Morgunblaðið - 07.07.2005, Side 34

Morgunblaðið - 07.07.2005, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK  1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 aðstoð, 4 málm- ur, 7 viðarbörkur, 8 rót- arleg, 9 naum, 11 vesælt, 13 gerum óðan, 14 ásýnd, 15 bryggjusvæði, 17 skaði, 20 óska ákaft, 22 blíðuhót, 23 bogið, 24 stikar, 25 fleina. Lóðrétt | 1 kasta, 2 bjargbúum, 3 hluta, 4 þref, 5 fálmar, 6 let- urtáknum, 10 heldur, 12 nytjaland, 13 kyn, 15 draga úr hraða, 16 óhrein- skilin, 18 samsinnti, 19 lasta, 20 þrjóskur, 21 skoðun. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 pakkhúsið, 8 tuddi, 9 reiða, 10 krá, 11 kafla, 13 skapa, 15 stekk, 18 sprek, 21 enn, 22 puðar, 23 ölkrá, 24 niðurgang. Lóðrétt: 2 andóf, 3 keika, 4 útrás, 5 ilina, 6 stök, 7 tapa, 12 lík, 14 kóp, 15 súpa, 16 eyðni, 17 kerlu, 18 snögg, 19 ríkan, 20 klár. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Undirvitund hrútsins hefur víkkað um nokkurt skeið. Það skýrir allar villtu og skrýtnu hugmyndirnar sem láta á sér kræla í kolli hans núna. Það er framfaraskref. Taktu lífinu með ró. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið hefur áttað sig á því smám saman að nýr og frábrugðinn lífsmáti er hugsanlega innan seilingar. Kannski kemur sú uppgötvun á óvart, en er engu að síður jákvæð? Er það ekki? Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Margir í tvíburamerkinu hafa gert róttækar breytingar á starfsvett- vangi eða lífsstefnu á undanförnum árum, eða eru í þann mund að gera það. Tvíburinn sættir sig ekki við kúgun. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Íhaldssamt lífsviðhorf krabbans er að breytast og heldur áfram að taka breytingum. Skoðanir hans eru meira að segja að taka nýja stefnu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Náin kynni hafa ýtt undir breytingar á lífi ljónsins upp á síðkastið. Ekki er víst að þessu sambandi sé ætlað að endast, ljónið á hins vegar að læra af því. Öll sambönd taka enda um síðir. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Úranus, pláneta breytinga, hefur ver- ið beint á móti meyjarmerkinu um nokkurt skeið. Það kemur svo sann- arlega róti á parsambönd, meyjan vill ekki láta halda aftur af sér. Hún vill vera frjáls. Úps. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin hefur velt því fyrir sér upp á síðkastið hvernig hún á að fara að því að vinna skynsamlegar, í stað þess að vinna sífellt meira. Hún vill bera það sama úr býtum en leggja minna á sig. Eða bera meira úr býtum fyrir sama vinnuframlag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Skapandi hugmyndir sporðdrekans hafa verið með ólíkindum hin síðari ár. Hann fer vaxandi á öllum sviðum. Óvænt barnalán gæti sett strik í reikninginn. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Fjölskyldumynstur bogmannsins hefur tekið miklum breytingum hin síðari ár. Sumar þeirra hafa komið honum úr jafnvægi; tengsl hafa rofn- að. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Stutt skrepp og ferðalög fela í sér ýmislegt óvænt. Steingeitin lærir margt af kynnum sínum við ókunnugt fólk og framandi menningarheima. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Starfsgrundvöllur vatnsberans hefur verið ójafn á síðari árum. Á endanum lagast þær aðstæður samt. Þar að auki fær vatnsberinn meira frelsi. