Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.08.2005, Blaðsíða 4
ÁTAKSVERKEFNIÐ Áform snýst ekki lengur aðeins um að flytja ís- lenskt lambakjöt til Bandaríkjanna því um þessar mundir eru að fara í sölu í verslunum Whole Foods Mark- et keðjunnar skyr, ostar og smjör frá MS/MBF, súkkulaði frá Nóa-Síríusi, Viking-bjór og blómadropar frá Kristbjörgu Kristmundsdóttur. Eru allar þessar vörur seldar undir vöru- merkinu „Sjálfbært Ísland frá 874“ og er t.d. skyrið kynnt undir heitinu SKYR og smjörið einfaldlega sem SMJÖR. Þá munu 70 af 140 verslunum Whole Foods Market eingöngu hafa íslenskt lambakjöt á boðstólum næstu þrjá mánuði, eða fram að þakkargjörðarhátíðinni. Reiknað er með að um 350 tonn seljist á þeim tíma. Áform hefur einnig aðstoðað við útflutning á íslenskum laxi og reyktri bleikju á Bandaríkjamarkað. „Við höfum verið að byggja upp markað í Bandaríkjunum fyrir ís- lenskar sælkeravörur, með næga framleiðslugetu en um leið mikil gæði. Við byrjuðum á lambakjötinu, það hefur rutt brautina og fengið það góðar viðtökur að Bandaríkjamenn vilja fleiri vörutegundir frá Íslandi. Fyrst var byrjað með kjötið í níu verslunum en nú er það komið í 140 verslanir. Tvö ár eru síðan við feng- um fyrst fyrirspurn um að fá íslenskt skyr, sem hefur algjöra sérstöðu í heiminum. Langan tíma tók að fá innflutning leyfðan í bandaríska landbúnaðarráðuneytinu en nú hefur leyfið fengist. Skyrið er þá flokkað sem ostur,“ segir Baldvin Jónsson, verkefnisstjóri Áforms, en nýlega var svo ákveðið að flytja einnig út ís- lenska osta og smjör, ásamt suðu- og mjólkursúkkulaði frá Nóa-Síríusi. Fjórar tegundir af ostum fara í fyrstu vestur um haf; Höfðingi, Dím- on, AB-ostur og Gouda-ostur. Tvær skyrtegundir fara út, með bláberja- og vanillubragði. Hefur Áform m.a. verið í samstarfi við samtök bænda. Whole Foods Market (WFM) er sem fyrr segir með 140 verslanir um öll Bandaríkin og að sögn Baldvins stefna eigendur keðjunnar að því að vera komnir með 300 verslanir í árs- lok 2010. Markmið Áforms sé að koma íslenskum matvörum í allar þessar verslanir. Baldvin segir að til að byrja með fari íslensku matvör- urnar í 28 verslanir WFM og sem Fleiri matvörur í búð- ir í Bandaríkjunum Lambakjöt, skyr, ost- ar, smjör, súkkulaði, bjór og blómadropar Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Morgunblaðið/Einar Falur Íslenska lambakjötið kynnt í einni verslun Whole Foods Market. dæmi um magnið munu 2-3 tonn af skyri fara út vikulega. Áhugi sé í öll- um öðrum verslunum keðjunnar að fá íslensku vörurnar. Daglega fari um 3 milljónir manna í gegnum þess- ar 140 verslanir. Baldvin er á leiðinni til Bandaríkj- anna í lok mánaðarins ásamt Sigga Hall matreiðslumeistara til að taka þátt í matarkynningu á vegum virtr- ar matvælastofnunar. Þar ætla þeir að kynna Ísland sem sjálfbært fram- leiðsluland. Síðan munu 12 meistara- kokkar frá Íslandi fara til Wash- ington í september og matreiða íslenskan mat á jafnmörgum veit- ingastöðum og kynna vörur í versl- unum í borginni. Verða það nokkurs konar „Food and Fun“-dagar. Mikill áhugi fjölmiðla Að sögn Baldvins hafa bandarískir fjölmiðlar sýnt íslensku matvörunum mikinn áhuga að undanförnu, miðlar eins og Washington Post, New York Times, CBS og Fox News. Munu kokkarnir m.a. koma fram í morg- unþáttum sjónvarpsstöðvanna. Þá er nýlega farið að sýna sjónvarpsþætti á 289 stöðvum Public Broadcasting Service í Bandaríkjunum sem sýna meistarakokk fara til veiða með ís- lenskum sjómönnum og smala með bændum á hálendi Íslands. 