Morgunblaðið - 04.12.2003, Page 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
2
0
3
stéttarfélag þeirra legði áherslu á í
komandi samningum. Þegar þátt-
takendur innan VR voru beðnir að
forgangsraða áhersluatriðum sagði
fjórðungur mestu skipta að hækka
lægstu launin en einn af hverjum
fimm að lækka skatta.
Nokkur munur er á svörum fé-
lagsmanna í VR annars vegar og
annarra félaga innan LÍV þegar
spurt var hvort þeir vildu fremur
leggja áherslu á prósentuhækkanir
eða krónutöluhækkanir í samning-
SEX af hverjum tíu félagsmönnum
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur (VR) vilja að megináhersla verði
lögð á hækkun launa í næstu kjara-
samningum og um sjö af hverjum
tíu félagsmönnum innan Lands-
sambands íslenskra verslunar-
manna (LÍV) eru sömu skoðunar.
Tæplega fjórir af hverjum tíu fé-
lagsmönnum í VR og LÍV eru til-
búnir í verkfall ef ekki semst í kom-
andi samningum.
Þessar upplýsingar koma fram í
niðurstöðum nýrrar viðhorfskönn-
unar sem Gallup hefur gert fyrir
VR og LÍV meðal félagsmanna í
samtökunum.
46% segja kjör sín betri
núna en árið 2000
63,9% þátttakenda í VR og 70,7%
félaga í LÍV sögðu í könnuninni að
leggja ætti megináherslu á launa-
hækkanir í næstu kjarasamning-
um.
Þegar félagsmenn í VR voru
beðnir að meta stöðu sína í dag
miðað við árið 2000 sögðu 46% kjör
sín vera betri núna en 38% sögðu
að þau væru svipuð.
Könnunin er liður í undirbúningi
verslunarmanna fyrir endurnýjun
kjarasamninga en þeir eru lausir í
vor.
Einn af hverjum fimm segir
mestu skipta að skattar lækki
Fram kom í könnuninni að fé-
lagsmenn virðast leggja mikla
áherslu á að atvinna verði tryggð
og að unnið verði gegn atvinnu-
leysi. Þegar þátttakendur voru
beðnir að raða áherslum sínum á
kvarða frá 1 til 7 kom áherslan á at-
vinnuöryggi næst á eftir áherslunni
á hækkun launa sem það atriði sem
félagsmenn töldu mikilvægt að
unum. Rúmur helmingur aðspurðra
félaga í VR eða 55,5% sagðist frem-
ur vilja prósentuhækkun launa en
krónutöluhækkun. 60% svarenda
innan LÍV sögðust fremur vilja
krónutöluhækkun en prósentu-
hækkun launa.
Þegar þátttakendur voru spurðir
nánar um hversu miklu máli skipti
að þeirra mati að leggja áherslu á
hækkun lágmarkslauna sögðu yfir
90% félaga í VR það skipta fremur
eða mjög miklu máli. Sama hlutfall
taldi jafnframt mikilvægt að verja
kaupmáttinn.
Meirihluti innan VR ánægður
með áherslu á markaðslaun
Annar hver þátttakandi í könn-
uninni, eða 53%, sagðist ánægður
með þá áherslu sem VR hefði lagt á
markaðslaun og er ánægjan meiri
eftir því sem tekjurnar eru hærri.
VR samdi í síðustu kjarasamning-
um um markaðslaun en innan við
4% félagsmanna taka laun sam-
kvæmt taxta, skv. upplýsingum fé-
lagsins.
Þegar þátttakendur voru beðnir
að meta stöðu sína í dag miðað við
árið 2000 sögðu 46% aðspurðra fé-
laga í VR kjör sín vera betri núna
en 38% sögðu að þau væru svipuð.
Fleiri karlar en konur töldu stöðu
sína betri nú en árið 2000 eða 56% á
móti 42%. Yngri félagsmenn eru
ánægðari en þeir eldri og ánægjan
eykst eftir því sem menntunin er
meiri og fjölskyldutekjurnar hærri.
