Morgunblaðið - 15.04.2005, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 59
MENNING
mbl.is Föstudagur 7. janúar 2005
Forsíða Viðskipti Íþróttir Afþreying Fólkið AtvinnaFasteignir Gagnasafn Myndasafn MorgunblaðiðSmáauglýsingar
Panta auglýsingu Upplýsingar um pantanir Spurt og svaraðBreyta netfangi Breyta lykilorði
...ódýrasta
300 kr.
birtist í 7 daga
mbl.is
smáauglýsingin
Frábært verð ódýrasta auglýsingin kostar 300 kr.
Auðvelt að bóka þú getur pantað auglýsingu þegar þér hentar
Auðvelt að leita tekur örskot að finna það sem leitað er að
Vöktun þú færð tölvupóst eða SMS þegar rétti hluturinn finnst
Vaktmappan geymir auglýsingar til frekari skoðunar
mbl.isá
GÓÐVERKIN kalla er gaman-
leikrit með söngvum sem var samið
fyrir Leikfélag Akureyrar 1994.
Leikritið hefur reynst vinsælt hjá
áhugaleikfélögum síðustu árin en
það fjallar um meting og nágranna-
erjur í litlu þorpi þegar þrjú góð-
gerðafélög ákveða hvert í sínu lagi
að gefa sjúkrahúsinu nýtískutækið
straumlínugjafa. Verkið býr yfir lit-
skrúðugum persónum, orðaleikjum
og skemmtilegum sönglögum eftir
höfundana. Leikfélag Hofsóss og
Halla Margrét leikstjóri taka rétta
stefnu í flutningi verksins: Persón-
urnar fá að njóta sín, umgerðin er
einföld og skýr og brandarar eru
staðfærðir þegar við á. Úr verður
skemmtileg sýning og fjarska fynd-
in á köflum.
Halla Margrét hefur góða tilfinn-
ingu fyrir rými leiksviðsins og hefur
greinilega unnið mikið með fram-
sögn og persónusköpun hjá mis-
reyndum leikurunum. Persónur
verksins eru misjafnlega veigamikl-
ar. Erfiðustu hlutverkin eru hlut-
verk hjónanna tveggja; fjandvin-
anna Jónasar og Lúðvíks og
eiginkvennanna Dagbjartar og
Drífu. Jónas er formaður karla-
klúbbsins Dívans og Lúðvík er for-
maður Lóðarís. Hin dugmikla Drífa
er formaður kvenfélagsins Sverðlilj-
anna og Dagbjört er einföld og væn.
Hlutverkin eru erfið þar sem um
svo venjulegt fólk er að ræða þó að
hvert þeirra hafi sín sérkenni sem
nokkuð er gert úr. Þau Kristján
Jónsson, Helgi Þór Thorarensen,
Guðrún Helgadóttir og Fríða Eyj-
ólfsdóttir léku þessi tvenn hjón
prýðilega. Saklausu hjúkrunarkon-
una sem flytur í þorpið lék Svan-
hildur Harpa Kristinsdóttir ágæt-
lega og Nonna kvennagull sem
hrífst af henni en heldur við Drífu
lék Þorsteinn Axelsson vel en hann
var að leika í fyrsta sinn. Björn hér-
aðslækni, hinn góðhjartaða og trú-
gjarna mann, lék Jón S. Sigurðsson
afar vel. Jón hafði sérstaka útgeisl-
un á leiksviðinu og skilaði fíngerð-
um húmor og sérkennum með sóma.
Hinn klofna persónuleika Jökul
Heiðar lék Sigmundur Jón Jóhann-
esson mjög vel en hann uppskar
mikinn hlátur út á persónu-
leikaskiptin milli rómantíska góð-
mennisins og grimma frjálshyggju-
mannsins sem hann breyttist alltaf í
ef hann þurfti að leiða hugann að
bankastjórastarfi sínu. Stjarna sýn-
ingarinnar var svo Ingibjörg Sól-
veig Halldórsdóttir í hlutverki Bínu
gömlu sem lýgur upp makalausum
sögum, fylgist með öllum og drekk-
ur af stút í laumi og ekki laumi.
