Tíminn - 04.05.1971, Síða 1
bílasoila
GUÐMUNDAR
Bergþóruqötu 3
Símar: 19032 — 200?C
99. tbl.
— Þriðjudagur 4. maí 1971 —
55. árg.
Walter Ulbricht
Ulbrícht
hættur!
Verkalýðsmálanefnd
Framsóknarflokksins:
Harma afstöðu
ASÍ íölfus-
borgamálinu
EJ—Reykjavík, mánudag.
Á fundi Verkalýðsmálanefndar
Framsóknarflokksins fimmtudaginn
29. apríl sl. var gerð einróma sam-
þykkt um svonefnt Ölfusborgamál,
þar sem afstaða stjórnar Alþýðu-
sambands íslands í málinu var
gagnrýnd.
Samþykkt nefndarinnar er svo-
hljóðandi:
„Verkalýðsmálanefnd Framsókn-
arflokksins harmar afstöðu stjórn-
ar Alþýðusambands íslands til „Ölf-
Uihorgamálsins".
I trausti þess, að stjórn ASI sé
ekki alls varnað, skorar Verkalýðs-
málanefnd Framsóknarflokksins á
stjórnina að bregðast skjótt við og
sjá sóma sinn í að greiða hin van-
goldnu laun', sem henni ber tví-
mælalaust siðferðileg skylda til.
Einnig ályktar Vcrkalýðsmála-
nefndin, að setja beri hið fyrsta
lög, er tryggi ótvíræðan forgangs-
rétt launakrafna.“
NTB—Berlín, mánudag.
Leiðtogi austur-þýzkra komm-
únista, Walter Ulbricht, hefur
sagt af sér embætti sem aðalrit-
ari sósíalistíska einingarflokks-
ins — kommúnistaflokks Austur-
Þýzkalands —, að sögn austur-
þýzku fréttastofunnar ADN í
kvöld.
Tilkynning ADN.kom nokkrum
klukkustundum eftir að franska
fréttastofan AFP skýrði frá því í
fréttaskeyti frá Moskvu, að full-
yrt væri þar að Ulbricht myndi
segja af sér innan skamms. Aust-
ur-evrópskar heimildir í Moskvu
fullyrtu þá, að Ulbricht léti af
embætti aðalritara af heilsufars-
Framhald á bls. 10.
IGÞ—Osló, mánudag.
Noregur hcilsaði forseta íslands, dr. Kristjáni Eldjárn og for-
setafrú, HaHdóru Eldjárn, með björtu maíveðri og miklum hlýind-
um, er þota Flugfélags íslands, sem flutti þau, lenti kl. 11,10 að
staðartíma á Fornebu-flugvelli. Fjórar þotur frá flugher Noregs
höfðu þá fylgt þotu Flugfélagsins í um hálfa klukkustund. Á flug-
vellinum tóku Ólafur konungur, Haraldur krónprins og Sonja prins-
essa á móti forsctahjónunum, en einnig norska ríkisstjórnin, for-
setar norska stórþingsins, biskupinn í Osló, borgarstjórinn í Osló
og sendifuiltrúar erlendra ríkja í Noregi. Emil Jónsson, utanríkis-
ráðherra, var einnig viðstaddur, ásamt Agnari Kl. Jónssyni, am-
bassador íslands í Noregi, og konu hans. Þegar leiknir höfðu verið
þjóðsöngvar beggja landanna og lífvörður kannaður, var ekið til
konungshallarinnar, þar scm forsetahjónin gista á meðan á dvöl
þeirra stendur hér í Noregi.
Síðdegis í dag höfðu forseta-
hjónin boð inni fyrir erlenda
sendimenn í Noregi, en í kvöld
sátu þau veizlu Olafs Noregs-
konungs.
Það var tilkynnt í dag hér í
Osló, að norska vísindaakademí-
an hefði kjörið dr. Kristján Eld-
járn heiðursfélaga sinn fyrir vís
indastörf hans, og um hádegis-
bilið á morgun verður forsetan-
um afhent heiðursskjal akademí
unnar við hátíðlega athöfn í
konungshöllinni.
Otvarp og sjónvarp hafa sagt
frá komu forsetans i dag, og í
kvöld á að vera dagskrá í
norska útvarpinu um forseta-
heimsóknina.
I dag er fjallað um forseta-
heimsóknina í forystugrein í út-
breiddasta blaði Noregs, Aften-
enposten.
Þar segir m. a., að flestum
Norðmönnum muni ekki finn-
ast neitt sérstaklega spennandi
eða áhrifaríkt að fá íslenzka
forsetann í heimsókn. „Eyríki
langt vestur í hafinu er heldur
ekkert stórveldi, og þótt á vor
um dögum séu margar leiðir til
samskipta, veit heimurinn ekki
svo mikið um það, sem gerist
afkimum hans og lítið heyr
ist frá íslandi. Þar gengur lífið
sinn vana gang án vandamála,
rólega og samstillt. ísland er
einn af þeim guðs útvöldu stöð
um á bessum hnetti, þar sem
fólk getur enn einbeitt sér að
friðsamlegri tilvist, og helgað
sig framleiðslu og uppbygg-
ingu. Saga íslands og Noregs
er samtvinnuð og einu sinni
töluðu íslendingar og Norð-
menn sama tungumál, en at-
vikin sem hvorug þjóðin réði
við, urðu þess valdandi að
þetta breyttist. Það liggur mik
ið haf milli íslands og Noregs,
og einu sinni fóru menn frá
Noregi til íslands og byggðu
það land. En þetta haf var að-
eins landfræðileg staðreynd,
en íslendingar og Norðmenn
hafa um árhundruð í stormlxm
og kuldum ætíð haldið tengsl
um sín á milli. Það eru einmitt
þessi tengsl, sem eru, minnis
verð í dar þegar við byggjum
á sama menningararfi, og við
horfum til sömu framtíðar. Því
bjóðum við forseta fslands hjart
anlega velkominn til Noregs
ekki bara feem æðsta mann Is-
lands. heldur sem góðan vin,
og kæran norrænan frænda.“
Framhald á bls. 10.
Forsetahjónin komin til Noregs. F. v. Haraldur ríkisarfi, Halldóra Eldjárn, forsetafrú; dr. Kristján Eldjárn, forseti íslands; Sonja prinsessa og
Ólafur Noregskonungur. (Síngamynd UPI)
Ræða forseta íslands í gærkvöldi — bls. 3
Myndir bls. 2
Forsetahjónunum f
í björtu og hlýju veðri