Vísir - 11.04.1981, Blaðsíða 8

Vísir - 11.04.1981, Blaðsíða 8
vtsm Laugardagur IX. april 1981 VÍSIR Útgeiandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Fréttastjóri: Saemundur Guðvinsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammendrup, Arni Sigfússon, Fríða Astvaldsdóttir, Gylfi Kristjánsson, Herbert Guðmundsson, lllugi Jökulsson, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristin Þorsteinsdóttir, Páll Magnús- son, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaðamaðurá Akureyri: Gisli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Páls- son, Sigmundur O. Steinarsson. Ljósmyndír: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrésson. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Safnvörður: Eiríkur Jónsson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson. Oreifingarstióri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Síðumúla 14, simi 86óll, 7 linur. Auglýsingar og skrifstofur: Síðumúla8. Símar86óll og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, sími 86611. Askriftargjald kr. 70 á mánuði innanlands og verð í lausasölu 4 krónur eintakið. Visir er prentaður i Blaðaprenti, Síðumúla 14. Guöfaðír og verndarengill Þegar núverandi ríkisstjórn var í burðarliðnum, gaf Albert Guðmundsson út þá yfirlýsingu, að hann myndi verja stjórnina falli. Þetta gerðist raunar áður en stjórnarsáttmáli lá fyrir og nokkur vissi hver stefna stjórnarinnar yrði. Yfirlýsing Al- berts gerði Gunnari Thoroddsen mögulegt að mynda stjórnina. Eftir það hefur Albert verið nefndur guðfaðir ríkisstjórnar- innar. SFðar tók Albert Guðmundsson fram, að hann áskildi sér allan rétt til að greiða atkvæði sam- kvæmt sannfæringu sinni, eins og hans er von og visa. Sjálfstæði þingmannsins hefur löngum verið aðalsmerki hans og styrkur. I rauninni hefur þetta marg- oft komið fram, einkum í tfð ríkisstjórnar Geirs Hallgríms- # sonar, þar sem hann greiddi hvað eftir annað atkvæði í blóra við sinn eigin þingflokk, einfaldlega af því að sannfæring hans og samviska bauð honum annað. Þegar efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar voru boðaðar um áramótin og tvísýnt þótti um stuðning við þær á Alþingi. veltu marg:rþvi fyrirsér hverafstaða Alberts yrc'. AAargt í þeim ráð- stöfunum gekk þvert gegn því, sem tel ja verður stef numál hans. Albert tók af skarið þegar hann lýsti yfir því, að hann tæki ekki þátt í því að fella núverandi Það er ekki dónalegt f yrir rikisstjórnina að hafa bæði guðföður og verndarengil i einum og sama manninum. stjórn, fyrr en Ijóst væri hvað við tæki. Hann vildi að myndun annarrar ríkisstjórnar lægi fyrir, ef fella ætti þá sem fyrir væri. Þetta var sniðug afstaða, þótt ekki væri hún sérlega rökrétt. Auðvitað gerist það aldrei að ný stjórn sé mynduð, meðan önnur situr. Slíkt gerist einfaldlega ekki. _ En yfirlýsing Alberts féll í góðan jarðveg. Kjósendur eru þreyttir á stjórnmálaóvissu og öngþveiti, og aðsjálfsögðu liggur líf st jórnarinnar við, þegar um er að ræða stef numótandi aðgerðir í efnahagsmálum. Ef þær hafa ekki meirihlutafylgi á þingi, er um leið brostin forsenda fyrir til- veru stjórnarinnar. í