Vísir - 11.04.1981, Blaðsíða 18

Vísir - 11.04.1981, Blaðsíða 18
Við köllum hann Búbba en meðal knattspyrnuunn- enda í Oklahoma er hann þekktur sem ísmaðurinn Jói Eðvaldsson, fyrirliði Harðhálsanna frá Tulsa, Tulsa Roughnecks. Það vakti athygli er hann, fyrir um einu ári, ákvað að yfirgefa Celtic, eitt besta knattspyrnulið Skotlands, til þess að leika með bandarísku liði á hjara knattspyrnuveraldarinnar. „Þeir borga vel' Viö sitjum inni sérlega fallega innréttaöri Ibúö Jóhannesar Eövaldssonar og Kathrynar, hinnar skosku eiginkonu hans, og að maður vill alltaf meira. (léttur hlátur) — Ætlar þii að halda áfram hérna eftir að samningurinn rennur Ut? „Við (Jóhannes og eigendurn- ir) erum ekki búnir að ákveða ■•■V t hita leiksins. ég spyr hvers vegna hann hafi yfirgefið Celtic og hvern þátt peningarnir hafi átt i þvi. „Ég var búinn að vera með Celtic i fimm ár og mér fannst kominn timi til að skipta, bæði sjálfs mins vegna og svo var ég búinn að vinna alltsem ég gat. Ég var búinn að vinna skosku deild- ina tvisvar, skoska bikarinn og deildarbikarinn. Þegar maður er búinn að vera i fimm ár á sama stað, þá kemur svolitið eirðar- leysi á mann. Hvað peningana varðar þá fa-ðu ekki að flytja fjölskylduna milli heimsálfa fyrir minna en þú fékkst fyrir. Þeir borga vel en hluturinn er bara sá VÍSIR það, en samningurinn rennur út á næsta ári svo það verður skorið úr um það á miðju þessu ári. Það væri kannski gaman að fara eitt- hvert þar sem er sjór. (Tulsa er lengst inni I landi). Einnig er pirrandi að vera hérna og vinna ekki neitt.” — Það er nú ekki alveg satt að Jóhannes hafi ekki unnið neitt, þvi hús hans prýðir tveggjahæða verðlaunastytta sem hann fékk þegar hann var valinn i svokallað All-Star lið, þar sem safnað er saman i' eittlið öllum bestu knatt- sDvrnumönnum i Bandarikjun- um. En þeim Harðhálsum hefur ekki gengið sem best hingað til. Þeirurðu i öðru sæti I sinum riðli I innanhúsknattspyrnunni og kom- ust þvi ekki i undanúrslit.Einn eigandinn og framkvæmdastjóri liösins, Noel Lemon, sem er sagð- ur,einhverra hluta vegna, vera hataðasti maður i Tulsa-borg, héltþrumu ræöu yfir leikmönnum I búningsklefanum eftir siðasta innanhúsleik þeirra á þessari vertið. Þó þeir hefðu unnið leikinn lá í loftinu að nú yrðu höfuð látin fjúka. Svo var þó ekki, i bili. Jó- hannes þarf ekkert að óttast þvi samkvæmt hans samningi má félagið ekki seljahann né lána án hans samþykkis. Flesta banda- rikjamennina getur félagið selt fyrirvaralaust og án þess að tala við þá einu sinni. „Verða jafn góðir og Evrópumenn eftir rúman áratug" — Verður bandariska knatt- spyrnan nokkurn tima jafn góð og sú evrópska? „Jú, jú, en það tekur svolitinn tima þvi þeir eru svo nýbyrjaðir að leyfa krökkunum að velja hvaða Iþrótt þeir vilja stunda I skólanum. Þessi kynslóö sem er hérna hjá okkur núna, og viö hjálpum stundum við æfingar, hún fær að velja. Og þetta er svo skemmtileg iþrótt þvi það geta allir fengið að vera með; Þú þarft til dæmis ekki að vera tveir og fimmtán eða tveir og tuttugu á hæö,eða tvö hundruð og fimmtiu pund á þyngd eins og þú þarft að vera til að spila körfubolta eða ameriskan fótbolta. Hérna i Tulsa eru um þrjátiu þúsund krakkar sem spila. Við tökum þjálfarana þeirra, sem