Morgunblaðið - 08.02.2004, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Engva er skammstöfun áEuropean Natural Gas Ve-hicle Association (Evrópsksamtök um jarðgasbíla).
Markmið samtakanna er að byggja
upp lífvænlegan og arðbæran mark-
að fyrir gasknúin ökutæki í Evrópu,
meðal annars með hliðhollu stjórn-
málalegu og efnahagslegu umhverfi
sem hvetur til þróunar
gasbílatækni auk þess
að byggja upp dreifi-
kerfi fyrir gasbílaelds-
neyti. Í markmiðslýs-
ingu ENGVA kemur
fram að samtökin
styðja beina notkun
jarðgass til vetnis og
notkun vetnis sem elds-
neytis þegar til lengri
tíma er litið. ENGVA
lítur svo á að samtökin
gegni forystuhlutverki
innan vaxandi gasbíla-
iðnaðar og þjónustu-
hlutverki gagnvart fé-
lögum samtakanna.
Notkun gasknúinna
bíla hefur vaxið mikið frá stofnun
ENGVA 1994. Samkvæmt nýjum
tölum frá IANGV, sem eru alþjóðleg
samtök um gasknúin ökutæki, er nú
vel á fjórðu milljón gasknúinna öku-
tækja í notkun í heiminum. Þar er
Argentína fremst í flokki með um 1,2
milljónir gasknúinna bíla. Hvatinn
að útbreiðslu gass sem bílaeldsneyt-
is þar í landi mun hafa verið efna-
hagskreppan mikla sem gerði bensín
óhagstæðari kost en gas. Bensínbíl-
um var breytt með einföldum búnaði
til að brenna gasi.
Notkun gasknúinna ökutækja er
einnig að verða algeng í nokkrum
löndum Evrópu og er þar Ítalía lang-
fremst í flokki með um 400 þúsund
gasknúin ökutæki. Gasknúnir bílar
hafa haslað sér völl í
jafn ólíkum löndum og
Bandaríkjunum,
Egyptalandi, Rúss-
landi, Indlandi, Indó-
nesíu, Kanada og
Nýja-Sjálandi.
Í fyrra var haldin
Evrópuráðstefna
ENGVA í borginni
Porto í Portúgal, sem
blaðamanni gafst kost-
ur á að sækja. Auk
fjölda erinda um stöðu
mála innan og utan
Evrópu var þar einnig
vörusýning þar sem
tækjaframleiðendur
sýndu framleiðslu sína.
Portúgal er eitt þeirra landa þar sem
gasknúnum farartækjum fjölgar.
Landið fær jarðgas um gaslögn frá
Norður-Afríku. Í kjölfarið hafa verið
keyptir gasknúnir strætisvagnar til
nota í Lissabon og Porto og í kjölfar-
ið koma leigubílar sem knúnir eru
gasi. Að sögn dr. Ruis Rio, borgar-
stjóra Porto, er ætlunin að fjölga
gasáfyllingarstöðvum fyrir gasbíla í
borginni og hvetja þannig til aukinn-
ar notkunar gasbíla. Strætisvagna-
fyrirtækið í Porto, STCP, gerir nú út
175 gasknúna strætisvagna og er
það um þriðjungur vagnaflotans.
Þess má geta að Porto tekur þátt í
CUTE-verkefninu, líkt og Reykja-
vík, og eru þrír vetnisknúnir stræt-
isvagnar til reynslu í borginni.
Dr. Jeffrey M. Seisler er forseti
alþjóðasamtaka um jarðgasdrifna
bíla, IANGV, og einnig fram-
kvæmdastjóri ENGVA. Hann var
fyrst spurður hvort ENGVA væru
að eflast.
„Þegar við byrjuðum 1994 voru
meðlimir samtakanna 63 talsins og
þeir komu frá um 15 löndum. Í dag
eru rúmlega 270 meðlimir frá 35
löndum. Auk Evrópu koma þeir frá
Ameríku, Afríku, Mið-Austurlönd-
um og Asíu og Kyrrahafssvæðinu.
Þeir eiga sameiginlegt að hafa áhuga
á því sem er að gerast í Evrópu á
þessu sviði. Eins hafa þeir áhuga á
að eiga viðskipti við Evrópu. Í sum-
um tilvikum vilja þeir fylgjast með
þróun evrópskrar tækni með inn-
flutning í huga. Meðal þeirra sem
eiga aðild að ENGVA eru bílafram-
leiðendur, t.d. Fiat, Iveco, Daimler-
Chrysler, BMW, Volvo Car, Volvo
Truck and Bus. Allt fyrirtæki á
heimsmælikvarða. Eins eiga aðild
gasfyrirtæki víða um lönd og fram-
leiðendur íhluta fyrir þennan mark-
að. Til dæmis fyrirtæki sem smíða
breytingasett til að breyta bensín-
vélum fyrir gas. Eins þjónustuaðilar
og ráðgjafafyrirtæki. Jafnvel borgir
verða meðlimir því þær gera út
gasknúnar bifreiðar og vilja verða
hluti af þessu samskiptaneti.“
Hvernig er staða jarðgasknúinna
bíla í Evrópu samanborið við Banda-
ríkin?