flugstöðvarmálinu gegnir öðru máli, enda ber það að með öðrum hætti. Þar er Alþingi ekki að fella stjórnarfrumvarp heldur að láta í Ijós vilja sinn. Hér er að- eins um heimildarákvæði að ræða sem ríkisstjórnin hefur í hendi sinni, hvort hún I jær máls á eða ekki. Hennar er lokaorðið. Fyrir aðeins nokkrum dögum kvaddi Albert Guðmundsson sér hljóðs utan dagskrár til að mót- 'mæla því, að minnihluti þing- manna tæki ráðin af meirihlut- anum. Átti hann þá við flug- stöðvarbygginguna. Tók hann sérstaklega fram að frjálsir þingmenn og óháðir ættu að hafa frumkvæði þess að hrinda slfkri ósvinnu af höndum sér og þings- ins. Hér var talað tæpitungulaust. Nú er þetta flugstöðvarmál komiðtil afgreiðslu í neðri deild, þar sem Albert á sæti. Þá bregður svo einkennilega við, að bæði f viðtal i í Morgunblaðinu og i þingræðu í gær fer hann aftur að velta vöngum yf ir því,að sam- þykkt á tillögu stjórnarandstæð- inga verði til þess að stjórnar- samvinnan slitni. „Afstaða mín", segir Albert, „mun ekki verða til þess að stjórnarsamvinnan slitni, án þess að tilbúin sé önnur rílkisstjórn". Ef frá er skilið hið rómaða sjálfstæði þingmannsins og margendurteknar yfirlýsingar um að kommúnistar eigi ekki að ráða ferðinni í utanríkis- og öryggismálum, þótt litið sé framhjá skoðunum hans á því, að meirihlutinn eigi ekki að láta minnihlutann kúga sig, hvað þýðir þá þessi afstaða í raun? Hún þýðir það eitt, að þing- maðurinn muni samþykkja hvað- eina. sem frá ríkisstjórninni kemur, jafnskjóttog hvíslað er í eyra hans, að stjórnarsamvinnan slitni ella. Honum er jafnljóst sem öðrum, að ný ríkisstjórn verður aldrei tilbúin til að taka við meðan hin fyrri situr. Þetta veit hvert barn. (JR GLERHUSINU Orö eru til alls fyrst. Þau eru líka til alls vis svo sem eins og að koma mér til að kaupa bók aöeins vegna þess að hún heitir „011 einföldu orðin”. Raunar er þetta ekki alveg rétta nafnið, þvi bókin er ensk og heitir The Complete Plain Words. 1 sjálfu sér varla frásagnarvert þótt kona kaupi bók i búö, — en bókin sjálf er þó nokkurra orða virði og þess, að á henni sé vakin athygli. Umrædd bók kom fyrst út áriö 1948 og hét þá „Einföld orð”. Höfundur hennar var breskur embættismaöur menntaöur i klassiskum fræðum, Sir Emest Gowers og hann reit bókina aö beiðni breska fjármálaráðu- neytisins. Tilgangurinn var að betrumbæta skrifað mál em- bættismanna i þjónustu hans hátignar. Einmitt, — stofnana- máliö! Ekki veröur nú Bretum legiö á hálsi fyrir ofstæki I mál- vernd en sömatilfinningu hafa þeir i rikum mæli. „Einföld orö” hefur á þessum 32 árum sem liðin eru, komið út 15 sinnum, — margendurskoðuö og endurskrifuð og jafnvel undir nýjum nöfnum. Raunar hefur nýr maður nú tekið við stjórn- inni, þviSirErnest lést áriö 1966 og var þá Sir Bmce Fraser fenginn ihans staö. Hann er likt og fyrirrennarinn, menntaöur i klassfskum fræöum og ensku og er starfsmaður þess opinbera hjá Bretum. 