Fréttablaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 22
22 7. september 2003 SUNNUDAGUR Jennifer Lopez og Ben Affleckþykja bera af jafningjum sín- um hvað varðar kynþokka og lík- amsfegurð og þau eiga því bæði traustan hóp aðdáenda. Það gefur því augaleið að þegar þau eru ráð- in til að leika í kvikmyndum eru vinsældir þeirra reiknaðar inn í laun þeirra enda eiga nöfn þeirra að tryggja myljandi aðsókn og bullandi gróða. Það er þó því mið- ur ekkert gefið í bíóbransanum og á meðan turtildúfurnar undirbúa glæsibrúðkaup sitt hafa bíógestir og gagnrýnendur snúið baki við þeim í nýjustu mynd þeirra Gigli. Hátt að klífa, lágt að falla Skötuhjúin hafa ekki leitt sam- an hesta sína áður og þessi mikli skellur sem þau hafa fengið í miðasölunni hefur komið öllum að óvörum enda höfðu menn gengið út frá því að það eitt að stilla þeim upp saman myndi gulltryggja gróða og velgegni. Ben og Jenni- fer eru þó síður en svo fyrstu stjörnurnar sem veðja á rangan hest og fá meiriháttar skell. Gigli er að vísu stærsta flopp ársins en kemst þó hvergi nærri stærstu mistökum kvikmyndasögunnar sem hafa bæði sett heilu kvik- myndaverin á hausinn og gert út af við feril aðstandenda þeirra. Ævintýri Eddie Murphy endar illa Gulldrengurinn Eddie Murphy var konungur miðasölunnar upp úr 1980 í myndum á borð við 48. hrs, Trading Places og Beverly Hills Cop. Það er af sem áður var og hann virðist vera orðinn jafn úrelt- ur og hárgreiðslan sem kennd er við „með sítt að aftan“ og þótti ein- kennandi fyrir áratug Murphys. Murphy hefur gert nokkrar mislukkaðar tilraunir til þess að endurheimta forna frægð og á til að mynda heiðurinn af stærsta floppi í manna minnum í Hollywood. Gamanmyndin The Adventures of Pluto Nash frá árinu 2002 kostaði um 100 milljónir doll- ara í framleiðslu en skilaði aðeins 4,4 milljónum í kassann í Banda- ríkjunum. Tapið hljóðaði því upp á rúmar 95 milljónir dollara. Gagnrýnendur rökkuðu mynd- ina niður, kölluðu hana „instant Ishtar“ og voru þar að vísa til þekktrar myndar sem er orðin samnefnari fyrir misheppnaðar stórmyndir. Sjóræningjar sökkva Sjóræningjamyndin The Pirates of the Caribbean sló í gegn í sumar og kom það mönnum nokkuð á óvart þar sem síðasta sjóræningja- stórmynd sem Hollywood veðjaði á, Cutthroat Island, var algerlega mislukkuð. Þar sýndi Geena Davis alla helstu sjóræningjataktana undir leikstjórn þáverandi eigin- manns síns, Finnans Rennys Harl- ins, sem átti meðal annars stórsmellinn Die Hard II að baki. Matthew Modine sveiflaði sjó- ræningjasverðinu á móti Davis en honum reyndari menn höfðu áður haft vit á að láta myndina eiga sig. Michael Douglas hafði verið ráðinn til að leika hlutverk Modines en hætti við þegar Harlin gerði hlut eiginkonu sinnar í handritinu fyrir- ferðarmeiri. Þá segir sagan að Ke- anu Reeves, Liam Neeson, Jeff Bridges, Ralph Fiennes, Charlie Sheen og Michael Keaton hafi allir afþakkað hlutverkið áður en leitað var til Modines. Myndin kostaði rúmar 100 millj- ónir dollara í framleiðslu en tók að- eins inn 9,9 milljónir í kvikmynda- húsum í Bandaríkjunum og var tekin úr umferð eftir tvær vikur. Framleiðslukostnaðurinn var áætl- aður 65 milljónir en rauk upp úr öllu valdi þegar Harlin lét byggja nákvæma eftirlíkingu af 18. aldar sjóræningjaskipi. Kvennagull á villi- götum H j a r t a k n ú s a r i n n Warren Beatty á tvær myndir á topp tíu listan- um yfir stórmyndir sem hafa gert aðstandendum sínum lífið