„Það er reginmunur á mörgum
sviðum. Eitt er fjöldi bílanna, í
Bandaríkjunum eru um 130 þúsund
jarðgasknúnir bílar og 1.300 áfyll-
ingarstöðvar. Í Evrópu eru flestir
jarðgasbílar á Ítalíu, yfir 400 þúsund
og 460 áfyllingarstöðvar. Í Banda-
ríkjunum er mjög einsleitt umhverfi,
gasiðnaður er ein atvinnugrein, bíla-
framleiðslan er önnur atvinnugrein.
Þegar við reynum að ná til mismun-
andi hópa viðskiptavina í Bandaríkj-
unum eða mögulegra meðlima þá er-
um við að eiga við atvinnugreinar
sem í stórum dráttum hafa sömu við-
horf.“
Dr. Seisler segir að Evrópa sé
ekki jafn einsleit, í hverju landi verði
að taka tillit til mismunandi lífsvið-
horfa, ólíkra tungumála og menning-
ar. Ólík land- og jarðfræðileg skil-
Við erum á réttri braut
ENGVA eru samtök sem stofnuð voru 1994 til að
hvetja til notkunar á gasknúnum bílum í Evrópu.
Guðni Einarsson ræddi við dr Jeffrey Seisler, fram-
kvæmdastjóra ENGVA.
.'
&
/ 0
1
&
2'"#
3+ 4 (+
&'
$
6 &
78
.$%%(
. 3-$%%(
0
4
(+
78
9
:;(+
<!
0=.*> 44
4(13
5(33
2233 ? ,@@-
-;133
.1333
42333
433033
-;133
-2411
-041.
-;433
(3232
((3.3
.1333
42333
44-41
23325
5;133
-.3333
-2;-2;
433033
452333
143333
--35-43
Dr. Jeffrey Seisler
Verksmiðjur til framleiðslu álífgasi og áfyllingastöðvarfyrir gasbíla eru í tólfsænskum borgum. Áætl-
anir eru um að reisa fimm verk-
smiðjur til viðbótar. Í september
síðastliðnum voru alls 4.260 gasknú-
in ökutæki í Svíþjóð. Þá hafði
gasknúnum bílum fjölgað um 28%
frá ársbyrjun 2003. Ríflega helm-
ingur leigubíla í Gautaborg og 90%
leigbíla í Malmö eru knúnir lífgasi.
Gasið er er allt frá 30 til 44% ódýr-
ara en bensín, sem hvetur til notk-
unar þess. Þá fylgja því ýmis fríð-
indi í sumum byggðarlögum að eiga
gasknúinn bíl. Í Gautaborg og
Mölndal geta gasbílaeigendur til
dæmis lagt frítt á bílastæðum í eigu
borganna. Umhverfisávinningur er
mikill, að því er fram kemur í minn-
isblaði frá SWECO. Minni loft-
mengun og þar með bætt heilsa
fólks er talin virði 100 þúsund
bandaríkjadala á hvern strætisvagn
knúinn lífgasi á ári.
Gas unnið úr úrgangi
Peter Boisen, ráðgjafi sænska
gasiðnaðarins, hélt erindi á ráð-
stefnu ENGVA og lýsti möguleikum
lífgass sem unnið er úr lífrænum úr-
gangi svo sem seyru úr skólp-
hreinsistöðvum, húsdýramykju,
matarleifum, lífrænu heimilissorpi
og öðru slíku. Boisen benti á að úr
því sem einn maður skilar frá sér á
ári mætti vinna orku upp á eina
megavattstund. Það er einn tíundi
af því sem fjölskyldubíll eyðir með
hóflegri notkun. Víða um Evrópu er
ónotað ræktunarland. Væri stunduð
þar ræktun með orkuvinnslu í huga
mætti fá um 29 MWh orku af hverj-
um hektara á ári. Ræktunarland
sem nú er hvílt gæti það fullnægt
6–7% af þörf Evrópu fyrir öku-
tækjaeldsneyti. Hægt er að vinna
orku úr úrgangi frá timburvinnslu
og skógrækt sem gefur um 1 MWh
af orku á hvern hektara á ári. Að
öllu samanlögðu ætti lífgas unnið úr
úrgangi, sérstakri orkuræktun og
frá skógrækt að geta fullnægt
meira en fjórðungi orkuþarfar allra
ökutækja í Evrópu.