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Ekki verða hissa þótt vaxandi frels- isþrá blundi innra með þér. Óvíst er að allir verði jafnhrifnir. Notaðu tækifærið og pældu í sjálfum þér, kíktu í sjálfshjálparbækur. Stjörnuspá Frances Drake Krabbi Afmælisbarn dagsins: Góðlegt viðmót gerir að verkum að fáir átta sig á ákveðni þinni. Þú setur markið hátt og kraftur þinn og agi gera þér kleift að ná árangri. Innst inni leitar þú sann- leikans og vilt fá spurningum þínum svarað. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Tónlist Rangárþing ytra | Kirkjukór Odda og Þykkvabæjar heldur tónleika í Oddakirkju á Rangárvöllum, 7. júlí kl. 20.30. Tónleikarnir eru öllum opnir. Aðgangseyrir er kr. 500. Myndlist Austurvöllur | Ragnar Axelsson. Ljós- myndasýningin „Andlit norðursins“ til 1. sept. Árbæjarsafn | Gunnar Bjarnason sýnir í Listmunahorninu forn vinnubrögð í tré og járn. Bragginn – Öxarfirði | Fagurlist yst sem innst. Innsetningar, málverk, skúlptúr. Kr. 300. Til 16. júlí. Café Karólína | Vilhelm Anton Jónsson (Villi naglbítur) sýnir til 22. júlí. Café Presto | Reynir Þorgrímsson Skart- gripir Fjallkonunnar. Deiglan | Kristján Pétur Sigurðsson til 24. júlí. Eden, Hveragerði | Hilmar J. Höjgaard til 10. júlí. Galíleó | Árni Björn Guðjónsson sýnir um 20 olíumyndir af íslensku landslagi. Sýn- ingin stendur til 29. júlí. Gallerí 100° | Dieter Roth til 21. ágúst. Gallerí BOX | Sigga Björg mun sýna Inn- setningu sem samanstendur af teikningum og teiknimynd til 16. júlí. Opið kl. 14–18. Gallerí Gyllinhæð | Marie-Anne Bacquet og Marie Greffrath til 10. júlí. Gallerí Tukt | Iðunn Árnadóttir til 9. júlí. Gerðuberg | Menningarmiðstöðin Gerðu- berg er lokuð frá 1. júlí til 15. ágúst vegna sumarleyfa. www.gerduberg.is. Grafíksafn Íslands | Arnór G. Bieltveldt sýning á málverkum og teikningum til 10. júlí. Opið frá fimmtudegi til sunnudags frá kl. 14–18. Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal til 1. ágúst. Hafnarbakkinn í Reykjavík | Kristinn Benediktsson Fiskisagan flýgur ljós- myndasýning til 31. ágúst. Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarce- vic, Elke Krystufek, On Kawara til 21 ágúst.. Hrafnista Hafnarfirði | Trausti Magnússon sýnir málverk og ljósmyndir í menningarsal til 23. ágúst. Hönnunarsafn Íslands | Circus Design í Bergen. Til 4. sept. Jónas Viðar Gallerí | Undir Hannesi. Sam- sýning 10 listakvenna til 17. júlí. Kaffi Mílanó | Jón Arnar sýnir olíumyndir. Myndefnið er borgarlíf, tónlist og náttúran. Ketilhúsið, Listagili | Í minningu afa. Sýn- ing á kínverskri myndlist til 24. júlí. Kling og Bang gallerí | John Bock til 26. júlí. Kringlan | World Press Photo – Sýning á bestu fréttaljósmyndum ársins 2004. Laxársstöð | Sýning Aðalheiðar S. Ey- steinsdóttur, Hreindýr og Dvergar, í göng- um Laxárstöðvar. Listasafn Íslands | Dieter Roth til 21. ágúst. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Gabríel Kuri, Jennifer Allora og Guilliermo Calza- dilla, Brian Jungen, Hekla Dögg Jónsdóttir, John Latham, Kristján Guðmundsson til 21. ágúst. Listasafn Reykjanesbæjar | Á sumarsýn- ingu má nú sjá sænskt listgler. Um er að ræða rúmlega 60 verk eftir 50 helstu gler- listamenn Svía, úrval hins besta úr heimi nytjaglers og skúlptúrglers. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Dieter Roth, Peter Fischli, David Weiss, Haraldur Jónsson, Urs Fischer til 21. ágúst. