 588-8899 eða í netfangi: skrifstofa@krist.is. Allar konur velkomnar. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 15. Hópur 1 (Oddeyr- arskóli og 8.C Brekkuskóla). Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 18.30 Mannakorn fyrir 6. og 7. bekk. Safnaðarstarf Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433 Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Föt fyrir allar konur Síðumúla 34 - sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll FYRIRTÆKI TIL SÖLU www.fyrirtaekjasala.is FYRIRTÆKJASALA ÍSLANDS Síðumúla 15 • Sími 588 5160 Gunnar Jón Yngvason lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali mbl.isFRÉTTIR NÝR þáttur í safnaðarstarfi Bú- staðakirkju hefst miðvikudags- kvöldið 8. október kl. 19:30. Þá verður fræðsla um grunnþætti kristinnar trúar og fræðsla um heilaga ritningu í umsjá sókn- arprestsins sr. Pálma Matthías- sonar. Margir hafa talað að ritningin sé erfið aflestrar og missa móðinn eft- ir nokkrar síður. Hér verður bak- svið og sagan kynnt og þannig byggður grunnur þekkingar og fræðslu. Einnig verður fjallað um grundvöll kristinnar trúar út frá fræðum Lúters. Eftir fræðslustundina verður farið inn í kirkju og þar verður lofgjörðarstund með fjölbreyttri tónlist í umsjá Guðmundar Sig- urðssonar organista, Ásgeirs Páls Ágústssonar tónlistarmanns og Kristjönu Thorarensen söngkonu. Að stundinni lokinni verður boð- ið upp á molasopa og spjall og þú kominn heim aftur um klukkan 21.00. Samverurnar verða annan hvern miðvikudag til áramóta; 8. okt., 22. okt., 5. nóv., 19. nóv., 3. des. og 17. des. kl. 19:30 – 20:30. Fyrri hlutinn fer fram í Bókasafninu og seinni hlutinn í kirkjunni. Allir eru velkomnir sem vilja styrkja trú sína og þekkingu og taka þátt í lofgjörð með skemmti- legri og gefandi tónlist. Pálmi Matthíasson. Bústaðakirkja Viltu njóta lífsins með fræðslu og lofgjörð?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.