Íslendingaþættir Tímans - 06.07.1971, Qupperneq 5
ill enda stórt heimili um að sjá.
Þó Friðrika sinnti félagsstörfum
nokkuð var þó heimilið hennar
starfsvangur fyrst og fremst. Hún
var stolt af því að vera bóndakona,
taldi sér sóma að því að vera hús-
móðir í sveit. Hún unni mjög sveit
sinni og vildi veg liennar sem
mestan. Kotungsbragur var fjarri
skaplyndi hennar og þótt stund-
um muni þröngt hafa verið í búi
og húsakynnin í gamla bænum
ekki mikil lét hún slíkt ekki á sig
fá. '
Friðrika var ein af þeim konum
sem menn bera kvrrláta virðingu
fyrir, konum sem í kyrrþei en af
festu liafa helgað alla krafta sína
uppbyggingu sveitanna með trú á
gildi þeirra fyrir framtíð lands og
þjóðar.
í fáum störfum nútímans er
meira jafnrétti karls og konu en
í búskapnum. Þó verkaskipting sé
þar glögg er þa” þó meiri sam-
vinna en i flestu öðru þar sem öll
vinnan, innan húss og utan, miðar
að einu marki, framleiðslu búsins.
Reykjadalur er með búsældar-
legri sveitum í Þingeyjarsýslu. Bú-
sæld hefur aukizt þar sem víða
annars staðar með bættum sam-
göngum og aukinni tækni. Hvor
tveggja þetta hélt innreið sína í
þennan fagra dal í lífi Friðriku.
Hún sá býlin stækka og velmegun
aukast.
Árið 1950 höfðu Jón og Frið-
rika reist nýtt og myndarlegt íbúð
arhús á jörð sinni og voru það
vissulega mikil umskipti fyrir hús
móðurina. Nú var aðstaðan orðin
nokkuð önnur en var á fyrstu bú-
skaparárunum á Halldórsstöðum.
Á Halldórsstöðum voru öll börnin
6 fædd. Nú voru þau flest upp-
komin.
Árið 1952 hófu Jón og Friðrika
félagsbúskap með Valgerði dóttur
sinni og tengdasyni. Friðrika naut
þessara samvista. Hún hafði mikið
yndi af barnabörnunum og hafði
gott lag á því að búa í félagsskap.
Hamraheimilið liefur haft mikið
aðdráttarafl fyrir börn Friðriku og
barnabörn og hefur mér alltaf
fundizt fjölskylduböndin þar
óvenju sterk. Ég held að þar hafi
hvað mest orkað hið hlýja viðmót
Friðriku. sem fannst sjálfsagt að
Hamrar væru hið sameiginlega
heimili allrar fjölskyldunnar og
þar væri sjálfsagt að bjóða alla
gesti velkomna.
Við gamla Hamrahúsið var snot-
ur garður xneð gróskumiklum
reynitrjám. Það var yndi Friðriku
að annast þennan garð. Hún var
unnandi fegurðar og sýndi það
ekki sízt í umgengni sinni við jurt-
irnar. Þegar gamli bærinn var rif-
inn gerði hún sér annan unaðs
reit. í hlíðinni suður af bænum
girti bóndi hennar landsspildu til
skógræktar. Þar var og er nú fag-
ur reitur margs konar trjáa. Þang-
að var Friðriku tíðförult. Reitur
þessi var hennar eftirlætisstaður,
þar sem hún undi sér við að hlúa
að nýgræðiiignum. Hún var alin
upp á einum fegursta stað í Reykja
dal — örskot fra Vestmannsvatni
og Vatnshlíð með sínum fallega
skógi. Nú var hún að skapa sína
„Vatnshlíð“ þó í smækkaðri mynd
væri heima á Hömrum.
Friðrika átti í lífinu miklu láni
að fagna þó margir erfiðleikar hafi
orðið á vegi hennar. Hún eignaðist
tryggan lífsförunaut. hinn ágæt-
asta mann, sem með dugnaði og
elju skóp með henni það heimili
sem ég hef að nokkru reynt að
F. 21.4. 1903.
D. 3.5. 1971.
Þótt kveðji vinir einn og einn
og aðrir týnist mér,
ég á þann vin, sem ekki bregst
og aldrei burtu fer.
Þetta látlausa vers Margrétar
Jónsdóttur, skáldkonu kom mér
í hug, er ég frétti hið sviplega frá-
fall Guðmundar Sigurjónssonar.
húsasmiðs Urðarstíg 7, Hafnarfirði.
Ég er einn þeirra mörgu. sem
finnst auðara og snauðara í
kringum mig, er sá góði og tryggi
vinur er horfinn af sjónarsviðinu,
því svo reyndist mér hann jafnan.
Ef ég fór eitthvað út úr bænum,
þá var það með Guðmundi, með
honurn var ég óttalaus og öruggur.
Já, Guðmundur var sannar-
lega gæðadrengur, þann vitnisburð
báru lionum undantekningalaust
allir samferðamenn hans, hvort
lýsa. Friðrika átti margt fræník fcg
vina allt í kringum sig í sveitinhí.
Barnalán Hamrahjóna var mik-.
ið. Börnin þeirra eru: Sigrún, hús-
freyja á Rangá í Köldukinn, gift
Baldvini Baldurssyn: Jón Aðal-
steinn, rnúrari á Laugum, kvænt-
ur Elínu Ingu Jónas'dóttur, Sigríð-
ur, húsfreyja á Fáskrúðsfirði, gift.
Kára Jónssyni, Valgerður, hús-
freyja á Hömrum, gift Benóný Arn
órssyni, Unnur, húsfreyja á Húsa-
vík. gift Helga Vigfússynj og Þór-
dís, húsfreyja að Hámraborg, gift
Illuga Þórarinssyni. Friðrika lézt
eftir skamma legu en hafði átt við
heilsuleysi að stríða síðustu ár.
Myndin sem hér fylgir var nýlega
tekin at Friðriku.
Ég vil að endingu þakka Filð-
riku fyrir góð kynni og margar
ánægjustundir heima á Hömrum.
Við hjónin sendum eiginmanni.
börnum, tengdabörnum og barna-
börnum okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Kári Arnórsson.
sem þeir höfðu verið með hon-
um á sjó eða landi, en sjómennsku
stundaði Guðmundur framan af
ævinni, en lærði trésmíðar hjá Jó-
hannesi Reykdal á Setbergi, er
hann fór að þreytast á sjónum. Eft-
ir það stundaði Guðmundur siníðar
NNIN
GUÐMUNDUR SIGURJÚNSSON,
HUSASMIÐUR
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
5