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sumarsýning Listasafns Íslands. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sumar- sýning – Aðföng, gjafir og lykilverk eftir Sigurjón Ólafsson. Safnið er opið milli klukkan 14 og 17. Listhús Ófeigs | Hafsteinn Austmann til 8. júlí. Norræna húsið | Andy Horner til 28. ágúst. Nýlistasafnið | Thomas Hirschhorn til 24. júlí. Pakkhúsið | Sigurður Mar Halldórsson – ljósmyndasýning. Sýningin nefnist Horn- firðingar til 9. júlí. Ráðhús Reykjavíkur | Anna Leós sýnir til 10. júlí. Safn | Carsten Höller til 10. júlí. Skaftfell | Vesturveggurinn. Kolbeinn Hugi sýnir til 10. júlí. Svartfugl og Hvítspói | Sveinbjörg Hall- grímsdóttir. Sýningin er opin kl. 13–17. Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finnbogi Pétursson sjá nánar www.or.is. Þjóðminjasafn Íslands | Skuggaföll. Port- rettmyndir Kristins Ingvarssonar. . Þjóðminjasafn Íslands | Story of your life – ljósmyndir Haraldar Jónssonar. Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin „Mynd á þili“ er afrakstur rannsókna Þóru Krist- jánsdóttur á listgripum Þjóðminjasafns Ís- lands frá 16., 17. og 18. öld. Ömmukaffi | Aðalsteinn (Diddi Allah) sýnir olíu og akrýlmyndir til 26. júlí. Leiklist Skemmtihúsið | Ferðir Guðríðar, leikrit í Skemmtihúsinu á Laufásvegi 22, á hverju fimmtudagskvöldi kl. 20 og alla sunnudaga kl. 18 til loka ágúst. Leikkona Caroline Dal- ton. Leikstjóri og höfundur Brynja Bene- dikdóttir. Tilvalið fyrir erlenda ferðamenn og þá sem skilja enska tungu. Listasýning Árbæjarsafn | Samsýning á bútasaumi, Röndótt – Köflótt, í Kornhúsinu. Opið í sumar frá kl. 10–17. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning á efni sem tengist ferðamönnum í Reykjavík, svo sem póstkortum, útgefnu efni og skjöl- um sem varpa ljósi á sýn ferðamanna á Reykjavík og það hvernig Reykjavík hefur kynnt sig fyrir ferðamönnum frá 18. öld til dagsins í dag. Aðgangur er ókeypis. Bókasafn Seltjarnarness | Sýning á brúðum Rúnu Gísladóttur kl. 10–19. Handverk og Hönnun | „Sögur af landi“. Til sýnis er bæði hefðbundinn íslenskur list- iðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni. Listasafnið á Akureyri | Skrímsl – Óvættir og afskræmingar til 21. ágúst. Norska húsið í Stykkishólmi | Sýning til- einkuð samfelldum veðurathugunum á Ís- landi í 160 ár (til 1. ágúst). Svartfugl og Hvítspói | Sveinbjörg Hall- grímsdóttir með grafíksýninguna Blæ til 17. júlí. Söfn Árbæjarsafn | Útiminjasafn með fjöl- breyttum sýningum, leiðsögumönnum í búningum og dýrum í haga. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýningin Through the Visitor’s Eyes, þar sem fjallað er um þróun ferðaþjónustu í Reykjavík og hvernig ferðamenn upplifðu borgina. Textar á íslensku og ensku. Sýningin er á 1. hæð Grófarhúss, Tryggvagötu 15, og er op- in alla daga. Aðgangur er ókeypis. Lindasafn | Núpalind 7, Kópavogi. Safnið er opið alla daga í sumar. Skáld mánaðarins er Arnaldur Indriðason. Ráðhús Þorlákshafnar | Á sýningu í Ráð- húsi Ölfuss gefur að líta margar tegundir uppstoppaðra fiska, bæði vel þekktar teg- undir og furðufiska. Víkin, Sjóminjasafnið í Reykjavík | Grandagarði 8. Fyrsta sýning safnsins „Togarar í hundrað ár“ stendur nú yfir. Sögu togaraútgerðar á Íslandi er gerð skil í munum og myndum. Kaffistofan býður upp á ilmandi kaffi og fallegt útsýni yfir Reykja- víkurhöfn. Opið: 11–17. Lokað mánudaga. Þjóðmenningarhúsið | Sýningar eru opnar alla daga frá kl. 11 til 17. Helstu sýningar eru; Handritin, Fyrirheitna landið og Þjóð- minjasafnið – svona var það. Á veit- ingastofunni Matur og menning er gott að slaka á og njóta veitinganna og útsýnisins yfir Arnarhólinn og höfnina. Þjóðmenningarhúsið | Norrænt bókband 2005. Á sýningunni er áttatíu og eitt verk eftir jafnmarga bókbindara frá Norð- urlöndunum. Opið frá kl. 11–17. Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til menning og samfélag í 1200 ár, á að veita innsýn í sögu íslensku þjóðarinnar frá landnámi til nútíma. Á henni getur að líta um 2000 muni allt frá landnámstíð til nútíma auk um 1000 ljósmynda frá 20. öld. Sýningin er hugsuð sem ferð í gegnum tímann. Skemmtanir Café Victor | DJ’s lifandi tónlist alla fimmtudaga í sumar. Fjör og fimm í fötu fíl- ingur. Mannfagnaður Akranes | Ein stærsta fjölskylduhátíð árs- ins, Írskir dagar, fer fram helgina 7.–10. júlí á Akranesi. Götugrill, markaðstjald, lands- frægir skemmtikraftar, tívolí, Skagamótið í knattspyrnu, Bylgjan á puttanum og margt, margt fleira! www.irskirdagar.is. Námskeið Árbæjarsafn | Örámskeið í flugdrekagerð, tálgun, þæfingu, glímu og kveðskap. Nám- skeiðin eru ætluð börnum í fylgd með full- orðnum og eru kl. 13–16. Tálgun: 13.7. Glíma: 9.7. og 14.7. Kveðskapur: 23.7. Verð 1.000–2.500 á mann. Upplýsingar og skráning í síma 411 6320. Börn Brúðubíllinn | Brúðubíllinn sýnir í Skerja- firði við Reykjavíkurveg kl. 14. Útivist Þjóðgarðurinn Þingvöllum | Jón Hnefill Aðalsteinsson fjallar um helgisiði manna á þjóðveldistímanum á fimmtudags- kvöldgöngu í þjóðgarðinum á Þingvöllum. M.a. verður fjallað um mannblót í heiðnum sið og heimildir um slíkt á Þingvöllum. Gangan hefst við fræðslumiðstöð þjóð- garðsins, ofan við Almannagjá, kl. 20. Staður og stund http://www.mbl.is/sos Árnaðheilla dagbók@mbl.is Brúðkaup | Gefin voru saman 11. júlí sl. í Kópavogskirkju af sr. Ægi Fr. Sigurgeirssyni þau Kristrún Sæ- björnsdóttir og Magnús Magnússon. Ljósmyndaver Hörpu Hrundar Brúðkaup | Gefin voru saman 5. mars sl. í Stokkseyrarkirkju af sr. Úlfari Guðmundssyni þau Halla Rós Eiríks- dóttir og Sturla Símon Viktorsson. EM á Tenerife. Norður ♠1097643 ♥DG3 ♦8 ♣KD5 Pólverjinn Martens tók upp hönd norðurs hér að ofan í upphafi opnu sveitakeppninnar á Kanaríeyjum. Makker hans var gjafari og passaði í byrjun, en Ísraelinn Kalish vakti á Standard-laufi. Martens var utan hættu og stökk í hindrandi í tvo spaða og skömmu síðar voru andstæðing- arnir komnir í þrjú grönd: Vestur Norður Austur Suður Kalish Martens Podgur Jassem – – – Pass 1 lauf 2 spaðar Dobl * 3 spaðar Pass Pass 3 grönd Pass Pass ? Dobl austurs er til úttektar og þrír spaðar félaga frekari hindrun. Myndi lesandinn gera meira í spor- um Martens? Þetta eru varnarspil, svo það er langsótt að fórna í fjóra spaða. Flestir myndu því passa og freista gæfunnar í vörninni. En Martens gerði gott betur – hann doblaði!? Norður ♠1097643 ♥DG3 ♦8 ♣KD5 Vestur Austur ♠Á5 ♠KD ♥K8 ♥Á10764 ♦ÁG62 ♦KD95 ♣ÁG876 ♣32 Suður ♠G82 ♥952 ♦10743 ♣1094 En hitti ekki á óskastundina. Sagn- hafi á níu slagi beint og fékk tvo í við- bót á hjarta, eða samtals 11 slagi og 1150 fyrir spilið. Pólverjar unnu samt 6 IMPa, því hinum megin sögðu sveitar- félagar Martens sex tígla og unnu (1370)! BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.