Morgunblaðið - 30.10.2005, Side 30

Morgunblaðið - 30.10.2005, Side 30
30 | 30.10.2005 Í októbermánuði fer fram skipulagður undirbúningur fyrirhina svokölluðu Halloween eða Hrekkjavökuhátíð. Þaðkom mér á óvart hvað fólk hér virðist leggja mikið upp úr þessari heiðnu hátíð sem á uppruna sinn á Írlandi á fimmtu öld fyrir krist. Hjá frændum okkar Keltum lauk sumrinu 31. októ- ber og nýtt ár gekk í garð. Fólk trúði því að á þessum degi gengju andar þeirra sem hefðu dáið á árinu aftur, í leit að nýjum sálum til að taka sér bólfestu í. Því eingöngu með því móti fólst von um líf eftir dauðann. Þennan dag ársins væru samskipti þeirra látnu við lifendur eins og best yrði á kosið því öll lögmál um tíma og rúm væru þá numin úr gildi. Það er ekki fyrr en í kringum 1840 að siðurinn berst til Bandaríkjanna með írskum innflytjendum. Í þá daga fólust hrekkirnir víst helst í því að velta við útihúsum og opna hlið ná- grannannabænda svo þeir misstu skepnur sínar út um allt. En nú er þetta stærri iðnaður en sjálf jólin. Við fórum í hrekkjavökubúð eftir fortölur dætr- anna. Og misstum okkur. Leðurblöku- ljósaseríur, beinagrindur og fljúgandi draugar prýða nú húsið okkar, öllum til ómældrar ánægju og reyndar líka nokkurrar skelfingar. Svo var þetta líka svo ódýrt. Fyrir andvirði einnar jólaseríu á Íslandi gat ég keypt vamp- írubúninga á alla fjölskylduna. Þá meina ég tennur, kufla, gerviblóð, all- an pakkann. Fyrir utan að vera gósentíð verslun- armanna er þetta líka uppskeruhátíð. Hausti lokið og ástæða til að gleðjast yfir gjöfulu sumri. Okkur var boðið í graskersskurðarpartí og fórum því á graskerssölu. Þetta var virkileg amerísk sveitastemmning. Tilheyrandi hey- baggar og ilmandi grillaðir kornstönglar á boðstólum. Það reyndist þrautin þyngri að velja sér grasker því þau eru eins og mannfólkið hvert með sitt svipmót. Ég heyrði konur velta vöng- um yfir lit og sköpulagi þessara undarlegu ávaxta. Hvernig gras- ker á ég nú að vera með í ár? Já það er ekki vandalaust að velja. En yfir í aðra sálma. Við skruppum á enskan pöbb sem er í hverfinu. Eins breskur og þeir gerast, teppi á gólfum og enskur bjór á krana. Konu einni sauðdrukkinni var vísað vingjarnlega á dyr af vertinum. Hún gerði sér lítið fyrir og skellti sér í jörðina fyrir utan grind- verkið og vildi meina að karlinn hefði hrint sér. Enginn við- staddra hafði þó orðið vitni að því. Hún lá á stéttinni og span- gólaði þar til um hana hafði safnast hópur manna. Hún heimtaði að það yrði kallað á sjúkrabíl. Hún virtist nú samt nokkuð ánægð með athyglina sem hún fékk og ekki leið á löngu þar til hún var búin að hagræða sér á stéttinni á afar djarfan hátt og farin að brosa daðurslega framan í vildarmenn sína sem stumruðu yfir henni. Ekki var á þessari stundu ljóst hvort hún vildi sjúkrarúm eða samfarir. Nú renndi í hlaðið brunabíll og út stukku tveir slökkviliðs- menn í fullum skrúða. Mér var hulið hvers vegna brunaliðið var komið á staðinn því ekki stóð konan í ljósum logum, þótt undir niðri kraumaði augljóslega óhamin ástríða. Þeir gerðu sér lítið fyrir og skelltu kvenbelgnum í lóðréttri stöðu í stólgrind ekki óáþekka þeirri sem mannætan Hannibal Lecter var fluttur í á milli fylkja. Síðan var henni rúllað á stólnum inn í bílinn að aft- anverðu og undir þessu þandi konan raddböndin. Annar brunakallanna kom út og setti upp gúmmíhanska og fór aftur inn í bílinn, og þá fyrst þögnuðu lömbin. Fyrir þetta þarf veslings konan eflaust að borga talsverðar upphæðir því þjónusta af þessu taginu er nú ekki gefins í henni Ameríku. Ég tala nú ekki um ef hún hefur verið færð á slysa- deildina til skoðunar. Þetta fyllerí gæti því reynst henni dýrkeypt spaug. Happí Halló-vín! | steinunnolina@mbl.is Af draugum og drykkfelldum konum Pistill Steinunn Ólína Fyrir andvirði einnar jólaseríu á Íslandi gat ég keypt vamp- írubúninga á alla fjölskylduna. SMÁMUNIR… Þeir sem lita reglulega á sér hárið kannast við hve hratt liturinn dofnar og jafnvel gulnar. Ástæðu þessa má, að sögn bandaríska hárvörufyrirtækisins I.C.O.N., m.a. rekja til súlfats sem fyrirfinnst í flestum sjampótegundum. One Soul er hins vegar súlfatfrítt sjampó sem I.C.O.N. hefur sett á markað og ætl- að er öllum hártegundum. Með One Soul skal liturinn haldast lengur fallegur þar sem sjampóið á að bæta rakabúskap hársins og auka gljáa, auk þess sem vítamíninnihald þess á að vernda hárið gegn skaðlegum áhrifum umhverfisins. Orkusjampóinu Energy, sem nærir hársekki og eykur blóðstreymi um hár- svörðinn er hins vegar ætlað að endurnæra hárið, styrkja og auka gljáa á sama tíma og óhreinindin eru fjarlægð og hárið þar með gert viðráðanlegra. I.C.O.N. vörunar fást m.a. í Kristu, Kringlunni. Burt með gula tóninn Gúmmímottur til skrauts Tinna Gunnarsdóttir hefur hannað glasamottur úr gúmmíi sem minna á blúndudúka og pottaleppa og fara vel sem borðskraut. Hægt er að nota motturnar undir hvaðeina sem manni hugnast, til að mynda glös eða blómapotta. Motturnar eru handunnar úr gúmmíi og þola 70 gráða hita. Þær fást í Kokku við Laugaveg og kosta 2.800 krónur fjórar saman. Miðstærð kostar 950 krónur og stór 1.500 krónur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.