Morgunblaðið - 19.06.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.06.2005, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Helgin öll… á morgun Akranes Ófeigur Gestsson 431 4383 892 4383 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 897 4236 Bíldudalur Gísli Snær Smárason 456 2207 456 2158 Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019 864 4820 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík Marenia Kristín Hrafnkelsd. 475 6662 8606849 Búðardalur Aron Snær Melsteð 434 1449 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Helgi Týr Tumason 478 8161 864 9207 Egilsstaðir Þurý Bára Birgisdóttir 471 2128 8620543 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna S. Eiríksdóttir 475 1260 475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Erla Ösp Ísaksdóttir 848 5361 Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 848 3397 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 4386858/8549758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522 Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjánss. 4366925 Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Elísabet Sigurðardóttir 894 0387 464 1987 Hvammstangi Harpa Vilbertsdóttir 451 2455 892 0644 Hveragerði Úlfar Andrésson 483 4694 893 4694 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 4878172/8931711/853 1711 Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Hjörtur Freyr Snæland 486 8874 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 477 1124 Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2650 866 7958 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 899 6904 Patreksfjörður Sigríður Valdís Karlsdóttir 456 1119 456 1349 Raufarhöfn Örvar Sigþórsson 456 1287 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488 892 0488 Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð v/Mýv. Þórunn Snæbjörnsdóttir 464 4464 Sandgerði Jóhanna Ósk Gunnarsdóttir 423 7330 821 7330 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 854 7488 Selfoss Sigdór Vilhjálmsson 846 4338 Seyðisfjörður GB Bjartsýn ehf, Birna 472 1700 897 0909 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Kristín Björk Leifsdóttir 452 2703 849 5620 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 430 1414 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Anna Elísa Karsldóttir 456 4945 Tálknafjörður María Berg Hannesdóttir 456 2655 Vestmannaeyjar Guðrún Kristín Sigurgeirsd. 481 3293 699 3293 Vík í Mýrdal Æsa Gísladóttir 867 2389 Vogar Una Jóna Óafsdóttir 421 6910 663 0167 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463 Þingeyri Hildur Sólmundsdóttir 456 8439 867 9438 Þorlákshöfn Íris Valgeirsdóttir 483 3214 8486214 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 468 1515 DREIFING MORGUNBLAÐSINS Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni Staður Nafn Símanúmer Staður Nafn Símanúmer Gott og vel staðsett 216 fm atvinnuhúsnæði á 2. hæð við Ármúla 17. Sér inngangur. Húsnæðið er allt opið og nýuppgert, nýtt gólfefni verður sett að óskum leigjanda. Leigjandinn getur verið með í ráðum við skipulag á innveggjum sem verða kerfisveggir. Nýir ofnar og kerfisloft. Húsnæðið er laust til afhendingar! Leiguverð samkomulag. Draumahús ehf. Brynjólfur Hjartarson hdl. og Sigurður J. Sigurðsson, löggiltir fasteignasalar. Ármúli 17 - 108 Reykjavík DÓMS- og kirkjumálaráðuneytið hefur gert árangursstjórnunar- samning við Lögreglustjórann í Reykjavík en samningurinn var undirritaður af Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra og Böðvari Bragasyni lögreglustjóra á kynn- ingarfundi Lögreglustjórans í Reykjavík. Þar var jafnframt kynnt stefnumótun embættisins til næstu ára og ársskýrsla embættis- ins fyrir árið 2004 var lögð fram. Samningurinn er til þriggja ára en í slíkum samningum er helst kveð- ið á um skyldur viðkomandi stofn- unar og markmiðssetningu. Þannig mun ráðuneytið eiga auðveldara með að hafa yfirlit yfir stefnu og stöðu viðkomandi stofnunar. Auk þess að kynna stefnumótun sína hefur embættið nú þegar skilað ráðuneytinu starfsmannastefnu sinni. Í stefnumótun lögreglunnar í Reykjavík fyrir árið 2005 er hlut- verk lögreglunnar skilgreint á eft- irfarandi hátt: „Hlutverk lögregl- unnar í Reykjavík er að gæta laga og réttar, standa vörð um öryggi borgaranna, þjónusta almenning á sem bestan og hagkvæmastan máta og stuðla þannig að virðingu fyrir stjórnskipuninni, stöðugleika samfélagsins og félagslegri velferð íbúa.