Morgunblaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 47 Móðir Kristínar var OddnýÁsgeirsdóttir, fædd aðLundum í Stafholts-tungum í Borgarfirði árið 1865. Faðir hennar var Ásgeir Finnbogason, bóndi og bókbindari að Lambastöðum á Seltjarnarnesi og síðar á Lundum. Móðir hennar var Ragnhildur Ólafsdóttir frá Bakkakoti í Bæjarsveit. Ásgeir var tvíkvæntur; með síðari konunni, Ragnhildi, átti hann auk Oddnýjar, Sigríði, síðar húsfreyju í Hjarðarholti í Stafholtstungum, móð- ur Áslaugar, eiginkonu Ingvars Vil- hjálmssonar, útgerðarmanns í Reykjavík, og Guðrúnu, sem giftist Finni Jónssyni frá Melum í Hrúta- firði. Þau fluttu til Kanada á síðari hluta 19. aldar. Barnabarn þeirra er Jón Ragnar Johnson, lögmaður og ís- lenskur konsúll í Toronto í Kanada. Ragnhildur Ólafsdóttir er einnig tvígift; fyrri maður hennar var Ólafur Ólafsson, bóndi á Lundum í Staf- holtstungum. Þeirra börn voru Ragn- hildur, síðar húsfreyja í Engey, móðir Guðrúnar og Ragnhildar Péturs- dætra; svo og Ólafur, faðir Ragnars Ólafssonar, hrl. Faðir Kristínar var Hinrik Jóns- son, fæddur árið 1858 á Mosvöllum í Önundarfirði. Foreldrar hans voru Jón Jónsson, bóndi á Mosvöllum, og kona hans Ingibjörg Pálsdóttir. Systkini Hinriks voru þrjú, þar á meðal Jóna Kristín, sem flutti til Kanada árið 1903. Hinrik stundaði framan af ævi sinni á Íslandi sjómennsku. Á þessum árum missti hann vinstri handlegginn í slysi. Sneri hann sér síðar að kaup- mennsku og stofnaði ásamt öðrum verslun í Borgarnesi. Á þeim árum kynntist hann Oddnýju og gerðust þau heitbundin. Verslunin eyðilagðist í bruna og ákváðu þá hjónaleysin að flytjast til Vesturheims. Haldið til Vesturheims Hinrik sigldi vestur árið 1886 og Oddný sté um borð í skip í Reykjavík 18. júní 1888, þá 23 ára. Þau giftust síðan í Winnipeg 19. september 1888. Við komu Hinriks til Kanada keypti hann hús í Winnipeg og notaði það tímabundið sem bráðabirgðahús- næði fyrir íslenska innflytjendur til Kanada. Síðar keypti hann land, ekki langt frá Winnipeg, bjó það undir ræktun og nefndi bæinn Lundar eftir fæðingarstað Oddnýjar. Hinrik var annar landneminn þar og gerðist einnig fyrsti póstmeistarinn á staðn- um. Lífsbaráttan var erfið þarna enda jörðin harðbýl. Þau fluttu frá Lundar árið 1891 til þess að freista gæfunnar frekar og fluttu út á slétt- urnar miklu. Flóð og plága hröktu þau þaðan og fluttu þau sig enn um set og nú eins langt vestur og járn- brautin náði. Nokkrum mánuðum síðar fluttu þau til Ebor í vesturhluta Manitoba, þar sem þau stunduðu bú- skap í stærra mæli en áður. Þar bjuggu þau í 44 ár. Síðustu æviárin bjuggu þau í Winnipeg. Hinrik lést þar árið 1946 og Oddný árið 1953. Hinrik kom aldrei aftur til Íslands en Oddný heimsótti föðurlandið árið 1947 í fyrstu ferð Loftleiða yfir Atl- antshafið frá Bandaríkjunum. Á minnisvarða til minningar um Oddnýju stóð, að hennar væri minnst sem kletts sem geislaði af orku og gleði. 11 börn í Kanada Oddný og Hinrik eignuðust 11 börn á árunum 1889 til 1910. Yngsta barnið Alvin Bergur lést 2ja ára. Öll hin 10 náðu fullorðinsaldri og urðu duglegir þegnar hins nýja föður- lands, Kanada. Búa afkomendur þeirra allra, nema Kristínar, vítt og breitt um Bandaríkin og Kanada. Kristín Sigríður fæddist í Ebor 31. janúar 1905. Hún var áttunda í röð barna Oddnýjar og Hinriks. Hún ólst upp í Ebor, gekk þar í barnaskóla, gekk síðan í skóla í Calgary, þar sem hún lauk verslunarprófi og prófi frá íþróttaskóla. Hún minntist þess, að þegar hún mjög ung gekk á milli heimilis og skóla í Ebor, var henni ekki sama, þegar hún heyrði úlfana ýlfra. Ekki þýddi að kvarta enda herti lífið þau til þess að takast á við viðfangsefni framtíðarinnar. Kristín sérhæfði sig í listdansi, skautaíþrótt og sundkennslu. Þessu bjuggu t.d. dætur okkar Oddnýjar að, enda voru þær aðeins 3ja ára gamlar þegar þær voru orðnar syndar, eftir að hafa kynnst kennslu ömmu sinnar. Kristín ferðaðist mikið um Banda- ríkin og Kanada á yngri árum og starfaði meðal annars við íslensku deildina á heimssýningunni í New York árið 1939. Ragnar Ólafsson, lögfræðingur, var við nám í endurskoðun í New York í Bandaríkjunum á árunum 1938 til 1939. Á ferðalagi þar í landi kom hann til Seattle á vesturströnd- inni. Í húsi barna Jónu, systur Hin- riks, hittust þau