Tíminn Sunnudagsblað - 03.10.1971, Blaðsíða 8
Fyrsti skóladagurinn
Fyrir nokkruni árurn birtust hér í Sunnudagsblaðinu nokkr-
ar myndir af Signinu Rósu. Nú á Sigrún or'öi'ð systur, scm
bráðum cr fjögurra ára og heitir hún Ilclga Marin. Núna
á dögunum fór hún í fyrsta sinn í skóla, cu það var itú
bara leikskóli. Ilér sjást þær ínæ'ðgurnar fara í fyrsta
sinn í Græmiborg, en Sigrún Rósa er lengst til vinsfri á
myndinni. Ljósm. Stefán Nikulásson
um þriðja heimi, og skaparinn
sagði við þá, að þeir yrðu alltaf
að muna tvennt: Að virða skapara
sinn og hver annan og að syhgja
skapara sínum lof frá tindum fjall
anna. Þegar þeir hættu að syngja
skaparanum lof, þá myndi hann
vila, að þeir hefðu á ný breytt illa.
í hinum þriðja heimi fjölgaði
mönnunum ört, svo að þeir urðu
að byggja sér borgir. Sumir sáu
af vizku sinni, að því lengra sem
þeim skilaði fram á vegi lífsins,
þeim mun erfiðari yrði förin. Eitt
af því böli, sem upp kom, var, að
menn misnotuðu gjöfina, sem skap
arinn hafði gefið þeim til að auka
kyn sitt. Ein kona var svo spillt,
að hún státaði af því, að svo marg-
ir karlmenn hefðu keypt blíðu
hennar með hálsfestum úr túrkís-
sleinum, að þær væru jafnlangar
möndli jarðar. Hinir vitru sungu
skaparanum lof fullum rómi, en
hinir heyrðu naumast til þeirra og
gerðu marga vonda hluti. Þá voru
hinir vitru settir í hola tréstokka,
en heiminum eytt í vatnsflóði. Úr
stokkunum gerðu þeir síðan fléka,
en nú urðu þeir að leita lengi, þar
til þeir fundu land, þar sem bú-
izt varð um í hinum fjórða heimi.
Þessi heimur var ekki eins blíð-
ur og hinir fyrri. í honum skipt-
ist á gróið og blásið land, og nú
áttu mennirnir það undir sjálfum
sér, hvað úr honum yrði. Þeir
máttu samt treysta handleiðslu
skaparans, ef þeir héldu opnu sam-
bandi við hann um mjúka blettinn
á hvirflinum. Mennirnir áttu að
reika um allan heim, en fá að lok-
um fastan samastað.
Það var í upphafi liins fjórða
heims, segja Hópí-Indíánar, að
þeim voru fengnar fjórar stein-
töflur, sem á voru rituð á mynd-
máli fyrirmæli um, hvernig fjórar
meginkynkvíslarnar ættu að reika
um heiminn. Á töflu kynkvíslar
eldsins stóð líka, að eftir að þeir
kæmu til síns heimkynnis, myndi
koma ókunnur þjóðflokkur og
sigra þá. Þeir yrðu neyddir til að
yrkja land sitt og búa samkvæmt
skipun hins nýja herra: Annars
yrði farið með þá sem afbrota-
menn. En þeir máttu ekki veita
andspyrnu, heldur bíða hans. sem
myndi frelsa þá.
Sá, sem átti að frelsa þá, var
hinn týndi. hvíti bróðir, Páhana.
En hann mun koma og færa þeim
horn, sem brotið hefur verið af
steintöflu þeirra. Eftir komu hans,
þegar hann er búinn að frelsa þá
undan ofríki aðkomumanna, munu
þeir saman vinna að því að skapa
bræðralag allra manna. En ef for-
ingi kynkvíslarinnar lætur glepj-
ast af öðrum trúarbrögðum, þá á
hann að láta hálshöggva sig, og sú
fórn mun frelsa þjóð hans frá illu.
Hinar þrjár steintöflurnar fengu
höfðingjar úr Bjarnar-ættkvíslinni,
sem átti að vera fyrir hinum ætt-
kvíslunum í fjórða heimi. Nú átti
Framhald á 718. sí8o.
704
T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