4 SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR www.ibudalan.is Einfaldari leið að íbúðakaupum Að fjármagna íbúðakaup hjá Íbúðalán.is er einfalt, fljótlegt og þægilegt. Þú ferð einfaldlega inn á vefslóðina www.ibudalan.is og gengur frá þínum málum í tveimur einföldum skrefum - greiðslumatinu og lánsumsókninni. Fasteignasalinn sendir síðan kauptilboðið rafrænt til Íbúðalán.is HÓPUR íslenskra hjartalækna er í samvinnu við landlæknisembættið að fara af stað með rannsókn á því hvort það sé fylgni milli notkunar verkja- lyfsins Vioxx og svipaðra bólgueyð- andi lyfja og aukinnar tíðni hjarta- áfalla og kransæðasjúkdóma í sjúklingum hér á Íslandi. Vioxx var tekið af markaði í fyrra eftir að prófanir á lyfinu í Bandaríkj- unum leiddu í ljós að notkun þess eyk- ur hlutfallslega hættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Á föstudag felldi síð- an kviðdómur í Texas þann úrskurð að bandaríska lyfjafyrirtækið Merck og Co. bæri ábyrgð á dauða manns, sem notaði Vioxx, í maí 2001. Var fyr- irtækið dæmt til að greiða ekkju mannsins bætur upp á 253,4 milljónir dollara, eða sem samsvarar um 16 milljörðum ísl. króna. Úrskurður þessi hefur vakið mikla athygli en ljóst þykir að fleiri munu höfða mál á hendur Merck í kjölfarið, ekki aðeins í Bandaríkjunum heldur einnig í Ástralíu og á Bretlandi, svo dæmi séu tekin. Merck hefur hins vegar þegar tilkynnt að það hyggist áfrýja úrskurði kviðdómsins í Texas. Ekkert endilega hættulegra lyf en önnur sambærileg Vioxx var sett á markað 1999 og náði strax mjög mikilli sölu. Var það meðal annars vinsælt hér heima, t.d. meðal giktarsjúklinga. Jón Atli Árnason giktarlæknir sagði í samtali við Morgunblaðið að honum kæmi úrskurðurinn í Texas nokkuð á óvart, „því að efnislega þá finnst mér ekki vera grundvöllur fyrir þessum málalyktum“. Sagði Jón Atli að alls ekki væri víst að þetta tiltekna lyf væri á neinn hátt frábrugðið svip- uðum bólgueyðandi lyfjum. Vioxx hefði einfaldlega verið rannsakað meira en önnur. Jón Atli segir að bandaríska mat- væla- og lyfjaeftirlitið (FDA) hefði nýverið fjallað um lyfið og þá talið að til greina kæmi að taka það á markað aftur að uppfylltum ákveðnum skil- yrðum. Þetta benti ekki til þess að FDA teldi lyfið beinlínis hættulegt. „Hins vegar verður að segjast al- veg eins og er að Merck og önnur lyfjafyrirtæki sem voru með svipuð lyf fóru algerlega offari í markaðs- setningu, bæði til lækna og sjúk- linga,“ segir Jón Atli. „Það varð nátt- úrulega til þess að farið var að nota þetta lyf og önnur sambærileg á fólk sem alls ekki átti að vera á þessum lyfjum, hvorki þessum nýrri bólgu- eyðandi lyfjum, svokölluðum Coxib- lyfjum, né öðrum bólgueyðandi lyfj- um. Og þá er ég að tala um fólk með hjartasjúkdóma, mjög aldraða og aðra slíka.