Félagsmenn leggja nokkra
áherslu á styttri og sveigjanlegri
vinnutíma og aukið orlof. 56,2%
þátttakenda innan LÍV sögðust
frekar vilja fá tvo auka orlofsdaga
en 1% launahækkun ef valið stæði á
milli þessara tveggja kosta og held-
ur stærra hlutfall félaga í VR er
sama sinnis en 62,1% þeirra sögð-
ust frekar vilja 2 auka orlofsdaga
en 1% launahækkun. Yngstu fé-
lagsmennirnir vildu þó frekar
launahækkun, en sá hópur er jafn-
an á lægri laununum, skv. upplýs-
ingum VR.
Könnunin náði til rúmlega fimm-
tán hundruð félagsmanna í VR og
um 740 félaga innan LÍV í október
og nóvember og var svarhlutfall
meðal VR-félaga 66% og 63,8%
meðal annarra félaga innan LÍV.
Gallup gerir viðhorfsrannsókn meðal félagsmanna í VR og LÍV um kjarakröfur
Flestir leggja áherslu á
hækkun lágmarkslauna
!"
#
$%
&
' %
( & ""
)
' %
!
"# "
$
!" ""
#""
$%
$
"
"!&" '(
)*$ !
$+,-" $
("
"
$
(.
!
"#$"%&'$(%
)
*+
)
,
*+
!
&'$#%
-.
'"$#%/ &#$&%
/ -.
'($1%
„KRÖFUGERÐ Flóabandalagsins
er keimlík kröfugerð Starfsgreina-
sambandsins en félögin sem mynda
Flóabandalagið
eru jú hluti af
Starfsgreina-
sambandinu og
ég geri ráð fyrir
að þeir hafi nokk-
urt samráð með
sér varðandi
kröfur og samn-
ingavinnuna sem
fram undan er,“
segir Ari Edwald,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, sem fengu kröfugerð
Flóabandalagsins í hendur í gær.
Ari segir kröfur Flóabandalagsins
horfa til langs tíma ef samningsað-
ilar nái saman um forsendur. Hann
segir einnig að þær launakröfur sem
gerðar eru í kröfugerðum Starfs-
greinasambandsins og Flóa-
bandalagsins séu verulega hærri en
þær launakostnaðarhækkanir sem
gert sé ráð fyrir í þjóðhagsspá, „og
miklu hærri en þær launabreytingar
sem atvinnulíf í okkar viðskiptalönd-
um býr við. Það ber auðvitað tölu-
vert mikið á milli varðandi sýn
manna á mögulega samningsnið-
urstöðu,“ segir Ari.
Það ber töluvert
mikið á milli
Ari
Edwald
„VIÐ tvískiptum kröfugerðinni
varðandi lengd kjarasamningsins.
Við erum tilbúnir að ræða kjara-
samning til allt að
48 mánaða ef
semst um að tek-
ið verði upp nýtt
launakerfi og
jafnframt að sett-
ar verði inn
ákveðnar vörður í
samningnum sem
byggðar verða á
trygging-
arákvæði. Ef þær
forsendur eru ekki til staðar, erum
við að ræða um styttri samning,“
segir Sigurður Bessason, formaður
Eflingar-stéttarfélags.
Félögin leggja einnig mikla
áherslu á styttingu vinnutíma. „Við
leggjum einnig mjög mikla áherslu á
tryggingarmálin,“ segir Sigurður.
„Ég er hóflega bjartsýnn. Mér
finnst margt í samfélaginu segja
okkur að menn eigi að geta gert
áframhaldandi kjarasamninga sem
skila kaupmáttaraukningu. Það er
uppsveifla í samfélaginu og sam-
kvæmt öllum spám horfa menn fram
á hagvöxt á næstu árum. Eðli máls
skv. á launafólk að fá sinn hlut af því.
Það þarf hins vegar að feta þessa
leið með þeim hætti að við missum
ekki hlutina út í verðbólgu, vegna
þess að það skaðar okkur mest ef illa
fer.“
Næsti fundur samningsaðila verð-
ur 9. desember.
Hóflega
bjartsýnn
Sigurður
Bessason
1. Ný launatafla. Felldir verði niður
taxtar undir 93.000 kr. og taxtakerf-
ið byggt upp frá þeirri grunntölu.
Launatafla verði í sex þrepum og 25
launaflokkum með 1,5% bili á milli
þrepa og flokka.
2. Tryggingarákvæði. Samið verði
um tryggingarákvæði gagnvart
verðbólgu og launahækkunum sem
aðrir kunna að semja um umfram
samning Flóabandalagsfélaganna.