leitt. Hann var aðalstjarnan í myndinni Town & Country frá árinu 2001. Myndin kostaði um 90 milljónir í framleiðslu en náði ekki nema 6,7 milljónum í Bandaríkjun- um. Hún var markaðssett sem kynlífsgrínmynd um miðaldra fólk og ein- hverjir töldu það eitt nægja til þess að gera út af við myndina. Þá hjálpaði ekki upp á sakirnar að það fór slæmt orð af henni alveg frá því hún var á fram- leiðslustigi. Undirbúningurinn tók þrjú ár og samt sem áður hófust tökur án þess að handrit væri til- búið, en slíkt kann sjaldan góðri lukku að stýra. Hátt fall Costners Leikaranum Kevin Costner voru allar leiðir færar í Hollywood eftir að hann fékk Ósk- arsverðlaun fyrir Dances with Wolves, frumraun sína á leik- stjórastóli. Hann fékk því ótak- mörkuð fjárráð til að gera fram- tíðarhasarinn Waterworld árið 1995. Sú mynd stóðst engan veg- inn væntingar aðstandenda sinna og var strax uppnefnd „Fishtar“ með vísan í áðurnefda Ishtar þó hún hafi að lokum náð því að standa á núlli. Costner hélt þó áfram á fall- brautinni og skaut aftur framhjá með hinni skelfilegu The Post- man. Tapið á myndinni gerði nán- ast út af við framleiðandann Warner Brothers en myndin kost- aði um 100 milljónir dollara í framleiðslu en skilaði einungis 17,6 í heimalandinu. Pósturinn sópaði til sín Razzies-skammar- verðlaununum fyrir verstu mynd- ina, versta leikarann, versta leik- stjórann, versta handritið og versta lagið. Costner hefur síðan haldið áfram að klikka í myndum eins og 3000 Miles to Graceland og Dragonfly. Helför hjartarbanans Leikstjórinn Michael Cimino sló í gegn með The Deer Hunter árið 1978. Hann fékk, líkt og Costner, Óskarsverðlaun fyrir leikstjórn og lausan tauminn í sögulega vestran- um Heaven’s Gate, sem var næsta verkefni hans. Kostnaðaráætlun myndarinnar hljóðaði upp á 11,5 milljónir. Stöðugar endurtökur og tafir hjá leikstjóranum keyrðu hana hins vegar upp í 44 milljónir en hann notaði 1,5 milljónir feta af filmu við tökurnar, en það er margfalt meira en venjulegt má teljast. Myndin tók einungis inn 3 milljónir dollara í kvikmyndahús- um í Bandaríkjunum og tapið varð til þess að United Artists fór í þrot og MGM keypti fyrirtækið fyrir lítinn pening. Þetta fjárhagslega stórslys varð síðan til þess að baunateljurum kvikmyndaver- anna óx fiskur um hrygg og leik- stjórar misstu mikið af listrænu frelsi sínu til kvikmyndveranna. Hin alræmda Ishtar Ishtar er síður en svo stærsti skellurinn frá Hollywood en þær miklu væntingar sem voru bundn- ar við hana og aðalleikarana Warren Beatty og Dustin Hoffman urðu til þess að hún er nafntogaðasta og eftirminnileg- asta flopp síðustu áratuga. Myndin kostaði 55 milljónir doll- ara en skilaði einungis 12,7 til baka. Hoffman og Beatty sluppu nokkurn veginn óskaddaðir frá þessari „dýrustu gamanmynd allra tíma“. Þeir fengu báðir 5,5 milljónir fyrir vinnu sína og Hoffman vann Óskarsverðlaunin ári síðar fyrir Rain Man. May hef- ur ekki treyst sér til að leikstýra aftur og hefur helgað sig hand- ritsgerð, enda er Ishtar eins og fyrr segir orðin samnefnari fyrir misheppnaðar risamyndir þó hún hafi komið út á sléttu þegar allt hafði verið gert upp. Bruce Willis kemst upp með allt Bruce Willis ætlaði sér stóra hluti með Hudson Hawk árið 1991 en hann var með puttana í hand- riti þessarar myndar um sam- nefndan innbrotsþjóf. Myndin þótti átakanlega óskemmtileg, samhengislaus og leiðinleg. Myndin kostaði 60 milljónir dollara sem fóru meðal annars í gerð