Morgunblaðið - 15.04.2005, Page 48

Morgunblaðið - 15.04.2005, Page 48
48 FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ragna Gests-dóttir fæddist 7. apríl 1928 í Garðs- vík á Svalbarðs- strönd. Ættir sínar rakti hún í Fnjóska- dal og Flateyjar- dalsheiði. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Skjaldarvík 5. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Gestur Jó- hannesson, f. 6.9. 1897, d. 13.2. 1992, og Lísbet Tryggva- dóttir, f. 3.9. 1904, d. 28.9. 1989. Systkini Rögnu voru Bára, f. 1925, d. 1999, Gásum við Eyjafjörð, d. 26.10. 1998. Börn þeirra hjóna eru: 1) Sigurður Eggert, f. 1946, kona hans Ólöf Regína Torfadóttir og eiga þau tvö börn. 2) Hólmfríður, f. 1950, maður hennar Stefán Árnason og eiga þau tvo syni og þrjú barnabörn. 3) Kristján, f. 1951, kona hans Valgerður Kristjana Guðlaugsdóttir og eiga þau tvö börn og þrjú barnabörn. 4) Lísbet, f. 1956, maður hennar Snorri Kristinsson og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn. 5) Gestur Ragnar, f. 1964, kona hans Svava Guðrún Daðadóttir og eiga þau þrjú börn. Börn þeirra Rögnu og Davíðs eru öll búsett á Akureyri. Heimili þeirra var lengst af á Reynivöllum 2 en síðar í Skarðshlíð 13 og síðast í Lindasíðu 2. Útför Rögnu verður gerð frá Glerárkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Tryggvi Jóhann, f. 1930, og Sigurður Hólm, f. 1932. Ragna gekk í Barnaskóla Akur- eyrar og síðan í Iðn- skólann á Akureyri og nam hárgreiðslu og starfaði við þá iðn, bæði á stofu sem og á heimili sínu til fjölda ára. Þá vann hún við þrif hjá Út- gerðarfélagi Akur- eyringa í hartnær þrjá áratugi. Hinn 10. nóvember 1946 giftist Ragna Davíð Sigurði Kristjánssyni, f. 10.11. 1922, frá Amma okkar Ragna Gestsdóttir er látin. Við minnumst hennar með hlýhug um leið og við rifjum upp þær góðu stundir sem við áttum saman. Okkur eru sérstaklega minnis- stæðir laugardagarnir þegar fjöl- skyldan hittist öll á Reynivöllunum og borðaði graut saman, sem amma eldaði. Þá var alltaf mikið fjör, amma var glaðlynd og okkur leið vel í ná- vist hennar. Hún lagði mikla áherslu á að við krakkarnir værum kurteisir og vel til hafðir. Amma hafði mikla söfnunaráráttu og vildi helst ekki henda neinu. Við höfðum mjög gaman af því að skoða gamla pöntunarlista sem hún geymdi mörg ár aftur í tímann. Þar var að finna ýmislegt dót sem var ómögulegt að fá hér og við létum okkur dreyma um að eignast. Fata- skápur ömmu var gott dæmi um söfnunaráráttuna. Þar var hægt að finna föt sem tilheyrðu ýmsum tísku- tímabilum og gaman var að bregða sér í. Amma var einnig mjög fær saumakona og saumaði mikið á okk- ur krakkana, bæði föt og svo að sjálf- sögðu öskudagsbúninga sem voru stórglæsilegir. Okkur er ofarlega í huga þegar við systkinin vorum að fara á álfabrennu Þórs eitt árið og amma hristi fram úr erminni púka- búninga rétt áður en við fórum af stað. Amma var alla tíð mikil íþrótta- áhugakona og hafði sérstaklega gaman af boltaíþróttum enda æfði hún handbolta á sínum yngri árum með Þór. Þórsskjöldurinn var uppi hjá henni fram á síðasta dag og reyndi hún að fá okkur til að verða alvöru Þórsara eins og hún. Hún hvatti okkur krakkana til að stunda íþróttir enda var hún mjög hlynnt heilsusamlegu líferni. Amma hafði mjög gaman af því að segja manni sögur af liðnum tíma, bæði af mönn- um og atburðum. Við minnumst þess vel að hafa hlustað á sögur frá upp- vaxtarárum ömmu af Eyrinni, sem hún naut svo að segja frá. Ekki má heldur gleyma postulínsmáluninni, við barnabörnin eigum öll einhverja postulínshluti sem amma hefur mál- að á, enda var hún flinkur postulíns- málari. Elsku amma, það er alltaf sorglegt að kveðja, þó að við vitum að þú sért komin á góðan stað þar sem þú hittir afa aftur. Sú minning verður alltaf í huga okkar þegar við hittum þig síð- ast, nú um páskana, og þú sagðir við okkur þegar við vorum að fara: „Guð veri með ykkur.