Ingibjörg hefur meðfædda leikhæfi-
leika og sterka nærveru á sviðinu en
allt sem hún gerði í þakklátu hlut-
verkinu var fyndið og skemmtilegt.
Lýsing, búningar og tónlist og
dansar var ágætlega unnið, andinn í
hópnum var skemmtilegur og gam-
an að gleyma sér þessa kvöldstund
á Hofsósi.
LEIKLIST
Leikfélag Hofsóss
Höfundar: Ármann Guðmundsson, Sævar
Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason.
Leikstjóri: Halla Margrét Jóhannesdóttir.
Leikmyndarhönnun: Halla Margrét Jó-
hannesdóttir. Ljósahönnun: Eiríkur Frí-
mann Arnarson og Elvar Már Jóhanns-
son. Frumsýning í Höfðaborg, Hofsósi 8.
apríl 2005
Góðverkin kalla
Hrund Ólafsdóttir
„ÉG HAFÐI aldrei lesið svona leik-
rit áður, en vissi strax að það ætti er-
indi við áhorfendur hér á landi, það
er hin besta skemmtun, fyndið en
hefur einnig áríðandi boðskap,“ seg-
ir Agnar Jón Egilsson sem leikstýrir
verki Henry Adam, Pakkið á móti
sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir
í kvöld, föstudagskvöldið 15. apríl.
Leikritið vann til verðlauna á Ed-
inborgarhátíðinni árið 2003, stærstu
leiklistarhátíð heims sem besta nýja
leikritið. Verkið er nú margverð-
launað og hefur farið sigurför um
Evrópu þar sem það hefur verið sýnt
víða. Það hefur hvarvetna vakið at-
hygli, enda þykir það í senn drep-
fyndið og áleitið, en tekið er á mörg-
um eldfimum málum sem til
umræðu eru nú í heimsmálunum.
Henry Adam fæddist í Norður-
Skotlandi 1964, hann býr nú og
starfar í Edinborg og vinnur að
kvikmyndahandriti eftir Pakkinu á
móti fyrir leikstjórann Andrew
Douglas.
Hasar, ofbeldi og sorg
Vettvangur leiksins er stigagang-
ur í fjölbýlishúsi í Lundúnum, þar
sem býr fólk sem sumt hefur ein-
angrað sig frá samfélaginu. Þannig
er því háttað með aðalsöguhetjuna,
Nigel, heimur hans tekur stakka-
skiptum þegar lögregla brýst inn í
íbúð hans og fær hann til að leggja
gildru fyrir hálfbróður sinn, meintan
hryðjuverkamann sem talið er að
muni um síðir leita á náðir hans.
Nigel er löglegur öryrki sem á eða
átti við geðræn vandamál að stríða,
en áhöld eru um hvort hann haldi í
geðveiki sína til að missa ekki bætur.
Við sögu kemur líka gömul skosk
ekkja, sem leggur metnað sinn í að
halda stigaganginum hreinum, en
fylgist engu að síður líka vel með
gangi heimsmála. Þá býr í þessum
stigagangi unglingur með móður
sinni, sem hann raunar sér ekki mik-
ið en sú sér þeim mæðginum far-
borða á vafasaman máta. „Þetta fólk
lendir í ýmsum hremmingum, en
þau mynda eins konar fjölskyldu, lit-
ríka fjölskyldu,“ segir Agnar Jón og
líkir sögu þeirra við napran veru-
leika, „eins konar Tarantino bíó-
mynd, ég sá þetta verk fyrir mér
einhvern veginn á þann hátt.“ Has-
ar, ofbeldi, sorg, eru orð sem hann
notar til að lýsa verkinu. Það er und-
irliggjandi ótti í samfélaginu eftir at-
burðina 11. september, en af ein-
hverjum ástæðum hafði gleymst að
greina Nigel frá því sem gerðist,
hann hefur misst af þeirri nýju
heimsmynd sem nú blasir við, þann-
ig að hann veit í raun ekki hvaðan á
sig stendur veðrið þegar lögreglan
brýst inn til hans í þeim erindagjörð-
um að ná til bróður hans. Á ýmsu
gengur, svo sem gera má ráð fyrir í
stigaganginum, en öðrum þræði fá
áhorfendur að fylgjast með hvernig
ógæfumaðurinn sem verkið fjallar
um finnur frið, hvernig fólk bregst
við þegar virkilega á reynir og það
finnur styrk sinn. „Við fáum að fylgj-
ast með því hvernig hann fer að upp-
lifa heiminn upp á nýtt,“ segir Agnar
Jón.