hafa ekki alist upp með knatt- spyrnu i huga, á námskeið og reynum að hjálpa til með þvi að mæta á æfingar hjá þeim. Þetta er að koma, og eftir tiu til fimmtán ár verða þeir alveg nógu góðir til þess að eiga i Evrópu- knattspyrnuna.” — Hvernig er aö vera fyrirliði og stjórna Könúnum? „Það er allt i lagi. Eini gallinn við þetta er sá að við verðum alltaf að spila með þrjá Amerik- ana inná, hvort sem þeir eru góðir eða ekki. Sumir eru ágætir en þetta er erfitt þvi þeir hafa ekki alist upp sem atvinnumenn og hafa ekki fengið þessa reynslu sem hinir hafa fengiö.” Laugardagur 11. april 1981 Laugardagur 11. aprii 1981 — Er skemmtilegra að spila hér en i Skotlandi? „Það er allt öðruvisi. Það er heilmikil reynsla fyrir mann að spila hérna.. Knattspyrnan er náttúrulega eins, hvar sem er i heiminum. Hún er bara miklu betur skipulögö I Skotlandi. Hérna spilum við á gerfigrasi, og það er allt annað aö spila á þvi en almennilegu grasi”. — Betra eða verra? „Það er verra, en maður venst þvi. Þetta er allt öðruvisi spila- mennska. Völlurinn er eins og bunga og ef þú gefur langt fyrir framan menn þá er engin leið fyrirþá að ná boltanum. Hraöinn á honum eykst bara frekar en minnkar. „Ægileg barátta" — Er það lokaáfangi knatt- spyrnuferilsins að fara til Ameriku? „Ég vil nú ekki segja það. Þeir ættu bara aö reyna þetta nokkrir, að koma hingað frá íslandi. En það verður sífellt erfiðara þvi á næsta ári verða alltaf að vera fjórir Amerikanar inná. Þaö er ægileg barátta i knatt- spyrnunni hérna. Ef við kæmum til tslands og spiluðum þar þá gætum við alveg eins unnið þá eins og hverja aöra. Þetta er eng- in áhugaknattspyrna eins og heima. Beckenbauer, Cruyff, Pele og Neeskens færu ekki að koma hingaö til að spila ef þetta væri ferlega lélegt.” — Ég ýja að þvi hvort Jóhannes sé ekki að verða of gamall fyrir knattspyrnuna. „Meðan ég get haldið i við þá yngri og unnið þá I hlaupum og öðru og er ekki of seinn þá held ég áfram. Fólk heldur svo oft að þegar þaö er komið yfir þritugt þá sé kominn timi til að hætta. En þaö er vit- leysa. Ég held að leikmaður sé á vism sinu besta skeiði milli 29 og 33 ára aldurs. Þú kannski hleypur ekki eins mikið um völlinn en þínar staðsetningar eru svo miklu betri enáöur. Þaðtekur það enginn frá þér, ef þú hefur sjálfstraust og kannt aö skora, þá tapar þú þvi aldreiniður. En ef þú ferðað vor- kenna sjálfum þér af þvi að þú skorar ekki eitt eða tvö mörk og ert ekki markahæstur eins og vanalega, og ferð að reyna að staðsetja þig rétt, þá kemur það ekki. Þetta gerist allt saman án þess að þú vitir af þvi. Þú ert þarna, boltinn kemur og þú sparkar honum inn. Allir þessir bestu markaskorarar eru ekkert Fótbolti áritaður: Strákar meö kúrekahatta biöu eftir hetjunum sfnum. að rembast við aö komast I stað- setningarnar, þeir eru þar. Þetta er innri gáfa.” Jóhannesi og Kathrynu finnst báðum rólegt að búa i Ameriku en fólkið segja þau að sé ólikt þvi sem þau þekktu fyrir. // Nágrannar heilsast ekki" „Fólk er mjög ómannblendið hérna”, segir Kathryn. „Maður heilsar kannski nágrönnunum en þeir lita bara niður og muldra eitthvað. Það er allt öðruvisi en á Skotlandi eða á íslandi.” „Fyrir utan keppnisferöirnar, þá er þetta mjög rólegt llf”, segir Jóhannes. „Æfingarnar