fokdýrra sviðsmynda og tæknibrellna í eftirvinnslunni sem gegnu aðallega út á því að bæta hárum á hálfsköllótt höfuð aðalleikarans. Hudson Hawk var ótvíræður sigurvegari Razziez-verðlaun- anna það árið meðal annars fyrir verstu myndina og versta handrit- ið. Þá var leikstjórinn Michael Lehmann valinn versti leikstjór- inn en myndin stórskaðaði feril hans. Bruce Willis er aftur á móti það stór kall að hann fann ekki fyrir neinu og er enn á fleygiferð þótt myndir hans klikki reglulega. Þau Ben og Jennifer þurfa því ekki að örvænta þar sem Bruce Willis hefur sýnt það og sannað að stórstjörnur sem hafa mikinn slagkraft og reglulega viðkomu í slúðurdálkum geta hæglega lifað af hamfarir á borð við Gigli. thorarinn@frettabladid.is EDDIE MURPHY Varð konungur miðasölunnar upp úr 1980 og nafn hans malaði kvikmyndaframleiðend- um gull. Hann er heillum horfinn í dag og á heiðurinn af stærsta floppi sem sögur fara af. Svo bregðast krosstré... Það er ekki hægt að treysta á neitt í bíóheiminum og framleiðendur kvikmynda geta síður en svo bókað stórgróða þó þeir hendi milljónatugum í framleiðslu kvikmynda og tjaldi stærstu nöfnunum í Hollywood. Áhorfendur láta ekki alltaf bjóða sér bragðdaufar milljónakræsingar. Þetta hafa Ben Affleck og Jennifer Lopez mátt reyna í sumar og eru fráleitt fyrstu stórstjörnurnar sem fá rassskell í miðasölunni. Eitt stærsta flopp sögunnarhlýtur að vera Ishtar með hjartaknúsaranum Warren Beatty og snillingnum Dustin Hoffman,“ segir Guðjón Helgason, frétta- maður hjá RÚV og gagnrýnandi Kvikmyndir.com. „Ég man að ég fór á þessa mynd í bíó, hún er frá árinu 1987 þegar ég var ellefu ára, man ekki alveg hvenær hún kom í bíó hingað. Sagan var einhver della um tvo misheppnaða söngv- ara sem flækjast inn í mikið bak- tjaldamakk og njósnir. Inn í það blandaðist svo blint kameldýr ef ég man rétt. Auk Beatty og Hoffmans var snillingurinn Charles Grodin þarna í stóru hlut- verki. Það er eins og mig minni að mér hafi þótt myndin ágæt þeg- ar ég sá hana í bíó en svo sá ég hana nokkrum árum síðar og þótti ekki sérlega mikið til koma. Beatty og Hoffman reyna að syngja í myndinni og það eitt og sér er áhugavert og svolítið fyndið að sjá og heyra. Myndin er með ótal vísanir til gömlu vegamyndanna með þeim Bing Crosby og Bob Hope þó ég þekki nú ekki nægilega vel til þeirra verka. Myndin tók að ég held ekki inn nema kannski upp í helm- inginn af kostnaðinum. Með stærri floppum og kemst lík- lega á flesta topp tíu lista.“ ■ GUÐJÓN HELGASON „Það er eins og mig minni að mér hafi þótt myndi ágæt þegar ég sá hana í bíó en svo sá ég hana nokkrum árum síðar og þótti ekki sérlega mikið til koma,“ segir Guðjón um mislukkuðu gaman- myndina Ishtar. Ishtar: Misheppnaðir söngvarar og blint kameldýr BEN AFFLECK OG JENNIFER LOPEZ Stjörnuparið fór heldur betur flatt á samstarfinu í Gigli en má þó vel við una þar sem skellurinn sem myndin tók er smávægilegur miðað við það sem aðrar stórstjörnur hafa mátt þola í miðasölunni. WARREN BEATTY Ásamt Andie McDowell í hinni mislukkuðu Town & Country. Myndin var fokdýr í framleiðslu og höfðaði eng- an veginn til bíógesta. Kyntáknið á þann vafasama heið- ur að eiga tvær myndir á listanum yfir stærstu tapmyndir síðustu áratuga. KEVIN COSTNER Byrjaði feril sinn með miklum glæsibrag en hefur gert lítið annað en að tapa peningum á síðustu árum. Nafnið tryggir hvorki gróða né gæði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.