“ Það voru síðustu orðin sem þú sagðir við okkur og nú ætlum við að nota þau orð til að kveðja þig: Guð veri með þér, elsku amma. Sólveig og Davíð. Þegar ég heyrði um andlát ömmu Rögnu var það afi Dæi sem kom fyrst í hugann. Alltaf var eins og þau bættu hvort annað upp og ég er viss um að fáir hafa fengið hlýrri mót- tökur við Gullna hliðið en amma Ragna. Ég man fyrst eftir þeim á Reynivöllunum en þar var gjarnan gestkvæmt og margt skrafað og rætt og oftast var afi Dæi í essinu sínu. Sjálf var hún ekki allra og gat jafnvel virkað seintekin. Þó vissum við fjöl- skyldan að þeim sem hún hleypti að sér sleppti hún ekki og reyndist þeim bæði traustur og hlýr vinur. Amma var mjög snyrtileg og var umhugað um heimili sitt. Sjálf var hún alltaf vel til höfð og naut þess að klæða sig upp. Ég man vel eftir því þegar hún var að elta mig milli her- bergja til þess að klippa mig, en amma var hárgreiðslukona og klippti mig alltaf þegar ég var lítil. Þá gat ég ekki setið kyrr og hljóp um með hár- ið „allt í skottum“. Ömmu var ekki bara lagið að klippa og greiða. Hún var dverghög, handavinna, saumar og prjónar; hvaðeina lék í höndunum á henni. Hún málaði á postulín og eigum við afkomendur hennar flest handmálað postulín. Oft má kannski segja að amma hafi verið fullná- kvæm eins og þegar hún var að virða fyrir sér nánast fullkláraðan prjóna- kjól. Sér hún þá ekki villu neðst og skiptir þá engum togum; allt rakið upp og byrjað upp á nýtt. Svona var amma Ragna, alls ekki skaplaus. Amma var mjög áhugasöm um íþróttir og spilaði sjálf handbolta með Þór og m.a. á Íslandsmóti 15 ára gömul. Þá fór hún til Reykjavíkur með „Tryggva heitnum Þorsteins“ og sagði oft söguna af því þegar skátahöfðinginn var að reyna að vernda þær saklausar stúlkurnar fyrir óprúttnu drengjastóði, sem lá á gluggunum í Austurbæjarskóla um náttmál. Til marks um skapið í henni þá gat hún enn tuðað yfir aukakasti sem var dæmt á hana í þessari ferð, sextíu árum síðar. Elsku amma. Nú ertu komin til afa Dæja og við minnumst þín með þakklæti fyrir allar góðu stundirnar. Ég get aðeins vonað að ég verði líka fín frú þegar ég verð orðin amma Ragna. Áfram Þór! Ragna Kristjánsdóttir. RAGNA GESTSDÓTTIR ✝ Þórir KetillValdimarsson trésmíðameistari fæddist í Shellvegi 4 (Skrúð) í Skerjafirði 25. mars 1943. Hann andaðist á gjör- gæsludeild Landspít- alans v/Hringbraut mánudaginn 4. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Valdimar Ketilsson verkstjóri hjá Reykjavíkurborg, f. 6.2. 1909, d. 2.6. 1980, og Guðmunda Sveinsdóttir húsfreyja, f. 29.4. 1923, d. 21.3. 2000. Þórir Ketill var frumburðurinn í röð fimm systkina. Hin eru: 1) 29.6. 1951. 4) Þórunn, starfsmaður Vátryggingafélags Íslands, f. 28.6. 