Morgunblaðið - 14.12.2005, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 14.12.2005, Qupperneq 22
Fyrir heimilið Mikið úrval af ilmkertum, reykelsum, heimilisilmi og fleiru fyrir heimilið. L’Occitane heimilislínan skapar sætan jólailm Jólastjörnur til að setja ilm á Ljósaperuhringir til að setja ilm á. Laugavegi 76 - 101 Reykjavík Fljótsdalshérað | Það er mis- jafnt hvernig Héraðsbúar ná sér í jólatré fyrir jólin. Sumir kaupa sér tré í búð, aðrir axla eggvopn og ösla með fjölskylduna út í skóg að leita rétta trésins. Það er þó ekki svo að menn geti höggvið sér tré hvar sem er, þeir sem ekki eiga beinlínis eig- in skógræktarreiti leita á náðir forsvarsmanna skóganna, sem gjarnan auglýsa trjásöludaga á aðventunni fyrir almenning. Forsvarsmenn Eyjólfs- staðaskógar á Völlum hafa boðið fólki að koma og sækja sér tré og er svo rukkað fyrir eftir lengd þess. Í skóginum getur fólk fundið sér furu, rauð- eða blágreni og verðið rúmlega tvö þúsund krónur og á fimmta þús- undið. Skógræktarfélag Austur- lands keypti Eyjólfsstaðaskóg árið 1944. Auk sumarhúsalands við Einarsstaði hafa verið byggðir á sjötta kílómetra af vegum og göngustígum í skóg- inum og víða verið sett upp borð og bekkir göngufólki til hægð- arauka. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Þar höggva menn sitt jólatré Skógrækt Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN GSM-kerfið eflt | Og Vodafone hefur tekið í notkun nýjan GSM-sendi í Hegra- nesi í Skagafirði. Nýr sendir tryggir við- skiptavinum betra samband milli Sauð- árkróks og Varmahlíðar og í Blönduhlíð, frá Frostastöðum og norðureftir. Stöðugt er unnið að því að efla GSM-kerfi Og Voda- fone en það nær nú til 99% landsmanna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.    Ljósmyndir í Saltfisksetri | Ljósmyndir eru sýndar í Saltfisksetrinu í Grindavík þessa dagana. Eru þetta 3.300 myndir sem Ómar Smári Ármannsson hefur valið úr ferðum Ómars Smára og félaga úr FERL- IR, Ferðafélagi rannsóknarlögreglumanna í lögreglunni í Reykjavík, í nágrenni Grindavíkur og víðar á Reykjanesi. Miðvikudaginn 14. desember verður Saltfisksetrið opið til kl. 22 og mun Ómar þá útskýra og svara fyrirspurnum um myndirnar. Áhugafólk um náttúru Reykjanesskag- ans er hvatt til að koma og láta reyna á kunnáttu sína um staðhætti og fornar minj- ar og nöfn á kennileitum.    spýturnar, ljóti andarunginn og dverg- arnir sjö þó engin væri Mjallhvít. Lína langsokkur sá um kynningu og var einkar lífleg og skemmtileg, rétt eins og hennar er von og vísa. Á myndinni má bæði sjá Pétur pan og dvergana sjö í lokaatriði sýning- arinnar. Jólasýning Fimleikadeildar Kefla-víkur var með glæsilegasta móti íár, þar sem deildin er 20 ára á árinu. Ævintýraþema var á sýningunni og brugðu ýmsar ævintýrafígúrur á leik, allar í fleirtölu. Pétur pan sýndi listir sínar, Rauð- hetta, Öskubuska, litla stúlkan með eld- Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Ævintýrafígúrur bregða á leik Hálfdan ÁrmannBjörnsson leggurút af vísum frá í gær um Jón Baldvin Hannibalsson afturgeng- inn í stjórnmálum: Oft það mátti áður finna, afturgengnir reyndust miður. Dæmist vera dómklerks vinna, drauginn þann að kveða niður. Séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur svarar þegar: Þó að stefni í þjóðartjón það er ekki bóla ný. En ætla að fara að jafna um Jón! Ég kem ekki nálægt því. Benedikt Jónsson fagnar nýju dæmi um útrás Ís- lendinga: Enginn má við útrás spyrna okkar hér við sker. Alheimsdrottning