Morgunblaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lífeyrissjóður lækna og Almenni lífeyrissjóðurinn boða til sjóðfélagafunda þar sem tillögur um sameiningu sjóðanna verða kynntar. Sjóðfélagafundur Lífeyrissjóðs lækna verður þriðjudaginn 15. mars í Ársal Hótel Sögu kl. 17.15. Sjóðfélagafundur Almenna lífeyrissjóðsins verður fimmtudaginn 17. mars í Ársal Hótel Sögu kl. 17.15. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta. Stjórnir Lífeyrissjóðs lækna og Almenna lífeyrissjóðsins. Félagar í Lífeyrissjóði lækna og Almenna lífeyrissjóðnum GUNNAR Felixson lét af störfum sem forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar við lok aðalfundar félags- ins í gær, eftir tæplega 45 ára störf hjá félaginu. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórn- arformaður félagsins, þakkaði Gunnari einstakt starf í þágu félagsins í ára- tugi. Sagði hann að brott- hvarf hans marki mikil þáttaskil í sögu Trygg- ingamiðstöðvarinnar, sem og í lífi Gunnars en hann hafi verið vakinn og sofinn í starfi fyrir félagið í 45 ár. „Það þarf ekki að skýra það út fyrir hluthöfum í Tryggingamiðstöðinni hversu mikilvægur þáttur Gunnars hefur verið í upp- byggingu þessa góða fé- lags. Liggur nærri að sum- ir viðskiptavinir okkar hafi fremur talið sig vera tryggða hjá Gunnari en fé- laginu. Er Gunnar eitt besta dæmi þess, sem ég þekki, hversu mikilvægt og dýrmætt gott orðspor og heiðarleiki í við- skiptum er,“ sagði Gunnlaugur. Sjálfur sagði Gunnar árin 45 hafa verið afar ánægjulegan tíma. „Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér hefur alla tíð verið sýnt af hluthöfum félagsins og stjórnarmönnum,“ sagði hann á aðalfundinum og minntist sérstaklega Sig- urðar heitins Einarssonar. Hann þakkaði jafnframt samstarfsmönnum í gegn- um tíðina og þakkaði við- skiptavinum félagsins einkar góð viðskipti. „Ís- lenska orðið viðskiptavinur er sérstakt orð. Í engu öðru tungumáli, sem ég þekki, eru viðskipti og vin- átta tengd saman eins náið og í íslensku. Ég get vitn- að um innihald þessa ein- staka orðs því eitt af því verðmætasta sem ég tek með mér úr starfi hjá TM er vinátta ótalmargra við- skiptavina félagsins um allt land.“ Það dýrmætasta sem hann eignaðist með starfi sínu sagði hann þó hafa verið eiginkonu sína Hildu, sem hafi starfað hjá TM þegar hann hóf þar störf. „Nú ætlum við Hilda að leggja til hliðar áhyggjur vá- tryggingamannsins. Við ætlum að leika okkur og vera í stuði,“ sagði Gunnar Felixson og kvaddi. Hættir hjá Tryggingamiðstöðinni eftir 45 ára starf Sumir töldu sig fremur tryggða hjá Gunnari en félaginu Gunnar Felixson Morgunblaðið/Árni Torfason FORSVARSMENN Slysavarna- félagsins Landsbjargar afhentu fulltrúum átta hjálparsveita víða um land sinn hvorn fjölnota björg- unarbílinn við athöfn í húsnæði Samskipa í Reykjavík í gær. Bílarnir voru framleiddir í Sví- þjóð á árunum 1980 til 1985 en um 11.000 bílar af þessari gerð er í notkun hjá bæði her og björg- unarsveitum víða um heim og nýt- ast þeir jafnt á jöklum sem akstri í eyðimörk. Fjórir bílar sömu gerðar eru notaðir hjá hjálparsveitum hér á landi nú og þykja þeir bera af í björgun við erfiðar aðstæður. Komu til landsins í felulitum Jón Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Slysavarnafélagsins Lands- bjargar, sagði í ávarpi sínu við af- hendingu bílanna að þegar forsvarsmenn Landsbjargar leit- uðu tilboða í björgunarbíla hefði sænski sendiherrann hér á landi, auk sendiherra Íslands í Svíþjóð, greitt götu þeirra. Samskip sáu um flutning bílanna til landsins en þeir komu hingað til lands í felulitum og voru þeir málaðir fljótlega eftir heimkomuna. Þá er GPS-tæki í bíl- unum og talstöð. Landsbjörg fjár- magnaði bílakaupin og selur hún bílana áfram til viðkomandi björg- unarsveita. Kostnaður þeirra við hvern bíl er um 800 þúsund krónur og fjármagna björgunarsveitirnar bílakaupin með styrkjum og öðrum framlögum. Bílarnir voru fullbúnir til hjálparstarfa við afhendinguna. Um er að ræða átta notaða belta- björgunarbíla frá sænska hernum af gerðinni BV 206 Hägglund. Þeir eru tvískiptir og rúma samtals sautján björgunarsveitamenn; sex í fremri vagni og ellefu í þeim aft- ari. Björgunarbílarnir