Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. STÆRÐ OG ARÐSEMI Í SJÁVARÚTVEGI Athyglisverðar upplýsingarkomu fram í máli Yngva Arn-ar Kristinssonar, fram- kvæmdastjóra verðbréfasviðs Lands- bankans, á ráðstefnu Kauphallar Íslands um sjávarútveginn í fyrra- dag. Yngvi Örn sagði að upplýsingar um rekstur sjávarútvegsfyrirtækja bentu ekki til stærðarhagkvæmni í sjávarútveginum, að því leyti að arð- semi stórra fyrirtækja væri ekki endilega meiri en þeirra smærri. Miklu meira máli skipti að fyrirtækið væri af réttri stærð miðað við veiði- heimildir sínar og stillti sig inn á þær, bæði hvað veiði og vinnslu varðaði, en að það stækkaði mjög mikið. Yngvi Örn benti ennfremur á að skipulag íslenzks sjávarútvegs væri sérstakt; hér væru dreifð útgerðar- og vinnslufyrirtæki, sem hefðu verið í samstarfi um sölu og framleiðslu er- lendis, en í sjávarútvegi annarra landa væri meira um „lóðrétta“ sam- þættingu fyrirtækja, allt frá veiðum til sölu afurðanna í verzlanir. Yngvi Örn sagði að 2–4 sjávarútvegsfyrir- tæki hér á landi væru nú komin að kvótaþaki því, sem lög kveða á um. Eignatengsl milli sjávarútvegs- og sölufyrirtækja hefðu verið rofin. Til framtíðar yrði lykilatriði fyrir sölu og framleiðslu sjávarafurða erlendis að tryggja aðgang að hráefni. Það væri því vel hugsanlegt að mestur styrkur í sjávarútvegi fengist með samruna stærstu sjávarútvegsfyrirtækjanna og sölufyrirtækjanna. Þetta eru athyglisverð sjónarmið. Augljóst er að hjá Samherja hf. hefur „lóðrétt“ samþætting átt sér stað með góðum árangri, þar sem fyrir- tækið sér að mestu leyti sjálft um sölu allra sinna afurða og selur nú einnig afurðir frá öðrum. Það liggur í augum uppi að á þessu sviði felast verulegir vaxtarmöguleikar fyrir stærstu sjávarútvegsfyrirtækin – og auðvitað einnig í fiskvinnslunni, þar sem engar hömlur eru á hámarkshlut einstakra fyrirtækja, eins og Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra benti á í ræðu sinni á ráðstefnunni. Sjávarútvegsráðherra sagði þar jafnframt að kvótaþakið hefði verið einn liðurinn í því að ná sátt við þjóð- ina um lögin um stjórn fiskveiða. Það er út af fyrir sig rétt; í núverandi stöðu myndi almenningur ekki sætta sig við að örfá stór fyrirtæki réðu nánast alveg auðlindinni, sem er lög- um samkvæmt sameign þjóðarinnar. Morgunblaðið hefur hins vegar bent á það, að greiðsla sanngjarns gjalds fyrir réttinn til að nýta auðlindina væri forsendan fyrir því að afnema kvótaþakið og hvers kyns hömlur á framsal kvóta. Mikilvægt skref hefur verið stigið í þá átt með lögfestingu veiðigjaldsins. Það nemur þó enn ekki þeim fjárhæðum, að sátt gæti skapazt um afnám kvótaþaksins. Þær upplýsingar, sem fram komu á ráð- stefnu Kauphallarinnar, benda til þess að þrátt fyrir það séu verulegir vaxtarmöguleikar í sjávarútveginum – og að það sé jafnvel ekki svo eft- irsóknarvert fyrir sjávarútvegsfyrir- tækin að ráða yfir miklu meiri kvóta en þau gera í dag. TUNGAN OG TÆKNIN Tungutækniverkefnið, sem hrundiðvar af stað 1998 og lýkur um ára- mótin, er eitthvert merkilegasta verkefni sem unnið hefur verið í þágu íslenzkrar tungu. Í Morgunblaðinu í gær er rætt við Rögnvald Ólafsson dósent, sem stýrt hefur verkefninu frá upphafi. Þar kemur fram að verk- efnið hefur ekki sízt falizt í því að búa til gagnagrunna, sem eru forsenda þess að hægt sé að kenna tölvum að tala og skilja íslenzkt talmál. Þetta atriði skiptir gríðarlega miklu máli fyrir framtíð íslenzkrar tungu. Eins og fram kemur í viðtalinu við Rögnvald má gera ráð fyrir að í náinni framtíð hlýði æ fleiri tæki raddskipunum. Á sviði fjarskipta- tækni má sömuleiðis gera ráð fyrir að fólk noti í vaxandi mæli talmál til að sækja sér ýmiss konar rafrænar upp- lýsingar í gegnum síma. Það liggur í augum uppi að ef sá búnaður, sem hér um ræðir, skilur