1 formála sinum aö „öll einföldu orðin” segist Sir Bruce hafa kannað hvort bókin hafi haft tilætluö áhrif og kom- . ist aö þvi, að ekki er aðeins kurteislega til þess ætlast, að allir embættismenn lesi hana, heldur oftsinnis vitnað til hennaraf slikri kunnáttu að hún hlýtur að vera n.k. Biblia i ráðu- neytisskrifstofum o.fl. stöðum. Bókin er einnig notuö viö þjálfun starfsmanna og endur- hæfingu og gildi hennar fyrir alla þá sem vilja skrifa skýrt og skorinort er talið ómetanlegt. „öll einföldu orðin” skiptist I 14 kafla. Fjórirþeirra hafa yfir- skriftina Val oröa og undirheit- in: „Foröist óþarfa oröið” — „Finniö kunnuglega orðið” — „Finniö nákvæma orðið”, svo dæmi séu nefnd til aö gefa hug- mynd um efnið. Kaflar eru til- einkaðir ambögum meö leiö- réttingum eða aðfinnslum, ambögurnar eru ýmist mál- Á laugardegi Magdalena Schram skrifar fræðilegs eölis eða vlkja að oröavali. Þarna eru listar yfir klaufaleg tiskuorð, klisjur og óþjál orö, óspart er gert grín aö skrúömæltum ráöuneytisskrif- finnum! málfræöigryfjur og út- lend aðskotaorö fá sina meöferö og svona fram eftir götunum. Allt er þetta sett fram af fádæma glettni og gamansemi kryddaðri nær illkvittnu háöi og án þess þó aö höfundur gleymi þvi eitt einasta augnablik, hversu alvarlega hann þarf að taka á málunum. Boðorðið er: Vertu einfaldur, stuttorður og mannlegur I skrifum þinum. t hvert það sinn, er ég heyri orðin islensk málnefnd, dettur mér I hug þessi merka bók og óska þess um leiö aö einhver harðfylginn útvörður Islensk- unnar eigi eftir aö njóta þess munaðar aö útbúa samskonar rit handa Islenskum skriffinn- um... En verkefnin eru auðvitað ærinfyrirhanda slikum útverði. Hugsið ykkur nú, að til væri stofnun, sem tæki við kærum á hendur þeim, sem brjóta af sér. Nú er ég vitanlega að gera ráð fyrir, að islenskan haldi áfram aö lúta vissum lögmálum, sem skylt er að hlýta varðandi mál- fræöi, starfssetningu o.þ.h. Þá væri e.t.v. búið að kæra kjöt- kaupmanninn sem auglýsir nýtt kjöt i frystirinn! Þessi stofnun hefði einnig úrskurðarvald i matsatriðum um máltilfinn- ingaleg efni. Hún gæti a.m.k. sagt mér, hvort þaö ætti að lið- ast aö auglýsa krem „sem vex upp með þér” — bfla, „sem stoppa ekki við” og kjöt, „sem kemur ekki betra”. Innlit Is- lenskumanna i útvarpið eftir kvöldfíettir ætti e.t.v. aö hafa vald til aö ritskoöa auglýsingar og til að bæta gráu ofan á svart, refsivald. Refsingin? Til að mynda vinnu við orðtöku hjá Oröabókinni! En e.t.v. er þaö rétt hjá þess- um sumum, sem vilja aö þróun- in hafi sinn gang. Og þróun getur svo sem verið nógu skrambi skemmtileg og fróðleg. Og Ihugunarverð. Hvaða hugar- vel þó svo þau geti aðeins átt við um konur, ss. vangefinn, og ófriskur reyndar lika, (en þetta var nú útúrdúr). Nú hefur önnur þróun valdiö þvi, góöu heilli, aö farsbreyting olli t.d. þeirri stór- kostlegu þróun, aö orðiö vangef- inn hætti að þýða illa gift kona og fór þess i stað að merkja fötlun. (takiö eftir þvi aö ég skrifa og segi vangefiNN. Engin þróun viröist geta komið i veg fyrir þann sið orðabókahöfunda að hafa öll orð i karlkyni, jafn- hætt er að nota oröið vangefinn um fötlun. Hver veit nema upp- hafleg merking orösins nái fót- festu á ný, — fyrir einhverja undursamlega þróun. Þá geta óhamingjusamlega giftar konur stofnaö með sér félag og kallað það Styrktarfélag vangefinna. Ms -J

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.