Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 57 TALANDI um að vera byrðum hlaðinn, þessi plata hefur auðvitað aldrei átt möguleika. Um er að ræða frægustu „týndu plötu“ sögunnar, plata sem Brian Wil- son, þá meðlimur í Beach Boys, samdi gagngert sem sitt meistaraverk og ætlaði að skáka Sgt. Pepper... Bítlana hvorki meira né minna. Wilson náði hins vegar aldrei að ljúka verkinu sökum bágrar andlegrar heilsu. Smile hefur safnað ryki síð- an en goðsögnin í kringum hana styrkst í áranna rás – þar til nú. Getur það virkilega verið að Smile væri talin besta plata dæg- urlagasögunnar ef vindar hefðu blásið meira í átt til Wilson á sín- um tíma? Hin svökölluðu „hvað ef ...“ vangaveltur eru hæpin en snilld Pet Sounds (1966), sem sannarlega telst eitt það allra besta, ef ekki það besta, sem dæg- urtónlistin hefur gefið af sér, hef- ur eðlilega ýtt undir svona hug- gælur. Flestir gagnrýnendur hafa valið að lýsa því yfir að hér sé á ferð- inni óskorað meistaraverk. Við lestur dóma um plötuna hefur maður engu að síður óþyrmilega á tilfinningunni að goðsögnin um Smile hafi gefið plötunni sem hér er til umræðu (hinni opinberu Smile) ákveðna forgjöf. Því að platan sem hér er til umræðu er auðvitað ekki „Smile“, þessi heil- agi kaleikur sem tónlistarnerðir þessa heims hafa burðast með í hausnum í hartnær fjóra áratugi. Sú plata kom aldrei út og mun aldrei koma út. Til að hagræða hlutum í þá áttina þyrfti tímavél. En hvernig er þessi plata, hin opinbera Smile sem Wilson kláraði loks í ár? Skemmst frá að segja er þetta stórkostleg plata, og maður er orðlaus yfir hugmyndafræðinni og hreinlega metnaðinum sem liggur að baki verkinu. Ég er ekki hissa á að Wilson hafi brotnað á sínum tíma. Wilson hugsaði Smile sem eina heild og það tekur nokk- urn tíma að sökkva inn í plötuna en eftir þetta sex, sjö hlustanir er ekki hægt annað en að hrífast með. Það sem hægt er að setja út á er að rödd Wilson er pínu veik og svo saknar maður að sjálfsögðu radda upprunalegu Beach Boys en platan innheldur nýjar hljóðritanir og nýja söngvara. Wilson hefur þá hnikað til stöku texta og útsetn- ingum í þekktum lögum og það pirrar mann stundum (sérstaklega hvað „Good Vibrations“ varðar). Smile er því frábær plata, hvernig svo sem á það er litið. En hvað ef ... Meistara- verk? TÓNLIST Erlendar plötur Brian Wilson - Smile  Arnar Eggert Thoroddsen Á NÆSTA ári verður frumsýnd í dönsku sjónvarpi dönsk útgáfa af þættinum Lærlingnum (The Apprentice), veruleikaþætti sem viðskiptajöfurinn Donald Trump hefur stýrt með góðum árangri. Heitir þátturinn Hyret eller fyret eða Ráðin(n) eða rekin(n). Þátturinn gengur út á það að lið keppa sín á milli um hver nær betri árangri í einhverjum við- skiptaþrekraunum en Trump sker svo úr um hvort fólk er „rekið eða ráðið“. Það er danski viðskipta- mógúllinn Klaus Riskær Pedersen sem sér um þessa hluti í dönsku útgáfunni. Flugfélagið Iceland Express mun leika stórt hlutverk í vænt- anlegri þáttaröð þar sem eitt keppnisliðið, en liðin eru tvö og hafa á að skipa þremur mann- eskjum, brá á það ráð að kaupa hópferð til Íslands hjá Iceland Ex- press í þeim tilgangi að hagnast á því. Niðurstaðan varð sú að Iceland Express útvegaði pakkaferð og liðið bætti síðan við dönskum fyr- irlesara og seldi pakkann sem hvata- og fræðsluferð. Það kemur svo í ljós í febrúar hvort þetta úrspil hópsins reyndist happadrjúgt. Sjónvarp | Iceland Express í danskri útgáfu Lærlingsins Ráðin(n) eða rekin(n) Klaus Riskær Pedersen er hinn danski Donald Trump. Leikkonan Lucy Liu mun taka aðsér hlutverk í nýjum þáttum Matt LeBlanc, sem lék Joey í Vinum, en þættirnir sem nefnast Joey fjalla um líf hans og leikferil í Hollywood. Liu, fór með hlutverk í Kill Bill- myndunum og lék á sínum tíma í þáttunum um Ally McBeal. Hún hefur skrifað undir samning um að taka að sér gestahlutverk í að minnsta kosti tveimur þáttum. Þar mun Liu, sem er 36 ára, leika hvassyrtan sjónvarpsþáttaframleið- anda. Drengirnir dagfarsprúðu í Bustedsegjast vera orðnir hundleiðir á þeirri iðju kvenkynsaðdáenda þeirra að sýna þeim brjóstin á sér á tón- leikum. Þeir Matt Jay, Charlie Simp- son og James Bourne segjast í sann- leika sagt orðnir leiðir á að horfa upp á stelpur bera sig á þennan hátt og að það trufli einbeitingu þeirra. „Okkur datt ekki hug að nokkur gerði svona lagað og okkur krossbrá þegar við sáum það fyrst. En nú er- um við bara farnir að hugsa – hei sjá- ið, þarna er ein á brjóstunum,“ segir Matt. „Stelpur vilja meira að segja að við áritum á þeim brjóstin, sem er algjört rugl.“ Fólk folk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.