ekki íslenzku verða Íslendingar að nota önnur tungumál – væntanlega einkum ensku – til að nota hann. Og í ljósi þess að tækni af þessu tagi mun væntanlega ryðja sér mjög til rúms og verða hluti af okkar dag- lega lífi verður varla of mikið gert úr mikilvægi þess að hægt sé að laga hana að íslenzku máli. Tungutæknin mun að öllum líkind- um auðvelda okkur daglegt líf. Hún getur líka stuðlað að því að auka lífs- gæði fatlaðra, sem geta ekki stjórnað ýmsum tækjum og tólum með hefð- bundnum hætti, en gæti nú gefizt kostur á að gera það með röddinni. Sumar fyrstu afurðir tungutækninnar eru nú þegar farnar að gagnast blind- um og sjóndöprum – fréttasími mbl.is, þar sem talgervill les upp fréttir af fréttavef blaðsins, er dæmi um slíkt. Rögnvaldur Ólafsson bendir á at- hyglisverða staðreynd, sem kemur vafalaust mörgum á óvart, í ljósi þess hversu mikla áherzlu Íslendingar hafa lagt á að vernda móðurmálið; að málfræðiþekking og gagnagrunnar um tunguna og orðin hafi verið af skornum skammti hér á landi. „Þegar kom svo að talmálinu var bókstaflega ekkert til … Þekking okkar á töluðu máli var mun minni en gerðist í öðrum löndum. Því var nauðsynlegt að byggja upp talgrunna sem fyrirtæki gætu nýtt í tungutækniverkefni, án þess að þurfa að vinna alla fræðilegu grunnvinnuna.“ Tungutækniverkefn- ið hefur með öðrum orðum orðið til þess að hér hefur byggzt upp þekking á íslenzku talmáli, sem mun koma að notum á öðrum sviðum málfræðinnar, burtséð frá notagildi hennar í þágu tungutækninnar. Rögnvaldur segist binda vonir við að tungutæknin höfði til ungs fólks, sem vilji hafa ögrandi verkefni að glíma við, og segist hafa trú á að í framtíðinni muni fleira ungt fólk fá brennandi áhuga á málfræði. Það er sennilega rétt, a.m.k. liggur nú í aug- um uppi að málfræðiþekking hefur beint hagnýtt gildi í hinum hraðvax- andi tölvu- og upplýsingatæknigeira. Nýir fundir eða viðræðurmilli eigenda Lands-virkjunar hafa ekki ver-ið boðaðir og skiptast þeir nú á skoðunum á opinberum vettvangi. Viðræður um kaup ríkis- ins á hlutum meðeigenda sinna eru aðallega til komin vegna áhuga þeirra á að hverfa úr eigendahópn- um, einkum innan Reykjavíkur- borgar, og einnig þeirrar staðreynd- ar að nýtt fyrirkomulag tekur gildi um næstu áramót í framleiðslu og sölu á raforku hér á landi. Frá þeim tíma geta aflmældir og stærri not- endur valið sér raforkusala en einn- ig tekur til starfa nýtt flutningsfyr- irtæki í eigu orkufyrirtækjanna sem dreifa mun orkunni um landið. Vegna þessara breytinga hafa eignatengsl Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur verið talin óheppileg og af sumum óviðunandi, með Reykjavíkurborg sem stóran eiganda í orkufyrirtækjum í sam- keppnisumhverfi. Áður en forsaga samningavið- ræðna er rakin er rétt að rifja stutt- lega upp að Landsvirkjun var stofn- uð árið 1965 af ríkinu og Reykjavíkurborg. Átti hvor aðili um sig helming í fyrirtækinu og sem stofnfé lögðu eigendur til fjármuni, Sogsvirkjun, gufuaflsstöðina í Elliðaárdal og virkjunarréttindi í Þjórsá. Lagði ríkið til Sogsvirkjun til helminga á móts við borgina, ekki borgin að öllu leyti eins og skilja mátti af frásögn blaðsins af sölumál- inu í gær. Með stofnun Landsvirkjunar var það hugsunin að reka raforkukerfið og byggja virkjanir út frá viðskipta- sjónarmiði, eins og það er orðað á vef fyrirtækisins. Akureyrarbær kom svo inn í Landsvirkjun árið 1983 vegna Laxárvirkjunar í Aðal- dal og eignaðist um 5% hlut í fyr- irtækinu. Hlutur ríkisins var áfram um 50% en hlutur Reykjavíkurborg- ar tæp 45%. Fór í gang fyrir átta árum Umræður og áform um breyting- ar á eignarhaldi og rekstrarformi Landsvirkjunar má rekja aftur til ársins 1996, þegar sameignarsamn- ingi fyrirtækisins var breytt með samkomulagi í október það ár. Við sama tækifæri var arðgjafar- og