Fréttablaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 39
■ Bíltúrinn 39SUNNUDAGUR 7. september 2003 BMX Birgir Örn Sigurjónsson, söngvari og nemi, Halldór Gunnar Pálsson, gítarleikari og nemi, Þórhallur B. Snædal, bassaleikari og smiður, Hörður Steinbergsson, trommuleik- ari í atvinnuleit, og Hávar Olgeirsson, gítar- leikari og starfsmaður Ratsjárstofnunar. Nóg af kellingum Það er fríhelgi núna hjá okkuren um aðra helgi erum við á Sauðárkróki og Húsavík,“ segir Birgir Örn Sigurjónsson, söngvari hljómsveitarinnar BMX frá Ísa- firði, en þeir piltar hafa þegar sent frá sér tvö lög og myndband- ið við annað þeirra gerði enginn annar en Lýður Árnason læknir á Flateyri: „Það var algjör snilld. Konan hans Einar Odds þingmanns lék í því og allt,“ útskýrir Birgir Örn en myndbandið á að vera væntan- legt í spilun. BMX spilar klassískt íslenskt rokk sem fyllir hús úti á landi og þessa dagana eru drengirnir á fullu að semja músík og vonast til að eiga efni í plötu sem yrði þá tekin upp í vetur. Þeir eru samt komnir það langt í ferlinu að þeir eiga rútu og geta því fyllt hana af fólki og brunað út um allt land. „Þetta er líka mjög traustur hópur sem er í kringum okkur og rútan því fljót að fyllast,“ segir Birgir og hlær þegar hann er spurður út í grúppíur: „Nóg af kellingum, auðvitað!“ ■ Maður fer nú ekki alltaf í samabíltúrinn,“ svarar Dr. Gunni útvarps- og sjónvarpsmaður að- spurður hvert hann fari í sunnu- dagsrúntinn en hann er nýkominn með bílpróf. „Ég bý í vesturbæn- um og fer svo helst í Smáralindina í Kópavogi, þar er að finna helsta menningarlíf okkar Íslendinga. Þaðan fer ég svo kannski í Hafnar- fjörð og skoða útstillingar hjá fast- eignasölunni Ási, því miður hefur lítið verið í boði undanfarið. Svo stoppa ég stundum á Súfistanum í Hafnarfirði. Á leiðinni til baka fer ég svo kannski í Árbæjarlaugina eða Seltjarnarneslaug.“ Ég hóf að byggja húsið árið1954 og hef séð um viðhaldið síðan,“ segir Hálfdan Hannesson, 89 ára athafnamaður, þegar hann fæst til að stíga niður úr 4. hæða stillans við byggingu sína í Ár- múla 44: „Ég leigi út húsið. Hér er m.a. húsgagnaverslun sem heitir HP húsgögn, hreingerningafyrir- tæki og homopataskóli.“ Aðspurður segir Hálfdan að hann komi einn að viðhaldi hússins og þannig hafi það verið frá upp- hafi: „Það þarf að huga að mörgu en þessa stundina er ég að mála húsið að utan. Ætli ég verði ekki nokkra mánuði að ljúka við verkið.“ Blaðamaður náði í Hálfdan í gegnum GSM-símann hans en hann gerir lítið úr því að hann sé tæknivæddari en aðrir jafnaldrar hans: „Ég fékk mér GSM-símann minn aðallega út af öryggisástæð- um og svo þarf fólk líka að geta náð í mig út af húsinu.“ Hálfdan munar ekki um að bregða sér upp á þak ef þörf er á en hann segist ekki hafa nein góð ráð til þeirra sem vilja lifa löngu og góðu lífi. Hann er þó sannfærð- ur um að vinnan sé mannbætandi: „Ég hef alltaf haft mjög góða heilsu. Ég vinn frá 9 til 5 og stund- um til 7 ef mikið er að gera. Maður er stanslaust á hreyfingu allan dag- inn. Ef maður hættir að vinna þá er maður búinn að gefast upp.“ ■ TEBOÐ Í HÁSKÓLANUM Háskóli Íslands hefur hafið kennslu í japönsku og það gengur prýðilega. Það var boðið til veislu um daginn og margur góð- ur gestur þáði te og hlustaði á fyrirlestra. HÁLFDAN HANNESSON Starfaði sem bifvélavirki í fjöldamörg ár en gerðist húseigandi árið 1954 og hefur séð um viðhaldið á húsinu síðan þá. Viðhald HÁLFDAN HANNESSON ■ er 89 ára gamall en er langt frá því að vera 89 ára í anda. Hann sér um viðhaldið á húsinu sínu og hefur sést uppi í stillansi á fjórðu hæð. 89 ára og enn hátt uppi ■ Tónlist

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.