eru frá tiu til eitt á daginn svo það er miklu meira fjölskyldulif hérna. Maður er að vinna úti I gartá eða fara með strákinn (Jóhannes „junior” tveggja ára) á McDon- alds matsölustaðina. Þeir gera svo mikiö fyrir börnin hérna. Þaö er þvi algjör vitaminsprauta að fara heim, þar sem fólk vinnur svo mikið og þar sem er svo mik- ill hraði. — Hvað um framtiðina? „Maður lærir alveg stórkost- lega mikið á þvi að vera hérna, upp á framtiðina, þvi ég er alveg tilbúinn til þess að taka að mér þjálfun einhvers staðar.” — Hérna eða heima? „Mig myndi langa til aö fara heim og vinna þar I nokkur ár — eitt til tvö ár. Það væri gaman.” — Hvað svo? „Aldrei hægt að tapa á bjdrkrá" „Þaö hefur alltaf verið minn draumur að opna „pub”. Kannski fer ég til Skotlands eftir fimm ár, kaupi mér „pub” og rek i nokkur ár meðan ég athuga hvað ég ætla að gera. Mitt nafn er enn þekkt i Skot- landi og verður þekkt i nokkuð mörg ár I viðbót. Frá „bisness” sjónarmiði er þetta þvi mjög traust og það er aldrei hægt að tapa á bjórkrá. Það skiptir engu máli hvað þú átt mikla peninga, þú átt alltaf nóg til að fá þér bjór. Alveg eins og á fslandi — fólk á alltaf nóg til að fara á skemmti- staði. A meðan við töluðum saman fylgdumst við ööru hverju með leik Tulsa og Dallas á myndsegul- bandi. Jóhannes tekur upp alla þá leiki sem sjónvarpað er og rann- sakar hvað betur má fara hjá sér. En nú er kominn timi tií að koma sér til iþróttasalarins þar sem þeir eiga að spila við Axtecana frá Los Angeles. Jóhannes ekur nýjum Ford Granada, sem hann fékk afslátt af, i gegnum liöið en það er 20 minútna keyrsla út á völl. Ahorfendur voru óvenju fáir, aðeins um 3000, sennilega vegna þess aö séð var að liðiö kæmist ekki I undanúrslitin. Ahorfenda- fjöldi er aö meðaltali um 4500 innanhúss og 20.000 utanhúss. var haldið áhangendaparti i „Kaffiteriunni”. Þangaö komu hörðustu aðdáendurnir, dönsuðu, drukku ókeypis bjór og spjölluðu viö leikmennina. Bjórinn útveg- aði Budweiser, bruggverksmiðj- an, sem heldur Roughnecks uppi með auglýsingum. Jóhannes var samstundis um- kringdur strákum með kúreka- hatta og stelpum með glýju i augum, sem öll vildu eigin- handaráritanir á fótbolta, leik- skrár eða hvaö sem handhægt var. Allir virtust skemmta sér vel, og jafnvel framkvæmda- stjórinn sást brosa svo lítið bar á. . -, -u. i ■ “ Fyrirliðanum er vel fagnað af klappliðinu,er hann skeiðar inn á völlinn. Hver maður er aðeins inná i um 2 minútur i einu. Þá skiptir hann alltaf við sama manninn. Leikur- inn er hraður og haröur. í leikn- um við Aztecana var Jóhannesi hrint svo harkalega út i vegg aö hann var hræddur um að liðbönd i öxlinni hefðu slitnaö. Einn af þremur læknum liðsins veröur fenginn til að lita á hann. „Þegar ég fæ leið á henni" Eftir að Jóhannes og félagar höfðu sigrað liðið frá Los Angeles En hvenær skyldi Jóhannes nú ætla aö hætta i knattspyrnunni? Hann er fljótur að svara. „Þegar ég fæ leið á henni,” segir hann. Og það verður áreiðanlega seint. ■ Te x ti o g myndir: Þórir IÉSIÍ Guðmunds- ISiif son. Tulsa, Oklahoma. 99 • f Gengið af vellinum eftir aö hafa sigraö Azteckana: Skammir frá framkvæmdastjóranum framundan, fyrir aö sigra ekki riðilinn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.