arðgreiðslumarkmiðum Lands- virkjunar breytt þar sem ýmis stjórnunarleg atriði voru endur- skoðuð í því skyni að líkja betur eftir hlutafélagaforminu. Eigendanefnd- in „hin fyrri“ vann m.a. að breyt- ingum á sameignarsamningi ríkis- ins, Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar og fór ásamt ráð- gjöfum sínum hjá fyrirtækinu JP Morgan yfir kosti þess og galla að breyta Landsvirkjun í hlutafélag og minnka eða afnema eigendaábyrgð- ina. Niðurstaðan varð hins vegar sú að gera engar breytingar á rekstr- arforminu og ákveðið var árslok 2003 skyldi fara fra skoðun á sameignarsamnin Undir lok þess tímabils ræða vaxandi innan Rey borgar um möguleika á hlutinn í Landsvirkjun. sagði Ingibjörg Sólrún Gí þáverandi borgarstjóri, borgarstjórnar í desember sennilega hefði aldrei ge tími en þá til þess að sel 44,5% hlut borgarinnar. S ismenn í minnihluta voru e skoðunar, töldu Land traustustu eign borgari mæltu frekar með hlutafé ingu fyrirtækisins. Um sv setti borgin á fót svonefn stefnunefnd og skilaði hún lögum sl. vor. Þar var meg sú að borgin hyrfi út úr La un, m.a. með því að hún fe af eignum eins og í Sogsvi Hlutafélagaleiðin var nefn talin raunhæf meðan á fram um við Kárahnjúka stæði. Hlutafélagavæðing Kárahnjúkavirkju Um síðustu áramót tó komulag milli eigenda La unar um að skipa nýja Breytt eig hefur lengi Fréttaskýring | Áform um að ríkið kaupi út hluti Reykjavíkur- borgar og Akureyr- arbæjar í Landsvirkjun eru nú komin í hámæli eftir að hætt var við undirritun viljayfirlýs- ingar á þriðjudag. Björn Jóhann Björns- son kynnti sér forsögu þessara viðræðna. Tekist er á um það hvernig framkvæma eigi sölu á hlut Reykjaví til ríkisins. Hér er stöðvarhús Búrfellsvirkjunar, fyrsta stórfram Alfreð Þorsteinsson, formað-ur borgarráðs og stjórn-arformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir það vera fyrri hugmyndir borgarinnar, m.a. hjá sér og Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur, fv. borgarstjóra, að borg- in taki mögulega til sín Sogs- virkjanir, en sú krafa hafi ekki verið uppi á borðum í viðræðum við ríkið um kaup á hlutum með- eigenda þess í Landsvirkjun. Ekki hafi staðið til að taka út eignir Landsvirkjunar, heldur aðrar eignir ríkisins. Gagnrýnir hann aðkomu ríkisins að málinu á síðustu dögum. Alfreð segir málið vera tví- þætt. Hann segir það „augljóst“ að nokkrar lóðir, lendur og fast- eignir geti komið til eignaskipta milli ríkisins og borgarinnar. Nefnir hann þar sem dæmi Keld- ur, Keldnaholt og flugvall- arsvæðið í Vatnsmýri, þar sem ríkið á landið undir flugbraut- unum. „Í öðru lagi eru menn að velta fyrir sér hver verði staðan á raforkumark- aðnum, ef það geng- ur eftir sem ríkið var að biðja okkur um, þ.e. að gera ekki athugasemdir við að Orkubú Vestfjarða og Rarik gengju inn í Landsvirkjun. Þá var það nefnt að Orkuveitan hefði verið með starfsemi, bæði í Borgarfirði og fyrir austan fjall, og selt þar heitt vatn. Þar hefur verið uppi krafa frá sveitarstjórnarmönnum og íbúum um að Orkuveitan kæmi inn á svæðið með afhendingu á rafmagni. Þess vegna var því velt upp í viðræðunum að skoða þann möguleika að Orkuveitan kæmi að málinu með þessum hætti, í tengslum við söluna á hlut borg- arinnar í La virkjun. Þett umræða sem greina varða eignakaup, v um ekki að t að taka eign Landsvirkjun Alfreð. Slagsíð skapa Hann bend Landsvirkjun þessa einkum heildsöludre raforku. Með Rarik og Or Vestfjarða gangi inn í La virkjun, sé fyrirtækið kom þriðjungshlutdeild í smás raforku. Fyrir sé Landsvi með 85% af framleiðslu á í landinu. „Þá veltir maðu sér hvort ekki sé að skap þarna ákveðin slagsíða og kæmi til greina að hluti a Formaður borgarráðs og stjórnarformaður OR gagn Alfreð Þorsteinsson Krefst annarra eigna e
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.