“ Segist Jón Atli ekki telja Coxib-lyf- in hættulegri en önnur bólgueyðandi lyf, „og það eru að koma fram rann- sóknir sem styðja þá skoðun mína“. Jón Atli segir þó hvert tilfelli vera einstakt. „Ef það var eitthvað tilfelli sem hefði mátt dæma aðstandendum í hag þá virtist þetta nú vera slíkt til- felli,“ segir hann um málið í Texas, sem nú hefur fallið dómur í. Maðurinn sem lést, Robert Ernst, hafi nefnilega verið afar hraustur, hans eini áhættu- þáttur varðandi hjartasjúkdóma hafi því virst vera þetta tiltekna lyf, Vioxx. Lyfjagagnagrunnur nýtist vel Sem fyrr segir er í burðarliðnum hér heima rannsókn á því hvort það sé fylgni milli notkunar Vioxx og svip- aðra lyfja og aukinnar tíðni hjarta- sjúkdóma og kransæðastíflu í sjúk- lingum á Íslandi. Guðmundur Þorgeirsson, hjarta- læknir á Landspítalanum, fer fyrir rannsókninni af hálfu hjartalækna ásamt Matthíasi Halldórssyni aðstoð- arlandlækni af hálfu Landlæknisemb- ættisins. „Rannsóknarhugmyndin er þessi: að við getum kannað fjölda til- fella hjartaáfalla og kransæðastíflna hjá þeim sem hafa tekið slík giktarlyf, bæði þetta tiltekna lyf og náskyld lyf af sama flokki, sem og önnur giktar- lyf. Þetta getum við borið saman við slíka áfallatíðni hjá fólki almennt,“ sagði Guðmundur í samtali við Morg- unblaðið. Segir hann að Landlæknis- embættið hafi yfir að ráða lyfjagagna- grunni sem eigi að geta nýst vel. „Vegna þess að þessi gagnagrunnur nær til allra landsmanna þá er þarna ákveðinn möguleiki á að við höfum eitthvað til málanna að leggja í þess- ari stóru spurningu. Þessi lyfjaflokk- ur er nefnilega mjög mikilvægur til að halda niðri verkjum hjá sjúklingum. Og spurningin er náttúrulega ekki bara þessi; hafa lyfin aukaverkanir, heldur líka hverjir eru þá valkostirnir og hvað er áhættan mikil?“ Kannað hvort tengsl séu milli notkunar Vioxx og aukinnar tíðni hjartasjúkdóma á Íslandi Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is Jón Atli Árnason Guðmundur Þorgeirsson Hjartalæknar og landlæknisemb- ættið í samstarf Reuters HALLDÓR Sigurðs- son, útvarpsmaður hjá danska ríkisútvarpinu til fjölda ára, lést í Danmörku í gær, 70 ára að aldri, eftir að hafa fengið heilablóð- fall í byrjun vikunnar. Frá þessu er greint á vef danska útvarpsins, DR, en hann lét af störfum sl. vor fyrir aldurs sakir. Halldór fæddist á Ís- landi 5. maí árið 1935. Faðir hans var Hjörtur Sigurðsson en móðir hans dönsk. Fjölskyldan flutti til Danmerkur þegar Halldór var 10 ára. Hann stundaði verslunarnám og lærði einnig spænsku og portúgölsku. Fram kemur á heimasíðu DR, að Halldór hóf störf hjá útvarpinu 1962 sem lausamaður og var fastráðinn þar 1975. Hjá danska útvarpinu sérhæfði Halldór sig í málefnum Suður-Am- eríku og var verðlaun- aður fyrir fréttaþætti sína. Hann skrifaði bækur um Suður-Am- eríku og greinar í blöð, m.a. í Morg- unblaðið um árabil. Andlát HALLDÓR SIGURÐSSON VERKEFNIÐ Áform er í viðræðum við Landssamband smábátaeigenda um að búa til upprunavottun fyrir íslenskan fisk, sem geti verið komið í sölu í verslunum Whole Foods Market á næsta ári. Að sögn Bald- vins Jónssonar er hugmyndin að neytendur geti séð nákvæmar upp- lýsingar um uppruna fisksins, bæði veiðisvæði og smábátasjómanninn. Einnig verði Bandaríkjamönnum gefinn kostur á að koma til Íslands og fara á sjó með trillukörlum. Á sjó með trillukörlum ATVINNA mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.