3. Samningstími. Samið verði til 24
til 48 mánaða. Skilyrði lengri samn-
ings er að semjist um nýtt taxtakerfi
og tryggingaákvæði. Að öðrum kosti
er stefnt að styttri samningi til 24
mánaða.
4. Launahækkanir. Almennar
launahækkanir verði 19,25%, inn-
röðun í launakerfi 2,5% og lægstu
laun hækki um 30%.
5. Lágmarkstekjur. Samið verði um
dagvinnutekjutryggingu sem taki
hækkunum fyrir fullt starf miðað við
niðurstöður komandi kjarasamninga
á samningstímanum.
Meginkröfur
Flóabandalagsins
launataxtar undir 93. 000 kr. verði
felldir út. Samið verði til 24–48 mán-
aða að því tilskildu að takist að
semja um nýtt launakerfi og um
örugg tryggingarákvæði.
Almennar launahækkanir á samn-
FLÓABANDALAGIÐ, Efling-
stéttarfélag, Hlíf í Hafnarfirði og
Verkalýðs- og sjómannafélag Kefla-
víkur, setja fram kröfur í komandi
kjarasamningum um að samið verði
um nýtt launakerfi þar sem allir
ingstímanum verði 19,25%, lægstu
laun hækki um 30% og innröðun í
nýtt launakerfi skili 2,5%.
Forsvarsmenn Flóabandalags-
félaganna kynntu sameiginlega
kröfugerð fyrir forsvarsmönnum
Samtaka atvinnulífsins í gær.
Vilja semja um
styttingu vinnutímans
Þá krefst bandalagið þess m.a.
slysaréttur verði stóraukinn, vinnu-
tími verði styttur og orlofsréttur
miðist í nýjum samningi við starfs-
grein og kjarasamning en ekki fyr-
irtæki.
Flóabandalagið setur fram þá
kröfu að vinnutími styttist um 1
klukkustund á viku, úr 40 stundum í
39, sem komi til framkvæmda á ár-
unum 2005 og 2006. Með því segir
bandalagið að megi efla vinnuvernd
og auka tíma fólks til samveru með
fjölskyldu og stuðla að heilbrigðari
lífsháttum.
„Meginmarkmið félaganna er að
gera kjarasamning sem færir launa-
fólki tryggan kaupmáttarauka á
samningstímanum án þess að hætta
sé á aukinni verðbólgu,“ segir í
kröfugerðinni.
Tryggingaákvæði og nýtt
taxtakerfi skilyrði
Skilyrði lengri samnings en til 24
mánaða er að samið verði um nýtt
taxtakerfi og tryggingarákvæði. Í
kröfugerð segir að slíkt ákvæði
þurfi að veita tryggingu gagnvart
verðbólgu og launahækkunum ann-
arra umfram samning Flóabanda-
lagsins.
Flóabandalagið fer og fram á að
framlag atvinnurekenda vegna sér-
eignasparnaðar launþega verði
hækkað um 1% á samningstíma-
bilinu. Einnig að launafólki verði
heimilað að breyta unnum yfir-
vinnutíma í frí á dagvinnutímabili á
þann hátt að ein stund í yfirvinnu
jafngildi 1,8 klukkustundum í dag-
vinnu.
Þá verði launafólki gefinn kostur
á að greiða ákveðið hlutfall launa
inn á sérstaka menntunarreikninga
sem njóti skattfríðinda og atvinnu-
rekendur greiði mótframlag. Fari
upphæð ekki til menntunar bætist
hún við séreignasparnað viðkom-
andi launamanns.
Heildarkostnaður 28,23% á
samningstímanum að mati ASÍ
Samkvæmt mati hagdeildar ASÍ
á kröfum Flóabandalagsins er gert
ráð fyrir að heildarkostnaðarhækk-
un vegna krafna um almennar
launahækkanir upptöku nýs launa-
kerfis og innröðunar í nýja launa-
töflu, aukið framlag til lífeyrissparn-
aðar, styttingu vinnutíma o.fl. muni
nema 28,23% á samningstímanum
þ.e. frá 2004 til 2007. Gert er ráð
fyrir að almenn launahækkun verði
5% á árinu 2004, 5% á árinu 2005,
4% á árinu 2006 og 4% á árinu 2007.
Flóabandalagið leggur fram kjarakröfur og er tilbúið að semja til 48 mánaða
Almenn laun hækki um 19,25%
og lægstu laun hækki um 30%