Pressan - 14.04.1994, Blaðsíða 20

Pressan - 14.04.1994, Blaðsíða 20
VIÐ HLUSTUM ALLAN SÓLARHRiNGINN 643990 Nú er undirbúningur fyrir Listahátíð ’94 í fullum gangi en há- tíðin hefst í lok maí og stendur ffam til 19. júní. Leikhúsáhugafólk mun fá sitthvað fyrir sinjj snúð, boðið verður upp á barna- leikhús, Frú Emilía verður með Macbeth og einnig verða forsýningar á leikgerð Viðars Eggertssonar úr bókum Guðbergs Bergs- sonar: „Sannar sögur af sál- arlífi systra“. Fyrirhugað var að sú sýning yrði ffumsýnd í Þjóðleikhúsinu á þessu leikári en hún komst ekki fyrir vegna velgengni ann- arra verkefna og færist því yfir á næsta leikár. En Viðar tengist einnig Listahátíð með öðrum hætti. Útlit er fýrir að Leikfélag Akureyrar mæti suður með kabarett- sýninguna Bar-par sem slegið hefur í gegn fyrir norðan. Aðeins tveir leikar- ar eru í sýningunni, þau Þráinn Karlsson og Sunna Borg, þannig að það er ekki mikið umstang því samfara að flytja hana tO. Bar-par verður væntanlega til sýn- ingar á Hótel Sögu. Sýning ffá LA hefur ekki verið á **■“' Listahátíð síðan 1980 þegar norðanmenn mættu með rómaða uppfærslu á „Beðið eftir Godot“, en þar var Viðar einmitt meðal leik- enda... Og enn af leiklist á Listahátíð. Hingað til lands er væntan- legt leikhúsið Theater de Complicite. Þetta er eitthvert virtasta leikhús í heimi og þeir sem til þekkja segja að þar sé á ferð leikhúsupplif- un sem enginn megi missa af. Þetta er alþjóðlegur leik- hópur sem hefur aðsetur á Englandi. Þau koma með verðlaunasýninguna „Streets of Crocodiles“ og er búið að dagsetja sýningar 25., 26. og 27. júní í Borgar- leikhúsinu. Þá er Listahátíð í raun lokið en Theater de Complicite fékkst ekki fyrr vegna bókana víðs vegar um heim. Aðalsprautan heitir Simon McBumey, en hann kom hingað barn að aldri árið 1966 og var víst mjög hrifinn af landinu og hefur talið leikhópinn á að taka ASKUR Suðurlandsbraut 4a, sími 38550 Veldu eina af þessum frábœru steikum: • Sirloinsteik með estragonsmjöri • Sinnepspiparsteik með piparsósu • Hunangsgljáð grísalærissteik • Grísahryggjarsteik með rjómasveppasósu • Jurtakrydduð lambalærissteik með villijurtasósu • Hvítlaukskrydduð lambalærissteik með steinseljusmjöri Glóðarsteikingyfir opnum eldi! „Charbroil" — glóðarsteiking yfir opnum eldi gefur steikinni alveg einstakt og Ijúf- fengt bragð — betra en þú átt að venjast. AÐEINS 990 KR.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.