“ Böðvar Bragason fagnar samn- ingnum en telur að til þess að ár- angur eigi að nást þurfi að skoða sérstaklega innri boðleiðir emb- ættisins auk þess sem tölvukerfið þurfi endurskoðunar við. Hann segist þess fullviss að allir viðkom- andi aðilar eigi eftir að leggja sitt að mörkum til þess að markmið embættisins verði að veruleika. Mikilvægt ferli Björn Bjarnason segir samning- inn mikilvægan enda sé hér um að ræða stærsta embættið á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. „Það er mikilvægt að hafa náð þessum samningi en eins og við sjáum leiðir hann strax til þess að lögreglan fer að móta sína stefnu og setja sér markmið,“ segir Björn en hann telur árangursstjórnunar- samninga mjög æskilega auk þess sem mikilvægt sé fyrir embættið að ganga í gegnum það ferli sem er samningnum samfara. „Það er mjög mikilvægt fyrir innra starfið í sjálfu sér fyrir utan samskipti ráðuneytisins og emb- ættisins en við höfum sett okkur sameiginleg markmið og ákveðið hvernig á að útfæra þau en emb- ættið mun færa þau út enn nánar.“ Björn segist hafa góða reynslu af samningum sem þessum en hann hafi gert fjölda slíkra samn- inga við skóla þegar hann var menntamálaráðherra og eins hafi nú verið gerðir samningar við sýslumannsembætti landsins. „Þessi aðferð við stjórnun opin- berra stofnana er mjög mikilvæg og skilar árangri en það tekur tíma. Ríkisendurskoðun hefur gert úttekt á þessu og ýmsir þættir eru sterkir og aðrir veikir eins og gengur. Allir eru hins vegar sam- mála því að það sé gott að ganga í gegnum þetta ferli.“ „Mikilvæg aðferð við stjórnun opinberra stofnana“ Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is Böðvar Bragason Björn Bjarnason KENNARANÁMSKEIÐ Kram- hússins, Skapandi starf með börnum og unglingum, verður haldið í 22. sinn dagana 20.–23. júní. Að þessu sinni koma gestakennararnir frá Finnlandi og Ísrael og áhersla lögð á tónlist. Soili Perkiö kemur frá Sibelíusar- akademíunni í Helsinki og er hún einn eftirsóttasti kennari og fyrirles- ari á sínu sviði. Hún hefur sérhæft sig í hreyfingu og tónlistarkennslu fyrir börn. Hún byggir kennslufræði sína á leikjum, spuna, hreyfingu, ævintýrum og gleði og kallast inn- legg hennar í kennaranámskeiðið Tónlist – tjáning – leikir. Einnig verður hún með sérsniðið námskeið ætlað tónmenntakennurum dagana 20.–22. júní. Ilya Magnes er annar erlendi gesturinn og er hann nú að koma í annað sinn til Íslands en hann tók meðal annars þátt í Heimsdögum barna á Vetrarhátíð 2005. Að vanda miðla listgreinakennarar Kramhúss- ins, Elfa Lilja Gísladóttir, Hafdís Árnadóttir og Ólöf Ingólfsdóttir, af reynslu sinni í skapandi hreyfingu, dansi og spuna. Þá mun skáldið Sjón kynna ólíkar leiðir til að virkja hug- ann í skáldskaparskrifum og verður með nokkurs konar örnámskeið í ör- sögum. Skapandi starf með börnum FUNDUR nemenda, kennara og starfsfólks Listaháskóla Íslands hefur lýst yfir stuðningi við ákvörðun stjórnar skólans um að leita eftir lóð fyrir framtíðarhús- næði skólans á lóð við Austurhöfn í Reykjavík. Í samþykkt fundar- ins segir að með þessari staðsetn- ingu gæti Listaháskólinn orðið táknmynd sköpunar og sú mennt- unarmiðstöð sem landsmenn gætu litið til. Nálægð við menn- ingarstofnanir, aðra háskóla og bein samlegð með Tónlistarhús- inu sem áætlað er að rísi þarna bjóði upp á margsháttar samstarf en margir listamenn hafa ítrekað bent á gildi þess að tengja Listaháskólann við starfsemina á hafnarsvæðinu. Jafnframt telur fundurinn að það yrði ávinningur fyrir borgina að fá nemendur skólans og fjöl- mennt starfslið inn á þetta svæði og myndi það gæða miðborgina auknu lífi og krafti. Fundurinn skorar á mennta- málaráðuneyti og Reykjavíkur- borg að veita erindi stjórnar Listaháskóla Íslands þann stuðn- ing sem þarf til að koma húsnæð- ismálum skólans endanlega í höfn. Vilja Listaháskólann á hafnarsvæðið NEMENDUR í tíunda bekk Linda- skóla í Kópavogi afhentu UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, 50 þúsund króna styrk á dögunum. Að beiðni krakkanna í Lindaskóla verð- ur peningunum varið til mennta- verkefna UNICEF, en í dag eru rúmlega 100 milljónir barna á grunnskólaaldri sem fara á mis við nám. Gáfu UNICEF peninga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.