geta athafn- að sig við ótrúlegustu skilyrði á öllum árstímum. Þeir eru vatns- heldir og má nota þá jafnt á láði sem legi. Gúmmíbelti knýr bílana áfram á jafnsléttu og má aka þeim á allt að 55 kílómetra hraða á bæði malbiki og grasi án mikillar rösk- unar jarðvegs. Þeim má auk þess aka á mjög ójöfnum og odd- hvössum jarðvegi í allt að 60% halla. Bílunum má aka beint af göt- unni og niður í sjó. Þar má sigla þeim á allt að fjögurra hnúta hraða. Að sama skapi má aka þeim beina leið úr legi á land. Bílarnir fara til sveita í Reykja- vík, Kópavogi, Garðabæ, Borg- arfirði, Vestur-Húnavatnssýslu, Sauðárkróki, Siglufirði og Mý- vatnssveit. Fjölnota björgunarbílar á átta staði á landinu Morgunblaðið/Jim Smart Nýju beltabílana frá Svíþjóð, sem björgunarsveitir á Íslandi hafa fengið, má nota jafnt á láði sem legi og ósléttu hálendi. Þeir ná 55 kílómetra há- markshraða á jafnsléttu og sigla á fjögurra hnúta hraða í sjó. Fulltrúar Landsbjargar og Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, kynntu hin nýju björgunartæki í gær. „ÞETTA lýsir ekki miklum stórhug,“ segir Gunnar Ragnars, stjórnarfor- maður Slippstöðvarinnar hf. á Akru- eyri, en Landhelgisgæslan hefur sam- ið við pólsku skipasmíðastöðina Morska um breytingar og endurbæt- ur á varðskipunum Ægi og Tý í kjöl- far útboðs sem Ríkiskaup hafði um- sjón með. Pólska stöðin átti lægsta boð í verk- ið, um 274 milljónir króna, en næst- lægst var tilboð Slippstöðvarinnar, 13 milljónum króna hærra en það pólska. Alls bárust 7 tilboð, þar af voru 2 frá íslenskum skipasmíðastöðvum, Þorgeiri og Ellerti á Akranesi og Slippstöðinni á Akureyri. Kostnaðar- áætlun Landhelgisgæslunnar hljóð- aði upp á 191 milljón króna og segir í tilkynningu frá henni að helstu ástæð- ur þess hversu miklu munar á áætlun og lægsta tilboði séu m.a. þær að verð á stáli hafi hækkað mikið á síðastliðnu ári og þá væri gert ráð fyrir að verkið yrði unnið á háannatíma. Ægi á að breyta nú í sumar og Tý sumarið 2006. „Við töldum okkur eiga góða mögu- leika á að fá þetta verk, það myndi ekki svara kostnaði að sigla skipunum út og halda þeim þar í fjóra mánuði á meðan viðgerð stendur yfir, munur- inn á milli tilboðanna er undir þeim viðbótarkostnaði sem slíkt hefur í för með sér. Auk þess hagræðis sem fylgir því að vinna verkið innanlands,“ segir Gunnar. Mál þróuðust á þann veg að Rík- iskaup höfnuðu öllum tilboðum vegna þess mikla munar sem var á kostn- aðaráætlun ráðgjafa og lægsta tilboði, en bjóðendum var gefinn kostur á að endurnýja tilboð sín og rann frestur til að gera slíkt út nú í vikunni. „Það má vera að þetta sé löglegt, en að okk- ar mati algjörlega siðlaust,“ segir Gunnar, en Slippstöðin hafi ekki tekið þátt í þeim leik og við fyrra tilboð var haldið. Gera athugasemd við málsmeðferð Hann sagði Slippstöðina gera veru- legar athugasemdir við slíka máls- meðferð, enda allt verð uppi á borði fyrir fyrri tilboðin. Þá nefndi Gunnar einnig að kostnaðaráætlun ráðgjafa, „væri alveg út úr kú,“ eins og hann orðar það, hún sé með öllu óraunhæf. Sjö skipasmíðastöðvar sem allar búa yfir mikilli reynslu í greininni geti ekki, allar sem ein farið svo langt út fyrir raunhæft verð í tilboðsgjöf sinni. „Við höfum ítrekað á undanförnum vikum óskað eftir sundurliðaðri kostnaðaráætlun og samanburði á til- boðum en ekki verið svarað.“ Gunnar segir það fráleitt hjá Land- helgisgæslunni að nefna verðhækkun á stáli og það að verkið sé unnið á há- annatíma sem helstu ástæðu þess að svo miklu munar á kostnaðaráætlun og lægsta tilboði. Stál sé sáralítill þáttur í verkinu, „og hefði þurft að hækka um milljón prósent til að hafa einhver áhrif,“ segir hann. „Háanna- tími í þessari atvinnugrein er heldur ekki lengur til.“ Gæslan nefndi einnig í tilkynningu sinni að pólska stöðin hefði ISO-vott- un og til þessa hefði verið litið við mat á tilboðum. Gunnar segir að Slipp- stöðin hafi ekki slíka vottun, en þar búi menn yfir meira en 50 ára reynslu í atvinnugreininni. Landhelgisgæslan semur við pólska stöð um viðgerð á Ægi og Tý Slippstöðin óánægð með niðurstöðuna Næstlægsta tilboðið frá Slippstöð- inni 13 milljónum króna hærra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.