Manni þykir ósjálfrátt
vænt um persónurnar
Hann segir leikritið hafa allt til
brunns að bera sem gott leikrit býr
yfir, sagan sem sé mjög skemmtileg,
hræri upp í tilfinningum fólks, ná-
vistin sé mikil, „það er hægt að
hlæja og gráta með persónunum og
manni þykir ósjálfrátt vænt um
þær.“ Leikritið sjálft bjóði upp á að
því sé líkt við verulega grófa bíó-
mynd, sem sífellt komi á óvart. „Ég
hef aldrei séð svona áður,“ segir
Agnar Jón. „Þetta er eitthvað sem
hittir mann beint í æð, nær að snúa
upp á mann, um leið og farið er að
halda með einni persónunni segir
einhver önnur eitthvað sem snertir
mann.“
Í verkinu er tekið á hlutum eins og
fordómum og vaxandi kynþátta-
hatri, „það neyðir okkur í raun til að
horfast í augu við eigin fordóma og
hvernig þeim er mismunað sem enga
rödd hafa í samfélaginu, líka fólk
sem vegna trúarbragða, litarháttar,
kynhneigðar eða fjárhagsstöðu er
frábrugðið fjöldanum og svo
þarf að takast á við þá erfiðu
spurningu hvort réttlætanlegt sé að
fórna einum fyrir fjöldann.“
Agnar Jón sagði það hafa verið
mjög ögrandi fyrir sig og raunar all-
an leikhópinn að takast á við verk-
efnið, finna umgjörðinni trúverð-
uglegan veruleika án þess að falla í
þá gryfju að nota klisjukenndar
lausnir.
„Við þurftum að finna þennan
hrjúfa blæ verksins, það er ekkert í
þessu verki sem heitir fegurð, pluss
og heitir litir.
Við fundum niðurstöðu sem segja
má að lykti eins og skítugt teppi í
stigagangi í Lundúnum.“
Leiklist | Leikfélag Akureyrar frumsýnir Pakkið á móti í kvöld
Ekkert sem heitir feg-
urð, pluss og heitir litir
Morgunblaðið/Kristján
Jón Páll Eyjólfsson og Guðjón Davíð Karlsson í hlutverkum sínum.
Hinn vestræni heimur eftir 11. september 2001
er til umfjöllunar í leikritinu Pakkið á móti
sem frumsýnt verður hjá Leikfélagi Akureyrar
í kvöld. Margrét Þóra Þórsdóttir fékk
Agnar Jón Egilsson leikstjóra til að segja
frá þessu verðlaunaleikriti.
maggath@mbl.is
Víkingur Kristjánsson og Jón Páll
Eyjólfsson í hlutverkum sínum í
Pakkinu á móti.
eftir Henry Adams
Leikarar:
Víkingur Kristjánsson, Jón
Páll Eyjólfsson, Hildigunnur
Þráinsdóttir, Guðjón Davíð
Karlsson.
Leikstjóri: Agnar Jón
Egilsson.
Leikmynd og búningar:
Sigurjón Jóhannssson.
Ljósahönnuður: Björn
Bergsteinn Guðmundsson.
Þýðing og frumsamin tónlist:
Úlfur Eldjárn.
Pakkið á móti