Unnur Birna Íslands hróður ber. Og Ingólfur Ómar Ár- mannsson yrkir vísu í anda jólanna: Við það hýrnar viðmótið að vonum hrindir trega; ölið drekka, daðra við dömu yndislega. Enn af Jóni pebl@mbl.is Suðurnes | Stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja skorar á sveitarstjórnir á Suð- urnesjum að endurskoða veitingu samn- ingsumboða sinna til launanefndar sveitar- félaga. Sveitarfélögin eru hvött til að taka upp sjálfstæða, ábyrga og uppbyggilega launastefnu byggða á eigin forsendum. Þá óskar félagið eftir viðræðum við sveitar- félögin í ljósi samninga í Reykjavík. Í bréfi sem Starfsmannafélagið hefur sent sveitarstjórnunum á Suðurnesjum segir að í aðdraganda síðustu kjarasamn- inga við launanefnd sveitarfélaga hafi fé- laginu verið stillt upp við vegg, ef félagið samþykkti ekki að taka upp hið nýja starfs- matskerfi væri ekki grundvöllur af hálfu LN að ganga til samninga við félagið. Í hinu nýja samræmda starfsmati væri meg- inmarkmið að sömu laun yrðu greidd fyrir sambærilega vinnu, óháð kyni og búsetu. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborg eru aðilar að þessu nýja starfsmati. „Nýr samningur þessara aðila gerir það að verkum að ofangreind mark- mið starfsmatsins eru brostin. Með því að Reykjavíkurborg semji sjálf við viðsemjendur sína í stað þess að fela LN samningsumboðið eins og öll önnur sveitarfélög hafa gert sýnir að Reykjavík- urborg hefur metnað til að sjá sjálf um samningagerðina þar sem launastefnu borgarinnar er komið vel til skila. Reykja- víkurborg hefur því ákveðið að standa utan við láglaunastefnu LN og sveitarfélögin á Suðurnesjum ættu að gera slíkt hið sama.“ Óskar eftir beinum við- ræðum við sveitarfélögin Keflavíkurflugvöllur | Vel hefur gengið að opna bráðabirgðaleið farþega úr innritunar- sal upp í brottfararsal Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar. Vegna framkvæmda í flugstöð- inni var uppgangurinn færður til bráða- birgða síðastliðinn fimmtudag. Um þúsund farþegar fóru af landi brott á fimmtudagsmorguninn og „allt gekk glimr- andi“ eins og það er orðað á vef Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar en þar er unnt að fylgjast með framkvæmdunum á sérstökum síðum. Sömu sögu er að segja af gangi mála á öðr- um álagstímum eftir breytinguna. Starfsfólk við innritun kemur skilaboðum um nýjan inngang til farþeganna og flug- farþegar hafa gengið rakleiðis að nýja inn- ganginum hægra megin í salnum. Breyting á leiðum hefur gengið vel ♦♦♦ Jólaljós 2005 | Nú er komið að því að vaskir húseigendur keppist um að láta ljós sitt skína. Á vef Austurbyggðar greinir frá því að hefð sé orðin fyrir að Djúpavogsbúar keppi sín á milli í því hver sé með fallegustu skreytinguna og verði engin breyting þar á í ár. Fyrirkomulagið er þannig að húseig- endur senda mynd af húsi sínu á netfangið djupivogur@djupivogur.is þegar skreyt- ingameistaraverkið er fullkomnað. Skila- frestur til að senda myndir er til að- fangadags. Þá segir að geti húseigendur ekki tekið slíka mynd sé starfsfólk Djúpa- vogshrepps boðið og búðir að mæta á stað- inn og mynda ljósadýrðina vegna keppn- innar. Ljóst er að búast má við harðri keppni um ljósagang hýbýla Djúpavogs- manna fram að jólum.    Selja sinn hlut | Stjórn og trúnaðar- mannaráð Verkalýðsfélags Húsavíkur hef- ur samþykkt að selja hlut félagsins í Félags- heimili Húsavíkur. Félagið á 8,25% hlut í Félagsheimilinu og áætlað söluvirði er um 3,2 milljónir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.