1954. Þórir Ketill ólst upp í Skerja- firðinum fram til 17 ára aldurs en þá flutti hann með foreldrum sín- um og systkinum í Stigahlíð 43. Síðan byggði hann sér raðhús á Seljabraut 82. Hann gekk í Mela- skólann, leiðin lá þá í Miðbæjar- skólann og að lokum í Vesturbæj- arskólann og endaði í Iðnskóla Reykjavíkur og nam trésmíði og lauk því námi 1965. Hann starfaði við trésmíðaverkstæði Reykjavík- urborgar, þá vann hann um tíma hjá Jóni Hannessyni trésmíða- meistara, en hann starfaði mikið fyrir Vatnsveitu Reykjavíkur, og þá fluttist hann til Vatnsveitu Reykjavíkur og starfaði allt til dauðadags hjá Orkuveitu Reykja- víkur. Útför Þóris Ketils fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Sveinn Jón fyrrver- andi verkstjóri, f. 11.11. 1944, maki Guð- rún Ragnhildur Haf- berg, f. 24.1. 1955, börn þeirra eru Bryn- dís Hrönn, f. 26.12. 1974 (uppeldisdóttir), Guðmunda Guðlaug, f. 29.4. 1977, Valdimar Jón, f. 6.2. 1983, og Þröstur Jarl, f. 23.12. 1984. 2) Magnús Viðar rafverktaki, f. 7.6. 1948, maki Linda Kon- ráðsdóttir, f. 1.10. 1956, dóttir þeirra er Sara Þórisdóttir Barðdal, f. 29.6. 1988 (uppeldisdóttir). 3) Jónína Sigurbjörg, sérkennslustjóri hjá Leikskólum Kópavogsbæjar, f. Stutt er á milli lífs og dauða. Ekki hefði okkur órað fyrir því að komið væri að kveðjustundinni hjá þér, kæri bróðir. Þú kvartaðir aldrei um krankleika, auk þess lifðir þú heil- brigðu lífi og varst reglusamur mað- ur. Síðustu fimm árin styrktust vina- böndin á milli þín og okkar systr- anna, þó að töluverður aldursmunur væri á milli okkar, þá var hann ekki merkjanlegur í seinni tíð. Þessi síðustu fimm ár breyttust tengslin og kynslóðabilið var ekki fyrirstaðan lengur og við nutum ríkulega samskipta þinna því þú lagðir krók á leið þína og kíktir inn í heimsókn til okkar í lok vinnudags. Þú varst ekki bara bróðir okkar, heldur góður vinur og ferðafélagi. Við vorum að skipuleggja ferð til Danmerkur í sumar. Það var eftir- vænting í orðum þínum, þegar þú hafðir orð á því við okkur systur þín- ar, hvort við værum búnar að huga að gistingu og að panta farmiðana. Ekki hvarflaði það að Tótu systur þinni þegar þú hringdir í hana eftir hádegi sl. föstudag, þá varst þú hress og ekki merkti hún annað en gleði og tilhlökkun, að það var að koma helgi. Í seinni tíð var gott að leita til þín, því þú varst systkinum þínum traustur og greiðvikinn og heiðarleg- ur í garð okkar. Við þökkum nú þér fyrir að hafa fengið að vera þess aðnjótandi að vera í daglegum samskiptum við þig, þá var skrafað um sameiginlegar minningar frá bernskunni í Skerja- firði og rifjaðar upp markverðar per- sónur sem bjuggu þar þegar þú varst stráksnáði. Þú sagðir okkur sögur af föðurömmu okkar, sem þú kynntist en ekki við. Það eru kærar minning- ar tengdar Skrúð í Skerjafirðinum og Stigahlíðinni. Þú varst af Elvis Presley kynslóðinni og grammó- fónninn var óspart notaður af þér og frændsystkinum þínum af efri hæð- inni í Skrúð og það var tekin Elvis Presley sveiflan með brillíantínið í hárinu, því það varð að líkjast goð- inu. Elsku Kalli, minningin lifir ávallt um kærleiksríkan bróður. Mikið tómarúm hefur myndast hjá okkur þegar þú ert horfinn á braut. Guð blessi þig bróðir. Jónína Sigurbjörg, Þórunn, Magnús Viðar og Sveinn Jón. ÞÓRIR KETILL VALDIMARSSON Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður minnar, tengdamóður og ömmu, SALBJARGAR MAGNÚSDÓTTUR, Hringbraut 50, Reykjavík. Gunnar M. Jónasson, Sigríður S. Rögnvaldsdóttir, Sif Gunnarsdóttir, Sjöfn Gunnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.