Tíminn - 04.05.1971, Qupperneq 6
I
—• -J'V
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 4. maí 1071
ASalstö'ðvar kostnaðarsam-
asta og hættulegasta rannsókn-
arleiðangurs núlifandi dýra
fræðinga voru bandaríska rad-
araðvörunarstöðin á Kap Lis-
bume í Norður-Alaska. Þetta er
herstöð við jaðar stærsta jök-
uls í heimi, Norðurheimskauts-
landsins. 1 sjö vikur varð hóp-
ur vísindamanna undir forystu
bandaríska líffræðingsins Jim
Brooks að dvelja þama í fyrra
til þess að fá níu daga af góðu
flugveðri. En erindið var að
telja ísbimi. Kuldinn fór allt
niður í 45 stiga frost. Flogið
var allt upp í 300 km. vegalengd
í átt til Síberíu í flugvél, sem
búin er útbúnaði, sem til þessa
hafði aðeins verið notaður til
njósna. Tæki þessi greina með
infrarauðum geislum þann hita,
sem vélknúið farartæki eða líf-
vfirur skilja eftir sig á leið
sinni um kalt landið, í þessn
tilfelli ísbimir.
Samkvæmt loftmyndum vora
vísindamennirnir fluttir nálægt
ísbjörnunum, sem sézt höfðu.
Þeir skutu hylkjum með deyfi-
lyfi í líkama bjamanna og
lögðu þá að velli í stundarkom
til þess að geta rannsakað og
merkt þessi sterknstu rándýr
jarðarinnar án áhættu. t fyrra
merktu leiðangursmenn 28 ís-
bimi.
Alls hafa 400 ísbirnir á þenn-
an hátt orðið „fómardýr1 vísind
anna — eftir að nágrannaþjóðir
Norðurheimskautslandsins
héldu með sér ráðstefnu 1965.
Þar hófst umfangsmesta sam-
starf, sem nokkra sinni hefur
verið efnt til, til þess að rann-
saka og stuðla að viðhaldi dýra-
tegundar, sem hætta er á að
verði útrýmt.
Sovétmenn friðuðu ísbirnina
400 ísbirnir voru merktir. Númerin vara veiðimenn viS. Þessi dýr eru
helguS vísindunum.
Það líður ekki á löngu unz ísbirnir Norðpr-
heimskautslandsins deyja út ef hvítabjarna-
veiðar verða ekki takmarkaðar. Nokkur í:
eru síðan alþjóðlegar aðgerðir hófust í þvi
skyni að viðhalda þessari stórvöxnustu rán-
dýrategund í heimi. Vísindamenn kanna nú
viðkomu hvítabjarna og tölu veiddra dýra.
En þetta eru kostnaðarsömustu aðgerðir,
sem framkvæmdar hafa verið til viðhalds
nokkurri dýrategund.
þegar 1955 — en enn þann dag
í dag era hins vegar snobbar í
hópi veiðimanna í Evrópu og
Ameríku sólgnir í að geta látið
ísbjarnarfeld hanga yfir arnin-
um heima hjá sér, en slíkir
gripir gerast nú æ sjaldséðari.
Á síðasta áratug voru um 5000
ísbirnir skotnir áðéins í Norður-
Kanada og í Noregi urðu á
sama tíma 2800 hvítabimir að
láta lífið vegna feldarins.
ísbirnirnir hafa lítið verið
rannsakaðir
Ekki er vitað um heildarvið-
nám ísbjarnastofnsins né hve
mikil viðkoma þeirra er, og
þess vegna er ástæða til að ótt-
ast að honum kunni að stafa
mikil hætta af þessum veiði-
mönnum. Lítið er einnig vitað
um lifnaðarhætti ísbjama vegna
þess hve háskaleg heimkynni
þeirra eru mðnnum.
Það, sem við vitum er þetta:
ísbirnir era stærstu kjötætur í
hópi landdýra og lifa einkum á
selum. Þeim lætur jafn vel að
fóta sig á sprungnum meginís
jökulsins og að syndá á opnu
hafi með um það bil göngu-
hraða manns. Þeir lifa .einn og
einn. Meðgöngutíminn er átta
mánuðir, og birnurnar eignast
oftast tvö afkvæmi í senn, á
kaldasta tíma ársins. Húnamir
eru tvö ár með móðurinni —
en hún verður að því er virðist
ekki þunguð á þeim tíma.
Kæruleysir veiSimenn
valda dýravinum
áhyggjum
Það, sem við vitum ekki, er
þetta: Hve margir húnar deyja
ófullvaxta, tíðni dauðsfalla
Á kortinu sjást heimkynni hvífa.
bjarnanna innan punktalínunnar.
vegna sníkjudýra eða drukknun
ar á löngum sundferðum. Há-
marksaldur og viðkoma eru
einnig ókunn. Nýjustu rannsókn
ir leiddu í ljós, að allir ísbirnir
fara eins og hafísinn alltaf rang-
sælis umhverfis norðurpólinn.
Samkvæmt talningum „fs-
bjamarráðstefnunnar" era nú
til um 10.000—15.000 hvítabim-
ir. En fjöldinn 12.000 er talinn
lágmark ef þessi dýrategund á
að viðhaldast.
En þeir, sem græða á ís-
bjamaveiðiferðum telja
áhyggjufullum dýravinum trú
um að hvítabimimir séu enn
um 70.000. Ahyggjulaus auglýs-
ir þýzkur kaupmaður og veiði-
maður í þýzku sporttímariti 14
daga íshafsferð fyrir næstum
200.000 ísl. krónur nú í siímar.
Þátttakendum er tryggt að þeir
veiði ísbjöm í ferðinni. „ís-
bjamaveiðar með ms. Isola, enn
era pláss laus í ferðina — sá,
sem pantar snemma hlýtur
beztu veiðisvæðin og bezta
veiðileiðsögumanninn!*1, svo
segir í auglýsingunni.
Þeir vita ekki hvað þeir gera.
(Þýtt úr þýzku).
Höfum ávallt fyrirliggjandi aliar stærðir skraut-
hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta með
svartri rönd.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
GÚMMfVINNUSTOFAN H.F.
Sklpholti 35 — Reykjavík — Sími 30688
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
AUGLÝSINGASÍMI: 19523
Eftir hálftíma á hvítabjörninn a5 vakna eftir deyfinguna. En vísindamennirnir flýta sér viS starf sitt,
ef svo færi aS bangsi hrykkl upp fyrr. Dregin er úr honum tönn tll aldursákvörðunar. Hann fær látúns-
merki i eyrað og ioks er málað á hann númer stórum stöfum með endingargóðum lit.