Fréttablaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 1
FÓTBOLTI „Fyrir leikinn hefði ég verið ánægður með jafntefli en eftir hann er ég dálítið svekktur,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson lands- liðsþjálfari eftir að Íslendingar og Þjóðverjar gerðu markalaust jafntefli á Laugardalsvelli. Ís- lenska liðið lék feikilega vel og var í raun óheppið að fara ekki með sigur af hólmi. Það sést kannski best á því að Þjóðverjar björguðu tvisvar á marklínu. „Við lékum með hjartanu,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins, að leik loknum. Íslendingar eru í efsta sæti fimmta riðils í und- ankeppni Evrópumótsins eftir úr- slit gærdagsins, einu stigi á undan Þjóðverjum og tveimur stigum á undan Skotum. Síðarnefndu þjóð- irnar eiga leik til góða og mætast í Hamborg á miðvikudag. Sjá bls. 30-32. MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 34 Leikhús 34 Myndlist 34 Íþróttir 30 Sjónvarp 36 SUNNUDAGUR 7. september 2003 – 214. tölublað – 3. árgangur FRÁBÆR BYRJUN Don- ald Rumsfeld blæs á gagnrýni sem beinst hefur að aðgerðum Bandaríkjamanna í Írak. Hann segir uppbyggingar- starfs hafa byrjað frábærlega. Sjá bls. 2 ÞARF AUKAFJÁRVEITINGU Útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs eru talsvert meiri en ráð var fyrir gert og eru orðin 1.200 millj- ónum meiri en á sama tíma í fyrra. Aukafjár- veitingar er talið þörf. Sjá bls. 2 HITLER VELDUR DEILUM Ítalir halda áfram að valda Þjóðverjum vonbrigð- um. Nú hafa stjórnvöld í Þýskalandi kvartað við Ítali undan því að þar er framleitt svo- kallað foringjavín, með mynd af Adolf Hitler. Einnig eru til vín nefnd eftir Stalín og Mussolíni. Sjá bls. 4 GREENPEACE Í HVALASKOÐUN Nokkur mannfjöldi lagði leið sína um borð í Rainbow Warrior í gær þegar Greenpeace bauð fólki að kynna sér starfsemi samtak- anna. Fyrr um daginn var farið með blaða- menn í hvalaskoðun en fáar hrefnur létu sjá sig. Sjá bls. 6 +15+11 +11 +14 VEÐRIÐ Í DAG ROFAR TIL Hann er að halla sér smám saman í norð- anátt á vesturhluta landsins og því rofar til hægt og rólega sunnantil. Sjá bls. 6 BÓKMENNTAHÁTÍÐ HEFST Viðamikil bókmenntahátíð hefst með opn- unarhátíð í Norræna húsinu klukkan 15 í dag. Upplestrar verða í Iðnó öll kvöld vik- unnar. Meðal höfunda sem lesa upp úr verkum sínum í kvöld eru Hallgrímur Helgason, Emmanuel Carrere og Yann Martel. Sjá nánar: DAGURINN Í DAG Svekktur með jafntefli Íslendingar og Þjóðverjar gerðu markalaust jafntefli á Laugardalsvelli í gær. Íslendingar voru óheppnir og hefðu átt skilið að sigra. Eru enn í efsta sæti 5. riðils undankeppni Evrópumótsins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Tveir skrifa um Laxness Tveir fræðimenn og rithöfundar, Halldór Guðmundsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson, sitja nú við hvor í sínu horni og skrifa ævisögu Halldórs Laxness. Annar skrifar með samþykki fjölskyldunnar en hinn ekki. Nálgun þeirra á viðfangsefnið er ólík eins og fram kemur í viðtölum Fréttablaðsins við höfundana tvo. ▲ SÍÐUR 20 og 21 Tekist á um tóbakið Sitt sýnist hverjum um að- ferðirnar sem notaðar eru til þess að fá fólk til að hætta að reykja. Deilt er um fyrir- huguð reykingabönn, nýjar merkingar á pökkum og tó- baksvarnalögin. Nærmynd af morðingja Meðal gesta á bókmennta- hátíð er franski rithöfundur- inn og blaðamaðurinn Emmanuel Carrére, sem sló í gegn með bók sinni Óvinin- um. Í viðtali við blaðið talar hann um kynni sín af franska lækninum og morðingjanum Romand. ▲SÍÐA 24 ▲ SÍÐUR 16 og 17 SÍF selt: Sameining úr sögunni VIÐSKIPTI Ekkert verður af því að SÍF og Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna verði sameinuð. Fjögur fyr- irtæki sem vilja reka SÍF áfram sem sjálfstæða einingu keyptu í gær rúmlega 40% hlut í félaginu og tryggðu sér þannig forræði yfir því hvernig framtíð SÍF verð- ur háttað. Því er ljóst að vonir Landsbanka og Íslandsbanka um að sameina SÍF og SH eru runnar út í sandinn. Ólafur Ólafsson, forstjóri Sam- skipa, sem er í forsvari fyrir eig- endahópinn, vonast til að salan verði til þess að tryggja frið um SÍF og starfsemi þess en óvissa um framtíð þess hefur valdið nokkrum óróa. Sjá bls. 4 Friðarferlið: Enn á ný í uppnámi MIÐ-AUSTURLÖND, AP Veikburða friðarferli fyrir botni Miðjarðar- hafs er enn á ný í uppnámi vegna erfiðra samskipta helstu leiðtoga Palestínumanna og harðlínu- stefnu Ísraela. Afsögn Mahmouds Abbas dregur enn úr líkum á því að frið- arferlið sem Bandaríkin, Evrópu- sambandið, Rússar og Sameinuðu þjóðirnar höfðu reynt að koma í framkvæmd. Ísraelar neita að ræða við Ara- fat og nánustu samstarfsmenn hans og halda áfram árásum á for- ystumenn Hamas. Sjá bls. 2 Það var stál í stál þegar Heiðar Helguson og OliverKahn lentu í orðaskaki á leiknum í gærkvöldi. Mótlætið virtist fara í taugarnar á Kahn, sem var valinn besti leikmaður heimsmeistaramótsins í fyrra, enda sýndu íslensku strákarnir frábæran leik og voru óheppnir að sigra ekki. Íslendingar eru efstir í riðlinum en þjóðirnar eigast aftur við í Hamborg þann 11. október í lokaumferð undankeppni EM. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.