Verksmiðjur til framleiðslu á líf-
gasi eru víða í Evrópu eða gasi er
safnað úr sorpurðunarstöðum eins
og hjá SORPU í Álfsnesi. Í Aust-
urríki eru t.d. 196 stöðvar sem vinna
lífgas, 40 stórar og litlar gasverk-
smiðjur í Danmörku, 24 í Finnlandi,
fjórar verksmiðjur vinna gas úr
heimilissorpi í Frakklandi, 800 gas-
vinnslustöðvar eru í Þýskalandi. Í
Hollandi eru 269 gasverksmiðjur
sem framleiða um 11 Twh af orku á
ári. Það jafnast á við tólf 100 þúsund
tonna olíuskip fullhlaðin af hráolíu.
Í Svíþjóð eru alls 216 gasvinnslu-
stöðvar af ýmsu tagi, þar af 134 sem
vinna gas úr seyru og gasi er safnað
á 60 urðunarstöðum. Í bígerð er að
reisa margar nýjar. Í Sviss eru á
þriðja hundrað gasvinnslustöðvar.
Boisen komst að þeirri niðurstöðu
að framleiðsla lífgass mundi aukast
og jafnframt leysa mörg vandamál.
Hún drægi úr innflutningi eldsneyt-
is, losun koldíoxíðs, metans og köfn-
unarefnisoxíða, drægi úr lyktar-
mengun og hreinlætisvanda og yki
atvinnu í landbúnaði. Aukin notkun
lífgass sem ökutækjaeldsneytis
fylgi allir þeir kostir sem fylgi notk-
un jarðgass, og ekki síst væri hún
áfangi á leið til vetnissamfélagsins.
Ég er bjartsýnn
Mats Ekelund er eigandi og for-
stjóri Strateco í Svíþjóð, en fyrir-
tækið stýrir gerð aðgerðaáætlunar,
Target 2020,vegna markmiða
Framkvæmdastjórnar ESB til árs-
ins 2020, af hálfu ENGVA.
Mats Ekelund segist hafa byrjað
árið 1982 að vinna að
notkun nýrra orku-
gjafa á bíla í stað
hinna hefðbundnu.
Hann hefur því
fylgst með þróuninni
á sviði óhefðbundins
bílaeldsneytis. Eru
þessir óhefðbundnu
orkugjafar fyrir bíla,
eins og jarðgas,
orðnir raunverulegir
valkostir fyrir al-
menning?
„Nei, það hefur
ekki orðið og verður
ekki fyrr en stjórn-
málamenn marka
stefnu og setja lög sem þörf er á og
opna nýja möguleika í fjármögnun
og skattlagningu. Hið opinbera
verður að finna leiðir til að gera
þetta raunhæfan kost fyrir almenn-
ing, bæði fjárhagslega og lagalega.“
Ertu bjartsýnn á að þetta verði?
„Já, ég er mjög bjartsýnn. Ég er
formaður í „Target 2020“ sem mun
stýra stefnumótun og upplýsinga-
öflun um hvernig 10% evrópska
bílaflotans eiga að verða knúin af
jarðgasi árið 2020. Það er mikill
kraftur að baki því starfi, þar er
orkupólitík, landbúnaðarpólitík,
vinnumarkaðspólitík, fjármagns-
pólitík, heilsupólitík og fleira. Æ
fleiri þungaviktarmenn í ákvarðana-
tökunni í Brussel eru farnir að tjá
sig í þessa veru. Stefnan er í þessa
átt.“
Ekelund vann við fyrstu lífgas-
verksmiðju Svía, í Linköping, sem
vann gas úr úrgangi. „Það varð upp-
hafið að víðtækri þróun sem breiðst
hefur um alla Evrópu. Þar á meðal
er metan-verkefni SORPU á Íslandi
sem vakið hefur mikla athygli og er
stórkostlegt framtak. Allir sem fást
við notkun lífgass í Evrópu hafa
fylgst með íslenska verkefninu.“
Telur þú að notkun lífgass eigi
eftir að vaxa?
„Ég tel að forsenda þess sé að
teknar séu skjótari og stærri
ákvarðanir yfirvalda um notkun
jarðgass, því jarðgasiðnaðurinn get-
ur nýtt lífgasið. Það er samhengi
þarna á milli. Við byrjum með jarð-
gas og þar er tæknina að finna.
Notkun lífgass byggist á sömu
tækni. Síðan heldur þróunin áfram
og mun þróast smám saman yfir í
vetnisnotkun.“
Miklir möguleikar í framleiðslu lífgass
Svíar eru framarlega í framleiðslu metans úr lífrænum
úrgangi, svonefnds lífgass eða biogass. Það er bæði
notað til hitunar og til að knýja almenningsvagna,
vörubíla, lögreglubíla og einkabíla. Peter Boisen og
Mats Ekelund þekkja vel til framleiðslu lífgass.
% 8
8? 9@, @ % ,! =
7
: A@BC
7
& $! +'' D
' +'' 8
7
' ' + '
% E@ @ ' ' A,
,@ F
.
Mats EkelundPeter Boisen.