í fyrsta skipti, Krist- ín og Ragnar, og felldu strax hugi saman. Ragnar var sonur hjónanna í Lindarbæ í Holtum, Ólafs Ólafsson- ar, búfræðings og bónda, og konu hans Margrétar Þórðardóttur, Guð- mundssonar, bónda og alþingis- manns á Hala í Holtum. Flutt til Íslands Kristín flutti til Íslands í byrjun stríðsins og giftust þau Ragnar 1. júní 1940. Þeim varð fjögurra barna auðið, tvisvar sinnum tvíbura. Ólafs Hinriks, hrl., maki Jóhanna María Lárusdóttir, kennari; Oddnýjar Mar- grétar, hjúkrunarfræðings, maki Hrafnkell Ásgeirsson hrl., Kristínar Ragnhildar, meinatæknis, maki Geir Arnar Gunnlaugsson, framkvæmda- stjóri, og Ragnars Ragnarssonar, verkfræðings, maki Dóra Steinunn Ástvaldsdóttir, kennari. Það kostaði mikla vinnu að eignast á 3 árum tvíbura í 2 skipti. Kristín stóðst það með prýði, enda naut hún þess, að þau Ragnar voru frænd- og vinamörg. Þau voru gestrisin og var heimili þeirra ekki síst opið fyrir Vestur-Íslendinga. Um 17. júní ár hvert komu hópar þeirra að vestan til þess að heimsækja gamla landið. Naut Kristín þess að aðstoða þetta fólk og hjálpa því, ekki síst við að finna ættingja þeirra hér heima. Ætt- ingjar hennar og vinir að vestan heimsóttu þau hjón gjarnan og dvöldu oft hjá þeim svo mánuðum skipti. Eitt skipti kom frændi að vest- an sem hafði unnið sem verkfræðing- ur í Íran ásamt eiginkonu og 8 börn- um. Það var ekkert mál hjá henni að koma fólkinu fyrir, meðal annars var hluta fjölskyldunnar útbúin rúm í bíl- skúrnum. Þau hjón voru mjög félagslynd og áttu meðal annars þátt í að stofna Ís- lensk-ameríska félagið og var Ragn- ar í fyrstu stjórn þess. Þá stofnaði Kristín Íslensk-ameríska kvenna- klúbbinn eftir að hún kom til Íslands og var lengi þar í forystu. Hún átti einnig aðild að „International Club“ kvenna á Íslandi. Kristín stjórnaði miklu menning- arheimili af myndarskap. Þau ferð- uðust mikið um heiminn hjónin. Hún var heimskona sem vakti alls staðar athygli þar sem hún fór. Ragnar lést árið 1982. Kristín syrgði hann mikið og sagði við lát hans, að hún hefði verið gift besta manni í heimi. Þau voru mjög miklir félagar hjónin. Kristín ferðaðist töluvert eftir lát Ragnars, ekki síst til ættingjanna fyrir vestan og tók það gjarnan lang- an tíma að heimsækja hinn stóra frændgarð en alls staðar var hún au- fúsugestur og tekin opnum örmum, enda hin þægilegasta að öllu leyti. Kristín lést 25. mars 1995, níræð að aldri. Grænir fingur Kristín var með „græna fingur“. Hún hafði ræktað afar fallegan garð á heimili sínu og var vel heima í öllu sem snerti tré, runna, blóm og önnur ræktunarstörf. Ættingjar hennar fengu úthlutað reit í Heiðmörk að henni látinni, sem ber nafnið Krist- ínarlundur. Þar eru mættir að vori af- komendur sem blanda saman geði og planta trjám í minningu hennar. Afkomendur Kristínar eru 20, 4 börn, 11 barnabörn og 5 barnabarna- börn. Rétt er þar að hafa í huga, að Kristín og systkini hennar voru ekki fljót til þess að stofna til hjúskapar, hún 35 ára, systur hennar Ingibjörg (Inga) 51 árs og Lára 81 árs. Til að minnast Kristínar og for- eldra hennar munu börn hennar, makar og barnabörn hittast í Borg- arleikhúsinu í enda þessa mánaðar til þess að sjá leikritið Híbýli vindanna. Er ekki að efa, að leikritið muni minna á lífshlaup Oddnýjar Ásgeirs- dóttur og Hinriks Jónssonar. Reykjavík, 16. janúar 2005. Frá hægri: Ragnar, Kristín, Oddný og Ólafur Ragnarsbörn. 27 farþegar komu með fyrstu farþegavélinni, sem lenti á Reykjavíkurflugvelli í júní 1947 eftir rúmlega tíu stunda flug frá Gander-flugvelli á Nýfundnalandi, Oddný Ásgeirsdóttir, móðir Kristínar, þar á meðal. Kristín S. Hinriksdóttir Ólafsson – 100. ártíð Á morgun, 31. janúar, eru liðin 100 ár frá fæðingu Kristínar Sigríðar Hinriks- dóttur, eiginkonu Ragnars Ólafssonar, hæstaréttarlög- manns og löggilts endur- skoðanda. Saga hennar er sérstæð og er vissulega inn- legg í umræður og skrif um vesturferðir Íslendinga á 19. öld. Hrafnkell Ásgeirsson rifjar upp sögu Kristínar. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Kristín og Ragnar Ólafsson. Ragnar og Kristín giftast. Brúðkaupsveislan var haldin á Háteigi, heimili Ragn- hildar Pétursdóttur og Halldórs Þorsteinssonar. Kristín í skautbúningi. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.